Tíminn - 19.12.1987, Síða 23

Tíminn - 19.12.1987, Síða 23
Tíminn 23 Laugardagur 19. desember 1987 Ánægðir yfir að vera komnirheim til Noregs og voru aðbúasig í fjallaferð . Hér eru þar setn a - ha loksins Slakar á í Fritz Wepper, sem við þekkjum öllu betur sem Harry Klein í Derrrick, fer til Noregs á hverju ári, þar sem hanu stundar veiðar og slakar á. Hann er afskaplega hrifinn af Noregi, eldar norskan mat hemia hjá sér í Miínchen, á norskan elghund og gengur gjarnan í þjóðlegum, norskum föttum. Noregi - Eitt það sem ég nýt mest, segir Wepper, - er að elda norskan jólamat handa fjölskyldunni. í fyrra hafði ég fyrst reyktan lax, síðan elgslundir með góðri sósu, flatbrauð með títuberjasultu og bláber og rjóma í ábæti. Hrein nautn að borða þetta. Ekki aðeins maturinn er norskur, heldur alla jólagjafirnar líka. Wepper fer gjarnan í heimilis- iðnaðarverslanir og kaupir gjafir handa kunningj- unum, til dæmis má geta þess að Leopold prins, bróðir konunnar hans, sem raunar er ekta prinsessa, gengur í norsku „föðurlandi“ þegar hann er á veiðum. Af Derrick-þáttum er annars að frétta, að þeir eru nú sýndir í 96 löndum. Spánn, Portúgal og Svíþjóð eru einu Evrópulöndin, sem enn hafa ekki fest kaup á þeim. Þegar hafa verið gerðir 162 þættir og nýlega hófust upptökur á 40 þátta röð til viðbótar, þannig að Wepper verður að minnsta kosti 200 sinnum Klein, áður en yfir lýkur. Til stenduraðeinn þessara nýju þátta gerist í Noregi., Wepper hugsar ekkert um að „taka Klein af lífi“ eins og það er orðað í þeim útvegi. - Hann er fjármálaráðherra minn, hvort sem mér líkar betur eða verr og þess vegna þarf hann að lifa sem lengst. komnir heim til Drammen! Norsku piltarnir Morten Harket, Magne Furuholmen og Pal Wa- aktaar hafa gert garðinn frægan í heimsreisu sinni og tónleikum í Ástralíu, Japan, Bandaríkjunum og Evrópu á síðastliðnu sumri og fram á haust. Þeir ferðuðust svo um Noreg og héldu nokkra tónleika þar og var vel fagnað, en í Drammen endaði ferðin. Þar héldu þeir tónleika sem gáfu yfir 6 millj. kr. (ísl.) í aðra hönd, en þeir gáfu peningana til góðgerðastarfsemi. Upphæðinni var skipt milli Landssambandsins gegn krabbameini, Amnesty Int- ernational og til landgræðslustarfs. „Drammen-konsertinn var góð- ur endir á sigursælu hljómleika- ferðalagi um heiminn," sögðu þeir í a - ha . Næst á dagskrá hjá strákunum var að fara í rösklegan norskan fjallatúr með skíði og bakpoka og búa í fjallakofa nokkra daga. Slík fjallaferð hafði verið draumur þeirra þegar þeir voru kófsveittir að spila og ferðast í heitum löndum víðs vegar um heiminn. Nýr Chaplin? Eddie Murphy er nú 26 ára og eitt allra „heitasta" nafnið í Hollywood. Kvikmynd hans „Beverly Hills Cop 11“ sópar saman peningum og Eddie er á stöðugum ferðalögum unt heiminn hcnnar vegna um þessar mundir. Um er að ræða tugmilljóna tekjur fyrir hann sjálfan og hann hcfur síst á móti slíku. Hann segist meira að segja stefna að því að verða nýr Chaplin. Ég ætla að gera eins og Chaplin gcrði, segir Eddie. Hann skrifaði handritin sjálfur, lék aðalhlutverkið, leikstýrði og framleiddi. Auðvit- að rann því mest af ágóðanum til hans. Hvers vegna skyldi þeg ekki líka tryggja mér stærstu sneiðina af kökunni? í þessum útvegi er margt fólk, sem hefur maál öðrum gull, en þeg kæri mig ekki um að halda því áfram. Mikið af vinsældum sínum á Eddie það að þakka að hann hvorki reykir né bragðar áfengi og hefur aldrei komið nálægt fíknilyfjum af neinu tagi. Hann hfur einungis átt velgengni að fagna og lifir samkvæmt því. Hann elskar dýra bíla og glæsifatnað og iðulega kaupir hann sér föt fyrir tæpa milljón í einu, ef hann er í þannig skapi. Ég nýt lífsins og sé ekkert athugavert við það, segir Eddie og hefur þær áhyggjur einar að unnusta hans, Lisa Figueroa vill ekki flytja heim til hans í risahúsið í New Jersey. Hún vill giftingarvottorð fyrst, en Eddie hikar. Samt segja þeir sem vit hafa á, að allt bendi til að hann muni láta undan og bráðlega hljómi brúðkaupsklukkur hinum nýja Chaplin. Patrica Burke (t.v.) seldi ensku sunnudagsblaði „uppljóstranir“ og endurminningar um samband sitt við Morten í a - ha. Hún fékk góðan pening fyrir, en Morten segir að þetta sé meiri og minni vitleysa og ekki svara vert, - enda heyrðist ekki orð frá popparanum um málið Hvar sem a - ha piltarnir fóru voru Ijósmyndarar í kring um þá „Lítið þið hingað..“ heyrðist úr öllum áttum

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.