Tíminn - 19.07.1988, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 19. júlí 1988
Tíminn 11
llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR
Njarðvíkingurinn sterki, Sturla
Örlygsson, hefur verið ráðinn þjálf-
ari úrvalsdeildarliðs ÍK-inga í körfu-
knattleik.
„Við erum mjög ánægðir að hafa
fengið þennan öfluga leikmann og
þjálfara til liðs við okkur,“ sagði Þór
Örn Jónsson stjórnarmaður í körfu-
knattleiksdeild ÍR, í viðtali viðTím-
ann seint í gærkvöld.
„Sturla á eftir að styrkja liðið
mjög mikið á komandi keppnistíma-
bili enda mjög reyndur leikmaður.
Við eru búnir að ráða þjálfara í
nánast alla flokka og lítum björtum
augum á framtíðina. Það verður
mikið og öflugt starf hjá okkur í
vetur," sagði Þór Örn.
ÍR-inga munar mikið um að fá
Sturlu til liðs við sig. Oft hefur
aðeins vantað herslumuninn að ÍR-
liðinu tækist að vinna sigra í leikjum
sínum undanfarin ár. Það má því
búast við hörkukeppni í A-riðli úr-
valsdeildarinnar næsta vetur, en í
riðlinum leika auk ÍR. Haukar,
Keflavík, KR og Tindastóll.
„Ég er mjög spenntur að takast á
við þetta verkefni, ég hef mikla trú
á liðinu og hlakka til að byrja að
æfa,“ sagði Sturla í samtali við
Tímann í gærkvöld. „Ég fer frá
Njarðvík með eftirsjá, en ég vil skila
kveðju minni til góðra félaga þar.
Það verður mikil og hörð keppni í
úrvalsdeildinni næsta vetur og ÍR
verður örugglega á fullu með í þeirri
keppni," sagði Sturla ennfremur.
Missir Njarðvíkinga er að sama
skapi mikill og liðsstyrkur ÍR. Þeir
hafa nú misst tvo af sínum sterkustu
leikmönnum á stuttum tíma, því
KA-menn sváfu
Valur Ingimundarson hefur tekið
við sem þjálfari Tindastóls frá Sauð-
árkróki.
Njarðvíkingar hafa ráðið bandarísk-
an þjálfara, Chris Fadness, til að
taka við liðinu og fá jafnvel þá
Jóhannes Kristbjörnsson og Ástþór
Ingason aftur til liðs við sig. Það yrði
þeim nokkur sárabót eftir að hafa
misst Val og Sturlu. BL
Sturla Örlygsson mun leika með ÍR í körfunni næsta vetur.
verðinum
Frá Jóhanncsi Bjarnusyni fréttaritara Tímans á
Akureyri.
Pórsarar unnu sanngjarnan sigur
á KA-mönnum í ótrúlega sveiflu-
kenndunt leik, þar sem KA-menn
voru heldur sterkari í fyrri hálfleik,
en voru hreinlega ekki með í þeim
seinni. KA-mönnum hefur því enn
ekki tekist að sigra Þór í 1. deildar-
leik og verða að bíða eitt ár í það
minnsta, eftir næsta tækifæri.
Akureyrarvöllur var þungur eftir
rigningar og áttu leikmenn í miklum
jafnvægisvandræðum af þeim
sökum. KA-menn voru mun fljótari
í gang og náðu forystu strax á 12.
mín. er Friðfinnur Hermannsson
átti gott skot frá vítateigslínu, sem
fór af Gauta Laxdal og í netið. Rétt
áður var Anthony Karl í dauðafæri
en hitti knöttinn illa. Fyrri hálfleikur
var að öðru leyti tíðindalítill, nema
þegar Valgeir Barðason komst einn
innfyrir vörn Þórs, en var of lengi að
athafna sig og varnarmenn Þórs
komust í veg fyrir skot hans.
Leikurinn tók óvænta stefnu í
síðari hálfleik. Þórsarar sem höfðu
verið mjög slakir, gengu hreinlega
yfir KA-menn, sem að sama skapi
voru hreint ótrúlega daufir. Á 20
mín. kafla skoruðu Þórsara í þrígang
og Siguróli Kristjánsson átti þar að
auki algjört dauðafæri sem hann
brenndi af. Valdimar Pálsson jafnaði
á 58. mín. með marki beint úr
aukaspyrnu af 20 m færi, sem Hauk-
ur Bragason markvörður KA hefði
átt að verja, en virtist fremur illa
staðsettur. Birgir Skúlason Þórsari
gerði á sömu mín. heiðarlega tilraun
til að koma KA-mönnum yfir, en
Baldvin markvörður varði glæsilega
góðan skalla Birgis að eigin marki.
Á 61. mín. komust Þórsarar yfir.
Kristján Kristjánsson tók auka-
spyrnu langt úti á vinstri kanti og
Halldór Áskelsson skallaði í mark.
Snyrtilega gert, en KA-vörnin svaf
þungum svefni. Úrslitin réðust síðan
á 77. mín. en þá braut Halldór
Halldórsson á Hlyn Birgissyni innan
vítateigs KA-manna og Júlíus
Tryggvason skoraði örugglega úr
vítaspyrnunni. Aðeins mínútu síðar
braut Hlynur Birgisson gróflega á
Friðfinni Hermannssyni og Sveinn
Sveinsson dómari sendi hann um-
svifalaust í bað. En þótt fleiri væru,
voru KA-menn alveg vindlausir og
mark Gauta Laxdal á 88. mín. var
eina heiðarlega tilraun þeirra til að
bæta við mörkum. Þórsarar börðust
sem ljón ogsigruðu sanngjarnt. Hjá
Þórsurum átt Nói Björnsson mjög
góðan leik í vörninni og Baldvin
markvörður lék óaðfinnanlega. Hjá
KA voru þeir Halldór Halldórsson
og Jón Kristjánsson bestir. KA-
menn fengu aðeins á sig 17 mörk
síðasta keppnistímabil, en hafa nú
þegar fengið á sig 19 þegar mótið er
hálfnað. Umhugsunarefni fyrir
Guðjón Þórðarson þjálfara. Sveinn
Sveinsson dómari leiksins átti slæm-
an dag og vöktu sumir dómar hans
mikla furðu undirritaðs. JB/BL
Jafntefli og
bronsverðlaun
ísland varð í þriðja sæti á alþjöð-
legu handknattleiksmóti sem lauk í
A-Þýskalandi um helgina. í síðasta
leiknum gegn V-Þjóðverjum á laug-
ardag gerðu íslendingar jafntefli,
19-19, og urðu því í þriðja sæti á
betra markahlutfalli.
Leikurinn á laugardag var mjög
spennandi frá upphafi til enda og
liðin skiptust á um að hafa forystuna.
í hálfleik var staðan 10-10. íslend-
ingar léku uppá jafnteflið á síðustu
mínútunni og héldu boltanum.
„Þessi leikur var mjög góður, en
harður, og við erum mjög sáttir við
árangurinn í mótinu," sagði Guðjón
Guðmundsson liðsstjóri í samtali
við Tímann. Einar Þorvarðarson
varði mjög vel í markinu og var besti
maður leiksins ásamt Jakob Sigurðs-
syni, en Jakob fékk rauða spjaldið
undir lok leiksins, eftir að hafa
skorað sex gtæsileg mörk.
V-Þjóðverjar koma til landsins
um næstu helgi og leika tvo lands-
leiki gegn íslendingum í Laugardals-
höll á sunnudag og mánudag.
Mörkin skoruðu: SigurðurSveins-
son 7/6, Jakob Sigurðsson 6, Alfreð
Gíslason 3, Sigurður Gunnarsson 1
og Kristján Arason 1. BL
Vinningstölurnar 16. júlí 1988
Heildarvinningsupphæð: Kr. 4.539.526,-
1. vinningur var kr. 2.273.318,-
og skiptist hann á milli 2ja vinningshafa, kr. 1.136.659,- á mann.
2. vinningur var kr. 680.525,-
og skiptist hann á 167 vinningshafa, kr. 4.075,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.585.683,-
og skiptist á 5.339 vinningshafa, sem fá 297 krónur hver.
Sölustaðirnir eru opnir frá mánudegi til laugardags og lof
ekki fyrr en 15 mínútum fyrir útdrátt.
Milljónir á hverjum laugardegi!
Upplýsingasími: 685111
Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: 685111
Heimir
meðtvö
Staða Þróttara á botni 2.
deildar í knattspyrnu er nú
orðin mjög alvarleg. Þeir hafa
aðeins 6 stig eftir 9 leiki og fall
í 3. deild blasir við félaginu,
sem aðeins hefur sigrað í einum
leik til þessa á mótinu.
Um helgina fengu Þróttarar
Víðismenn úr Garði í heim-
sókn á Valbjarnarvöllinn í
Reykjavík og Víðismenn sigr-
uðu 3-1, þrátt fyrir að vera
einum leikmanni færri mest
allan leikinn. Heimir Karlsson
þjálfari Víðis skoraði tvö mörk
og Sævar Leifsson gerði eitt.
Sigurður Hallvarðsson skoraði
mark Þróttara úr vítaspyrnu.
BL
Góður sigur
Eyjamanna
Vestmannaeyingar fengu
Selfyssinga í heimsókn um
helgina og sendu þá burtu með
tapá bakinu. Heimamenn voru
bctri aðilinn í lciknum og skor-
uðu þrívegis, en gestirnir svör-
uðu með einu marki.
Mörk Eyjamanna skoruðu
Ólafur Árnason, Tórnas Ingi
Tómasson og Jón Atli Gunn-
arsson. Fyrir Sclfyssinga skor-
aði Guðmundur Magnússon úr
vítaspyrnu. Selfyssingar fengu
aðra vítaspyrnu í síðari hálf-
lcik, en þcim tókst þá ekki að
skora. BL
Haukur með
heimsmet
Haukur Gunnarsson setti
heimsmet í 400 m hlaupi fatlaðra
á opna v-þýska meistaramótinu
í frjálsum íþróttum fatlaðra, sem
haldið var í Ling-ems um helg-
ina. Haukur hljóp á 61,01 sek.
Þá sigraði Haukur einnig í 100 m
hlaupi á 13,29 sek. og í 200 m
hlaupi á 27,23 sek. BL
Ballesteros
sigraði
Spánverjinn Severiano Bal-
lesteros sigraði á opna breska
meistaramótinu í golfi, sem lauk
á Lythan St. Annes golfvellinum
á gær.
Ballesteros hafði forystu fram-
an af mótinu og eftir harða
keppni náði hann að sigra á 273
höggum. Annar varð Zimba-
bwe-búinn Nick Price á 275
höggum og Nick Faldo Bretlandi
varð þriðji á 279 höggum. Bal-
lesteros hefur áður sigrað tvíveg-
is á opna breska mótinu, 1979 og
1984. BL
Heimsmet
Bandaríska frjálsíþróttakon-
an Jackie Joyner-Kersee setti
nýtt heimsmet í sjöþraut kvenna
á úrtökunióti Bandaríkjanna
fyrir ÓL, á laugadag. Hún bætti
metið um 57 stig, en samtals
fékk hún 7215 stig. .Mágkona
liennar, Florence Griffith Joyn-
er,setti heimsmet í lOOmhlaupi,
er hún hljóp á 10,49 sek. Mikill
meðvindur var á meðan á mótinu
stóð, en vindmælirinn sýndi 0
þegar þetta 100 m hlaup fór
fram. Við eftirgrennslan kom í
ljós að mælirinn var ekki bilaður
og metið var því staðfestxEldra
metið, 10,76 sek. átti Evelyn
Ashford, einnig frá Bandaríkj-
unum. BL