Tíminn - 21.01.1988, Blaðsíða 5
Tíminn 5
Fimmtudagur 21. janúar 1988
Laumuspil Jons B.?:
Skápur hét hann f
fyrradag en fylgi-
hlutur í gærdag
Afgreiðslumenn í hljómtækjaverslunum fengu óvænt skilaboð úr
ráðuneyti fjármála í upphafi vinnudags í gær. Nú skyldi hækka
hljómflutningstækjaskápa um 45% vegna tolla og vörugjalds.
Fylgihlutir
með hljómtækjum
„Þessir herrar í fjármálaráðuneyt-
inu boðuðu í morgun að nú ætti að
breyta þessum skápum. Þeir hétu
ekki lengur hljómtækjaskápar, held-
ur „fylgihlutir með hljómtækjum".
Og þessa fylgihluti hefur ráðuneytið
ákveðið, eftir því sem ég kemst
næst, að skattleggja með 30% tolli
og 15% vörugjaldi. Þetta þýðir að
tollalækkun á hljómtækjasamstæð-
um um áramót, hverfur hægt og
rólega. Þessir skápar voru áður undir
EFTA, sem merkir að þeir voru ekki
tollaðir. Núna kostar einn lítill
hljómtækjaskápur um 11 þúsund
krónur. Éf viðskiptavinurinn hefur
áhuga á einum slíkum með hljóm-
tækjasamstæðunni, verður hann að
greiða þessi 11 þúsund að auki. Að
okkar mati er þetta lúmsk leið
ráðuneytis til að ná aftur þeim
peningum í ríkiskassann, sem hann
glataði með tollalækkuninni um ára-
mót,“ sagði Eyjólfur Jóhannesson,
verslunarstjóri í hljómtækjaverslun-
inni Japis, í samtali við Tímann í
gær.
Rétt er að taka fram að Tíminn
reyndi margítrekað í gær að leita
skýringa ráðuneytis á umræddum
hækkunum, en án árangurs.
Geislinn farinn af spilurum
Þær upplýsingar fengust í Japis í
gær að mismikil lækkun á plötuspil-
urum um áramót, hefði valdið veru-
legum ruglingi í hljómtækjaverslun-
um. Alþingi samþykkti að frá og
með áramótum skyídu plötuspilarar
með gamla laginu lækka mun minna
en nýju geislaspilararnir. Rökstuðn-
ingur fyrir þessari ákvörðun var sá
að þetta drægi úr smygli á geislaspil-
urum. Eyjólfur Jóhannesson, sagði
að þetta væri ekki á rökum reist því
að til þessa hefðu menn einungis
smyglað svokölluðum ferðageisla-
spilurum, sem væru einungis lítill
hluti geislaspilara. Stærstur hluti
þeirra væri tiltölulega stór tæki, og
ekki minni um sig en gömlu gerðir
plötuspilara, og því alls ekki auðvelt
að smygla inn í landið.
Myndbandstækin fljúga út
Það var samdóma álit forsvars-
manna þeirra hljómtækjaverslana,
sem Tíminn hafði samband við í
gær, að tolla- og vörugjaldslækkanir
um áramót, hefðu valdið söluspreng-
ingu á hljómtækjum og skyldum
varningi.
Einkum virðist myndbandstækja-
æði hafa gripið landann. Þau bók-
staflega renna í stríðum straumum
út úr verslunum þessa dagana.
Lækkunin er enda gífurlega mikil.
Sem dæmi má nefna að myndbands-
tæki sem kostaði rúm 43 þúsund
fyrir áramót, fæst nú staðgreitt fyrir
32 þúsund. Að sögn afgreiðslufólks
í hljómtækjaverslunum, var áber-
andi fyrir áramót að fólk hélt þá að
sér höndum með kaup á myndbands-
tækjum og beið eftir lækkuninni.
Geislinn hrapar í verði
Hljómtækjasamstæður lækka og
umtalsvert. Samstæða sem kostaði
59 þúsund krónur fyrir áramót, fór
niður í 51 þúsund. Og önnur sem
kostaði 56 þúsund lækkaði niður í 48
þúsund.
Geislaspilarinn, sem nú er að
sönnu tískufyrirbæri í heimi hljóm-
tækjanna, fæst fyrir mun minni pen-
ing en áður. Dæmi er um 5 þúsund
króna lækkun, úr 25 í 20 þúsund.
Jól fram í janúar
og nóg af peningum
En fleira hefur lækkað en hljóm-
tæki og myndbandstæki. Skrifstofu-
Dýrt er drottins orðið. Nú hefur þessi hljómtækjaskápur runnið sitt skeið á
enda, a.m.k. sem skápur. Nú fæst hann gegn 11 þúsund króna greiðslu, sem
„fylgihlutur með hljómflutningstækjum“, samkvæmt skilgreiningu fjármála-
ráðuneytisins. (Tímlnn: PJetur)
vélar ýmisskonar, t.d. reikni- og
ljósritunarvélar, hafa lækkað um allt
að helming. Svokölluð telefaxtæki
lækkuðu í verði, úr tæpum 200
þúsundum í rúmar 100 þúsund
krónur. „Jólin hættu ekki í verslun-
inni þann 1. janúar. Þau héldu þvert
á móti áfram, og standa enn. Og það
er athyglisvert að fólk staðgreiðir
það sem keypt er nú, þrátt fyrir að
dýrasti mánuður ársins sé nýliðinn.
Það er ekki að sjá að peningaskortur
hrjái fólk. Ég er á þeirri skoðun að
ef þetta lága verð helst áfram, verði
salan jafnari en áður, m.ö.o. ekki
eins árstíðabundin," sagði Halldór
Halldórsson, verslunarstjóri í
Hljómbæ. óþh
Átak MODERN ICELAND og Skáksambandsins:
Skilar Afrekssjóði
SÍ hálfri milljón
Steingrími Hermannssyni, utanríkisráðherra, afhent fyrsta eintak skákblaðs
MODERN ICELAND. Við hlið Steingríms standa þeir Þráinn Guðmunds-
son, forseti Skáksambands íslands, Magnús Ólafsson framkvæmdastjórí
Forskots og Róbert Melik, ritstjóri MODERN ICELAND.
Sameiginlegt átak tímaritsins
MODERNICELAND og Skáksam-
bands íslands skilaði Afrekssjóði
Skáksambandsins rúmlega hálfri
milljón króna. Steingrímur Her-
mannsson utanríkisráðherra var
verndari átaksins sem að sögn Þráins
Guðmundssonar forseta SÍ gerði
herslumuninn á að Jóhann Hjartar-
son gæti undirbúið sig almennilega
fyrir einvígið við Viktor Kortsnoi.
í nýjasta hefti MODERN ICE-
LAND er fjallað sérstaklega um
íslenskt skáklíf í tilefni skákeinvígis-
ins í Saint John í Kanada. Fjallað er
í máli og myndum um sögu skáklist-
arinnar á íslandi, rætt er við Jóhann
Hjartarson um það hvernig sé að
vera skákmaður á íslandi og birt er
skák frá millisvæðamótinu í Ung-
verjalandi síðastliðið sumar. Þá eru
greinar um ráðstefnur og ferða-
möguleika á íslandi, frímerki, efna-
hagsmál og leiklistarlíf.
Þúsundum eintaka af MODERN
ICELAND verður dreift í Saint
John þar sem einvígi Jóhanns
Hjartarsonar og Viktors Kortsnois
ve.ður haldið, en það hefst nú um
helgina. Meðal annarra mun Hilton
og Holiday Inn hótelin dreifa blað-
inu meðal gesta sinna.
Að sögn Þráins Guðmundssonar,
forseta Skáksambandsins, standa
skákmenn í mikilli þakkarskuld við
þau fyrirtæki sem studdu íslands-
kynninguna í Kanada með auglýs-
ingum í MODERN ICELAND.
Þessi fyrirtæki eru Útvegsbankinn,
Flugleiðir, VISA, Landsbankinn,
Búnaðarbankinn, íslenskir aðal-
verktakar, iðnaðarráðuneytið, iðn-
þróunarsjóður, SÍS og ÁTVR.
Kemur upp á öllum fundum Borgaraflokks:
Harðlega sóst
eftir stórri
flokksstjórn
A fundi Borgaraflokks í Holiday
Inn á þriðjudag gagnrýndi Guðjón
Ó. Hansson, leigubílstjóri, forystu
flokksins. Einu sinni sem oftar,
segir Albert Guðmundsson,
flokksformaður, því að Guðjón
mun hafa haft stærð flokksstjórnar-
innar á hornum sér frá upphafi og
notað hvert tækifæri sem gefst til
að vekja máls á því, að hún sé að
sínu mati of fámenn. Fundarmaður
ber að Guðjóni finnist vera klíku-
stjórn á Borgaraflokki.
Gagnrýni þessari svaraði Albert
á þá leið, að ef almenn óánægja
væri með forystu flokksins, væri
hægt að fara fram á nýjan lands-
fund og ganga til kosninga innan
flokksins á ný.
„Það er alltaf verið að reyna að
búa til vandamál innan Borgara-
flokksins,“ sagði Albert Guð-
mundsson við Tímann í gær. „En
vandamálin eru ekkert þar. Það
verður að leita þeirra annað.“
Albert sagði að það væri sama
hvar í flokki menn stæðu, flokks-
menn gætu alltaf farið fram á nýjar
kosningar innan flokks ef almenn
óánægja væri með forystuna. Hann
sagðist ekki hafa heyrt gagnrýni á
forystu flokksins nema frá Guð-
jóni.
„Borgaraflokkurinn er opnari en
allir aðrir flokkar. Landsfundur er
fundur allra flokksfélaga, en ekki
einhverra sérstakra fulltrúa. Það
hafa allir aðgang," sagði Albert.
„En það er bara kjaftæði að það
hafi verið boðið upp á nýjan
landsfund. Hið rétta er, að I Borg-
araflokknum er hægt að fara fram
á slíkt, rétt eins og í öðrum
flokkum."
Albert sagði Guðjón hafa átt
sæti í nefnd, sem hefði samið Iög
fyrir flokkinn. Þar hafi hann þegar
verið á öndverðum meiði við aðra
nefndarmenn og viljað fleiri en
tuttugu stjórnarmenn. Aðrir vildu
hafa þá níu talsins. Til að mæta
Guðjóni, sagði Albert, var fallist á
að hafa stjórnarmenn fimmtán og
samþykkti landsfundur það.
„Hann hefur bara aldrei sætt sig
við þetta,“ sagði Albert Guð-
mundsson. „Á öllum fundum talar
hann um sama málið. Þetta hefur
komið upp á þeim öllurn!"
w