Tíminn - 19.07.1988, Page 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 19. júlí 1988
Hvalvertíðin:
Annar
báturinn
fer til
talningar
Hvalur 8 og 9 komu til lands
með þrjár langreyðar í gær, en
bræla var á miðunum um hclgina.
Búið er að veiða 42 langreyðar
eða tæplega tvo þriðju af lang-
reyðarkvótanum sem er 68 dýr,
það sem af er vertíðinni.
Kristján Loftsson forstjóri
Hvals sagði í samtali við Tímann
að annar bátanna færi í vikunni
til hvalatalninga, þannig að hann
bjóst ekki við að búið yrði að
veiða upp í langreyðarkvótann
fyrr en um miðjan ágúst. -ABÓ
Ástráður hjá
Loðnunefnd:
Skyrtan
tilbúin
„Ég mæti um leið og þeir byrja
að veiða. Loðnuskyrtan er tilbú-
in, þvegin og fín, en ég hugsa að
ekkert gerist fyrr en í ágúst eða
september," sagði Ástráður Ing-
varsson hjá Loðnunefnd í samtali
við Tímann í gær.
Ástráður sagði að Færeyingar
og Norðmenn hefðu byrjað
loðnuleitina á föstudag, en hefðu
ekkert fundiö. Peir eru norður
við Jan Mayen.
„Ég hef ekki trú á að neinn fari
héðan fyrr en í fyrsta lagi í ágúst.
Það er enn mikill ís fyrir norðan
og svo hefur enginn fengiö neitt,‘"
sagði Ástráður.
Ekki er vitað með neinni vissu
hvaða bátar halda fyrstir til veiða,
um leið og eitthvað fréttist af
loðnunni, en þó er vitað að
Hólmaborgin er þegar í starthol-
unum.
Þá er heldur ckkert vitað um
fast verð fyrir loðnuna. Ýmsar
tölur hafa heyrst, en enginn vildi
staðfesta neitt í samtali við
Tímann. -SÓL
íslendingar á 75. Alþjúðavinnumálaþinginu. F.v. félagsmálaráðherra Jóhanna Sigurðardóttir, Sverrir Haukur Gunnlaugsson, Gylfi Kristinsson, Jón Magnús-
son, Hallgrímur Dalbcrg, Llín Torfadóttir og Guðinundur J. Guðmundsson.
Atvinnumálaþing:
Alþjóðasamþykkt um
öryggi og hollustu
75. Atvinnumálaþingið fór fram í Genf dagana 1. til 22.
júní sl. Afreiddar voru tvær nýjar alþjóðasamþykktir,
önnur um öryggi og hollustu í byggingariðnaði en hin
samþykktin fjallar um aukið framboð á vinnu og félags-
legt öryggi.
ur til allra byggingarstiga, allt frá
undirbúningi á byggingarstað þar til
byggingarframkvæmdum cr lokið.
Höfuðmarkmið samþykktarinnar
um aukið framboð vinnu og félags-
lcgt öryggi er að samræma atvinnu-
leysistryggingarstefnú í atvinnumál-
um. Ríki sem fullgilda samþykktina
Samþykktin um öryggi og hollustu
í byggingariönaði kemur í stað ann-
arrar eldri sem sett var fyrir 50 árum.
I henni eru fjöjmargar nýjungar þar
sem brugðist er við breyttum vinnu-
aðfcrðum með þaö að ntarkmiði að
bæta vinnuumhverfi og auka öryggi
í byggingariðnaöi. Samþykktin tck-
eiga að stuðla að því að atvinnu-
leysisbætur hvetji atvinnurekendur
til að bjóða fram atvinnu og örva
atvinnulausa til að leita sér að starfi.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra flutti ræðu á þinginu,
þar sem hún fjallaði m.a. um stöðu
kynjanna á vinnumarkaöinum og
gerði grein fyrir stefnu íslenskra
stjórnvalda í atvinnu- og jafnréttis-
málum.
Auk félagsmálaráðherra tóku þátt
í þinginu, sem fulltrúar ríkisstjórnar
Islands: Hallgrímur Dalberg ráðu-
neytisstj., Gylfi Kristinsson deild-
arstj. í fél.málaráðun., Sverrir
Haukur Gunnlaugsson sendiherra
og Kristinn Árnason sendiráðsritari.
Fulltrúi ísl. atvinnurekenda var Jón
Magnússon, lögfræðingur VSI og
lulltrúi launafólks var Guðmundur
J. Guðmundsson formaður Verka-
mannasambandsins og Dagsbrúnar.
1900 fulltrúar ríkisstjórna, at-
vinnurekenda og launafólks tóku
þátt í þinginu, þar með taldir 117
ráðherrar. -ABÓ
NÁKVÆM
SKOÐUN
Á ISUZU-
BÍLUM
Fyrir skömmu var staddur hjá
Bílvangi sf. tæknimaður frá Isuzu
verksntiðjunum í Japan. Tilefni
heimsóknarinnar var að bjóða eig-
endum Isuzu bifreiða upp á að koma
með bíla sína til nákvæmrar skoðun-
ar og reynsluaksturs, þeim að kostn-
aðarlausu.
Öllum eigendum Isuzu bifreiða á
íslandi var sent boðsbréf og kontu
rúmlega 100 Isuzu eigendur með
bíla sína. Að lokinni nákvæmri
skoðun og reynsluakstri var skipt
um olíu og olíusíu og fengu eigend-
urnir skýrslu um ástand bifreiðarinn-
ar. Auk skýrslunnar fengu þeir
viðurkenningu um að bíllinn hafi
fengið þessa skoðun (service clinic).
Þessi þáttur hjá Isuzu verksmiðj-
unum er liður í stóraukinni þjónustu
við viðskiptavini sína og er hún í
samvinnu við viðkomandi umboðs-
aðila í hverju landi. Þótti hún takast
ágætlega og mældist vel fyrir hjá
Isuzu eigendum. Er ráðgert að auka
enn þjónustu við Isuzu bifreiðar, en
þær hafa reynst afburða vel hér á
landi að sögn forsvarsmanna Bíl-
vangs sf. KB
Að loknum skoðunardögum. Guðmundur Helgi Guðjónsson, þjónustustjóri, Þorvaldur F.iríksson, aðst.verkstjóri, H.Fujikawa, fulltrúi frá Isuzu og Guð-
hrandur EKasson, verkstjóri.