Tíminn - 21.01.1988, Page 19
Fimmtudagur 21. janúar 1988
Tíminn 19
Þau hafa valdið æði í Bandaríkjunum. Patrick Swayze og Jennifer Grey
í djörfum dansi
þrátt fyrir æðið sem hefur runnið á
bandarískar konur í hans garð. Þó
segist hann ekki leggja í að sjá
myndina í kvikmyndahúsi, hann
hafi einu sinni reynt það og
minnstu munað að illa færi.
í hlutverki ungu stúlkunnar er
Jennifer Grey og henni þykir meira
en nóg um allan gauraganginn.
Hún neitar að lesa öll aðdáenda-
bréfin, hvað þá svara þeim, og ber
því við að öll þessi dýrkun sé
„meira en lítið dularfull".
En bandarískir áhorfendur
hugsa gott til glóðarinnar að geta
keypt myndina á myndbandsspól-
um þegar loks verður hætt að sýna
hana í bíó. Og enn meira tilhlökk-
unarefni er þeim náttúrlega þegar
framleidd verður framhaldsmynd,
sem bandarískir kvikmyndafram-
leiðendur eru vanir að gera þegar
þeir hafa dottið niður á slíka gróða-
lind.
(djörfum
dansi
veldur æði í Bandaríkjunum
- konur sitja í bíó heilu og hálfu dagana
og gefa sér ekki tíma til aö borða!
Bandaríska kvikmyndin í djörf-
um dansi (Dirty Dancing) hefur
verið sýnd hér á landi á þriðja
mánuð við miklar vinsældir. Engar
fréttir hafa þó borist af því að
myndin hafi valdið slíku fári hér
sem f Bandaríkjunum, en þar er
engu líkara en að fjöldi fólks,
einkum kvenna hafi ánetjast henni
líkt og fíknilyfi!
Nú er svo komið að konur eru að
berjast við að „hætta“ að sjá mynd-
ina og reynist mörgum það erfitt.
43ja ára kona í New York er
handviss um að hún geti „hætt“
þegar hún vill og setur markið við
að fara ekki í 26. skiptið. Hún er
þegar búin að sjá hana 8 sinnum.
Aðrar konur kæra sig ekkert um
að „hætta“, halda því fram að það
hafi ýmsa kosti í för með sér að
vera ánetjaður myndinni. Ein
þeirra, Mallory Longworth í Mich-
igan, segist hafa lést um 20 kíló
síðan hún fór að venja komur sínar
í bíó til að sjá í djörfum dansi. Hún
fer stundum tvisvar á dag og segist
vera búin að sjá myndina 125
sinnum! Það er ekki von að hún
hafi tíma til að borða líka.
Ekki er vitað til að líf fólks hafi
tekið miklum breytingum þó að
það stundi kvikmyndasýningarnar
af kappi, nema þá helst hjá Mar-
lene Duffy sem vinnur í bíó í
Brooklyn. Hún fer oft í vinnuna
tveim tímum áður en hún á að vera
mætt til að geta horft á myndina
einu sinni enn og segist nú vera
búin að sjá hana 108-109 sinnum.
f stórverslunum má oft heyra á
tal manna og kvenna sem ræða
saman á tilvitnunum í myndina!
Myndin í djörfum dansi þótti
ekki líkleg til að vekja mikla at-
hygli. Hún kostaði innan við 6
milljónir dollara en bandarískir
áhorfendur hafa þegar skilað 50
milljónum dollara í kassann. Tón-
listin í myndinni var vikum saman
í efsta sæti vinsældalista og fór þar
fram úr Michael Jackson og Bruce
Springsteen. Alls seldust 3 milljón-
ir eintaka af plötunni. Aðdáendur
geyma riflingana af bíómiðunum
sínum í skókössum og annars stað-
ar og veggspjald með mynd af
aðalleikaranum, sem gefið var út í
25.000 eintökum, seldist óðara
upp.
f stuttu máli er í myndinni sagt
frá sumarástarævintýri stúlku, sem
Mallory Longworth er mjög ánægð
með það tómstundagaman sitt að
horfa á í djörfum dansi. Hún er
búin að sjá myndina 125 sinnum og
hefur lést um 20 kíló!
alin er upp í vernduðu umhverfi
gyðingafjölskyldu, og veraldarvan-
ari atvinnudansara á vinsælum
sumarleyfisstað árið 1963. f hlut-
verki atvinnudansarans er Patrick
Swayze, 35 ára, velmenntaður
dansari sem hefur m.a. starfað
með Joffrey og Harkness ballettun-
um. Hann ber sig karlmannlega
iiif UMSTRÆTI OGTO.RG lllllflllllllllllllllllllllllllllllllllllllllflllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll Kristínn Snæland::j||
TRYLLITÆKI
Áður en ég vík að tryllitækjum f
umferðinni og ökumönnum þeirra
vil ég enn nefna áhuga og afskipta-
leysi lögreglunnar af umferðaröng-
þveiti við skemmtistaði þar sem
skólafólkið skemmtir sér.
Síðastliðinn þriðjudag héldu
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti og
Menntaskólinn við Sund skóla-
skemmtanir í Þórskaffi og Hollí-
vúdd. Það bar til tíðinda að
menntaskólanemarnir, sem
skemmtu sér í Hollívúdd, héldu
götunni framan við húsið algerlega
færri. Báðar akreinar götunnar
voru ávallt opnar og þetta unga
fólk lagði bílum sínum í stæðin í
kring. Stöku umferðarsóði ruddist
á bíl sínum upp að tröppum
skemmtistaðarins og varð þannig
sú hvimleiða undantekning sem
sannaði regluna. Reglan var sú að
menntaskólanemar stilltu bílum
sínum í stæðin í kring þannig að
umferð um götuna gekk óhindrað
og truflunarlaust. Heiður þeim sem
heiður ber.
Við Þórskaffi, hjá fjölbrauta-
skólanemum var hinsvegar stöðugt
umferðaröngþveiti. Brautarholtið
framan við skemmtistaðinn rúmar
á venjulegu ballkvöldi þrjár raðir
bíla í einstefnu austur. Eina röð
leigubíla sem bíða farþega, aðra
röð bíla setji koma með farþega að
skemnjtistaðnum og loks þá þriðju
sem aðeins ekur hjá’án þess að
stansa1' og , þannig gengur þetta
þægilega og örugglega til.
/ Á skemmtikvöldi Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti tróðu nemar
bílum sínum þversum beggja
vegna götunnar og mynduðu loks
tvær kyrrstæðar raðir bíla eftir
endilangri götunni. Með þessu var
algerlega komið í veg fyrir eðlilega
umferð að eða frá skemmtistaðn-
um. Fullkomið tillitsleysi réð
ríkjum, fyrst og fremst nemum
Fjölbrautaskólans í Breiðholti til
skammar en einnig lögreglunni
sem á skilyrðislaust að gæta þess að
ryðja göturnar þegar svona stendur
á. Á föstudags eða laugardags-
kvöldi er afsakanlegt að slfkt gerist
t.d. við Kasablanka, því þau kvöld
eru verkefni lögreglunnar ærin.
Aðra daga má ætla að kvöldin séu
lögreglunni svo náðug að henni
væri í lófa lagið að tugta umferðar-
sóða eins og nema fjölbrautaskól-
ans svolítið til og kenna þeim um
leið lágmarks tillitssemi í umferð-
inni.
Tryllitækin
Nokkuð hefur verið fjallað um
nýliðana í umferðinni að undan-
förnu og athyglisverð er sú niður-
staða einhverrar könnunarinnar
sem benti til þess að 17 ára stúlka
væri ámóta þroskuð og hæf í um-
ferðinni og 24 ára piltur. Sá sem
fylgist með aksturslagi ungu pilt-
anna og stúlknanna í umferðinni
hér í Reykjavík er mjög líklegur til
þess að trúa þessari niðurstöðu. Ef
ekki væri um mismunun kynja að
ræða, væri afar eðlilegt að piltar
fengju t.d. ökuskírteini tvítugir en
stúlkur sautján ára.
Hvað sem því líður, er ljóst að
fyrsta ár eða tvö fyrstu ár öku-
manns, sér í lagi sé hann ungur að
árum, þyrfti að setja akstri hans
einhver mörk. Til greina gæti kom-
ið að setja ökumönnum undir 25
ára aldri þau mörk að mega ekki
aka bíl sem færi yfir tiltekin hestöfl
miðað við eigin þyngd. Til þess að
skýra þetta nánar er rétt að gera
nokkurn samanburð á afli og eigin
þyngd nokkurra þekktra bíla.
Bifreið Hestöfl
Ford Escort C 50
Ford Escort RS Turbo 130
Lada1200 65
Lada Samara 65
LadaLux2107 77
Skoda120 L 52
Peugeot205GR 65
Peugeot 205 GTI 130
Sé þessi tafla skoðuð, kemur í
ljós að Escort RS Turbo og Peug- eot 205 GTI eru „tryllitækin“ í hópnum, annar með aðeins 6,5
kíló á hestafl og hinn með 7,1 kíló
á hestafl. Slíkir bílar eru sam-
kvæmt rannsókn í Noregi með afar
hátt hlutfall dauðaslysa. Slíkir bílar
eru samkvæmt rannsókn í Noregi
með afar hátt hlutfall dauðaslysa.
Reynsla Norðmanna og annarra
þjóða, bendir eindregið til þess að
rétt væri að takmarka rétt nýrra
ökumanna undir 25 ára aldri við
eitthvert mark sem miðaði við kíló
á hestafl, til dæmis 12 kíló á hestafl
sé einhver tala nefnd. Vissulega
gæti önnur tala verið skynsamlegri
en full ástæða er til þess að þetta
mál sé rætt af alvöru, ekki síst þar
sem ökukennsla og þjálfun öku-
nema á fslandi er alls ófullnægj-
andi. Reyndar er réttara að segja
að ökukennslan sé ófullnægjandi
en þjálfunin nánast engin. Miðað
við það ófremdarástand er vissu-
lega sjálfsagt og nauðsynlegt að
setja nýjum ökumönnum, undir 25
ára aldri, til dæmis þau mörk fyrstu
tvö árin að þeir megi ekki aka bíl
Hámarks Kílóá
Þyngd Hraði hestafl
845 kg 145 km 16,9
925 kg 206 km 7,1
970 kg 142 km 14,9
900 kg 152 km 13,8
1010 kg 152 km 13,1
875 kg 140 km 16,8
800 kg 164 km 12,3
850 kg 206 km 6,5
sem hafi meira afl en sem nemur
einu hestafli á hver 12 kíló í þyngd
bílsins. Þetta gæti fækkað slysum
og þess er sannarlega þörf.