Tíminn - 21.09.1988, Page 4
4 Tíminn
Miövikudagur 21. september 1988
Forstöðumaður óskast
Þann 1. desember n.k. verður tekið í notkun nýtt
dvalar- og hjúkrunarheimili í Grundarfirði. Heimilið
hefur hlotið nafnið Fellaskjól og rúmar fullbúið 17
vistmenn.
Við auglýsum eftir manni til að veita heimilinu
forstöðu. Við leitum að manni sem hefur áhuga á
starfinu, á gott með að umgangast eldra fólk og er
tilbúinn að reka heimilið með hagsýni og myndar-
skap.
Umsóknarfrestur er til 7. október 1988 og er
áætlað að viðkomandi hefji störf eigi síðar en 15.
nóvember n.k.
Nánari upplýsingar veita Ólafur Guðmundsson í
síma 93-86703 og Guðmundur Smári Guðmunds-
son í síma 93-86718.
Stjórn Fellaskjóls
Grundarfirði.
Póst- og
símamála-
stofnunin,
Akureyri
óskar að ráða símsmiði við símalagnir,
rafeindavirkja til afleysinga.
Nánari upplýsingar veitir Alexander Pálsson, um-
dæmistæknifræðingur, f síma 96-26000.
Póst- og síma-
málastofnunin
óskar að ráða starfsfólk til skeytamóttöku hjá
ritsímanum í Reykjavík.
Vélritunar- og málakunnátta æskileg.
Nánari upplýsingar gefur Óli Gunnarsson í síma
91-689011.
' TÖLVUNOTENDUR
I »;■
.........
Víð í Prentsmíðjunni Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fyrír tölvuvinnslu.
Smiðjuvegí 3, 200 Kópavogur. Sími 45000
iilllllillllilllliililili
Félag framsóknarkvenna í Reykjavík
Skoöunarferö um Reykjavík og nágrenni n.k. laugardag 24. sept.
Farið veröur frá B.S.Í. kl. 13.00.
Kaffi drukkið í Skíðaskálanum Hveradölum. Nánari upplýsingar og
skráning í síma 24480, Þórunn, til kl. 14.00 á föstudag.
Leiðsögumaður Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi.
Mætum vel.
Stjórnin.
Kjördæmisþing
Kjördæmisþing Framsóknarmanna á Vestfjörðum verður haldið á
Súðavík dagana 30. sept. til 1. okt. 1988. Nánar auglýst síðar.
Stjórnin
Verðlaunahafarnir taldir frá vinstri: Bergþóra Vigfúsdóttir sem tók við tilnefningunni fyrir hönd manns síns;
Þorsteins I. Sigfússonar, Jón Hálfdánarson, Friðrik Sophusson, iðnaðarráðherra, Ársæll Þorsteinsson, Elías
Gunnarsson, Þórður Theódórsson,og Þorkell Jónsson. Timamynd. Gunnar
Tilnefning til tækniverðlauna Norðurlandaráðs.
Tvö verkefni og sex
vísindamenn tilnefndir
„í tilefni Norræns tækniárs 1988
mun Norðurlandaráð veita Norræn
tækniverðlaun. Tilgangur verðlaun-
anna er að undirstrika þýðingu
tækninnar fyrir samfélagsþróunina á
Norðurlöndum og verða veitt fyrir
þróunarvinnu á tæknisviði sem skar-
að hefur framúr og haft þýðingar-
mikil áhrif í löndunum," sagði Frið-
rik Sophusson iðnaðarráðhcrra þeg-
ar verk íslenskra vísindamanna voru
tilnefnd til þessarar verðlaunasam-
keppni.
Stjórn Norræna iðnaðarsjóðsins
velur verðlaunahafann í október
n.k. og verða verðlaunin, 125 þús-
und d.kr.,afhent í Kaupmannahöfn
í desember.
Nefnd undir forystu Valdimars K.
Jónssonar prófessors hefur nú til-
nefnt tvö verk til verðlaunanna af
íslands hálfu:
Hið fyrra er verkefni dr. Jóns
Hálfdánarsonar og dr. Þorsteins Sig-
fússonar; Hitasaga og efniseiginleik-
ar kísiljárns og er markmið þess að
minnka hlut fínefnis í framleiðslu
íslenska jánblendifélagsins. Hefur
það tekist og hefur verðmæti fram-
leiðsiu félagsins aukist um 10-15
milljónir.
Verkefnið var unnið í samvinnu
Járnblendifélagsins og Raunvísinda-
stofnunar Háskólans.
Síðara verkefnið er unnið af þeim
Ársæli Þorsteinssyni, Elíasi Gunn-
arssyni, Þórði Theódórssyni og
Þorkatli Jónssyni og heitir; Sjálf-
virkni og vinnuhagræðing í frystihús-
um.
Þeir hafa hannað og látið smíða
vinnslulínu í frystihús þar sem hægt
er að vinna samtímis við þrjár teg-
undir fiskjar.
Vinnslulínan er vinnuvistfræði-
lega hönnuð og fólki sem við hana
vinnur á að líða mun betur við
vinnuna. Þá hafa afköst við hana
mælst 10- 15% meiri en við eldra
fyrirkomulag. - sá
Fjölbreytt verkefnaskrá
Leikfélags Akureyrar
Starfsemi Leikfélags Akureyrar
er nú komin á fullan skrið og æfingar
hafnar á fyrsta leikriti vetrarins.
Fjögur leikrit verða á dagskrá í
vetur, auk dagskrár sem sett verður
upp með þátttöku kórs og áhuga-
fólks. Þá verður um næstu helgi
boðið upp á gestaleik frá Gríniðj-
unni og íslenski dansflokkurinn mun
koma í heimsókn. Óvenju fáir fast-
ráðnir leikarar, eða þrír, munu
starfa hjá Leikfélagi Ákureyrar í
vetur og verða því verkin mönnuð
lausráðnu fólki í meira mæli en áður.
NÖRD, gestaleikur Gríniðjunnar
verður sýndur dagana 22.-25. sept-
ember. NÖRD var sýndur á Hótel
íslandi s.l. vetur við miklar vinsæld-
ir. Nokkrar mannabreytingar hafa
orðið frá þeim tíma en Laddi fer þó
eftir sem áður með aðalhlutverkið.
Leikstjóri er Gísli Rúnar Jónsson.
Föstudaginn 7. október frumsýnir
Leikfélag Akureyrar leikritið
„Skjaldbakan kemst þangað líka“
eftir Árna íbsen. Leikstjóri er Viðar
Eggertsson, lýsingu liannar Ingvar
Björnsson og Guðrún Svava Svav-
arsdóttir hannar leikmynd og bún-
inga. Leikritið fjallar unt tvö banda-
rísk Ijóðskáld, ólíkan bakgrunn
þeirra og ólíkar forsendur sem þeir
gefa sér gagnvart lífinu. Það eru þeir
Theodór Júlíusson og Þráinn Karls-
son sem fara með hlutverk skáld-
anna.
íslenski dansflokkurinn mun sýna
verðlaunaverkið „Af mönnum" eftir
Hlíf Svavarsdóttur, ásamt fleiri
verkum síðustu dagana í október,
auk þess sem dansflokkurinn verður
með listdanskynningu í skólum Ak-
ureyrar.
Annan dag jóla verður hið sívin-
sæla barnaleikrit „Emil í Kattholti"
frumsýnt. Óþarfi er að tíunda efni-
við leikritsins því flestir kannast við
sögurnar um uppátæki grallarans
Emils, sem hér er leikinn af Ingvari
Má Gíslasyni. Með önnur helstu
hlutverk fara Júlíana Egilsdóttir,'
Marinó Þorsteinsson, Þráinn
Karlsson, Petur Eggerz og Margrét
Pétursdóttir. Leikmynd er eftir
Hallmund Kristinsson og lýsingu
hannar Ingvar Björnsson.
„Hver er hræddur við Virginíu
Wolf“ verður frumsýnt um miðjan
febrúar undir leikstjórn Ingu
Bjarnason. Guðrún Svava Svavars-
dóttir hannar leikmynd og Ingvar
Björnsson hannar lýsingu. Með hlut-
verk í verkinu fara Helgi Skúlason,
Helga Bachmann, Ragnheiður
Tryggvadóttir og Ellert A. Ingi-
mundarson.
Síðasta verkefni vetrarins verður
að öllum líkindum glæpsamlegi gam-
anleikurinn „Blúndur og blásýrur".
Enn er þó eftir að ganga endanlega
frá ráðningum f það verk, sem
frekari upplýsingar um það verða að
bíða betri tíma. HIÁ - Akureyri.
VILTU SENDA
KVEDJU Á 0L
Póst- og símamálastofnunin gef-
ur notendum sínum kost á að
senda keppendum og liðum á Ól-
ympíuleikunum í Seoul hvers kyns
orðsendingar, svo sem hvatningar
og árnaðaróskir með telex-, tele-
fax- og póstfaxþjónustu stofnunar-
innar.
í frétt frá stofnuninni segir að
orðsendingarnar komist fljótt til
skila og verði bornar út í sérstökum
umslögum með merki leikanna.
Ef senda á með telexi þá er
númerið 01801 8688, en telefax og
póstfaxnúmerið er 9082 2 407 8688.
Telexkerfið veitir einnig aðgang að
upplýsingum um leikana, svo sem
úrslit í einstaka greinum, í telex-
númeri 0801 1988 og sömu upplýs-
ingar er hægt að fá með þvf að
hringja í síma 9082 2 410 1988.
En hvað ætli kosti að fá þessar
upplýsingar eða senda orðsending-
ar? Verð fyrir telexritun til Seoul
er 170 kr. mínútan. Símtal kostar
189 kr. mínútan fyrir sjálfval.
Gjald fyrir póstfaxþjónustu er 757
kr. fyrsta síða og hver viðbótarsíða
kostar kr. 502. - ABÓ