Tíminn - 19.12.1987, Qupperneq 11
Laugardagur 19. desember 1987
Tíminn 11
Umræður um veitingahús Hitaveitunnar:
1700 milljónir
I gæluverkefni
Nokkur orðaskipti urðu á fundi borgarstjórnar á fimmtudag út af
500 milljón króna veitingahúsinu sem Hitaveita Reykjavíkur hyggst
byggja ofan á heitavatnstönkunum í Öskjuhlíð og um þær
framkvæmdir við „gæluverkefni“ sem Reykjavíkurborg hyggst
ráðast í á næstu árum og munu kosta um 1700 milljónir króna.
Það var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sem vakti máls á því að
Hitaveitan ætlaði að byggja 500 milljón króna hús á sama tíma og
dýrar framkvæmdir standa sem hæst við Nesjavallavirkjun. Taldi
hún að nær væri að hækka greiðslu arðs til borgarsjóðs.
Davíð Oddsson borgarstjóri tók
upp hanskann fyrir hitaveituna og
taldi það lítið mál þó hún stæði í
framkvæmdum við veitingahús upp
á hálfan milljarð og Nesjavallavirkj-
un upp á þrjá milljarða á næstu
Lyftari með „gjörgæslukerfi“
Eimskipafélag íslands fékk fyrir
skömmu nýjan Caterpillar gámalyft-
ísafold:
Vinningur
eftir helgi
Vegna tafa í dreifingu á kynning-
arbæklingi ísafoldar hefur verið ák-
veðið að fresta því að draga út
ferðavinninginn þar til eftir helgi.
Vinningsnúmer verður birt í öllum
dagblöðunum þriðjudaginn 21. des-
ember.
ara til notkunar á athafnasvæði sínu
við Sundahöfn. Hann er 65 tonn að
þyngd og getur staflað fullhlöðnum
40 feta gámum í fjögurra hæða
stæður og er lyftigetan 34 tonn.
Caterpillar lyftarinn, sem Hekla
hf. flutti inn til landsins, er ákaflega
auðveldur í notkun og afar fullkom-
inn að tækjabúnaði. Beygjuhringur
hans er aðeins 15 metrar og er
stjórnbúnaður allur vökvaknúinn.
Hann er einnig búinn nýju „gjör-
gæslukerfi" (EMC), sem varar
stjórnandann við ef eitthvað gengur
úrskeiðis varðandi tækið eða vélbún-
aðinn. Gengust starfsmenn Eim-
skips undir námskeið til að læra að
umgangast verkfæri þetta, bæði
væntanlegir stjórnendur, viðhalds-
menn og aðrir. KB
Verslunarsaga V
Skaftfellinga
Út er komið fyrra bindi af Versl-
unarsögu Vestur-Skaftfellinga eftir
Kjartan Ólafsson sagnfræðing og
fyrrv. ritstjóra. Útgefandi er sýslu-
félag Vestur-Skaftafellssýslu. Bókin
er mikið rit, vandað að allri gerð,
413 bls. í stóru broti.
Þetta fyrra bindi sögunnar fjallar
um vöruaðdrætti og verslunarhætti í
sýslunni frá fyrstu tíð fram til 1914.
Sýnir sú frásögn ljóslega hversu
erfiðir allir aðdrættir voru vegna
tregra samgangna á sjó og landi svo
að einstakt var hér á landi. Eiginleg
föst verslunarstarfsemi kemst fyrst á
í Vestur-Skaftafellssýslu eftir að Vík
í Mýrdal fær löggildingu sem versl-
unarstaður2. des. 1887. Ritið kemur
út til að minnast aldarafmælis þess
atburðar.
Rit þetta er til orðið fyrir frum-
kvæði sýslunefndar og sýslumanns
Skaftfellinga, Einars Oddssonar í
Vík. Fól sýslunefnd ritstjórum Dyn-
skóga, héraðsrits Vestur-Skaftfell-
inga, að annast útgáfuna, en þeir eru
Sr. Sigurjón Einarsson, Björgvin
Salómonsson og Helgi Magnússon.
Jafnframt því sem rakin er almenn
verslunarsaga sýslunnar er varpað
ljósi á mannlíf og atvinnuhætti og þá
menn sem voru í fararbroddi í sókn
til framfara og bættra lífskjara. Bók-
ina prýða 400 myndir sem fæstar
hafa birst áður.
Útgáfa þessi hefur m.a. notið
styrkja frá Menningarsjóði Spari-
sjóðs Vestur-Skaftafellssýslu,
Menningarsjóði Sambands ísl. sam-
vinnufélaga, Vísindasjóði og Slátur-
félagi Suðurlands.
þremur árum og borga það beint úr
vösum Reykvíkinga. Hann sagði
veitingahúsið verða fagnaðarefni
fyrir allan almenning og kærkomið í
fásinninu sem ríkir í Reykjavík.
Davíð sagði veitingahúsið verða
ævintýraheim sem útsýnisturn og
aldingarður.
Sigrún Magnúsdóttir sagðist eng-
an veginn geta sætt sig við það að
borgin byggði veitingahús fyrir hálf-
an milljarð. Hún mótmælti því harð-
lega að Reykjavíkurborg eyddi 1500
til 1700 milljónum í gæluverkefni,
þ.e. í ráðhús, Borgarleikhús, Við-
eyjarstofu og veitingahús, á næstu
þremur árum, á sama tíma og fjár-
magn vantar í aðkallandi verkefni.
Sigrún sagði að í sjálfu sér gæti
veitingahús á þessum stað orðið
virkilega skemmtilegt og benti á að
borgarfulltrúar Framsóknarflokks-
ins hefðu lagt fram tillögu um bygg-
ingu veitingahús ofan á heitavatns-
tankana fyrir 10 til 12 árum þegar
ekki var mikið um veitingastaði í
borginni. Taldi Sigrún eðlilegra að
bjóða t.d. flugfélögunum að byggja
veitingahús á þessum stað.
Bjarni P. Magnússon varaði stór-
lega við þeirri þenslu sem Reykja-
víkurborg ýtti undir nteð hinum
gífurlegu framkvæmdum sínum á
næstu þremur árum og vísaði til
untmæla formanns Meistarasam-
bands byggingarmanna í Tímanum,
þar sem hann lýsir þungunt áhyggj-
um yfir þeirri þenslu sém ráðhús-
byggingin óhjákvæmilega skapi.
Sagði Bjarni að borgin væri að ýta
undir verðbólgu og ynni gegn áform-
um ríkisstjórnarinnar um hjöðnun
verðbólgu og þenslu.
- HM
Býður 50 millj.
skr. fyrir
upplýsingarnar
Tímanum hefur borist bréf frá
sænska lögregluráðinu, þar sem
það fer þess á leit að aðstoð verði
veitt, í leit þess að morðingja,
eða morðingjum fyrrum forsæti-
sráðherra Svíþjóðar, Olof Palme.
Palme, setn myrtur var að
kvöldi 28. febrúar 1986, þegar
hann var að koma.af kvikmynda-
sýningu í miðbæ Stokkhólms, var
skotinn af alls óþekktum aðila,
eða aðilum, og hefur sænska
lögreglan staðið ráðþrota gagn-
vart morðinu. Æ meira fé hefur
staðið þeim til boða sem upplýst
getur um málið, en árangurslaust.
Nú hefur verðlaunaféð verið
hækkað í 50.000.000 sænskar
krónur fyrir upplýsingar sem
gætu leitt til lausnar morðsins.
Hægt er að fá féð greitt hvar sem
er í heiminum, allt eftir gjaldeyr-
isreglum hvers lands fyrir sig.
Fullri nafnleynd og trúnaði er
heitið.
Peir sem gætu haft upplýsingar,
geta haft samband við aðalstöðv-
ar lögreglunnar í Stokkhólmi í
síma 46-8-769-4109. - SÓL
Danir vilja gefa
út Gullnu fluguna
Tvö dönsk útgáfufyrirtæki hafa
farið þess á leit við Þorleif Sigurðs-
son að hann veiti þcim útgáfurétt á
mánaðargamalli bók hans, Gullna
flugan. Þetta eru F.F.A.Heidar og
Tiden, sem er nokkuð stórt og þckkt
útgáfa.
Gullna flugan fjallar um sögu
Alþýðuflokksins í tengslum við
verkalýðshreyíingar og m.a. sam-
band hans við sósíaldemókratískar
hreyfingar á Norðurlöndum. Útgef-
andi hér heima er Örn og Örlygur hf.
KB
Wk ■'
; •-•-w. ~ „1..:
~gsr-v:•:>
ái'ftár’ - '*«•. > "
€ •.*
Laxcír
r
i
\
bökfaun Lnxúr
... -í- :■
I
f
Margt hefur gerst á bökkum Laxár í Þingeyjarsýslu fyrr og síðar og á
þar ýmist í hlut heimafólk eða aðkomnir laxveiðimenn.
Jóhanna Álfheiður Steingrímsdóttir rifjar upp í þessari skemmtilegu
bók ýmsa af slíkum atburðum, ekki síst það sem borið hefur við í
grennd við Nes í Aðaldal, þar sem hún er borin og barnfædd.
<á
\bók
\góð bók