Tíminn - 19.07.1988, Page 2
Þriöjudagur 19.júlí.t988
2 Tíminn
Mikið um selbitinn lax í Víðidalsá:
Selur og lax settir á
vogarskálar ráðherra?
Selir hafa gert vart við sig svo um munar í Víðidalsárós
í sumar og hefur verið mikið um að fiskarnir sem veiðst
hafa, hafi verið illa bitnir. Skammt frá ósnum er selalátur
sem er friðað og því er bannað samkvæmt lögum að skjóta
selinn. Veiöifelagiö hyggst koma saman einhverja næstu
daga til að semja bréf til veiðimálastjóra þar sem fara á
fram á að friðlýsingin verði ógild.
Lúther Einarsson veiðivörður í
Víðidalsá sagði í samtali við Tím-
ann aö talsvcrt hefði verið af sel viö
ósinn. þar lil fyrir um viku síðan
þcgar nokkrir menn tóku sig til og
fóru eitnt kvöldstund og skutu á
nokkra seli. Sclurinn flutti sig þá
yfir í Sigríðarstaðaós, að sögn
manna í sveitinni, scm er viö
hliðina á Víðidalsárós. Sagði Lút-
hcr að selurinn hefði fært sig aftur
á sinn fyrri stað, þar sem aö sfðast
þegar hann frétti hefðu vcrið um
50 til 70 selir við ósinn. Lúther
sagði að smálaxinn væri ekki eins
illa leikinn og stóru fiskarnir sem
virðast verða meira fyrir barðinu á
selnum.
Sverrir Sigfússon, leigutaki að
Víðidalsá, sagði í samtali viö Tím-
ann aö málin stæðu þannig núna að
stjórn veiöifélagsins ætlaði að hitt-
;ist til þcss að skrila bréf til veiði-
málastjóra til aö fá hans umsögn.
Ef veiðimálastjóri telur að meiri
tekjur scu af laxinum en selnum.
þá getur hann mælt með því við
ráðherra að friðuninni verði hætt.
Samkvæmt reglunt má ekki skjóta
selinn á þessum slóðum, en svo
hefur vcrið gert og einhverjar kær-
ur eru í gangi vegna þess. Sagði
hann að það hefði verið mikið um
selbit á laxi að undanförnu enda
urmull af sel við ósinn og mætti sjá
skellurnar á fiskinum í vatninu "
þegar hann hreyfði sig, án þess að
sjá fiskinn sjálfan.
Árni ísaksson veiðimálastjóri
sagði að nokkuð hefði borið á sel
við laxeldisstöðvar í Kollafirði og í
Vogum, en einnig hcfði hann heyrt
frá mönnum í Víðidalsá, þar scnt
þó nokkuð virtist vera um sel í
ósnum. Sagði hann að ef farið yrði
frarn á að friðun selanna við ósinn
yrði afnumin, þá kæmi þaðtil kasta
veiðimálanefndar og veiðimála-
stjóra, en síðan er það á valdi
landbúnaðarráðherra hvort friðun-
in verði afnumin.
í Hofsá í Vopnafirði hefureinnig
orðiö vart viö sel og sagöi Pétur
Valdimar Jónsson í veiðihúsinu
við Hofsá að selurinn sækti í ósinn,
en í sumar hefði hann ekkt farið
upp ána, eins og oft hefði komið
fyrir undanfarin ár. Hann sagði aö
nokkuð hefði borið á því að menn
kvörtuöu yfir því að laxinn væri
bitinn. Valdintar sagði að hann
hefði skotið þrjá seli um ntiðjan
mánuðinn, tvo í ósnum og einn
fyrir utan, en undanfarna daga
hcfur hann ekki oröið var við
neinn sel. Selurinn er notaður í
loðdýrafóður og er greiðslan fyrir
kílóið 25 krónur.
Pórarinn Eggcrtsson bóndi í
Hraungerði í Álftavershreppi,
Vestur-Skaftafellssýslu sagði að
selu'rinn kæmi um 3 til 4 ktlómetra
upp í Kúðafljót þar sem hann
kæpir á cyrum sem þar eru og væri
hann í ánni allt sumarið. Selveiði
var hætt í Kúðafljóti fyrir um átta
til níu árum og hefði selnum fjölg-
að mikið síðan þá. Sagði Þórarinn
að stundaður hefði verið ádráttur
með undanþágu á hvcrju suntri frá
jörðinni Mýrum í Álftaveri og
sagði hann að þar væri ekki óeðli-
legt að af hverjum fimm fiskunt
væri einn selrifinn og því auðsjáan-
legt að hann ynni nokkurt tjón.
Aðspurður hvort þeir mundu
hefja selveiðar aftur sagði Þórarinn
að ekki hefði verið gefið neitt
vilyrði fyrir veröi á skinnunt og á
meðan svo væri, væri enginn
grundvöllur fyrir veiði á selnum.
-ABÓ
Nóg að gera hjá lögreglunni og slökkviliði:
Gabb, innbrot
og árekstrar
Lögreglan og Slökkviliðið í
Rcykjavík höfðu nóg að gera um
helgina.
Slökkviliðið fékk tilkynningu um
cld í nýbyggingu fyriraftan skemmti-
staðinn Broadway klukkan fimm
mínútur yfir þrjú aðfaranótt sunnu-
dagsins, en þegar það kom á staðinn
var þar enginn eldur. Símalínunni
var þó haldið og tókst að rekja það
til ákveðins aðila og hefur ntálið
verið sent til lögreglunnar.
Rétt fyrir miðnætti á sunnudags-
kvöld var slökkviliðið síðan kallað
út þegar reykur sást úr íbúð í
írabakka. Þar hafði potturgleymst á
hellu og hlaust af því rcykur og
ólykt. Rétt um klukkan hálf fimm
aðfaranótt mánudags fórsíðan reyk-
skynjari í gang í Árbæjarsafni og
fóru bílar að sjálfsögðu á staðinn, en
þar hafði reykskynjarinn bilað.
Lögreglan stoppaði síðan unga
konu og mann sem höfðu ekið
mótorhjólum sínum nokkuð yfir
hámárkshraða á Suðurlandsveginum
í gær. Hafði konan mælst á I70
kílómetra hraða en maðurinn á 130.
Náðist parið við Bitruháls, þegar
lögreglubíl hafði veriö lagt þvert yfir
veginn og myndaðist af þeim sökum
nokkur umferðarhnútur. Vélhjóla-
fólkiö var svipt skírteinum sínum á
staðnum og hjól konunnar tekið í
vörslu lögreglunnar.
Þá var brotist inn í þrjá bíla í gær.
Talstöð var stolið úr bíl við Fífusel
og ýmsum hlutum stolið úr tvcimur
bílum við Vörubílastöðina Þrótt.
Loks varð árekstur á horni Sætúns
og Laugalækjar rétt eftir hádegi í
gær, en þar lentu saman fólksbíll og
(Tíminn:Pjetur)
strætisvagn, en engin slys urðu á
fólki. Eins og sést á myndinni,
skemmdist fólksbíllinn þó töluvert.
-SÓL
Tímamót fyrir Hótel Ork sem væntanlegt heilsuhótel:
Vantaði 3000 manns:
Þýskir læknar
skoða Örkina
Síðustu fjóra dagana í júlí ntunu
16-18 læknar, gerlafræðingar og
blaðamenn frá Þýskalandi dvelja á
Hótel Örk í Hveragcrði til að
kanna staðhætti á þessu væntan-
lega heilsuhóteli. Segir Helgi Þór
Jónsson, aðaleigandi Arkar, að
þetta sé í fyrsta skipti sem unnið
hefur verið jafn skipulega að þess-
um málurn. Býst hann við að þegar
þessir læknar verði farnir að senda
skjólstæðinga sína reglubundið á
Örkina megi búast við öruggum
viðskiptum allt árið. Telur hann
þetta einnig rnikið mál fyrir flugfé-
lögin sem fái örugga farþegahópa
12 mánuði á ári.
Þeir læknar og aðrir fræðimenn,
sem koma til landsins 28. júlí nk.,
eru allir frá Hamborgarsvæðinu og
er þetta fyrsti hópurinn sem kemur
til Arkar í þessum tilgangi. Búið er
að ganga frá því að hingað komi
annar hópur frá svæðinu við Frank-
furt strax í ágúst. Auk fræðimann-
anna eru, í fyrsta hópnum, blaða-
menn er starfa fyrir læknatímarit í
Þýskalandi.
Helgi Þór var að vonum ánægður
með þann árangur að þessi hópur
nianna hefur sýnt þessu máli svo
mikinn áhuga. Hann hefur nú starf-
andi mjög góða tengiliði í Þýska-
landi og á ekki von á öðru en það
sé samstarf sem eigi eftir að ganga
vel áfram. Undanfarið hafa Helgi
Þór og aðrir eigcndur Arkar unnið
að hagræðingu í fjármálum hóteis-
ins. Sagði hann að næstu vikur yrði
mesta áhersla hins vegar lpgð á
frekari frágang við séraðstöðu þá
sem koma þarf upp vegna opin-
berrar viðurkenningar á Örkinni
sem heilsuhótel. Sagði Helgi Þór
að það væri í raun aðeins handa-
vinna að ganga frá þeim málum þar
sem litlu þurfi við að bæta þá góðu
aðstöðu sem nú þegar sé komin í
gagnið. KB
Stórtap á
Status Quo
Nú er Ijóst að stórtap varð á
hljómleikum bresku hljómsveitar-
innar Status Quo, sem lék í Reið-
höllinni í Víðidal á föstudags- og
laugardagskvöld.
Áætlaður kostnaöur við hljóm-
leikana er um 9 milljónir króna. en
ekki komu í kassann nema rétt
rúmar þrjár milljónir.
Til að aðstandendur hljómsveitar-
innar kæmu á sléttu út úr ævintýrinu,
þurftu þeir að fá minnst 5000 manns,
en á föstudag voru ekki seldir nema
500 miðar, samkvæmt heimildum
Tímans og á laugardag um 1200
miðar. Það vantaði því minnst 3300
manns á hljómleikana til að endar
næðu saman, eða rúmar 6 milljónir
króna.
Reikningsdæmið er einfalt. Mið-
inn kostaði 1.650 krónur. Kostnaður
var áætlaður um 9 milljónir króna.
Ef 1700 manns mættu, þá gera það
rúmar 2,8 milljónir króna. Tapið er
því rúmlega sex milljónir króna.
Æskulýður íslands hefur sem sagt
ekki haft mikinn áhuga á þessum
hljómleikum, en höfðu hins vegar
áhuga á að skemmta sér, því mikil
ölvun var í bænum um helgina og
mikill mannfjöldi var samankominn
í miðbænum bæði föstudags- og
laugardagskvöld. -SÓL