Tíminn - 19.07.1988, Qupperneq 14
14 Tíminn
Þriðjudagur 19. júlí 1988
AÐ UTAN
Er þetta drykkjumenningar fyrirmyndin?
Um 10. hver verkamaður
hálfur eftir hádegishlé
í fyrsta skipti á öldinni hafa lífslíkur 16-24 ára hópsins
styst vegna þess hve dauöaslysum af völdum áfengis-
drykkju hefur fjölgað - Um tíundi hver iðnverkamaður er
varla hálfur maður til vinnu eftir heimsókn á pöbbinn í
hádeginu - Börn niður í 11 ára aldur fara með heimaverk-
efnin úr skólanum á „pöbbinn“ - Fjórtán ára strákar
drekka upp í 20 bjóra á viku - Um 10. hver verksmiðju
verkamaður er varla nema hálfur maður til vinnu, fyrst og
fremst eftir hádegistímabilið á pöbbnum - Fjörði hver
karlmaður drekkur yfir hættumörkum, sem miðast við 21
bjórglas, um 3,5 vínflöskur eða 21 sjúss (tæplega eina
flösku) af sterku áfengi á viku hverri að meöaltali.
Hættulegur klofningur
Á bak við virðulegt og ábyrgðarfullt útlit getur leynst
vansæl persóna sem á við áfengisvandamál að stríða.
Hvar er
„drykkjumenningin11?
Vonandi eiga fáar eða engar
framangreindra lýsinga við á ís-
landi - ennþá að minnsta kosti. En
eftir að hafa í vctur og vor lcsið cða
hlustað á útlistanir á þeim geysi-
legu framförum í „drykkjumcnn-
ingu“ sem bjórinn á að færa lands-
mönnum, rckur mann óncitanlcga ,
í rogastans að geta vart orðið 1
opnaö blað eða tímarit frá „bjór-
löndunum" í nágrcnni okkar (sem
bent hcfur verið á scm fyrirmyndir
um "drykkjumenninguna") án þess
að rekast á hvcrja greinina eftir
aðra með útlistunum á drykkju- og
áfengisvandamálum í þcssum lönd-
um - og gcysilcgar áhyggjur af
þróuninni.
Bretar orðnir
alvarlega áhyggjufullir
Grein í nýlegu bresku vikublaði
(einu höfuðvígi „bjórdrykkju
menningarinnar") er mjög dæmi-
gcrð fyrir fjölda annarra um sama
efni, sem undirrituð hefur æ oftar
rekist á í breskum blöðum og
tímaritum undanfarnar vikur og
mánuði.
„Fullir áhangendur fótboltaliða,
sem elta lið sín um lönd Evrópu,
og hópar „villinga" sem fara brjót-
andi og bramlandi um friðsæl þorp
og bæi úti á landi, cru aðeins
sjúkleg dæmi um drykkjuskapinn í
Bretlandi", byrjar grcinarhöfund-
ur.
- En eyðileggingin og tjónið af
völdum drykkjuskapar er ckki ein-
göngu fylgifiskur þessara ungu
brjálæðinga. Áfengisneysla hefur
tvöfaldast á síðustu 30 árum, með
hörmulegum afleiðingum á heilsu-
fari þjóðarinnar, að sögn sérfræð-
inga.
Ofdrykkjuvandamál
bíður 6. hvers
Að minnsta kosti 6. hver upp-
kominn Breti (karlar og konur) er
líklegur til að eiga við ofdrykkju-
vandamál að stríða einhverntíma á
lífsleiðinni.
Allir kannast við myndina af
gamla flökku rónanum - eða
þekkja einhvern alkóhólista. En
þar er þó aðeins um smámál að
ræða í samanburði við stærsta
vandamálið - þær milljónir fólks
sem álíta eigin drykkju aðeins
venjulega og eðlilega. En allt of
margir þeirra vanmeta það alvar-
lega hversu mikið þeir raunveru-
lega drekka - og sömuleiðis hvern
skaða þeir vinna sjálfum sér með
drykkjunni.
Meira fé í áf engiskaup en
allan fatnað og einkabí la
Hvern einasta dag ársins eyðum
við að meðaltali um 45 milljónum
sterlingspunda (3.150 milljónum
ísl. króna) til áfengiskaupa, sem er
hærri upphæð en við samanlagt
vcrjum til allra fata- og skókaupa
og til kaupa á og rekstrar einkabíl-
anna okkar. (Samsvarar um 5.000
milljónum ísl. króna á ári.)
Kostnaðurinn af völdum áfengis-
misnotkunar hefur vaxið með auk-
inni drykkju og er nú orðinn 1.850
milljónir sterlingspunda (130 millj-
arðar ísl.kr.) á ári. Stórdrykkju-
mennirnir valda ekki mesta
skaðanum, hcldur hinir venjulegu
drykkjumenn sem drekka jafnt og
þétt.
Tölur sýna að áfengisdrykkja er
ástæða fyrir:
- Sjötta hverju slysi og bráðainn-
lögn á sjúkrahús.
- Milli 8 og 14 milljón tapaðra
vinnudaga vegna fjarvista.
- Um 45% ofbeldisglæpa.
- Um 1.400 dauðsfalla vegnaölvun-
araksturs, auk þeirra mörg þús-
unda sem slasast.
- Meira en 40.000 dauðsfalla fyrir
aldur fram.
11 ára með
stílabækurnar á pöbb
í framleiðslufyrirtækjum er um
10. hver verkamaður með skerta
vinnugetu vegna drykkjuskapar,
til starfa, sérstaklcga eftir hádegis-
tímabilið á pöbbunum.
Börn allt niður í 11 ára aldur
taka heimaverkefnin með sér á
krár i Vest County, og 14 ára
drengir drekka allt að 20 bjóra (10
„pints") á viku.
„Alkóhól er stærsta heilbrigð-
isvandamál okkar tíma, stærra en
tóbaksreykingar og miklu stærra
en neysla ólöglegu fíkniefnanna"
samkvæmt áliti sérfræðinga Kon-
unglega geðlæknaháskólans.
Menn í viðskiptalífinu sem
drekka í tengslum við starfið, ung-
ar framsæknar konur sem keppa
nú við starfsbræður sína í drykkju
sem starfi, og unglingar með rúm
fjárráð í klíkum eða drykkfelldum
félögum, eru meðal þeirra hópa
sem eru í hvað mestri hættu.
Margir drekka alla daga
Öfugt við „fótboltabrjálæðing-
ana" eru það almennt fáir sem
stefna að því að gera sig að fíflum
þegar þeir drekka. En margir
drekka áfengi á hverjum einasta
degi, og auka stöðugt magnið, oft
án þess að átta sig á því sjálfir. Pað
er sá hópur sem þeir hafa hvað
mestar áhyggjur af sem vinna að
aðstoð við ofdrykkjumenn og alkó-
hólista.
Til að tefla ekki heilsu sinni í
tvísýnu ætti meðalkarlinn ekki að
drekka yfir 21 áfengisskammt á
viku og meðalkonan ekki yfir 14
skammta. Með skammti er þá átt
við; 21 lítinn bjór („half a pint" af
venjulegum bjór eða lageröli), ein-
faldan sjúss, vínglas eða lítið glas
af sherrý.
Um fjórðungur karla
yfir hættumörkum
Áætlað er að 4. hver karlmaður
og 12. hver kona stofni heilsu sinni
í hættu með drykkju umfram þessi
mörk. Karlmaðursem drekkuryfir
36 áfengisskammta á viku og kona
sem fer yfir 22 skammta vikulega
stefna heilsufari sínu í alvarlega
hættu.
Mörg vandamál, svo sem ölv-
unarakstur, árásir, ofbeldi og önn-
ur afbrot eru fylgifiskar ölvunar.
En stöðug drykkja yfir ákveðin
mörk hefur langtímaáhrif á ein-
staklingana.
Ófrjósemi og ónýtt hjarta
Auk hættu á lifrarskemmdum
hefur áfengisdrykkja áhrif á;
hálsinn, heilann. hjartað, brisið,
kynfærin og magann. Rannsóknir
hafa leitt í ljós að tengsl eru á milli
áfengisdrykkju og; krabbameins,
hjartasjúkdóma, heilaskemmda og
ófrjósemi.
Sumir hópar fólks eru viðkvæm-
ari en aðrir. Áfengi hefur m.a.
miklu fyrr og meiri áhrif á ungt fólk
heldur en uppkomið. Áfengisþol
kvenna er. miklu minna en karla
vegna meiri fitu og minna vatns í
líkama kvenna.
Þrátt fyrir að konur drekki enn
miklu minna en karlar, fjölgar líka
þeim konum sem hljóta refsingu
vegna ölvunaraksturs. Stöðugt al-
gengara er að sjá illa drukknar
konur og dauðsföllum vegna
skorpulifrar fjölgar meðal kvenna.
Þetta kann að endurspegla breytta
lífshætti, m.a. fjölgun kvenna á
vinnumarkaði og þar með aukin
fjárráð og aukið sjálfstæði kvenna.
Hækkað verð
og ökuleyfissvipting?
Á vegum stjórnvalda eru í gangi
rannsóknir á vandamálum vegna
ofdrykkju, auk þess sem margs-
konar uppástungur um aðgerðir
til að glíma við vandann berast frá
öðrum nefndum og samtökum.
Margir leggja til að verð á áfengi
verði hækkað, sem stjórnvöld hafa
hafnað til þessa. Tillögur hafa
komið fram um að skylda vínfram-
leiðendur til að merkja flöskur
sínar og dósir með viðvörunum um
óhollustu, svipað og gert hefur
verið með tóbakið. Bent er á að
klúbbum og börum ætti að vera
skylt að vara fólk við hættunni sem
fylgir of mikilli drykkju. Þá er
bann við áfengisauglýsingum í
sjónvarpi til umræðu og þar vitnað
til fordæmis Frakka, Dana, Svía og
Svisslendinga á því sviði. Ogsömu-
leiðis er lagt til að meira verði gert
af því að prófa ökumenn með því
að láta þá blása í blöðrur, að lög
um ökuleyfissviptingar vegna ölv-
unaraksturs verði hert.
Ungmenni og börn
drekka mest allra
Aldurshópurinn 24 ára og yngri,
sérstaklega strákar, er nú orðinn sá
hópur sem drekkur mest af öllum
í Bretlandi, og þeir byrja löngu
fyrir 18 ára afmælisdaginn. Vitnað
er til rannsókna sem leiddu í ljós
að þriðjungur stráka og fjórðungur
stelpna byrjar að drekka þegar
fyrir 15 ára afmælið, og að ung-
lingadrykkja á bjórkrám sé mjög
algeng. Vegna ntinna þols á svo
ungum aldri þarf aðeins lítið magn
áfengis til að rugla dómgreind
ungmenna.
Ungmenni undir 21 árs aldri
bera ábyrgðina á nærri fjórðungi
allra ölvunarafbrota. í þriðjungi
tilvika um afbrot og fórnarlömb
vegna ölvunaraksturs, er sökudólg-
ana að finna í hópi 24 ára og yngri.
Ölvun á sökina á nærri helmingi
meiriháttar slysa á ungu fólki í
umferðinni.
Um 100 sinnum meiri hætta er á
að táningar deyi af ástæðum tengd-
um áfengisdrykkju heldur en
neyslu ólöglegra fíkniefna.
Að mati sérfræðinga er allra
brýnast að fá almenning til að átta
sig á að það þarf ekki mjög aukna
drykkju til að koma jafnvel hóf-
samasta hópi þeirra sem drekka í
áhættuhópinn.
íslenska „ómenningin“
kannski skárri?
Þessi lýsing á þeirri „drykkju-
menningu" meðal erlendra þjóða
sem ýmsir hafa vitnað til sem
fyrirmyndar vekur spurningu um
hvort íslenska “ómenningin" -
helgarfyllirtin - sé kannski, af
tvennu illu, skárri þegar allt kemur
til alls? Þýtf og endursagt HEI
Viðvörnunarmerki
Atriði sem benda til að
áfengisdrykkja sé - eða
gæti orðið - vandamál:
• Þörf fyrir að eiga alitaf
áfengi.
• Að lenda í vandræð-
um vegna drykkju í
sambandi við vinnu, við
lögregluna eða í pen-
ingamálum.
• Bregðast reiður við ef
fólk ræðir um drykkju-
skap þinn.
• Þurfa stöðugt meira til
að ná hinum eftirsóttu
áhrifurm
• Verða lasinn, pirraður,
fá titring, og/eða svitna
á morgnana eða um
miðjar nætur.
• Meiðslieðaslysvegna
ölvunar.
• Annað fólk lýsir
áhyggjum vegna
drykkju þinnar.