Tíminn - 06.02.1988, Page 16
16 Tíminn
Laugardagur 6. febrúar 1988
PSORIASIS-
SJÚKLINGAR
Ákveöin ferö er fyrir psoriasissjúklinga
13. apríl næstkomandi til eyjarinnar
Lanzarote, á heilsugæslustöðina Pan-
orama. Þeir sem hafa þörf fyrir slíka
ferö snúi sér til húðsjúkdómalækna og
fái vottorð hjá þeim.
Sendi þeir það merkt nafni, heimilis-
fangi, nafnnúmeri og síma til
Tryggingastofnunar ríkisins, Laugavegi
114, 3. hæð.
Umsóknirverða að berast fyrir 4. mars.
Tryggingastofnun ríkisins
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRMÚLA 3 SlMI (91) 681411
Starf í skýrsluvéladeild
Óskum eftir að ráða vélstjórnanda (óperator) í
skýrsluvéladeild. Æskilegt að umsækjandi hafi góða
undirstöðumenntun, unnið er á vöktum.
Hér er um að ræða lifandi starf fyrir réttan og
áhugasaman aðila.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð hjá
starfsmannahaldi.
Samvinnutryggingar g.t.
Ármúia 3, sími 681411
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. Bygg-
ingadeildar óskar eftir tilboðum í sm íði og uppsetn-
ingu á 5 stórum hljóð og eldvarnarhurðum í
Borgarleikhúsið í Reykjavík.
Samanlagt flatarmál hurðanna er um 324 m2.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 1.
mars kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAfL
Frfkirkjuvcgi 3 — Sími 25800
Hús til sölu
í Seyluhreppi Skagafjarðarsýslu
Kauptilboð óskast í íbúðarhús á jörðinni Lauftún,
Seyluhreppi, Skagafjarðarsýslu ásamt 1000 m2
leigulóð. Stærð hússins er 603 m3. Brunabótamat
erkr. 5.814.000,-.
Húsið verður til sýnis í samráði við Sigurð
Haraldsson oddvita sími 95-6111 og 95-6192.
Kauptilboð er greini verð og greiðsluskilmála þurfa
að berast skrifstofu vorri fyrir kl. 11:00 f.h.
þriðjudaginn 16. febrúar n.k.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 .
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. Bygg-
ingadeildaróskareftirtilboðum í 2. áf. Selásskóla.
Um er að ræða 432 m2 hús, fullbúið að innan og
utan. Lokið er við að grafa grunn.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, frá og með þriðjudeginum 9. febrúar gegn
kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn
24. feb. n.k. kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKlAViKURSORGAR
frikirk|wv«gi 3 — Simi 2S800
. -- J
lllllllllllllll AÐ UTAN
Jarðgöng frá Álasundi
til Vigra-Valdereyjar
um Ellingsey
I Noregi var í janúar 1986 tekið að
grafa jarðgöng á milli bæjarins Ála-
sunds og Ellingseyjar og síðan frá
henni til Vigra-Valderey og loks brú
frá hinni síðastnefndu til eyjarinnar
Giske. - Flugvöllur Álasunds er á
Vigra, eins og kunnugt er, og hafa
farþegar verið fluttir þangað og
þaðan á ferju.
Jarðgöngin eru í tveimur hlutum.
I fyrsta lagi verða 3,5 km löng göng
frá Álasundi til Ellingseyjar. í öðru
lagi verða 4,2 km löng göng frá
Ellingsey til Vigra-Valderey. Dýpst
liggjagöngin 140m undirsjávarmáli.
Samanlagðir mynda gangarnir tveir
lengstu neðansjávargöng í heimi. Til
stóð að taka göngin í notkun í árslok
1987, ári fyrr en upphaflega var
áætlað.
Ulia*Förre>virkjunin
á Suldals-heiðum
Norðaustan Stavanger á Suldals-
heiðum er verið að reisa mikið
raforkuver, sem með neti neðan-
jarðar-vatnsganga verður tengt
virkjunum í Kvilladal og Hylen.
Vegna þessa verða hlaðnar 9 stíflur.
Hin stærsta, við Blasjö, verður firna-
stór, 1.400 m löngog allt að90 m há,
og myndar hún uppistöðulón, er
verður tíunda stærsta stöðuvatn í
Noregi. Hér er um að ræða mestu
vatnsafls-virkjun í Noregi, sem mun
leggja til um 5% af raforku hans.
Að gerð ganganna hafa 150 menn
unnið að staðaldri. Sprengdu þeir
um 40 m göng á viku. í göngunum
eru 3 akbrautir, samtals 11 m breið-
ar. Kostnaður af gerð ganganna og
brúarinnar til Giske var áætlaður
385 milljónir króna norskra. Gjald
verður tekið af ökutækjum, sem um
göngin fara, lítið eitt hærri en núver-
andi ferjugjöld. Vænst er, að um
3.000 bílar fari um göngin á dag.
Mun kostnaðurinn af þessum miklu
mannvirkjum með þeim hætti hafa
verið að fullu greiddur árið 2000, ef
svo fer sem horfir.
Þurrkar í Suður-Afríku
í febrúar og mars 1987, í þann
mund er maís tók út þroska á ökrum
Suður-Afríku, einkum í Transvaal
vestanverðu, á „Plaateland," voru
þurrkar þar sjötta árið í röð. Upp-
skera landsins af maís 1987 mun
hafa verið um 7,0-7,5 milljónir
tonna, ekki 9-10 milljónir tonna eins
og vant er.
Árlegt verðmæti búsafurða Suður-
Afríku hefur síðustu ár verið kring-
um Rand 13 milljarðar. Svarar sú
upphæð til 5% af þjóðarframleiðslu
landsins. Maís er helsta uppskeran,
og var hún metin á Rand 2 milljarða
1986. Rækta um 67.000 hvítir bænd-
ur maís. Innanlands er neytt árlega
6 milljóna tonna. Til útflutnings
munu 1987 einungis hafa til fallið um
1 milljón tonna í fyrra 1987.
Ekki aðeins kreppir að bændum
Suður-Afríku í Transvaal. Heims-
markaðsverð á sykri hefur fallið á
síðustu árum. Og hafa tekjur af
sykurrækt skroppið saman í Natal.
Þá ugga bændur í Höfðanýlendu
líka um sinn hag, en í fyrra nam
útflutningur víns og niðursoðinna
ávaxta Rand 978 milljónum. En
refsiaðgerðir þrengja að markaði
vína í Bandaríkjunum og á Norður-
löndum.
Skuldir bænda í Suður-Afríku
hafa aukist mjög á síðustu árum og
námu síðla árs 1987 samtals um
Rand 11 milljörðum. Varð ríkið í
janúar 1987 að leggja fram Rand 400
milljónir til að forða mörgum jörð-
um undan hamrinum.
Orkumál í Suður-Afríku
Efnahagslegar refsiaðgerðir olíu-
landa gegn Suður-Afríku hafa knúið
hana til að hefjast handa um vinnslu
brennsluolía úr kolum og jarðgasi.
Er verið að reisa þrjár miklar verk-
smiðjur í því skyni, tvær við kola-
námur, aðra þeirra íTransvaal, hina
í Oranje-fríríkinu gamla, og hina
þriðju á strönd Mossel Bay, en á
botni flóans er jarðgas.
Vitað er um 58 milljarða tonna af
kolum í..jörðu.í Suður-Afríku. Svar=
ar það magn til 11% af kolum
jarðar, sem um er vitað. Hyggst
Suður-Afríka vinna úr kolum 40%
þeirrar brennsluolíu, sem hún notar.
Önnur 8% hennar hyggst hún fá úr
verksmiðjunni við Mossel Bay,
(þ.e., 25.000 tunnur á dag). Vitað er
um tvö svæði í Mossel Bay með
nýtanlegu jarðgasi. Við annað
þeirra, 80 km undan ströndinni, er
verið að reisa borpalla-samstæðu og
að leggja til hennar leiðslur. Kostar
hvort tveggja um Rand 4,2 mill-
jarða. (hitt svæðið er 47 km vestar)
Jarðgasið mun endast í 30 ár, að
talið er.
Rafmagn í Suður-Afríku er að
mestu unnið við brennslu kola, en
verið er að reisa kjarnorkuver í
Koeberg við Höfðaborg, og mun
það vinna 1.840 megawött, um 6%
af raforku landsins, en það tekur til
starfa í ár, 1988. Um 3% raforku
landsins er unnið í vatnsfallsvirkjun-
um.
Raforkuverin á ríkið, og nefnast
þau Escom. Olíufélag ríkisins,
Sasol, sér um vinnslu brennsluolíu
úr jarðgasi og kolum.
Á sl. ári andaðist hér á Hrafnistu
frú Sesselja Eldjárn, einstök heið-
urskona.
Við kynntumst hér á heimilinu við
margslags skemmtanir og tóm-
stundastarf og ég finn nú að kynnin
voru böðuð sólskini frá því fyrsta til
Samruni Asea og
Brown-Boveri
Tvö stærstu fyrirtækin í rafmagns-
iðnaði í Svíþjóð og Sviss, Asea og
Brown Boveri, lýstu 10. ágúst 1987
yfir, að þau hefðu samið um samruna
fyrirtækjanna, frá 1. janúar 1988 að
telja. í samkomulaginu eru þau talin
jafn verðmæt, en með nokkrum
fyrirvara. Hið sameinaða fyrirtæki
verður um $4,5 milljarða virði, að
talið er, en starfsmenn þess 1988
munu vera um 160.000.
ASEA undanskilur samrunanum
nokkur dótturfyrirtækja sinna: Ele-
ctrolux, (sem framleiðir heimilis-
tæki), ESAB, (sem framleiðir raf-
suðutæki), Sila (eignarhaldsfélag,
sem á 13% í SAS-flugfélaginu), og
Hagglund och Sönner, (sem fram-
leiðir vopn), og Skandinaviska
Elverk. Að sínu leyti heitir Brown
Boveri að auka hlutafé sitt um $800
milljónir svissneskra franka.
Framkvæmdastjóri hins samein-
aða fyrirtækis verður Percy Barne-
vik, framkvæmdastjóri ASEA.
Stígandi
þess síðasta. Ég þykist ekki taka of
djúpt í árinni, þótt ég segi að hún var
merkari og bctri manneskja en al-
menningur, ef orða má það svo.
Blessuð veri minning Sesselju
Eldjárn.
Sveinn
1111111111 MINNING : ý -
Sesselja
Eldjárn
Síðbúin kveðja