Tíminn - 21.01.1988, Blaðsíða 11

Tíminn - 21.01.1988, Blaðsíða 11
Tíminn 11 Fimmtudagur 21. janúar 1988 'lllllllllilllllilllllllllll IÞRÓTTIR i:i::llií:!lí:.'N!íi;!J-i...... .............................. .liilllíi- Molar ■ÁKVÖRÐUN UM ÞÁTTTÓKU ENSKRA UÐA FRESTAD FRAM í MAÍ Ákveðið var á fundi fram- kvæmda.vtjúrnar knattspyrnu- sanibands Evrópu í gær að fresta endanlegri ákvörðun um þátt- töku enskra knattspymuliða í Evrúpukcppninni að nýju fram í niní. Yrði ákveðið þá að taka enska i sátt gwti svo furið að leyfið yrfti afturkallað ef áhang- endur iiðanna jhöguðu sér ekki vel. ftalska íþrúttablaðið Gaz- zetta Dello Sport skorafti í gær á ráðamenn að leyfa enskum liðum þátttöku að nýju. Bannið kom í kjölfur úláta á úrslitaleik Liver- pool og Juvcntus í Brusscl þur sem 39 mpnns, flestir ftalir, létu lífift. ■ ARAGONES FARINN Á TAUGUM Álagið á I.uis Aragones þjálfara Barcelona hefur verið mikið að undanfömu en hann túk við lið- inu í scptember í slæmri stöðu. Liðið færðist fyrst upp á vift í deildinni en er aftur á niðurleið og hefur Aragones í kjölfar þess þurft að taka sér frí. Búist er vift aft hann nái sér á u.þ.b. tveimur vikum. Aragones hefur áður þurft að taka sér hvíld frá þjálfun vegna þunglyndis. ■ ELKJÆR TIL RIVER PLATE? Svo gæti farift aft Preben El- kjær Larsen landsliðsmaður Dana í knattspýrnu leiki á næst- unni með argentínska stúrliftinu River Plate. Verona, lift Elkjærs á ftalíu, hefur áhuga á að skipta á honum og argentínsku stjörn- unni Claudio Caniggia og fá yfir 2,5 milljúnir dollara í milli. ■ BAILEY TIL JÓHANNESARBORGAR Gary Baiiey fyrrum markvörður Englands og Manchester United hefur ákveðið að fara að spila knattspyrnu að nýju, meft lifti Kai/.er Chiefs í Júhannesarborg. Bailey sem er fæddur í S-Afríku varð aft hætta knattspyrnuiftkun um tíma vegna hnémeiðsla. Úrslit leikja í bandarísku at- vinnumannadeildinni í körfu- knattlcik á þriðjudagskvöld (heimalið á undan); Atianta-Cbicago............ 106-94 San Antonio-Milwaukee...... 110-104 Sacramento-Houston....... 104-107 Portiand-Dollas ........... 116-120 Körfuknattleikur: Stjörnuleikur Stjörnuleikur KKÍ og Samtaka íþróttafréttamanna verður haldinn í íþróttahúsinu að Hlíðarenda mið- vikudaginn 27. janúar. Þar keppa úrvalslið sem valin voru af íþrótta- fréttamönnum; suðurnes - landið. Stjörnukvöldið hefst með troð- keppni kl. 19.30 og síðan þriggja stiga keppni. Fjórir leikmenn af þeim 10 sem hefja keppni fara í úrsiit. Sjálfur stjörnuleikurinn hefst kl. 20.30 en úrslit í troð- og þriggja stiga keppninni verða í hálfleik. Til mikils er að vinna fyrir keppendur því sigurvegari í hvorri keppni fær kr. 15.000 í sinn hlut og besti maður leiksins fær kr. 20.000. Sérstök dóm- nefnd mun velja mann leiksins og dæma í troðkeppninni. Liðin sem keppa í stjörnuieiknum verða þannig skipuð: LANDIÐ Jóhannes Kristbjörnsson KR Pálmar Sigurðsson Haukum Tómas Holton Val Henning Henningsson Haukum Birgir Mikaelsson KR Leifur Gústafsson Val Torfi Magnússon Val ívar Webster Haukum Símon Ólafsson KR Bjöm Steffensen ÍR Þjállari: Einar Bollason (ÍR) SUÐURNES Guðjón Skúlason ÍBK ísak Tómasson UMFN Jón Kr. Gíslason ÍBK Hreiðar Hreiðarsson UMFN Hreinn Þorkelsson ÍBK Teitur Örlygsson UMFN Valur Ingimundarson UMFN Guðmundur Bragason UMFG Helgi Rafnsson UMFN Magnús Guðfinnsson ÍBK Þjálfari: Gunnar Þorvarðarson (ÍBK) Dúmaran Jón Otti Ólafsson og Sig- urður Valgeirsson. í þriggja stiga keppninni keppa 10 mestu þriggja stiga skorarar úrvals- deildar en 10 kunnir „troðarar" í troðkeppninni. TROÐKEPPNI Teitur Örlygsson UMFN Valur Ingimundarson UMFN Helgi Rafnsson UMFN Ólafur Gottskálksson ÍBK Jón Kr. Gíslason ÍBK Magnús Guðfinnsson ÍBK Guðmundur Bragason UMFG Birgir Mikaelsson KR Tómas Holton Val ívar Webster Haukum ÞRIGGJA STIGA KEPPNI Karl Guðlaugsson ÍR Valur Ingimundarson UMFN Pálmar Sigurðsson Haukum Hreinn Þorkelsson ÍBK Guðjón Skúlason ÍBK Ástþór Ingason KR Birgir Mikaelsson KR Jóhannes Kristbjörnsson KR Teitur Örlygsson UMFN Jón Kr. Gíslason {BK - HÁ Þeir koma til með aft berjast í stjörnuleiknum í næstu viku: Torfi Magnússon og Leifur Gústafsson úr Val gegn Hreiðarí Hreiðarssyni og Val Ingimundar- syni úr UMFN. Handknattleikur - 1. deild kvenna: Kristín í stuði Katrín Friðriksen átti einnig ágætan dag og skoraði sjö mörk. Aðrar Valsstúlkur hafa yfirleitt leikið betur. Batnandi liði er best að lifa. KR-stúlkurnar stóðu vel í Valsliðinu og þótt stigin séu aðeins 4 eftir ellefu leiki er víst að með slíkri frammist- öðu á KR eftir að sækja nokkur fleiri stig. Sigurbjörg Sigþórsdóttir skor- aði níu mörk fyrir KR, mörg með fallegum langskotum. Snjólaug Benjamínsdóttir og Birthe Bitsh áttu einnig góðan leik að ógleymdri Ástu Gylfadóttur í markinu. Þá sigruðu FH-stúlkurnar lið Þróttar í Hafnarfirði. Sigurinn var öruggur 32-14 og Þróttur er því enn án stiga. Fram ............. 11 10 1 0 271-152 21 FH ............... 12 9 0 3 256-184 18 Valur............. 12 9 0 3 248-188 18 Vikingur.......... 11 5 0 6 210-203 10 Stjaman........... 12 5 0 7 253-259 10 Haukar............. 10 4 1 5 199-172 9 KR ............... 11 2 0 9 150-256 4 Þróttur.......... 11 0 0 11 149-305 0 hb Handknattleikur, 2. deild karla: Fyrsta tap Eyjamanna ÍBV tapaði sínum fyrsta leik í 2. deildarkeppninni í handknattleik í gærkvöldi. Það voru Haukar frá Hafnarfirði sem sigruðu Eyjamenn í Hafnarfirði með 24 mörkum gegn 2°. Úrslit annarra leikja urðu þau að Njarðvíkingar unnu Aftureldingu 24-23, Selfoss tapaði fyrir Gróttu á heimavelli sínum 24-28 og Reynir lagði HK í Sandgerði 31-29. Staðan í 2. doildinni: ÍBV..................11 9 1 1 292-231 19 HK ..................11 7 1 3 253-242 15 Grótta ............. 10 6 2 2 280-253 14 Njarðvík..............11 7 0 4 274-267 14 Haukar............... 11 6 1 4 271-242 13 Reynir S............. 11 6 0 5 246-259 12 Selfoss............. 10 3 1 6 215-253 9 Ármann................ 9 2 1 6 188-213 5 Fylkir.............. 10 1 1 8 215-264 3 UMFA ............... 10 1 0 9 207-235 2 Ólafur valinn íþróttamaður Akraness Knattspyrnumaðurinn Ólafur Þórðarson var einróma valinn fþróttamaður Akraness 1987. Það er stjórn Iþróttabandalags Akraness sem að kjörinu stendur. Ólafur er vel að þessari viður- kenningu kominn. Hann var einn af burðarásum ÍA liðsins á síðasta keppnistímabili og lék með þremur landsliðum á árinu, A-landsliðinu, Ólympíulandsliðinu og 21 árs lands- liðinu, alls 10 landsleiki. Ólafur Þórðarson, íþrúttamaður Akraness 1987, með bikarinn sem fylgir nafnbútinni. Kristín Arnþórsdóttir var í fínu formi þegar Valur sigraði KR með 24 mörkum gegn 18 í 1. deildar- keppninni í handknattleik í gær- kvöldi. Kristín skoraði níu mörk fyrir sitt lið og sýndi snjalla takta. Unglingalandsliðið i badminton er komið til Cardiff í Wales þar sem keppt verður í Finlandia-Cup - Evrúpukeppni unglingalandsliða 18 ára og yngrí. íslendingar eru með Norðmönnum og Frökkum í riðli og keppa í B-keppni en 6 bestu þjúðimar keppa í A-keppni. Á myndinni er húpurinn, frá vinstrí: Júhann Kjartansson þjálfari, Njáll Eysteinsson, Hafdís Böðvarsdúttir, Jún Zimsen, Óli Björn Zimsen, Biraa Petersen, Berta Finnbogadúttir, Sigríður Geirsdútt- ir, Karl Viðarsson, Sigríður M. Júnsdúttir fararstjúri. Enski deildarbikarinn: Manchesterliðin féllu bæði úr leik Oxford, Everton, Arsenal og Luton leika í undanúrsiitum ensku deildarbikarkeppninnar. í gær fóru fram þrfr leikir og féllu þá bæði Man. Utd og Man. City úr keppni og auk þess mátti lið Sigurðar Jónssonar, Sheffield Wed., bfða ósigur á heimavelli sínum Hillsborough fyrir Arsenal. Everton reyndist of sterkt fyrir Man. City og sigraði 2-0. Mörkin skoruðu Adrian Heath og Graeme Sharp. Oxford tapar bara ekki á heimavelli, hafa ekki gert það í síðustu 27 leikjum. Stórliðið Man.Utd gat þar engu breytt og tapaði 2-0. Mörkin skoruðu Dean Saunders og Gary Briggs. Leikmenn Sheffield Wed. voru út um allt gegn Arsenai og virtust hafa leikinn í hendi sér en mark langt utan af velli frá Nigel Winterburn varð þeim að falli. Luton hafði áður sigrað Bradford 2-0 og unnið sér rétt til þátttöku í undanúrslitunum. hb Körfuknattleíkur: Sturla og Valur í eins leiks bann Njarðvfldngarnir Sturla Örlygs- son og Valur Ingimundarson hafa vcrið dæmdir í eins leiks bann i körfuknattleik. Sturla lcnti í handalögmálum í lcik gegn ÍR en Valur fékk tvær tæknivillur í leik gegn ÍBK. Þeir missa báðir af mikilvægum leik á föstudagskvöld- ið, bikarleik gegn ÍBK í Njarftvík. UMFN vann fyrri leikinn 88-83 og gæti íjarvera þeirra Sturlu og Vals orftift til þess aft Njarðvíkingar féllu úr leik í bikarkeppninni. - HÁ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.