Tíminn - 21.09.1988, Síða 2
'2 fíririlnn
{- V i
Miðvikúdaðtir21. seþtémber'Í988
Ólafsfiröingar gætu misst spón úr aski meö tilkomu jarðganga í Ólafsfjaröarmúla:
Bæjarstjórn Ólafsfjarðar mun á
næstunni leita eftir viðræðum við
forráðamenn Eimskipafélags íslands
um framtíðarskipulag vöruflutninga
þess frá Ólafsfirði. Eftir þessu verð-
ur leitað í framhaldi umræðna í
bæjarstjórn 13. september sl. þar
sem fram kom óánægja bæjarfulltrúa
með æ færri viðkomur skipa Eim-
skipafélags íslands í Ólafsfirði.
Gunnar Þór Magnússon sagði á
þessum bæjarstjórnarfundi að vinna
bæri að því að fá Eimskipafélagið til
að láta skip þess koma oftar til
Ólafsfjarðar og snúa við þeirri þróun
að ólfirskum útflytjendum væri gert
að flytja vörur til Dalvíkur til út-
skipunar þar.
Á liðnum árum hefur oft verið
nefndur sá möguleiki að velja bæri
eina sameiginlega útskipunarhöfn
við utanverðan Eyjafjörð. Fylgis-
menn þeirrar hugmyndar hafa bent
á að ein útskipunarhöfn myndi auka
mjög á hagræðingu við vöruflutninga
til og frá höfnum við utanverðan
Eyjafjörð.
Dalvíkurhöfn hefur einatt verið
nefnd sem líkleg sameiginleg vöru-
flutningahöfn við utanverðan Eyja-
fjörð. Það helgast fyrst og fremst af
því hve miðsvæðis hún er. Ört
vaxandi vöruflutningar eru frá
Dalvík, bæði sjávarafurðir og fram-
leiðsluvörur plastfyrirtækisins Sæ-
plasts hf. Þá hefur umtalsverðu
magni sjávarafurða frá Árskógs-
strönd verið skipað út frá Dalvík á
mörgum undanförnum árum.
Fylgismenn einnar sameiginlegrar
flutningshafnar hafa bent á að með
fullbúnum jarðgöngum í Ólafsfjarð-
armúla árið 1992 verði unnt að aka
með vörur milli Ólafsfjarðar og
Dalvíkur allan ársins hring, sem
þýði að stærstu hindrun í vegi einnar
flutningahafnar á þessu svæði væri
þar með rutt úr vegi. Þess má geta
að áætluð vegalengd milli þessara
kaupstaða eftir jarðgangagerð er um
15 km.
Það kemur fram í samtölum við
Ólafsfirðinga að þeir eru miður
hrifnir af hugmyndinni um að gera
Dalvíkurhöfn að einni útskipunar-
höfn fyrir þessa staði, a.m.k. þar til
jarðgangagerð lýkur í Múlanum.
Bjarni Grímsson, bæjarstjóri í
Ólafsfirði segir Ólafsfirðinga ekki
sætta sig við að vera gert að flytja
bróðurpart útflutningsvara landleið-
ina til Dalvíkur til útskipunar þar.
Hann segir að þessi afstaða manna
mótist að hluta af því að með færri
skipakomum til Ólafsfjarðar muni
tekjur hafnarinnar þar minnka veru-
lega.
Ingólfur Guðmundsson, hjá Eim-
skipafélagi íslands, segir það rétt að
nú séu ekki reglulegar viðkomur
skipa félagsins í Ólafsfirði en hins-
vegar sé vikuleg viðkoma í Dalvíkur-
höfn. Hann segir þetta helgast af því
að þaðan sé mjög vaxandi útflutning-
ur t.d. frá fyrirtækinu Sæplasti hf. Þá
segir Ingólfur að um Eimskip gildi
það sama í rekstri og með önnur
fyrirtæki að stefnt sé að sem mestri
hagræðingu og liður í því sé að
fækka þeim höfnum þar sem skip
félagsins hafa fasta viðkomu. Að-
spurður segir Ingólfur að innan Eim-
skipafélagsins hafi ekki verið mörk-
uð sú stefna að gera Dalvíkurhöfn í
framtíðinni að einni aðalflutning-
ahöfn fyrir utanverðan Eyjafjörð.
óþh
Heitt vatn
i Tjormnm
Þeir sem leið áttu um Hringbraut
á níunda tímanum í gær hafa eflaust
tekið eftir mikilli gufu sem lagði frá
syðsta enda Tjarnarinnar.
Á skrifstofu borgarverkfræðings
fengust þær upplýsingar að heita-
vatnsleiðsla hefði farið í sundur og
heitt vatn runnið í Tjörnina. Ekki er
víst að endurnar á Tjörninni hafi
eins mikla ánægju af að baða sig í
heitu vatni eins og mennirnir, enda
voru þær fljótar að láta sig hverfa,
þegar hitna fór í „kolunum".
Ævar Petersen fuglafræðingur hjá
Náttúrufræðistofnun íslands sagði í
samtali við Tímann að þetta hefði að
öllu líkindum ekki áhrif á fuglalífið
í þessum enda Tjarnarinnar. „Ef
vatnið verður of heitt þá koma
fuglarnir sér bara í burtu. Svo bland-
ast vatnið vatninu í stóru tjörninni,
enda stöðug hringrás á milli.“ Að-
spurður hvort lífríkið íTjörninni, þá
það sem endurnar nærast á, hafi á
einhvern hátt skaðast, sagði Ævar
að það færi allt eftir því hversu mikið
vatn hefði runnið út í Tjörnina og
hversu heitt það hefði orðið. -ABO
Gufu leggur af Tjörninni eftir að heitavatnsleiðsla sprakk. Tímamynd Ámi Bjama.
Síldveiöar loðnubáta hófust formlega í gær:
Heiðrún og Arnþór EA
byrja í lok vikunnar
Síldveiðar loðnubáta hófust form-
lega í gær, 20. september, en samtals
höfðu um þrettán loðnubátar sótt
um leyfi til síldveiða. Ellefu bátar
höfðu tilskilinn búnað til frystingar
og var veitt Ieyfi en enginn þeirra er
enn farinn á miðin. Von er þó á því
að tveir þeirra fari út í vikunni. „Ég
hef ekki vissu fyrir því að nema þrír
bátar fari, því að bátar hafa margir
hverjir sótt um sem hafa litla frysti-
getu, niður í 12 tonn á sólarhring,“
sagði Jón B. Jónasson, skrifstofu-
stjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, í
samtali við Tímann.
Síldveiðar flestra síldarbáta hefj-
ast ekki fyrr en 9. október og hafa
90 bátar fengið leyfi. Ráðuneytið
hefur veitt þremur bátum undan-
þágu til framleiðslu á sérstöku nijöli
sem nýtt er til fiskfóðursframleiðslu
og hófust veiðar þessara báta einnig
í gær. Enginn þeirra er þó heldur
farinn á miðin en Heiðrún EA og
Arnþór EA munu byrja í vikulokin.
Þessir bátar munu leggja upp afla
sinn hjá Krossanesverksmiðjunni
við Eyjafjörð.
Heildarkvóti síldarbáta er 1000
lestir og af þeini er aðeins heimilt að
landa til bræðslu 400 lestum og skulu
því a.m.k. 600 lestir nýttar til
manneldis, að undanskildum þeim
þremur sem undanþágu hafa fengið.
Heildarkvóti loðnubáta er einnig
1000 lestir og eru skilyrðin fyrir
leyfisveitingu til þeirra að allur nýt-
anlegur síldarafli verði frystur um
borð í veiðiskipum. Mega aðeins
20% af heildarkvóta fara til bræðslu.
Verði meira en 20% kvótans landað
til bræðslu verður andvirði þess afla
gert upptækt.
f Fiskifréttum segir að nokkrir
frystitogarar hafi sýnt áhuga á að fá
leyfi til að leggja skipum sínum inni
á Austfjörðum í haust til að frysta
síld á Japansmarkað.
„Þeir hafa ekkert haft samband
við okkur. í sjálfu sér þurfa þeir
ekkert leyfi til að vinna síld en þeir
sjá ýmis framkvæmdaratriði sem
gætu verið erfið viðfangs. Það er
sérstaklega varðandi afgangssíld og
það sem ekki nýtist í frystingu. Þeir
eru ekki með aðstöðu til að geyma
þá úrganga eins og þau loðnuskip
sem eru að fara út í frystingu," sagði
Jón B. Jónasson.
Einnig er talið nauðsynlegt að
breyta kjarasamningum við togara-
sjómenn, þar sem þeir miðist við
veiðar og vinnslu, ekki vinnslu ein-
göngu. JIH
Búist er við
tölum í dag
Tveir fulltrúar frá Viðlagatrygg-
ingu íslands unnu í gær í Ólafsfirði
að mati á því tjóni sem varð í
skriðuföllunum á dögunum. Búist
er við að þeirri vinnu ljúki síðar í
dag.
Bjarni Grímsson, bæjarstjóri í
Ólafsfirði, segir að úttekt Viðlaga-
tryggingar leiði væntanlega í ljós
hversu mikið fjárhagslegt tjón hafi
orðið í skriðuföllunum.
Byggðastofnun ákvað að lána
bæjarsjóði Ólafsfjarðar 5 milljónir
króna til að auðvelda hreinsunar-
og uppbyggingarstarf í bænum eftir
skriðuflóðin. Bjarni Grímsson seg-
ir að þessir peningar séu kærkomn-
ir til að létta greiðslubyrði bæjar-
sjóðs enda sé öll frágangsvinna
eftir flóðin mjög fjárfrekr Hann
segist vænta þess að ríkisvaldið
taki afstöðu til þess eftir þetta ár
hvort þessu bráðabirgðaláni verði
breytt í langtímalán eða jafnvel
styrk. óþh