Tíminn - 06.08.1988, Síða 20
20 Tíminn
. Lgugardagur 6. ágúst 1988
lllllllllllllllllllllll DAGBÓK 11
VIKAN 18. tbl.
Dultrú íslendinga - og rannsóknir á
yfirskilvitlegum fyrirbærum, heitir grein
fremst í þessu blaði. Þar er m.a. sagt frá
kynnum íslendinga af gcimverum.
Þá er viðtal við Margréti Hallgríms-
dóttur fornleifafræðing, sem nú er að
störfum í Viðey.
Vikan sendir ungfrú Suðurnes í fegurð-
arsamkeppni í Þýskalandi: Oueen of the
World 1988. Það er sagt frá þessu fram-
taki Vikunnar í grein mcð mörgum mynd-
um af Guðbjörgu Fríðu Guðmundsdótt-
ur.
Áhugamál fyrir allar árstíðir, nefnist
viðtal við Guðrúnu Guðjónsdóttur, lax-
veiðikonu m.m. og segir hún frá ýmsum
áhugamálum sínum og eiginmannsins,
Guðlaugs Bergmanns í Karnabæ. „Uppi,
Fuppi, Buppi“, nefnist þýdd og staðfærð
grein Sigrúnar Harðardóttur.
Vikan spyr sjö konur hver sé
DRAUMABfLLINN og fylgja myndir
svörum þeirra. Smásaga er í blaðinu eftir
Gunnar Finnbogason og nefnist “Forseta-
kosningar". Sagan cr skrifuð í Kaup-
mannahöfn 1980.
Pósturinn er á sínum stað, sumarget-
raun Vikunnar, prjónaþáttur, „Leikfimi
fyrir letingja”, uppskriftir að gómsætum
réttum, sagt frá Miehael Jackson o.fl.
Forsíðumyndin er af Guðbjörgu Fríðu
Guðmundsdóttur, fegurðardrottningu
Stfðurnesja, við Bláa lónið.
SAMÚELnr. 121
f ágústhefti Samúels er frcmst sagt frá
leiklistarhópnum Guys and Dolls sem
nýlega sýndu hér í Reykjavík. Einnig er
frásögn með mörgum myndum af kvöld-
samkomu „fegurstu kvenna landsins“ en
það voru nokkrar af fegurðardísunum,
sem tóku þátt í síðustu keppni. Þær voru
saman komnar heima hjá einni þeirra,
Guðrúnu Margréti Hannesdóttur í
Skerjafirðinum.
f vímu á bólakafi nefnist grein, þar sem
segir frá blaðamanni Samúels sem kafar
með Pálma Dungal og fræðist um köfun.
fslandsmeistari í Rallakstri, Rúnar
Jónsson, er t viðtali í Samúels-grein sem
nefnist: Hvorki töffari né súkkulaðigæi.
Einnig er grein um bjórinn og önnur um
fjölbragðaglímu.
Hvað finnst þeim? Þar spyr Samúel
þjónustustúlkurnar í Hard Rock Café og
Eikagrilli um bíla, stráka, föt, skemmtan-
ir, ferðalög og fleira. Sakamálafrásögnin
Leyndarmál góðborgara segir frá fjölda-
morðingja í Bandaríkjunum. Viðtal er
við George Michacl og heilsíðumynd af
söngvaranum. Þá er bílaþáttur og sólar-
myndir af Tinu á Skáni og fleiri píum þar
í Svíþjóð.
Dagsferðir Útivistar
Sunnudagsferðir 7. ágúst:
Kl. 08:00 Þórsmörk - einsdagsferð
(1200 kr.)
Kl. 10:30 Leggjahrjotur - Gengin gamla
þjóðleiðin úr Brynjudal að Svartagili við
Þingvelli. Skemmtileg gönguleið.
Kl. 13:00 Þingvellir - Hrauntúnsgatu.
Gengin áhugaverð þjóðleið m.a. hjá
gömlu eyðibýlununt á Þlngvöllum (900
kr.)
Miðvikudag í Þórsmörk 10. ág. kl.
08:00 Ódýr sumardvöl í Útivistarskálun-
um Básum. Hægt að dvelja til föstudags,
sunnudags eða lengur.
Kl. 20:00 Bláfjöll - útsýnisferð mcð
stólalyftu. (800 kr.)
Brottför frá BSÍ, bensínsölu.
Útivist
Sumarleyfisferðir Útivistar
Eldgjá - Þórsmörk 12.-17. ágúst.
Skemmtilcg bakpokaferð frá Eldgjá um
Álftavatnskrók, Strútslaug, Hvanngil og
Emstrur til Þórsmerkur.
Þjórsárver 18.-21. ágúst. Ekið inn á
Sprengisand og farið með báti yfir Þjórsá.
Gengið á Arnarfell hið mikla. Göngu-
tjöld.
Tröllaskagi 19.-24. ágúst. A) Gengið
um Hólamaannaveg (2 dagar) B) Gengið
frá Siglufirði í cyðifjörðinn Héðinsfjörð
og til Ólafsfjarðar.
Upplýsingar og farmiðar á skrifstofunni
Grófinni 1, símar 14606 og 23732
Sjáumst! -
Útivist
Ytri-Njarðvíkurkirkja
Guðsþjónusta kl. 09:30. Kór Keflavík-
urkirkju syngur. Organisti er Örn
Falkner. Athugið breyttan messutíma
(kl. 9.30 árd.)
Ólafur Oddur Jónsson
síðan frá málaradeild Myndlista- og
Handíðaskóla íslands 1982. Hún hefur
einnig dvalið í norrænni gistivinnustofu í
Danmörku á vegum Nordisk Kunstcent-
er. Rut Rebekka hcfur áður haldið þrjár
einkasýningar, síðast að Kjarvalsstöðum
1985. Hún hefur einnig tekið þátt í
ýmsum samsýningum hérlendis, í Dan-
mörku, Bandaríkjunum og í Kanada.
Rut Rebekka sýnir bæði olíumálverk
og grafík á sýningu sinni.
Sýningar Guðlaugs Þórs og Rutar Re-
bekku standa 6.-21. ágúst og eru opnar
daglega kl. 14:00-22:00.
Sumarsýning á landslags-
myndum eftir Kjarval í Austursal
í austursal Kjarvalsstaða stendur yfir
sumarsýning á landslagsmyndum eftir
Jóhannes S. Kjarval. Á sýningunni er að
finna verk er spanna alla starfsævi
Kjarvals, og jafnframt eru á sýningunni
skissur og smærri myndir, sem hafa lítið
komið fyrir almenningssjónir.
Sýningin er opin daglega kl. 14:00-
22:00 til 21. ágúst.
Keflavikurkirkja
Guðsþjónusta kl. 11:00. Organisti Örn
Falkner.
Sóknarprestur
KVENNAATHVARF
Húsaskjól cr opið allan sólarhringinn
og aðstoð fyrir konur sem bcittar hafa
verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið
fyrir nauðgun.
Síminn er 21205 - opinn allan sólar-
hringinn.
Nína Gautadóttir í Gallerí
SVART Á HVÍTU 30. júlí-14. ág.
30. júlísl. varopnuðíGallerí„SVART
Á HVÍTU“, Laufásvegi 17, sýning á
verkum Nínu Gautadóttur. Á sýningunni
eru olíu- og akrýlmálverk unnin 1987-’88.
Nína Gautadóttir nam myndlist í París
á árunum 1969-1976. Hún hefur tckið
þátt i fjölda samsýninga í Frakklandi og
víðar og haldið cinkasýningar.
Nína hcfur verið búsett í París frá árinu
1969, en cinnig dvalið í Nígcríu og í
Kamcrún . Hún hefur unnið til fjölda
verðlauna og viðurkcnninga fyrir list
sína, nú síðast á alþjóðlegri sýningu í
Aþenu.
Þetta er fimmta einkasýning Nínu
Gautadóttur hér á landi, en fyrsta einka-
sýning hennar var að Kjarvalsstöðum
1980. 1983 hélt hún sýningu i Listmun-
ahúsinu og aftur á Kjarvalsstöðum 1986.
Um síðustu helgi lauk sýningu hennar í
Glerárkirkju á Akureyri.
Sýning Nínu Gautadóttur er opin alla
daga ncma mánudaga kl. 14:00-18:00 og
stendur til 14. ágúst.
I' LISTAVERKASÖLU gallerísins
(efri hæð) eru til sölu verk ýmissa mynd-
listarmanna og má m.a. ncfna:
Karl Kvaran, Georg Guðna, Huldu
Hákon, Helga Þorgils Friðjónsson, Hall-
dór Björn Runólfsson, Jón Óskar, Jón
Axcl, Brynhildi Þorgeirsdóttur, Pétur
Magnússon, Kees Visser, Ólaf Lárusson,
Svanborgu Matthíasdóttur, Pétur Magn-
ússon, Sigurð Guðmundsson, Sigurð Or-
lygsson, Pieeter Holstein og Tuma Magn-
ússon. Listaverkasalan er opin á sama
tíma og sýningarsalur gallerísins, kl.
14:00-18:00 alla daga nema mánudaga.
Kjarvalsstaðir:
Guðlaugur Þór og
Rut Rebekka í Vestursal
- en Kjarvals-sumarsýning í Austursal
Myndlistafólkið Guölaugur Þór Ás-
geirsson og Rut Rcbekka Sigurjónsdóttir
opnasýningar í Vestursal Kjarvalsstaða í
dag, laugardaginn 6. ágúst kl. 14:00.
Við opnun sýningarinnar munu Nína
Margrét Grímsdóttir píanóleikari,
Bryndís Pálsdóttir fiðluleikari og Þórhild-
ur Björnsdóttir flytja tónlist. Einnig mun
Málfríður Konráðsdóttir píanóleikari
spila sunnudaginn 21. ágúst kl. 16:00.
Guðlaugur Þór lauk námi við grafík-
deild Myndlista- og Handíðaskóla fslands
vorið 1981. Hann hefur haldið tvær
cinkasýningar, í Nýja Galleríinu, Lauga-
vegi 12 árið 1982 og í Gallerí Djúpi 1983
og einnig tekið þátt í samsýningum, t.d.
sýningunni Ungir Myndlistarmenn 1983
að Kjarvalsstöðum. Hann sýnir nú olíu-
og pastelmyndir, unnar á árunum 1986-
’88.
Rut Rebekka stundaði nám í Mynd-
listaskólanum í Reykjavík og útskrifaðist
Ljósmyndasýning
í Vesturforsal
í Vesturforsal verður opnuð í dag
Ijósmyndasýning á myndum eftir sænskan
Ijósmyndara.Bengt S. Eriksson.
Bengt S. Eriksson er einn þekktasti
Ijósmyndari Svía, einkum fyrir landslags-
myndir. Hann hefur haldið fjölda einka-
sýninga, bæði í Svfþjóð og annars staðar
og tekið þátt í samsýningum. Myndir
hans hafa birst í þekktum blöðum og
tímaritum, bókum og sjónvarpsþáttum.
Hann hefur einnig fengið ýmis verðlaun
fyrir Ijósmyndir.
Bengt S. Eriksson dvaldi hér á Islandi
við myndatökur í apríl 1986. Á sýning-
unni eru um 50 litmyndir af norðlægum
slóðum, m.a. frá Skandinavíu og íslandi.
Sýningin stendur 6.- 21. ágúst.
Elías B. Halldórsson
sýnir í Bókasafni Kópavogs
Nú stendur yfir sýning í listastofu
Bókasafns Kópavogs á 11 olíumálverkum
eftir Elías B. Halldórsson.
Elías er fæddur í Borgarfirði eystra
1930 og stundaði nám í Myndlista- og
handíðaskóla Islands 1955-1958, síðan
framhaldsnám við listaakademíuna í
Stuttgart í Þýskalandi og við Konunglegu
listaakademíuna í Kaupmannahöfn.
Hann hélt sína fyrstu sýningu í Bogasal
Þjóðminjasafnsins 1961. Síðan hefur
hann haldið margar einkasýningar og
tekið þátt í samsýningum hér heima og
erlendis. Hann hélt stóra sýningu á Kjar-
valsstöðum 1985 og einkasýningu í Gall-
erí Borg í aprfl sl.
Elías hefur lengst af búið á Sauðár-
króki, en býr nú í Kópavogi.
Sýning Elíasar er opin á sama tíma og
bókasafnið, mánudaga til föstudaga kl.
09:00-21:00 og stendur hún út ágústmán-
uð.
Bókasafn Kópavogs er til húsa í Fann-
borg 3-5, aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
60 ára afmæli
Ernst Sigurðsson, Grænumörk 3, Sel-
fossi er 60 ára í dag, laugardaginn 6.
ágúst.
Hann hefur í mörg ár unnið hjá Mjólk-
urbúi Flóamanna á Selfossi. Áður vann
hann hjá Mjólkursamsölunni í Reykj-
avík.
Ernst er félagslyndur og glaðsinna og
hefur unnið mikið að því að leiðbeina
unglingum við frímerkjasöfnun í heima-
byggð sinni.
SJÓNVARPIÐ
Laugardagur
6. ágúst
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Gunnar Björnsson
flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 Góðan dag, góðir hlustendur". Pétur Pét-
ursson sér um þáttinn.i^réttir á ensku kl. 7.30.
Fréttir sagðar kl. 8.00, þá lesin dagskrá og
veðurfregnir sagðar kl. 8.15. Að þeim loknum
heldur Pétur Pétursson áfram að kynna morg-
unlögin fram að tilkynningalestri laust fyrir kl.
9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn. Umsjón: Gunnvör
Braga. (Einnig útvarpað um kvöldið kl.
20.00).
9.20 Sígildir morguntónar. a. Konsert í F-dúr
BWV 1057 fyrir tvær blokkflautur, sembal og
strengi eftir Johann Sebastian Bach. The Engl-
ish Concert flytur; Trevor Pinnock stjómar. b.
Forspil, stef og tilbrigði fyrir klarinettu og hljóm-
sveit eftir Bernhard Crusell. Emma Johnson
leikur á klarinettu með Ensku kammersveitinni;
Yan Pascal Tortelier stjórnar. c. Serenaða úr
strengjakvartett í F-dúr eftir Joseph Haydn. „I
Musici" kammersveitin leikur. d. Sinfónískur
dans nr. 3 eftir Edvard Grieg. Sinfóníuhljóm-
sveitin í Björgvin leikur; Karsten Andersen
stjórnar.
10.00 Fróttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir
10.25 Ég fer í frílð. Umsjón: Inga Eydal. (Frá
Akureyri)
11.00 Tilkynningar.
11.05 Vikulok. Fréttayfirlit vikunnar, hlustend-
aþjónusta, viðtal dagsins og kynning á dagskrá
Útvarpsins um helgina. Umsjón: Sigrún Björns-
dóttir.
12.00Tilkynningar. Dagskrá.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir.
13.10 í sumarlandinu með Hafsteini Hafliðasyni.
(Einnig útvarpað nk. miðvikudag kl. 15.03).
14.00 Tilkynningar.
14.05 Sinna. Þáttur um listir og menningarmál.
Umsjón: Magnús Einarsson og Þorgeir Ólafs-
son.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Laugardagsóperan: „Túskildingsóperan“
eftir Kurt Weill. Jóhannes Jónasson kynnir.
18.00 Sagan: „Vængbrotinn“ efftir Paul-Leer
Salvesen. Karl Helgason les þýðingu sína (3).
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttlr
19.30 Tilkynningar.
19.35 Óskin. Þáttur í umsjá Jónasar Jónassonar.
(Einnig útvarpað á mánudagsmorgun kl. 10.30).
20.00 Litli barnatíminn. Umsjón: Gunnvör Braga.
(Endurtekinn frá morgni).
20.15 Harmoníkuþáttur. Umsjón: Einar Guðm-
undsson og Jóhann Sigurðsson. (Frá Akureyri)
(Einnig útvarpað á miðvikudag kl. 14.05).
20.45 Land og landnytjar. Umsjón: Finnbogi Her-
mannsson. (Frá Isafirði) (Einnig útvarpað á
föstudag kl. 15.03).
21.30 íslenskir einsöngvarar. Sigurður Björnsson
syngur lög eftir Sigurð Þórðarson, Þórarin
Jónsson, Karl O. Runólfsson og Jón Laxdal.
Guðrún A. Kristinsdóttir og Fritz Weisshappel
leika á píanó.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Stund með P.G. Wodehouse. Hjálmar
Hjálmarsson les söguna „Snúist kringum
Bingó“ úr safninu „Áfram Jeeves“ eftir P.G.
Wodehouse. Sigurður Ragnarsson þýddi.
23.25 Danslög
24.00 Fréttir.
00.10 Um lágnættið. Sigurður Einarsson kynnir
sígilda tónlist.
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
02.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af
veðri og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
8.10 Á nýjum degi með Erlu B. Skúladóttur sem
leikur létt lög fyrir árrisula hlustendur, lítur í
blöðin og fleira.
10.05 Nú er lag. Gunnar Salvarsson tekur á móti
gestum í morgunkaffi, leikur tónlist og kynnir
dagskrá Ríkisútvarpsins.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á réttri rás með Halldóri Halldórssyni.
15.00 Laugardagspósturinn - Bikarkeppnin í
frjálsum íþróttum á Laugardalsvelli. Ingólfur
Hannesson og Jón Óskar Sólnes fylgjast
með Bikarkeppninni í frjálsum íþróttum á
Laugardalsvelli frá kl. 14.00 til kl. 16.00 og
iýsa keppni í einstökum greinum. Umsjón:
Pétur Grétarsson.
17.00 Lög og létt hjal - Svavar Gests.
18.00 Tekið á rás - Frá alþjóðlega handknatt-
leiksmótinu á Spáni. Ingólfur Hannesson lýsir
leik Islendinga og Sovétmanna.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 Út á lífið. Bryndís Jónsdóttir ber kveðjur milli
hlustenda og leikur óskalög.
02.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns.
Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af
veðri og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 8.00, 9.00, 10.00,
12.20,16.00,19.00, 22.00 og 24.00.
Laugardagur
6. ágúst
17.00 Iþróttlr. Umsjón Arnar Björnsson.
18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Prúðuleikararnir. (Muppet Babies) Teikni-
myndaflokkur eftir Jim Henson. Þýðandi Guðni
Kolbeinsson.
19.25 Smellir. Umsjón Steingrímur Ólafsson.
19.50 Dagskrárkynning
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Lottó.
20.40 Fyrirmyndarfaðir. (Cosby Show) Lokaþátt-
ur. Rifjuð verða upp minnisverð atriði úr fyrri
þáttum. Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
21.30 Maður vikunnar.
21.45 Fögnuður. (Jour de Fete). Sígild, frönsk
kvikmynd frá árinu 1948, frumraun leikstjórans
Jacques Tati sem jafnframt leikur aðalhlutverk-
ið í myndinni. Bréfberi í litlu sveitaþorpi sér
ofsjónum yfir tækniframförum í Bandaríkjunum
og ætlar að færa sértæknina í nyt. Þýðandi Ólöf
Pétursdóttir.
23.05 Áfram veginn. (Road Games). Áströlsk
mynd frá 1981. Leikstjóri Richard Franklin.
Aðalhlutverk Stacy Keach og Jamie Lee Curtis.
Vörubílstjóri telur sig hafa orðið vitni að morði
og er fyrr en varir flæktur í dularfullt mál og
eltingaleik um þvera og endilanga Ástralíu.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
00.35 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Laugardagur
6. ágúst
09.00 Með Körtu. Karta svarta og Tútta fá óvænta
sendingu frá Nomabæ í þessum þætti. Myndirn-
ar sem Karta sýnir í dag eru: Kátur og
hjólakrílin, Lafdi Lokkaprúð, Yakari, Depill, ,
Selurinn Snorri og Óskaskógurinn. Gagn og
gaman, fræðsluþáttaröð. Allar myndir sem
bömin sjá með Körtu eru með íslensku íali.
Leikraddir: Guðmundur Ólafsson, Guðný Ragn-
arsdóttir, Guðrún Þórðardóttir, Júlíus
Brjánsson, Kolbrún Sveinsdóttir, Pálmi Gests-
son og Saga Jónsdóttir.
10.30 Penelópa puntudrós. The Perils of Pene-
lope Pitstop. Teiknimynd. Þýðandi: Alfreð Sturla
Böðvarsson. Worldvision.
10.55 Hinir umbreyttu. Transformers. Teikni-
mynd. Þýðandi: Sigurður Þór Jóhannesson.
Sunbow Productions.
11.25 Benji. Leikinn myndaflokkur fyrir yngri kyn-
slóðina um hundinn Benji og félaga hans sem
eiga í útistöðum við ill öfl frá öðrum plánetum.
Þýðandi: Hersteinn Pálsson. Thames Televis-
ion.
12:00 Viðskiptaheimurinn. Wall Street Journal
Endursýndur þáttur frá síðastliðnum fimmtu-
degi.
12.30 Hlé.
13.35 Laugardagsfár. Tónlistarþáttur. Plötusnúð-
urinn Steve Walsh heimsækir vinsælustu
dansstaði Bretlands og kynnir nýjustu popplög-
in. Musicbox 1988.
14.30 Fjallasýn. Five Days, One Summer. Róm-
antísk mynd um miðaldra Skota á ferðalagi í
Svissnesku ölpunum ásamt hjákonu sinni.
Ferðin tekur óvænta stefnu þegar hjákonan
hrífst af leiðsögumanninum. Aðalhlutverk: Sean
Connery, Betsy Brantley og Lambert Wilson.
Leikstjóri: Fred Zinnemann. Framleiðandi: Fred
Zinnemann. Þýðandi: Bergdís Ellertsdóttir.
Warner 1982. Sýningartími 105 mín.
16.15 Listamannaskálinn. The South Bank Show.
Fylgst með æfiungum og uppfærslu á leikritinu
Lér konungur eftir Shakespeare. Þýðandi: örn-
ólfur Ámason. Umsjónarmaður er Melvin Bragg.
LWT.
17.15 (þróttirá laugardegi. Litið yfir íþróttir helgar-
innar og úrslit dagsins kynnt. íslandsmótið, SL
deildin, NBA karfan og fréttir utan úr hinum stóra
heimi. Umsjón: Heimir Karlsson.____________
19.1919.19 Fréttir, veður, íþróttir, menning og
listir, fréttaskýringar og umfjöllun. Allt í einum
pakka.
20.15 Ruglukollar. Marblehead Manor. Snarrugl-
aðir, bandarískir þættir með bresku yfirbragði.
Þýðandi: Ragnar Hólm Ragnarsson. Para-
mount.
20.45 Verðir laganna. I kvöld hefjum við sýningar
á þáttaröð um Verði laganna á Hill Street-lög-
reglustöðinni. í forsvari lögreglumannanna er
Frank Furillo, hæglátur en þrautseigur maður.
Dag hvem og langt fram á nótt fæst hann við
illa þokkaðan lýð, sem býr innan hans umdæm-
is; fólk sem stundar fíkniefnasölu og -neyslu,
vændi, innbrot og morð. Af ofangreindu virðist
sem Frank hafi nóg á sinni könnu, en þó er ekki
allt upp talið. Skrifstofustörfin á lögreglustöðinni
og persónulegt stríð hans við fyrrverandi eigin-
konu sína og sömuleiðis fyrrum ástkonu taka
drjúgan skerf á tíma hans. Þættimir eru breskir
og skemmtileg blanda af gamni og alvöru.
Aðalhlutverk: Michael Conrad, Daniel Travanti
og Veronica Hamel. NBC._______________________
21.25 Fjörugur frídagur. Ferris Bueller’s Day off
Fjörugur frídagur segir frá borubröttum unglingi
sem hefur nýleqa sagt skilið við skólann og er
kominn í sumarfrí eftir langan og erfiðan vetur.
Hann sér sumarævintýrin í rósrauðum
bjarma.en þau verða öðruvísi en hann hafði
vænst. Aðalhlutverk: Matthew Broderck, Alan
Ruck og Mia Sara. Leikstjóri: John Hughes.
Framleiðendur: John Hughes og Tom Jacob-
son. ÞýÓandi: Sveinn Eiríksson. Paramount
1986. Sýningartimi 100 mín.
23.15 Dómarinn. Night Court. Gamanmyndaflokk-
ur um dómarann Harry Stone sem nálgast
sakamál á óvenjulegan máta. Aðalhlutverk:
Harry Anderson, Karen Austin og John Larroq-
uette. Þýðandi: Gunnar Þorsteinsson. Warner.
23.40 Spenser. Spenser for Hire.
01.10 Fyrirboðinn. Omen. Ungur drengur er
gæddur yfirnáttúrulegum hæfileikum sem hann
hefur ekki stjóm á. Aðalhlutverk: Gregory
Peck.Lee Remick, David Warner og Billy White-
law. Leiksjtóri: Richard Donner. Framleiðandi:
Harvey Bemhard. Þýðandi: Alfred S. Böðvars-
son. 20th Century Fox 1976. Sýningartími 110
mín. Alls ekki við hæfi bama.
03.00 Dagskrárlok.