Tíminn - 19.07.1988, Qupperneq 7
Þriðjudagur 19. júlí 1988
Tíminn 7
Verðsamkeppnin í málningarbúðum. Seljaallarásamaverðitilbúnu af framleiðendum:
Málning verðlögð á sama
hátt og mjólk og smjör
íslensk útimálning er nær undantekningarlaust lang dýrust
í elstu, stærstu og þekktustu málningarvöruverslununum í
Reykjavík, Litaveri, Litnum og Málaranum, sem selja
málninguna á nákvæmlega sama verði, svo ekki munar
krónu. BYKO-búöirnar fjórar nota líka sama verölistann en
gefa 11% sumarafslátt. Verslunin Gos selur flestar tegundir
á BYKO-verði en nokkrar með enn frekari afslætti.
í raun nota þó nær allar málningarbúðirnar verölista sem
samdir eru í málningarverksmiðjunum. Einu undantekning-
arnar virðast nokkrar litlar búðir, með fáar tegundir, en
athyglivert er að þar er málningin alla jafna ódýrust, þ.e. í:
Málningarvörum í Ingólfsstræti, Litavali og Parma í Hf.
Samráðið um verðlistann virðist því fyrst og fremst vera
samtrygging um hæsta verð.
selji málninguna oftast nær allar á
sama verði, svo verðsamanhurður er
óþárfur? Verðlagsstofnun bendir á
að verðlistaverðið geti breyst ef
kcypt er meira magn eða annað
greiðsluform (greiðslukort eða af-
borganir). Sé því Ijóst að kaupendur
geti haft hag af því að ..kanna verð
miðað við það magn og grciðsluskil-
rnála setn þeir hal'a hugsað sér".
Með öðrum orðum. að stað-
greiðsluverðið er víöast hvar það
sama - en hægt að finna verðmun
milli verslana í mismunandi magn-
afsláttum og vöxtum vegna lánsvið-
skipta. En þann verðmun verða
kaupendur að finna sjálfir án aðstoð-
ar Verðlagsstofnunar. - HEI
Þetta má lesa út úr verðkönnun
Verðlagsstofnunar á verði 21 teg-
undar af málningu og viðarvörn í 26
málningarvöruverslunum á höfuð-
borgarsvæðinu. Af þessum 26 búð-
um eru 11 sem selja flestar málning-
artegundir en flestar hinar búðirnar
fáar, niður í 2-3 tegundir.
Verðlistinn þeirra í Litaver, Litn-
um og Málaranum sýndi sem fyrr
segir hæsta verðið og 11% hærra
heldur en í BYKO-búðunum fjórum
og nær 18% hærra verð á sumum
tegundum heldur en hjá versluninni
Gos, vegna sumarafsláttanna. Máln-
ingarverslun Péturs Hjaltested virð-
ist nota Litavers- og BYKO-verð til
skiptis og það sama á við um Dröfn
í Hafnarfirði. Lækjarkot í Hf. notar
BYKO-verðið.
Mun meiri fjölbreytni og verð-
munur kom fram á nokkrum tegund-
um af erlendum viðarvörnum, en
einnig þar verður þó heldur ekki
betur séð en að nokkur samráð séu
í gangi hjá fyrstnefndu stóru verslun-
unum, og þá um hæsta verð eða í
hærri kantinum.
Hvert „fauk“
frjálsa samkeppnin?
Framangreindir verðlistar eru
ekki ,.heimasmíðaðir“ í verslunun-
um, sem fyrr segir. Athyglivert er,
að Verðlagsstofnun segir frá því eins
og sjálfsögðum hlut, að innlendu
málningarframleiðendurnir gefi út
viðmiðunarverðskrár fyrir fram-
leiðslu sína, sem sumar verslanir fari
að öllu leyti eftir, en aðrir veiti
afslátt frá þeim, oftast á bilinu
10-15% og sé þar í flestum tilfellum
aðeins um tímabundinn sumarafslátt
að ræða. Með öðrum orðum, að alla
jafna selji flestar af nær 30 málning-
arvöruverslunum á höfuðborgar-
svæðinu vörur sínar á sama verði
upp á krónu. Hvað er þá orðið um
frjálsu verðlagninguna og fjálsu sam-
keppnina? Jú, í smávegis mismun á
magnafslætti segir Verlagsstofnun.
Málningarverksmiðjur í
hlutverki sexmannanefndar
Spuming er hvers vegna Verðlags-
stofnun sparaði sér ekki sporin og
fær eiofaldlega senda verðlistana frá
málningarverksmiðjunum? A.m.k.
virðist Verðlagsstofnun ekkert sjá
athugavert við að málningarverk-
smiðjurnar útbúi smásöluverðlistana
í hendur kaupmanna, sem allar
helstu málningarbúðirnar nota síðan
óbreytta nema í einstöku afsláttar-
vikum eða sumartilboðum. Verð-
lagningu á málningu virðist þar hag-
að með svipuðum hætti og á mjólk
og dilkakjöti í heilum skrokkum,
þar sem málningarverksmiðjurnar
eru í hlutverki sexmannanefndar.
Sama verð en
mismunandi vaxtakjör
Og til hvers er þá verðkönnunin
úr því sjálfsagt þykir að verslanirnar
Horpu $k|0l
hvin
10IOOS
J.L. Vólundur Hrínqbraut 120, R. 3444
J.L. Völundur Viðarhöfða 4, R. 3444
Litabær Austurströnd 6. Seltj. 3444
Smiösbúð Garðatorqi Garðabæ 3444
Litaver Grensásvegi 18, R. 3444
Liturinn Siðumúla 15. R. 3444
Málarinn Grensásvegi 11, R. 3444
Máiningav. P.H. Suðurlandsbr. 12, R. 3444
Byggtogbúið Kringlunni, R. 3100
Bykó Dalshrauni 15. Hf. 3100
Bykó Nýbýlavegi 6, Kóp. 3100
Bykó Skemmuvegi 4, Kóp. 3100
Lækjarkot Lækjargotu 32, Hf. 3100
Gos byqqinqavörur Nethyl 3, R. 3100
Parma Bæjarhraum 16, Hf. 2927
Metró i Mjódd, R. 2927
Mikliqarður v/Holtaveq, R. 2846
Málninqarvórur Inqólfsstræti 3, R. 2755
Verður áralöng barátta kaup-
manna fyrir frjálsri verðmyndun
ekki auðskilin þegar litið er á þennan
lista? Eftir slíkan vitnisburð verður
ekki lengur efast um hagræði frjálsr-
ar álagningar fyrir alla: Fyrir búðirn-
ar feist vitanlega hagræði í að fá
verðlistana tilbúna frá málningar-
verksmiðjunum og sleppa þannig
við tímafreka útreikninga. Og jafn
augljóst er hagræðið fyrir tíma-
knappa „Hörpu silki málara“ að
geta treyst því að verðið sé allsstaðar
það sama. Þeir eru þá öruggir um að
gera alltaf „bestu kaupin" í næstu
búð í stað þess að þurfa að þeytast
um bæinn þveran og endilangan til
að gera tímafrekan verðsamanburð.
Guömundur Sigurðsson hjá Verðlagsstofnun:
Málningarsalar virðast
kunna gamla kerf inu vel
Málningarverksmiðjurn-
ar miða í mörgum tilfellum
við sömu smásöluálagningu
í verðlistum sínum eins og
þeir gerðu meðan málning
var undir verðlagsákvæð-
um. Og það þótti þá fremur
lág álagning,“ sagði Guð-
mundur Sigurðsson starfs-
maður Verðiagsstofnunar,
er Tíminn spurði skýringa á
því hvers vegna stofnunin
teldi sjálfsagðan hlut að
málningarverslanirnar selji
vörur sínar allar á sama
verði eftir verðlistum sem
ákveðnir eru hjá fram-
leiðendum.
KJ
Bendir þetta þá ekki til að eig-
endur málningarverslana hafi ekki
viljað frjálsa álagningu?
- Þeir haga sér a.m.k. eftir
gamla verðlagsákvæðakerfinu -
virðast kunna vel við það.
En hver er munurinn á sama máln-
ingarverði í öllum búðum og hins
vegar sama verði á hjólbörðum,
gleraugum ogtómötum, sem Verð-
lagsstofnun hefur ekki vcrið sátt
við?
- Það er ekki óalgengt að fram-
leiðendur gefi leiðbeinandi verð
fyrir næsta sölustig (smásöluna). f
þessu tilfelli eru það verksmiðjurn-
ar sem gefa út lista um leiðbeinandi
verð, sem smásalinn fer eftir.
Varðandi gleraugun voru það hins
vegar smásalarnir sjálfir sem komu
sér saman um verðlistana.
En hafið þið nokkra vissu fyrir
þvf að kaupmenn hafi ekki hönd í
bagga með ákvörðun smásölu-
verðsins hjá verksmiðjunum?
- Það er ekki hægt að útiloka
það og væri sömuleiðis erfitt fyrir
okkur að komast að því. En í
þessum leiðbeinandi verðlistum
virðist álagning nokkuð sanngjörn,
eða svipuð og heimiluð var undir
verðlagsákvæðunum.
Samt kemur fram allt upp í 25%
verðmunur?
- Okkur sýnist að þessi málning-
arbúð í Ingólfsstræti sé ekki með
neina smásöluálagningu, sagði
Guðmundur Sigurðsson. - HEI