Tíminn - 21.01.1988, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 21. janúar 1988
Tíminn 15
llllllll MINNING lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Ólafur Haukur
Matthíasson
Fæddur 19. mars 1898
Dáinn 28. desember 1987
Snyrtimennið sitjandi við skrif-
borðið sitt þar sem allt er í röð og
reglu, bækur í skinnbandi með gyllt-
um nöfnum og röndum, óaðfinnan-
lega raðað í háum vegghillum á þrjá
vegu. Dauf birta lýsir upp stofuna en
skrifborðslampi gerir nettri hendi
fært að stýra lindarpenna í þaulæfð-
um sveigum leikandi létt yfir mjall-
hvíta örk.
Þessi mynd kemur í huga mér nú
er ég hugsa til baka. Sem barn dvaldi
ég fyrst á heimili Óla og Ástu í Rvík,
sveitastrákur frá Borgarnesi í höfuð-
staðarferð.
Móðurbróðir minn hann Óli Matt.
er nýlátinn- og jarðsunginn 5. þ.m.
frá Dómkirkjunni í Rvík.
Vinskapur okkar Óla hélst alla tíð
og árlega áttum við dagstund saman
á heimili móður minnar en þau voru
sérlega samrýmd, allt frá bernsku.
Greiðvikni Ólafs var með þeim
hætti að seint gleymist. Allt gert
með glæsibrag. Höfðingi vestan frá
Haukadal í Dýrafirði að sinna kalli
samviskunnar. Systkini mín og vinir
eru hluti af sjálfum mér, sagði hann
eitt sinn.
Glaðværðin var Óla í blóð borin
og á góðra vina fundum, var hann
hrókur alls fagnaðar. Sögur, söngur
og leikur lét honum vel, ekki sakaði
angan af góðum vindlum- og gullnu
glasi, eðalvín dreypt í hófi.
Kímnin er rík í þessari ætt og
margar sögulýsingar kryddaðar eftir
þörfum og tilefnum í það og það
skiptið. Eftirfarandi lýsing segir sitt.
Ölafur hefur orðið: Þetta var um
sumarið þegar hitinn komst dag eftir
dag í 18°. Ég var á heimleið, bjó hjá
BÆKUR
Holt
og
bolt
Bókaútgáfan Letur hf. hefur sett
á markað ljóðabók eftir Jón Þorleifs-
son. Bókin heitir „Holt og bolt“.
Áður hefur Jón skrifað útvarpssögu,
leikrit, skáldsögur, sagnfræðirit og
ljóðabækur. „Holt og bolt“ er tíunda
bók Jóns Þorleifssonar.
Þó að Jón Þorleifsson sé rösklega
sjötugur njóta bækur hans nokkurr-
ar hylli meðal ungu kynslóðarinnar.
Yngri skáld hafa lesið úr verkum
hans á samkomum og rokkhljóm-
sveitir Sigurðar „Pönks“ Ágústsson-
ar, Bítnecks, Garg & geðveiki o.fl.,
hafa fært verk Jóns í músíkbúning
og flutt þau á tónleikum. Glöggir
menn greina jafnvel áhrif frá Jóni í
einstaka söngtextum rokkkonungs-
ins, Bubba Morthens.
Ljóð Jóns fjalla mörg um erfiða
stöðu þeirra sem minna mega sín og
viðskipti þeirra við yfirvaldið og
spillta verkalýðsforingja, sem Jón
kallar reyndar verkalýðsrekendur. I
„Holt og bolt" fá þessir í síðastnefn-
da hópnum nokkrar kaldar kveðjur.
Öll ljóðin eru nafnlaus. Þau eru hátt
í sjötíu talsins, allt frá stökum ortum
í hefðbundnum stíl, til fimm blað-
síðna órímaðra ljóða.
„Holt og bolt“ er 71 bls. og kostar
kr. 780.-.
dóttur minni, tengdasyni og tveim
börnum þeirra. Leið mín lá um
Miklatorg, þar var lítill söluturn og
hugðist ég kaupa munngæti handa
litlu krílunum „hans afa“, hádagur
var, ekki ský á himni, birtan því
mikil. Sólgleraugun gleymdust
heima svo ég keypti mér ódýr gler-
augu. Annars var sjónin farin að
dofna um þetta leyti, ég sá allt í
móðu, en áfram skálmaði ég sem
leið lá norður Rauðarárstíg með
sælgætið í vasanum og gleraugun
nýju á nefinu, með samanbrotinn
frakkann á arminum og hattinn í
hendinni. Sólargeislarnir og þýð haf-
golan gældu við silfrað hárið og
grænt laufið í trjágörðum húsanna.
Teinréttur sprangaði ég, sveiflaði
montprikinu og raulaði fyrir munni
mér „Nú er sumar gleðjumst
gumar“.
Margir, bæði ungir sem aldnir
urðu á leið minni og heilsaði ég
óspart á báða bóga en mótkveðjur
voru hálf snubbóttar, sumir meira
að segja hlógu, hló ég bara á móti og
fuglarnir í trjánum tóku undir.
Sólskinið léttir allra lund. Það var
dásamlegt að lifa og raulandi hélt ég
göngunni áfram. Að Hlemmtorgi
kom ég í tæka tíð og steig upp í
Vogavagninn en varð að standa upp
á endann. Fljótt veitti ég því athygli
að nærstaddir farþegar stungu saman
nefjum hvísluðust á og nokkrir fliss-
uðu. Ég fór að skima eftir tilefninu
en sá ekkert.
Á horni Skeiðarvogs og Lang-
holtsvegar er verslun, þar yfirgaf ég
vagninn, fannst vissara að ná mér í
neftóbaksdós fyrir kvöldið. Háttalag
afgreiðslustúlkunnar fannst mér all
kindugt. Hlæjandi gaf hún mér til
baka, takandi bakföll, og skellandi
sér á lær slagaði hún frá borðinu.
Ég feiddist þessari framkomu og
hafði orð á því er ég hraðaði mér
út úr búðinni.
Smám saman á göngunni yfir
holtið, rann mér reiðin, fór að gruna
margt nam staðar og þuklaði mig
hátt sem lágt en fann ekkert athuga-
vert, fyrr en ég tók af mér gleraugun
til að þurrka af þeim rykið. Þar var
hláturefnið að finna. Á öðru glerinu
var vörumerkið, á hinu verðmiðinn.
Það dillaði í mér hláturinn er ég í
huganum fór yfir ferðasöguna alla.
Óaðvitandi hafði hálf blindur maður
skemmt þorra Reykvíkinga svo um
munaði. Ekki veitti af, þjóðin er
þjökuð í villtum dansi kringum gull-
kálfinn, og sljó af tilgangsleysinu.
(Frásögn Ölafs lýkur).
Það er aðalsmerki góðra lista-
manna að sjá það spaugilega í eigin
fari og gera því skil.
Á leiksviði getur komið sér vel að
búa yfir ýmsum hæfileikum, til að
mynda söngrödd, réttri framsögn og
leiktækni. Ólafur átti þetta allt í
nokkrum mæli og var óspar, meðan
heilsan leyfði, að miðla öðrum af
þekkingu sinni.
Fáguð persóna, æðrulaus ljúfling-
ur hefur leikið sitt síðasta hlutverk í
lífsleiknum. Vestfirðingurinn sem
var hetja til hinstu stundar, uns
tjaldið féll.
Góður drengur, vinur bróðir
gleymist ei
meðan tórir gömul mey.
Hinsta kveðja frá Hlíf systir!
Hví skyldi sálin hræðast Hel
þótt hverfum duftið í?
Guðs náð er sífellt sólarhvel
og sérhvern morgun ný.
Hassi.
Starísíræðslune í n d
fiskvinnslunnar
150 REYKJAVÍK - SlMI 686095
Verkstjóranámskeið fiskvinnslunnar hefj-
ast að nýju í Hótel Borgarnesi að morgni
28. janúar.
Kenndar verða samtímis fyrri og seinni
önn.
Verkstjórar eru hvattir til að láta þessi
námskeið ekki framhjá sér fara og skrá sig
hjá skrifstofu
Starfsfræðslunefndarinnar í síma 91-
686095 fyrir þriðjudaginn 26. janúar.
m Félagsstarf
'V aldraðra hjá
Reykjavíkurborg
auglýsir eftirtalin störf:
1. Laus staða forstöðumanns í félagsmiðstöðina
á Norðurbrún 1, æskileg menntun og reynsla á
félags- og stjórnunarsviði.
2. Starfsmaður í aðstoð við böðun 60% starf í
Furugerði 1.
Allar nánari upplýsingar eru veittar hjá deildar-
stjóra í símum 689670 og 39225 frá kl. 10-12.
Umsóknarfrestur er til 26. janúar 1988.
Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannahaldi
Reykjavíkurborgar í Pósthússtræti.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
TÖLVUNOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðír eyðublaða fyrir tölvuvinnslu.
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000
BÆNDASKQLINN HQLUM Í HJALTAQAL
Hólaskóli auglýsir!
Starfsmaður óskast sem fyrst að loðdýrabúi
Bændaskólans á Hólum. Búfræðimenntun æski-
leg.
Umsóknarfrestur til 31. janúar.
Upplýsingar gefnar í síma 95-5961 - 95-5962.
Bændaskólinn á Hólum í Hjaltadal
551 Sauðárkrókur
t
Faöir okkar,
Brynjólfur Guðmundsson
fyrrum bóndi,
Sólheimum, Hrunamannahreppi
lést 20. janúar á Sjúkrahúsi Suðurlands Selfossi.
Guðrún Brynjólfsdóttir
Erla Brynjólfsdóttir
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vináttu við
andlát og útför
Eyþórs Einarssonar
Kambahrauni 8, Hveragerði
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 11A á Landspítalanum og
starfsfólks Sjúkrahúss Suðurlands.
Guðborg Aðalsteinsdóttir
Emma Eyþórsdóttir Brynjólfur G. Brynjólfsson
Einar Eyþórsson Gunn Randi Kristensen
Arnheiður Eyþórsdóttir Gylfi Guðmarsson
Aðalsteinn Eyþórsson Erla Einarsdóttir
Lilja Guðrún Eyþórsdóttír Haraldur Benediktsson
Sigurður Eyþórsson
Ásgerður Eyþórsdóttir