Tíminn - 19.07.1988, Síða 12
12 Tíminn
HÖFÐABORG - Blökku-
mannaleiötoginn Nelson
Mandela átti sinn sjötugasta
atmælisdag í fangaklefa í suö-
ur-afrísku fangelsi, en þar hef-
ur hann setið í fjölda ára vegna
baráttu sinnar gegn aðskilnað-
arstefnu stjórnvalda.
AÞENA - Utanríkisráðherr-
ar Evrópubandalagsins fögn-
uðu því að leiðtogafundur Var-
sjárbandalagsins tók vel í hug-
myndir þær er vesturblokkin
hefur lagt fram í stjórnun á
takmörkun vígbúnaðar í Evr-
ópu og hvöttu þeir Varsjár-
bandalagið að taka höndum
saman við ríki Vestur-Evróþu'
og koma hugmyndunum í
framkvæmd. Þá samþykktu
ráðherrarnir að samstarfs-
nefnd dómsmálaráðherra Evr-
óþubandalagsins, sem vinnur
gean hryðjuverkum, skuli ræða
leioir til ao berjast gegn hinni
nýju öldu hryðjuverka á sjó.
JERÚSALEM - Tveir Pal-
estínumenn létu lífið í átökum
við ísraelska hermenn. Átökin
hófust þegar allsherjarverkfall
íbúa á hinum hernumdu svæð-
um vesturbakka Jórdan og á
Gazasvæðinu þróaðist út í
hörð mótmæli gegn fjölda-
handtökum ísraela, en nú eru
þúsundir Araba i fangabúðum
án þess að mál þeirra hafi
verið tekin fyrir í réttarhöldum.
FRÉTTAYFIRLIT
WASHINGTON - Sér
stakur saksóknari sem rann-
sakar mál Edvin Meese fyrrum
dómsmálaráðherra Bandaríkj-
anna segir í skýrslu sinni að
Meese hafi að líkindum brotið
lög í starfi sínu, en að réttar-
höld séu ekki nauðsynleg.
Saksóknarinn var skiþaður til
að fá úr því skorið hvort Meese
hafi aðstoðað vopnasölumann
að ná samningum við stjórn-
völd og hvort hann hafi verið
viðriðinn áætlun um að byggja
olíuleiðslur í Iran.
HELSINKI - Sovéski geim-
farinn Yuri Romanenko, sem;
lengst manna hefur verið í
geimnum, endurnýjaði tilboð
Sovétmanna til Bandaríkja-
manna um að Bandaríkja-
menn tækju þátt í geimferð til i
Mars.
Þriöjudagur 19. júlí 1988
lllllllillllllilllll ÚTLÖND Illllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllll
Lok Persaflóastríðsins kunna að vera á næsta leiti:
IRANAR VIUA
NÚ VOPNAHLÉ
íranar vilja nú vupnahlé í Persa-
llóastríðinu og hafa sent Peres de
Cuellar framkvæmdastjóra Samein-
uðu þjóðanna bréf þar sem þcir
segjast tilbúnir að samþykkja vopna-
hlésskilmála þá er Oryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna lögðu fyrir hina
stríðandi aðila fyrir réttu ári. írakar
samþykktu þá skilmálana, en Iranar
hafa þrjóskast við þar til nú.
Líkur eru því á að hinu blóðuga
Persaflóastríði Ijúki innan skamms
og eftir fund með Mahalatti sendi-
fulltrúa (rana hjá Sameinuðu þjóð-
unum sagðist Peres de Cuellar telja
að vopnahlé gæti vcrið komið á eftir
tíu daga. Sagðist hann ætla að hefja
viðræður við stríðsaðila um nánari
útfærslu vopnahlésins, strax í gær-
kvöldi.
írakar tóku sáttfýsi írana af var-
færni og áréttuðu kröfur sínar um
ítök íraka á Shatt al-Arab svæðinu,
en deilur um landamæri ríkjanna
þar varð kveikjan að styrjöldinni
sem hófst í septembermánuði árið
1980. írakar niunu eflaust rcyna að
standa á kröfum sínum þar, enda
hcfur þcim vegnað vel í stríðinu að
undanförnu.
Rafsanjani yfirntaður íranska
hcrsins sagði að Ayatollah Khom-
eini, andlegur leiðtogi írana, hafi
persónulega ákveðið að íranar
skyldu nú ganga að vopnahlésskil-
málunum. Sagði Rafsanjani engin
veikleikamcrki felast í þessari
ákvörðun, heldur væri hún tekin
vegna „... mikilvægi þess að spara
mannslíf, tryggja réttlætið og frið á
svæðinu og í veröldinni allri“.
Bandaríkjamenn hafa fagnað-
mjög þessari ákvörðun írana og
lýstu því yfir að þetta væri fyrsta
skrefið í átt til varanlegs friðar. Ef
öryggi skipa á Persaflóa yrði tryggt
með þessu vopnahléi væri stutt í það
að bandarísk herskip yrðu kölluð
heim af flóanum enda forsendurnar
fyrir dvöl þeirra þar lokið.
Vopnin ættu að þagna við Persaflóa á næstunni því íranar hafa nú gengið að vopnahlésskilmálum Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna. Því gæti hinu blóðuga Persaflóastríði farið að Ijúka, en það hefur kostað rúmlega milljón
mannslíf.
Þing Demókrataflokksins:
Dukakis og Jackson
náðu fullum sáttum
Michael Dukakis og Jesse Jackson
náðu fullum sáttum fyrir þing Demó-
krataflokksins sem hófst í gær og var
því komist hjá þeim átökum sem
fyrirsjáanleg voru ef Jackson léti
ekki undan síga og byði sig fram á
móti Lloyd Bentsen sem Dukakis
hafði valið sem varaforsetaefni sitt.
Jackson varð ævareiður þegar Duk-
akis valdi Bentsen sem varaforseta-
efni sitt og lét sig ckki vita um þá
ákvörðun sína áður en fjölmiðlar
komust í málið. Jackson hafði lýst
því yfir að hann sæktist eftir útnefn-
ingu sem varaforsetaefni flokksins.
Það var létt yfir þeim þremenning-
unum þegar þeir lýstu yfir sáttum
eftir þriggja tíma fundarhöld. En
Jackson fékk nokkuð fyrir sinn snúð.
Hann mun leika lykilhlutverk í kosn-
ingabaráttunni og hafa áhrif á alla
stefnumótun Demókrataflokksins í
þeirri baráttu. Sem viðurkenningu
fyrir einstaklega góðan árangur í
forkosningunum mun Jackson fá að
bjóða sig fram er þing demókrata
velur forsetaefnið, þrátt fyrir að
Dukakis hafi tryggt sér meirihluta
kjörmanna. Aftur á móti býður
Jackson sig ekki á móti Bentsen í
varaforsetaembættið.
Ljóst er að illa hefði farið fyrir
Dukakis ef hann hefði fengið stuðn-
ingsmenn Jacksons upp á móti sér í blökkumanna, en talið er að yfirleitt
forsetakosningunum, sérstaklega komi um 20% atkvæða demókrata
hefði verið slæmt að missa stuðning frá blökkumönnum.
Jesse Jackson náði að mjólka mikil áhrif á stefnu Demókrataflokksins út úr
góðum árangri í forkosningunum.
Nagorno
Karabakh
enní
Azerbaijan
Aukin sjálfsstjórn í eigin mál-
um og þar af algjör sjálfsstjórn í
mennta- og menningarmálum er
sú dúsa sem Æðsta ráð Sovétríkj-
anna hyggst stinga upp í Armena
í Nagorno Karabakh héraði, en
ráðið tók algerlega fyrir að hérað-
ið sameinaðist Armeníu. Nag-
orno Karabakh verður því áfram
hluti Azerbaijan og mun lúta
yfirstjórn lýðveldisins áfram sem
hingað til. Þetta var niðurstaða
neyðarfundar sem Æðsta ráðið
hélt í gær vegna óróans í Nagorno
Karabakh og í Armeníu að
undanförnu.
Héraðsstjórnin í Nagorno Kar-
abakh sagði sig úr lögum við
Azerbaijan í síðustu viku og lýsti
því yfir að héraðið væri sjálfs-
stjórnarhérað innan Sovétlýð-
veldisins Armeníu. Yfirstjórn
Azerbaijan lýsti þá samstundis
yfir því að áætlun héraðsstjórnar-
innar væri lögleysa, en hins vegar
hlaut ákvörðunin stuðning yfir-
valda í Armeníu.
Á fundi Æðsta ráðsins í gær
lenti fulltrúum Armeníu og Azer-
baijan saman vegna þessa máls.
Má ætla að órói aukist í Armeníu
og í Nagorno Karabakh í kjölfar
þessarar ákvörðunar Æðsta
ráðsins, en hann hefur verið næg-
ur að undanförnu.