Tíminn - 19.12.1987, Side 17
Laugardagur 19. desember 1987
Tíminn 17
Tryggvi Jónsson
forstjóri
Fæddur 14. september 1914
Dáinn 11. desember 1987
Tryggvi Jónsson forstjóri í Niður-
suðuverksmiðjunni Ora h.f. í Kópa-
vogi lést þann 11. þ.m. á gjörgæslu-
deild Borgarspítalans. Útför hans
verður gerð frá Dómkirkjunni kl.
13.30 n.k. mánudag þann 21. des-
ember.
Tryggvi Jónsson var fæddur á
Drangsnesi við Steingrímsfjörð
þann 14. september 1914 og var því
liðlega 73ja ára þegar hann lést.
Foreldrar hans voru Jón Brynj-
ólfsson, kaupmaður og Lovísa Jóns-
dóttir. Tryggvi ólst upp hjá móður-
foreldrum sínum allt frá barnæsku,
þeim Jóni Jónssyni og Önnu Árna-
dóttur, sem gengu honum í foreldra
stað.
Átta ára að aldri flutti Tryggvi til
Akureyrar, þar sem hann stundaði
venjubundið nám og lauk því með
gagnfræðaprófi frá Menntaskóla
Akureyrar. Aðeins átján ára hleypti
Tryggvi svo heimdraganum og hélt
til Svíþjóðar, þar sem hann kynnti
sér niðursuðu og niðurlagningu á
síld. En allt frá bernsku hafði
Tryggvi unnið á sumrin við síldar-
söltun, þar sem hann m.a. kynntist
Svíum, sem hér voru mikið á þeim
árum. Hann byrjaði hjá Ameln
bræðrum í Gravarna, þar sem hann
dvaldi í eitt ár. t>á flutti hann sig til
annars fyrirtækis, til frekara náms.
Það fyrirtæki hét Hállers og Co, en
þar kynnti hann sér niðursuðu á
humri og rækju.
Þegar hér var komið var Tryggvi
vissulega orðinn allvel í stakk búinn
til að takast á við þau verkefni, sem
hugur hans stóð til. Þó setti hann
ekki strax stefnu á heimaslóð en hélt
til Danmerkur og hóf þar störf hjá
P. Lykkeberg við niðursuðu á sjó-
laxi.
Síðla árs 1935 kemur Tryggvi svo
heim til íslands eftir þriggja ára dvöl
í Svíþjóð og Danmörku við störf og
nám reynslunni ríkari og vel
menntaður í sinni grein. Það þótti
því vel við hæfi að hann tók að sér
forstöðu fyrir nýstofnaðri niður-
suðuverksmiðju vestur á ísafirði.
Hér virðist þó útþránni ekki
fullnægt, því eftir ársdvöl á ísafirði
hélt Tryggvi aftur til Danmerkur,
þar sem hann stofnaði Niðursuðu-
verksmiðjuna Vinco ásamt þeim
nöfnum Jóni Helgasyni, kaupmanni
og Jóni Kristjánssyni. Á ísafirði
kynntist Tryggvi eftirlifandi konu
sinni, Kristínu dóttur Magnúsar
Magnússonar kaupmanns þar og
Helgu Jónsdóttur.
Þau Tryggvi og Kristín eignuðust
tvö börn, Magnús framkvæmda-
stjóra í Ora, hann er fæddur 1940,
giftur Guðrúnu Beck, en þeirra börn
eru Tryggvi fæddur 1963, Eiríkur
fæddur 1966 og Magnús fæddur
1975. Anna Lovísa, meinatæknir,
gift Heimi Sindrasyni, tannlækni.
Þeirra börn eru Kristín, fædd 1968,
Sigríður fædd 1970, Frosti fæddur
1975 og Guðrún, fædd 1981.
Þegar stríðið braust út fór Tryggvi
að hugsa til heimferðar og seldi sinn
hlut í dönsku verksmiðjunni.
Eftir heimkomuna hóf hann störf
hjá Niðursuðuverksmiðjunni S.I.F.
og varð síðan forstjóri hennar frá
1944 og gegndi því starfi til 1952.
Árið 1951 stofnaði Tryggvi fyrirtæk-
ið Kjöt og Rengi h.f. ásamt Arnljóti
Guðmundssyni og ári síðar Ora h.f.
með Arnljóti og Magnúsi J. Brynj-
ólfssyni. Síðan runnu þessi fyrirtæki
saman í eitt, Ora Kjöt og Rengi h.f.
og varð Tryggvi strax forstjóri fyrir-
tækisins.
Þeir eru fáir sem ekki kannast við
Tryggva í Ora, svo þekkt er hans
fyrirtæki nú orðið. ORA-niðursuðu-
vörur eru þekktar um allt land og
engan veit ég, sem ekki hafði ánægju
af að eiga viðskipti við Tryggva
Jónsson í Ora. En sem Rotarýfélaga
þekkti ég Tryggva best. En hann var
stofnfélagi í Rotarýklúbbi Kópavogs
og alla tíð virkur í starfi og þó hann
sæktist aldrei eftir virðingarstörfum
þá vann hann ýmis trúnaðarstörf
fyrir klúbbinn og ávallt af stakri
samviskusemi. Má þar nefna jóla-
merkjaútgáfuna, sem gaf góðar
tekjur, er nýttar voru til líknar- og
menningarstarfa á vegum klúbbsins.
Ein af æðstu viðurkenningum
Rotary er Paul Harris orðan, en
hana hlaut Tryggvi 1984, einn fyrstur
félaga í Rotarýklúbbi Kópavogs.
Skapgerðareinkenni Tryggvi
Jónssonar voru róleg yfirvegun, milt
brosið bar með sér hlýju og mann-
kærleika, sem hann átti í svo ríkum
mæli. Við Rotarýmenn í Kópavogi
höfum misst einn okkar allra besta
félaga, enda verður skarð hans
vandfyllt. En mestureraðsjálfsögðu
missir konunnar hans, barnanna og
barnabarnanna, sem við sendum
okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Guð blessi minningu Tryggva
Jónssonar.
Guttormur Sigurbjörnsson
Páll Júlíusson
Fæddur 20. desember 1934
Dáinn 9. desember 1987
Miðvikudaginn 9. desember s.l.
lést á Sjúkrahúsi Akraness, langt um
aldur fram, nágranni minn og vinur,
Páll Júlíusson bóndi Hítarnesi Kol-
beinsstaðahreppi. Páll var fæddur í
Hítarnesi 20. desember 1934 og var
því aðeins tæpra 53 ára er hann lést.
Hann var sonur hjónanna Júlíusar
Jónssonar og Kristínar Stefánsdótt-
ur konu hans. Þau bjuggu allan sinn
búskap í Hítarnesi og eignuðust 11
börn. Tíu þeirra komust til fullorð-
insára og var Páll yngstur. Hann ólst
því upp í stórum og glaðlyndum
systkinahóp og vandist snemma á að
taka til hendinni við öll almenn
bústörf.
Páll tók við búi af föður sínum
árið 1966 og bjó í Hítarnesi æ síðan.
Hann var duglegur bóndi og sá hag
sínum vel borgið. f sinni búskapartíð
bætti Páll jörðina bæði með bygging-
um og ræktun. Hann hafði ákveðnar
skoðanir á þeim málum er hann lét
sig nokkru varða og var fastur fyrir.
Páll var bóngóður og gott til hans að
leita. Hann var og vel látinn af öllum
er honum kynntust, enda maður
kátur og spaugsamur. Gott átti Páll
með að koma fyrir sig orði og lét þá
stundum fjúka í kviðlingum, því
hann var ágætur hagyrðingur eins og
Júlíus faðir hans. Söngmaður var
Páll góður, fljótur að læra bæði lög
og ljóð og kunni ógrynni vísna. Páll
var höfðingi heim að sækja og marga
ánægjustund áttum við saman við
eldhúsborðið í Hítarnesi eða á út-
reiðum, því margt góðra hesta átti
Páll jafnan og kunni vel með þá að
fara. Einn reiðhesta hans, Skeggi,
stóð eitt sinn efstur í flokki alhliða
gæðinga á hestamóti Snæfellings á
Kaldármelum. Ég naut þeirrar
ánægju að verða Páli samferða þegar
farið var á hestamót, í leitir og fleiri
slíkar ferðir og hef ekki í annan tíma
skemmt mér betur. Alltaf vildi Páll
leggja tímanlega af stað og ávallt var
hann vel útbúinn, kátur og glaður.
Gæfa Páls í lífinu var er hann
kvæntist eftirlifandi konu sinni,
Kristbjörgu Þórarinsdóttur, enda
margt líkt með þeim hjónum svo
sem hlýlegt viðmót, létt lund og
reglusemi. Þau eignuðust 5 börn:
Kristínu Júlt'u f. 1962, Aðalheiði f.
1966, Halldór Jón f. 1969, Stefán
Helga f. 1970 og Júlíus f. 1977. Auk
þess gekk Páll 6 börnum Kristbjarg-
ar af fyrra hjónabandi í föðurstað og
kunnu þau vel að meta slíkt ljúf-
menni.
Um mitt þetta ár kenndi Páll sér
þess meins er lagði hann að velli.
Hann tók sjúkdómi sínum af því
æðruleysi og karlmennsku sem hans
var von og vísa, og var heima við
fram undir það síðasta þótt flestir
hefðu þá verið komnir á sjúkrahús
fyrir allnokkru.
Ég og heimilisfólkið á Jörfa þökk-
um vini okkar og nágranna, sem nú
liðkar hesta sína á öðrum vöilum,
samvistirnar að sinni.
Kristbjörgu og börnum vottum
við samúð okkar.
Jónas Jóhannesson.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa
Hans Kr. Matthíassonar,
Orrahóli, Dalasýslu
Sigríður Halldórsdóttir
Matthías Hansson
BörkurHansson
Lára Hansdóttir T rausti Bjarnason
Inga Hansdóttir SævarStraumland
Sigurður B. Hansson Bára Sigurðardóttir
og barnabörn
m
Dregið var í Jólahappdrætti SÁÁ þ. 3. des. um 10
SONY SRF-6 ferða-útvarpstæki. Upp komu eftir-
talin númer:
1144 13959 39787 44163 47552
48710 59856 103064 105376 115665
Þar sem útsending miða dróst á langinn hefur
stjórn SÁÁ ákveðið, að sú regla gildi um þennan
fyrsta drátt, að dagsetning greiðslu skipti ekki máli.
Ef miði er greiddur verður tækið afhent.
Dregið var svo í annað sinn þ. 10. des. um 10 stk.
SONY D-30 ferðageislaspilara. Upp komu eftirtalin
númer:
19155 19581 28812 31263 39424
65772 85089 85659 98833 121327
Dregið var í þriðja sinn þ. 17. des um 10 stk.
rafdrifna leikfangabíla. Upp komu eftirtalin númer:
17770 26928 30853 41527 71187
78352 94343 99278 102790 108002
Númer gíróseðilsins er happdrættisnúmerið og
enn er eftir að draga út 10 MITSUBISHI PAJERO
jeppa, 5 stutta og 5 langa.á öðrum degi jóla þ. 26
des.
Dráttur fer fram í beinni útsendingu á STÖÐ 2
ofantalda daga í þættinum 19:19. Þökkum stuðn-
ing nú sem fyrr.
Sjúkrahús á Siglufirði
Tilboð óskast í innanhússfrágang sjúkraþjálfunar
fyrir sjúkrahúsið á Siglufirði.
Um er að ræða ca 363 m2 svæði á jarðhæð, sem
nú er fokhelt og skal ganga frá því að fullu með
innréttingum.
Verkinu skal skila í tvennu lagi, megin hluta þess
skal fullgera fyrir 1. júní 1988, en síðari hluta fyrir
20. janúar 1989.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borgar-
túni 7, Reykjavík gegn 10.000 kr. skilatryggingu til
og með 5. janúar 1988.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 12.
janúar 1988 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNt 7 SÍMI 26844 .
Einkasímstöð fyrir Stjórnarráðið
Öskað er tilboða í stafrænt einkasímstöðvakerfi
(PABX) fyrir Stjórnarráðið. Áætluð stærð:
500 númer, stækkanleg í a.m.k. 800
40 línur með beinu innvali, stækkanleg í a.m.k. 70
50 úthringingarlínur, stækkanleg í a.m.k. 90
3 skiptiborð, stækkanleg í a.m.k. 5
Útboðsgögn eru seld á skrifstofu vorri, Borgartúni
7, á kr. 1.500.- frá og með þriðjudeginum 22.
desember 1987.
Tilboð verða opnuð á sama stað, föstudaginn 5.
febrúar 1988, kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844