Tíminn - 19.07.1988, Page 9
Þriðjudagur 19. júlí 1988
Tíminn 9
líllllllllllllllllll VETTVANGUR:' ^ ^ ^
Ómar Smári Ármannsson:
Kærur koma ekki eins og
þruma úr heiðskíru lofti
Kristinn Snæiand ritar um „umferðaruppeldi“ í Tíman-
um þann 14. júlí s.l. í greininni viðrar hann m.a. skoðanir
sínar um hvernig skuli standa að umferðarlöggæslu og er
ekkert nema gott um það að segja. Hverjum er frjálst að
hafa skoðanir á hlutunum og koma þeim á framfæri.
Hann telur áhersluna við lög-
gæsluna „vera við öfugan enda“.
Athyglin eigi ekki að beinast í svo
miklum mæli að hraðakstri og
eftirliti með ölvunarakstri, heldur
miklu fremur að hinum smærri
brotum. Margt smátt geri eitt stórt.
Komist ökumenn upp með að
fremja hin smærri brot gangi þeir á
lagið og afleiðingarnar sýni sig í
alvarlegri tilfellum.
Undirritaður er að hluta til sam-
mála þessu viðhorfi Kristins og það
verður að segjast að lögreglan
hefur einmitt beint athygli sinni
jafnhliða fyrrgreindum verkefnis-
þáttum að hinum smærri brotum,
ekki endilega til þess að kæra þau,
heldur og miklu fremur til
áminningar.
Hraðakstursbrot hafa verið mest
áberandi í umræðunni að undan-
förnu og ekki að ástæðulausu.
Hlutfall þeirra og annarra brota,
sem kærð hafa verið, hafa verið ca.
eitt af hverjunt þremur. Lögreglan
hefur einnig á sama tíma haft
afskipti af bifreiðum með einungis
eitt skráningarnúmer, með erlent
þjóðernismerki á íslensk-skráðum
ökutækjum, vanrækslu á aðalskoð-
un og endurskoðun, akstri gegn
einstefnu, akstri gegn rauðu ljósi,
brotum á stöðvunarskyldu, vöntun
á ökuskírteini. réttindaleysi við
akstur, brotum á beygjubanni,
ólöglegum bifreiðastöðum, ógæti-
lcgum framúrakstri, brotum á regl-
um um merki og merkjagjöf, öku-
tækjum með lögboðin ökuljós
slökkt í akstri, bifhjólum á göngu-
„TiHitssemi, varkárni,
þekking á umferðar-
lögum og reglum, virð-
ing og aðgæsla eru
þau hugtök, sem oftast
koma við sögu og er.
full ástæða fyrir hvern
og einn að tileinka sér
þau, sjálfum sér og
öðrum til heilla.“
stígum, dekkjabúnaði ökutækja,
of mörgum farþegum í ökutækjum,
númerslausum ökutækjum í
umferð, afklippingum vegna van-
rækslu á tilkynningu eiganda-
skipta, afklippingum vegna beiðna
tryggingarfélaga um ógreidd
iðgjöld, vegna þess að ökumaður
eða farþegi hafa ekki notað bílbelti
í akstri og það hefur átt við,
ökumönnum bifhjóla hlífðar-
hjálmslausum, vegna þess að
óhæfilega hefur verið gengið frá
farmi á vöru- og flutningabifreið-
um, óleyfilegunt öxulþunga, unt-
ferðarmerkingum hvers konar á og
við götur borgarinnar og svona
mætti lengi telja.
Það sem talið er upp hér að ofan
er í suntum tilfellum smávægilcg
brot, en brot samt sem áður, og
það er eitt af hlutverkum lögrcglu
að sjá um að lögum og rcglu sc
fylgt. Það gerir hún eftir því sem
mannafli og tækjabúnaður lcyfir
frá degi til dags. !\ir sem fyrirfram
er vitað að ekki er hægt að sinna
öllum verkefnaþáttum samtímis
alls staðar þarf að stýra mannaflan-
um til verka eftir vægi þeirra hverju
sinni. Hér cr verið að tala um
meginreglu því að sjálfsögðu sinnir
lögreglan öllum þeim þáttum, sem
að höndum ber hverju sinni. Á
hvcrn hátt hún gcrir það og á
hvaða þætti eigi að leggja megin-
áherslu er hægt að deila um cnda-
laust.
Almcnn umræða um umferðar-
leg málcfni hefur aukist og cr það
af hinu góða. Umræðan hcfur í
flestum tilvikum verið jákvæð og
er viðhorf margra, scnt liafa tjáð
sig, að það sc ýmislegt sem við
getum gcrt í sameiningu til þess að
laga það, sem aflaga hcfur farið.
Til þess að svo ntcgi verða þurfa
allir að leggjast á citt. hvort scm
þeir eru akandi cða gangandi, og
stcfna að bættri umfcrðarmcnn-
ingu. Þetta er ckkert scm verður á
einum degi, þróun í rétta átt getur
tekið mánuði og ár. Tillitssemi,
varkárni, þekking á umferðarlög-
um og reglunt, virðing og aðgæsla
eru þau hugtök, scm oftast konta
við sögu og er full ástæða fyrir
hvern og einn að tileinka sér þau,
sjálfum sér og öðrum til heilla.
Tölur um fjölda kærðra segja
ekki alla sögu um afskipti lögreglu
af umferðarlagabrotum.
Áminningar eru veittar í ca. þrem-
ur tilvikum á móti einni kæru. í
janúarmánuði s.l. voru t.d. 1082
ökumenn kærðir íyrir umferðar-
lagabrot í Reykjavík, 1004 í febrú-
ar, 1095 í mars, 1150 í apríl, 1319
í maí og 1019 í júní. Það verður
alltaf álitamál livort ökumcnn
verði „aldir app" í gegnum kæru-
og viðurlagakerfi, en það gefur
óneitanlega gott aðhald. Kærur
koma ekki eins og þruma úr hcið-
skíru lofti yfir cinhvcrn af tómri
tilviljun. Að baki þcim liggur
ástæða sent er í valdi hvcrs og eins.
Að lokum þetta: vinnum saman
sem eitt og reynum hvcrt fyrir sig
að stcfna að því marki að umfcrð-
armenningin hér á landi verði eins
góð hvcrju sinni og nokkur kostur
cr. Þau, scm uppskcra árangur
þess, crum við sjálf.
Virðingarfyllst,
ÓniarSniári Árniannsson
aðalvarðstjóri í um-
ferðardeild lögreglunnar
í Keykjavík
Ólympíuleikarnir:
Ferðavinningur til Seoul
Á undanförnum þremur árum hafa ýmis fyrirtæki veitt
Ólympíunefnd íslands fjárhagslegan stuðning vegna þátttöku
á Olympíuleikum í Seoul.
Á fundi með fulltrúum þeirra fyrirtækja, sem hafa verið
styrktaraðilar Ó.í. gerði formaður Ólympíunefndar, Gísli
Halldórsson, grein fyrir undirbúningi og öllum kostnaði, sem
samfara er þátttöku á Ólympíuleikunum. Hann þakkaði
öllum stuðningsaðilum, sem og þeim, er greitt hafa boð-
greiðslur í gegnum Visa-ísland og öllum öðrum, sem með
einum eða öðrum hætti hafa stuðlað að þátttöku í leikunum.
Nýlega var dregið hjá Borgarfógeta um þrjá minnispeninga
Ólympíunefndar Islands og ferð fyrir tvo á Olympíuleikana í
Seoul.
Eingöngu var dregið úr númerum þeirra korthafa Visa,
sem greitt hafa boðgreiðslur til Ó.í.
Minnispeningana hlutu Þórhildur Pálmadóttir, Fagra-
hvammi 14, Hafnarfirði, Þórður G. Pálsson, Holtsgötu 34,
Reykjavík og Guðborg Þórðardóttir Klettahrauni 7, Hafnar-
firði.
Ferðavinninginn til Seoul hlaut Stefanía Stefánsdóttir
Boðaslóð 22, Vestmannaeyjum.
Af þessu tilefni flutti Einar S. Einarsson, framkvæmdastj.
VISA eftirfarandi ávarp.
Enginn einstakur atburður sam-
einar anda alþjóðlegrar samvinnu,
keppni, friðar og vináttu þjóða á
milli, á jafn lifandi og áhrifamikinn
hátt og Ólympíuleikarnir.
VISA International og aðildar-
bankar þess eru styrktaraðilar um
heim allan vegna Ólympíuleikanna
1988, bæði vetrarleikanna.'sem fram
fóru í febrúar í Calgary, og eins
sumarleikanna í Seoul í Kóreu nú í
september.
1 þessu skyni er varið rúmlega 20
milljónum dollara eða um 1 milljarði
íslenskra króna, sem skiptist í þrjá
jafna hluta, einn fer til Alþjóðlegu
Ólympíunefndarinnar, annar til
skipuleggjenda leikanna og sá þriðji
til ólympíunefnda einstakra landa.
Auk þess vinna VISA-fyrirtækin í
hverju landi með Ólympíunefndum
landanna að því að létta þátttöku
þeirra í leikunum og gera hana sem
glæstasta. VISA ísland dreifði sl.
haust áskorun til allra korthafa
sinna, 80.000 að tölu, og hvatti þá til
að sýna stuðning í verki með því að
láta lítilræði, svo sem 100 krónur
renna mánaðarlega, á sjálfvirkan og
fyrirhafnarlausan hátt með svo-
kölluðum boðgreiðslum um korta-
kerfið, til Ólympíunefndar íslands.
Þá tóku VISÁ og tvær helstu sport-
vöruverslanir landsins, Sportval og
Utilíf, höndum saman um að efla
Ólympíulið fslands til dáða með því
að láta ákveðinn hundraðshluta af
viðskiptum með VISA renna óskipt-
an til Ólympíunefndar Islands fram
að Ólympíuleikum. Ennfrcmur hef-
ur VISA ísland heitið á handknatt-
leiksliðið, kr. 100.000 fyrir hvern
unnin A-landsleik og kr. 50.000 fyrir
jafntefli. Fyrir unninn B-landsleik
kr. 50.000 og kr. 25.000 fyrir jafn-
tefli. Gildir þetta fyrir alla 40-50
landsleiki þess á þessu ári fram yfir
Ólympíuleika. Hefur þetta allt gef-
ið nokkrar fjárhæðir af sér fyrir
Ólympíunefnd og Handknattleiks-
samband íslands.
Sem styrktaraðilar leikanna og
Ólympíuliðanna hafa VISA og þær
fjármálastofnanir sem aðild eiga að
VISA, rétt til ýmissa hiunninda svo
sem notkun ólympíuhringja, merkja
og einkenna leikanna. Hafa ólymp-
íuleikarnir því m.a. skreytt sölunót-
ur, útskriftir og auglýsingar VISA
undanfarið ár.
Þrír korthafar VISA sem veitt
hafa mánaðarlegt framlag til Ólymp-
íunefndar munu fá minnispening
Ólympíunefndar. En korthöfum var
einnig gefið undir fótinn með að þeir
gætu einnig átt möguleika á því að
komast til Seoul í boði VISA og
Ólympíunefndar, því hinn 1. júlí
• 1988 yrði dregið úr kortnúmerum
stuðningsaðila um ferð fyrir tvo á
Ólympíuleikanna, ásamt miðum á
opnunar- eða lokahátíðina og hinar
ýmsu keppnisgreinar.
Nú hefur verið dregið hjá Borgar-
fógetanum í Reykjavík um Ólymp-
Fulltrúar nokkurra stuðningsfyrir-
tækja Ó.í. ásamt forráðamönnum
Ólympíunefndar og vinningshafan-
um meðal boðgreiðenda til Ólymp-
íunefndarinnar í gegnum VISÁ-
Island.
íuferðina. Hinn heppni korthafi og
stuðningsaðili reyndist vera: Stefan-
ía Stefánsdóttir, húsmóðir í Vest-
mannaeyjum, 6 barna móðir, gift
Jóni S. Þórðarsyni, smið þar í bæ.
Stefanía er 67 ára að aldri og er
sérstaklega vel að þessum ferðavinn-
ingi komin fyrir veittan stuðning.
Það er á ýmsan hátt táknrænt að
eldri borgari láti sig heill og ham-
ingju íþróttaæskunnar varða. Það
hefur oft áður sýnt sig að „gamla
konan með sjalið" sem hér er notað
sem samheiti fyrir eldri kynslóðina í
virðingarskyni, er einn dyggasti
stuðningsmaður afreksmanna okkar
á öllum sviðum, jafnt í skák, knatt-
leik, sem frjálsum íþróttum. „Að
gamla konan með sjalið“ skuli nú
vera dregin út sem samnefnari stuðn-
ingsaðila Ólympíunefndar íslands
og hljóta ferð á Ólympíuleikana
ásamt manni sínum, er H senn
skemmtilegt og viðeigandi. Fylgja
bestu óskir um fararheill þeim og
íslenska ólympíuliðinu á sumarleik-
anna í Seoul. Áfram ísland.