Tíminn - 21.09.1988, Blaðsíða 11
,10 Tíminn
Miövikudagur 21. september 1988
Miövikudagur 21. september 1988
Tíminn 11
lllllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
ÓL Handknattleikur:
S-Kórea lagði
Ungverjaland
Þá kom að því að handbolta-
keppnin byrjaði á Ólympíuleikun-
um, sem flestir íslendingar hafa
beðið eftir með óþreyju. Fyrstu
leikirnir fóru fram í gær og var
ýmislegt áhugavert á ferðinni þar.
Bar þar hæst að Suður-Kórea gerði
sér lítið fyrir og lagði silfurlið Ung-
verja frá síðustu heimsmeistara-
keppni 22-20.
Liðið þótti sýna snilldartilþrif á
köflum og áttu Ungverjar aldrei
möguleika. Staðan var orðin 22-16
áður en Ungverjar skoruðu fjögur
sfðustu mörk leiksins.
Suður-Kórea hefur verið í mikilli
sókn og spilar skemmtilegan hand-
knattleik, eins og fslendingar geta
sjálfir borið vitni um. Liðið lék
hérlendis í fyrra vetur á fjölum
Laugardalshallar og átti íslenska lið-
ið erfitt með að vinna á vörn Kór-
eumanna sem var leikin mjög fram-
arlega.
Sovétmenn léku heims- og ólymp-
íumeistara Júgóslavíu grátt og möl-
uðu þá 24-18. Sovétmenn hafa
undanfarið verið taldir eiga á lang-
besta liði heims að skipa og úrslit
þessa leiks staðfestu það.
Athygli vakti að Svíar áttu í hinu
mesta basli með Alsír, scm hafa
hingað til ekki verið hátt skrifaðir í
handboltanum, en höfðu þó sigur að
lokum 21-18. Og eins og íslenskir
sjónvarpsáhorfendur urðu vitni að
áttu okkar menn ekki síður í vand-
ræðum með Bandaríkin framan af í
leik þeirra í gær, áður en þeir náðu
að lyfta sér upp á það plan sem
bandaríska liðið á langt í land með
að ná.
Hér koma úrslit úr leikjum fyrstu
umferðar:
A-riðill:
Ísland-Bandaríkin . . .
Sovétríkin-Júgóslavía .
Svíþjóð-Alsír..........
B-riðill:
S-Kórea-Ungverjaland
A-Þýskaland-Japan . .
Tékkóslóvakía-Spánn .
22-15
24-18
21-18
22-20
25-18
20-17
JIH
ÓL-Siglingar:
Gunnlaugur og
ísleifur í 22.
sæti siglinganna
í gær hófst keppni í siglingum á
ÓL í Seoul. Okkar menn, þeir
Gunnlaugur Jónasson og ísleifur
Friðriksson, eru í 22. sæti keppninn-
ar eftir fyrsta daginn, en keppninni
lýkur n.k. mánudag.
Þeir Gunnlaugur og ísleifur byrj-
uðu með í gær, en hvolfdu síðan
bátnum og töfðust að þeim sökum.
22. sætið er því þeirra sem stendur.
Fyrir aftan þá félaga eru keppend-
ur frá N-Kóreu, Kýpur, Pakistan,
Singapore, Finnlandi, Ungverja-
landi og Ítalíu, en ungversku og
ítölsku keppendurnir voru dæntdir
úr leik og þar af leiðandi skipa þeir
u'ðustu sætin. Keppnin helduráfram
í dag. BL
Pjetur Sigurösson
fréttamaður Tímans
skrifar frá Ólympíu-
leikunum í Seoul
NFL-deildin, 3. umferð:
Bills, Rams og
Bengals ósigruð
Þremur umferðum er nú lokið í Cincinnati Bengals og Los Angeles
bundaríska fótboltanum, NFL- Rams. Hér á eftir koma úrslit úr
deildinni. Þrjú lið hafa unnið alla lcikjuin 3. umferðar:
leiki sína hingaö til: Buffalo Bills,
Minnesota Vikings-Chicago Bears......................31-7
New Orleans Saints-Detroit Lions....................22-14
Kansas City Chiefs-Denver Broncos ..................20-13
Miami Dolphins-Green Bay Packers....................24-17
Buffalo Bills-New England Patriots..................16-14
New York Jets-Houston Oilers .......................45-3
Cincinnati Bengals-Pittsburgh Steelers..............17-12
Phoenix Cardinals-Tampa Bay Buccaneers..............30-24
Washington Kedskins-Philadelphia Eagles.............17-10
Ncw York Giants-Dallas Cowboys .....................12-10
Los Angeles Rams-Los Angelcs Raidcrs ...............22-17
San Diego Chargers-Seattle Seahawks.................17-6
Atlanta Falcons-San Francisco 49ers.................34-17
Cleveland Browns-Indianapolis Colts.................23-17
Leikurinn
í tölum:
Island-Bandaríkin
l-O, 3-3, 6-6, 8-8. 10-10,
14-12, 18-14, 22-15.
Einar Þorvarðarson varði 11
skot af 25 44%
Guðmundur Hrafnkelsson
varði 2 af 3 66,6 %
Þorgils Óttar Mathiesen
skoraði 7 mörk úr 8 skotum 87 %
4 stoðsendingar
Jakob Sigurðsson 1 skot 0
mark 0%
Bjarki Sigurðsson 2 skot 1
mark 50 %
1 stoðsending
1 bolta tapað
Sigurður Gunnarsson 3 skot
1 mark 33,3 %
1 stoösending
Alfreð Gíslason 6 skot 1 mark
16,6 %
1 stoðsending
1 bolta tapað
Guðmundur Guðmundsson
4 skot 4 mörk 100 %
1 bolta tapaö
Kristján Arason 14/4 skot 8
mörk 57,1%
6 stoðsendingar
2 bolta tapað
Atli Hilmarsson 1 skor 0 mark
0 %
2 bolta tapað
Liðið:
22 mörk úr 39 skotum 56,4 %
4 mörk úr hraöaupphlaupum
4 úr vítum
3 úr hornunum
7 af línu
4 utan af velli
Markmennirnir vörðu 13 skot af
28 46,4 %
Markahæstir í liði Bandaríkjanna
voru Peter Lash með 4 úr 11
skotum og Steven Goss með 3
mörk.
Símamynd Pjetur.
Kristján Arason gefur hér eina af sínum frábæru línusendingum á
Þorgils Óttar Mathiesen. Þeir fyrrum félagar úr FH voru langbestu
menn íslenska liðsins í leiknum í gær ásamt Einari Þorvarðarsyni.
ÓL Handknattleikur:
Gamli FH-dúettinn
sá um Kanana
Frá Pjetri Sigurdssyni fréttamanni Tímans í Seoul:
Þrátt fyrir slakan leik okkar manna,
tókst íslensku strákunum að vinna góðan
sigur á afarslöku bandarísku liði með 22
mörkum gegn 15.
Það var fyrst og fremst að þakka góðri
markvörslu Einars Þorvarðarsonar í síðari
hálfleik og öruggum leik Kristjáns Arason-
ar, sem átti hvað bestan leik okkar manna.
Sérstaka athygli vakti frábær samvinna
þeirra Þorgils Óttars og Kristjáns, sem
minnti óneitanlega á þeirra daga með FH,
en Kristián átti 4 frábærar línusendingar á
Þorgils Óttar, sem hann nýtti til fullnustu.
Fyrri hálfleikur var mjög leiðinlegur á
að horfa, mikið um mistök og vörn íslenska
liðsins var mjög slök. íslendingar opnuðu
leikinn þó með marki Þorgils Óttars Mathi-
esen, en fljótlega jöfnuðu Bandaríkja-
menn. Jafnt var á öllum tölum í hálfleikn-
um og í leikhléinu var staðan 8-8, eftir að
liðin höfðu skipst á um að hafa forystuna.
Um leik íslenska liðsins í fyrri hálfleik er
það að segja að leikmenn voru allt of
bráðir, það var sem skora ætti 3 mörk í
hverri sókn og má nefna ótímabær skot frá
Alfreð og Jakob ásamt fleiri mistökum
sem áreiðanlega skrifast á taugaveiklun
íslenska liðsins.
Seinni hálfleikur byrjaði eins og sá fyrri.
Sama bráðlætið réð ríkjum og menn létu
bandaríska markvörðinn verja frá sér mörg
skot og einnig leit út sem vonlaust væri að
láta boltann ganga. Leikurinn hélst jafn
fram í miðjan síðari hálfleik, en þá kom sá
kafli í leiknum sem var þvílíkt rugl að var
sem um lélegan 3. deildarleik væri að
ræða. Hraðaupphlaup á báða bóga, klúðr-
uð dauðafæri og ótímabær skot.
Eins og áður sagði voru það þeir Einar
Þorvarðarson, Kristján Arason og Þorgils
Óttar sem rifu íslenska liðið úr meðal-
mennskunni, en einnig mætti nefna þátt
Guðmundar Guðmundssonar sem skoraði
3 stórglæsileg mörk undir lok leiksins, en
hefði þó tvímælalaust mátt vakna fyrr.
Strákarnir náðu sem sé að hrista af sér
taugaveiklunina undir lokin og sigra
Bandaríkjamenn með 22 mörkum gegn
15, en þó má með sanni segja að sigur hefði
gjarnan mátt vera stærri.
Bandaríska liðið lék afburða leiðinlegan
handknattleik, héngu mikið á boltanum og
dómarinn hefði mátt dæma oftar leiktöf á
þá.
Þeir Alfreð Gíslason og Atli Hilmarsson
náðu sér ekki á strik í leiknum og hreint út
sagt mjög slakir. PS/BL
Sagt eftir leikinn
Fra Pjelri Slgurðssjfni fretlanianni Timans i Scoul:
Kristján Arason
„Ég bjóst við barningi, það sýndi sig
í dag að sterkari liðin áttu mjög erFitt
uppdráttar gegn veikari iiðunum,
þannig að ég er feginn að við náðum
að rífa okkur upp úr þessu. Ég er
kominn í gott form oger ánægður með
gamalkunnugt samspil okkar Óttars og
égvonaað Alfreðoghinirkomi mcð.
Við ákváðum í hálfleik að hafa
gaman af þessu og púrra hvor annan
upp og það tókst,“ sagði Kristján eftir
leikinn.
Þorgils Óttar
Mattiesen
„Þetta var mjög miklivægur sigur
fyrir okkur, við náðum að sigrast á
taugaveiklun sem hefur viljað hrjá
okkur í upphaFi slíkra móta. Við
.v.ru ekki í lagi. Það er mjög erfitt að
spila gegn þessu bandaríska liði, því
þcir hanga mjög á boltanum og taka
langar sóknir, það er mikið erfiðara að
spila svona lengi og því náðu þeir að
opna vörn okkar ilia. Þessi pressa á
okkur var mjög þrúgandi og ég er
feginn að hún er horíin.
Ég er sérstaklega ánægður með hvað
samvinna okkar Kristjóns var góð. Ef
við náum að spila okkar leik gcgn Alsír
þó verða það engin vandræði,“ sagði
Þorgils Óttar fyrirliði liðsins.
Andrew Ferguson
forseti breska hand-
knattleiks-
sambandsins
„Ég varð fyrir miklum vonbrigðum,
ég hefði viljað hafa sigurinn miklu
stærri, 20 marka munur hefði sýnt
styrkleikamuninn." sagói Ferguson,
sem er mikili aðdáandi íslensks hand-
bolta. BL
vorum mjög lengi í gang, það gerðist
ekki fyrr en um miðjan síðari hálflcik
og það var greinlegt að ákveðnir hlutir
Knattspyrna:
Fjórir atvinnumenn
með gegn Ungverjum
I kvöld leika íslendingar og Ung-
verjar vináttulandsleik í knattspyrnu
á Laugardalsvelli. Leiurinn er liður
undirbúningi beggja liðanna fyrir
leiki í undankeppni heimsmeistara-
keppninnar sem fram fara í næsta
mánuði.
íslendingar eiga að leika tvo erfiða
útileiki í næsta mánuði, gegn Tyrkj-
um þann 12. og gegn A-Þjóðverjum
þann 19. Leikurinn í kvöld er því
góður undirbúningur fyrir átökin í
næsta mánuði.
Siegfried Held landsliðsþjálfari
hefur valið endanlegan 16 manna
hóp fyrir leikinn í kvöld. Liðið er
þannig skipað:
Markverðir:
Bjarni Sigurdsson Brann 24
Cuðmundur Hreidarsson Víkingi 1
Aðrir leikmcnn:
Gudni Bergsson Val 20
GunnarGíslason Moss 35
ólafur Þórdarson ÍA 24
ómarTorfason Fram 30
Pétur Amþórsson Fram 19
Pétur Ormslev Fram 30
Ragnar Margeirsson ÍBK 32
Rúnar Kristinsson KR 5
Sigurdur Grétarsson Lucerne 21
Sigurður Jónsson Shefficld W. 15
Sævar Jónsson Val 43
Vidar Þorkelsson Fram 19
Leikurinn hefst á Laugardalsvelli
kl. 17.30. ídag. BL
Hástökk. Heimsmeistarinn í há-
stökki, Svíinn Patrik Sjöberg, segist
vera búinn að ná sér að fullu eftir
ökkla meiðsli þau sem hann hefur
átt við að stríða í allt sumar. Á
þriðjudaginn gaf hann í skyn að
hann myndi jafnvel reyna að endur-
heimta heimsmet sitt í Seoul. Javier
Sotomayor frá Kúbu sló heimsmetið
þann 8. þessa mánaðar þegar hann
stökk 2,34 metra á móti í Salamenca
á Spáni. Vestur-Þjóðverjinn Carlo
Thraenhardt á heimsmetið innan-
húss en hann á við magaveiki að
stríða og svo kann að fara að hann
verði að hætta við keppni á Ólymp-
íuleikunum. Helstu keppinautar
Sjöbergs kæmu þá til með að verða
vestur-þýski ólympíumeistarinn Di-
etmar Moegenburg og Sovét-
mennirnir Igor Paklin og Gennadiy
Avdeyenko.
Amljótur Davídsson Fram 2
Atli Edvaldsson Val 52
Knattspyrna - Drengjalandslið
Leikið gegn Noregi
í hádeginu í dag
Kjartan P. Magnússon
Kristinn Lárusson
Ægir Þ. Dagsson
Stjömunni Ásgcir Baldurs UBK
Stjömunni DagurSigurðsson Val
KA
BL
Bjarni og Ólafur
fá afhent gullúr
Landslið íslands og Noregs leika
fyrri leik sinn í Evrópukeppni
drengjalandsliða á KR-vellinum í kl.
12.00 á hádegi.
Síðari leikur liðanna fer fram í
Osló þann 30. september. Það lið
sem sigrar í leikjunum tekur þátt í
úrslitakeppninni, sem fram fer í
Danmörku næsta vor.
Liðin mættust á Norðurlandamót-
inu í ágúst s.l. og þá sigruðu Norð-
menn naumlega, 2-1. Strákarnir
þurfa því á stuðningi að halda í dag
og eru allir sern geta, hvattir til þess
að mæta, þrátt fyrir óvenjulegan
leiktíma.
Lárus Loftsson þjálfari hefur valið
hópinn sem leikur í dag og er hann þannig skipaður:
Arnar B. Gunnlaugsson ÍA
Bjarki B. Gunnlaugsson ÍA
Lárus Orri Sigurðsson ÍA
Friðrik I. Þorsteinsson Fram
Guömundur P. Gíslason Fram
PéturH. Marteinsson Fram
Gunnar Þ. Pétursson Fylki
Þórhallur D. Jóhannsson Fylki
Nökkvi Sveinsson Tý
Sigurður Ómarsson KR
SteingrimurÖ. Eiðsson KS
Knattspyrna:
ÓL úrslit
Fjórir leikir fóru fram í gær í
riðlakeppninni í knattspyrnu á Ól-
ympíuleikunum.
C-riðill:
S. Kórea-Bandaríkin ...........0-0
Sovétríkin-Argentína...........2-1
Staðan í C-riðli:
Sovétríkin ................. 21103
Bandaríkin.................. 20202
Þeir Bjarni Sigurðsson mark-
vörður og Ólafur Þórðarson, frá
Akranesi leika í kvöld sinn 25
landsleik i knattspyrnu. Af því
tilefni fá þeir afhent gullúr frá KSÍ,
eins og venja er.
Atli Eðvaldsson er leikreyndast-
Hótelmenning í Seoul kemur okk-
ur íslendingum einkennilega fyrir
sjónir, en eins og vitað er þá þykja
vændiskonur sjálfsagður hlutur í
Asíulöndum og eru örugglega með
þeim snyrtilegustu sem þekkjast.
Það vekur athygli að á hótelum hér
í Seoul standa laus herbergi jafnan
ur íslensku leikmannanna, en hann
liefur leikið alls 52 landsleiki. Guð-
mundur Hreiðarsson hefur leikið 1
landsleik og Arnljótur Davíðsson
hefur leikið 2 og eru þeir reynslu-
minnstir í 126 ntanna hópnuin.
opin, og geta þá vændiskonurnar
brugðið sér inní herbergin ásamt
viðskiptavinum sínum til þess að
stunda lárétt viðskipti.
Á hótelinu þar sem íslenski ferða-
mannahópurinn dvelst njóta þær
mikillar virðingar og sýnir starfsfólk
hótelsins þeim sérstaka
aluð. PS/BL
ÓL-Körfuknattleikur:
BNA marði Kanadabúa
Vændiskonur njóta
virðingar í Seoul
Frá Pjetri Sigurð.ssyni fréttamanni Tímans í
Seoul:
S. Kórea..................... 20202
Argentína ................... 20111
D-riðill:
Júgóslavía-Nígería..............3-1
Brasilía-Ástralía ..............3-0
Slaðan í D-riðli:
Brasih'a..................... 22004
Júgóslavía................... 21012
Ástralía..................... 21012
Nígería ..................... 20020
Blak kvenna:
A-riðill:
Japan-Sovétríkin................3-2
S. Kórea-A. Þýskaland.........3-1
B-riðill:
Kina-Bandaríkin.................3-0
Perú-Brasilía ..................3-0
Ólympíumeistaralið Bandaríkj-
anna áttu í hinu mesta basli með
Kanada í leik liðanna í gær en unnu
þó 76-70. Kanadamenn voru yfir í
hálfleik 42-40 og voru ekki langt frá
því að sigra en Bandaríkin hafa
aðeins einu sinni tapað leik í körfu-
knattleik í 82 leikjum á Ólympíuleik-
um.
Það var óvænt vopn sem kom
þeim síðarnefndu til bjargar, þriggja
stiga skotin, en bandaríska liðið er
meira gefið fyrir hraðaupphlaup og
baráttu inni í teig. Kanadamönnum
tókst að stjórna hraða leiksins vel og
koma í veg fyrir hraðaupphlaupin en
þeim tókst ekki alveg að klára
dæmið.
A-riðill:
Puerto Rico-S-Kórea .........79-74
Júgóslavía-Mið-Afríkul. . . 102-61
B-riðill:
Spánn-Egyptaland............113-70
Brasilía-Kína ............ 130-103
Bandaríkin-Kanada............76-70
Dýfíngar. Bandaríkjamaðurinn
Greg Louganis vann gullverðlaun í
dýfingum karla aðfaranótt þriðju-
dags, þrátt fyrir að hafa orðið fyrir
skuggalegu óhappi í forkeppninni.
Þar rak hann hausinn í stökkbrettið
í einni dýfunni og var ótrúlega
lánssamur að verða ekki fyrir alvar-
legri meiðslum en raun varð á. Það
voru aðeins saurnuð þrjú spor í
höfuðleðrið á honum og hélt
Louganis síðan áfram keppni af
mikilli hörku. Þegar atvikið átti sér
stað var hann í fyrsta sæti í forkeppn-
inni og hann náði að halda í þriðja
sæti og komast þar með í úrslit. Tan
Liangde frá Kína hreppti silfrið og
landi hans Li Deliang hlaut brons-
vcrðlaun.
Dýfíngar. Kína vann til gullverð-
launa í dýfingum af háum palli á ÓL
í Seoul. Það var Xu Yanntei. 17 ára
gömul stúlka sem krækti í gullið, en
Pan-Am meistarinn og silfurverð-
launahafinn frá því í Los Angelcs,
bandaríska Flórída stúlkan Michele
Mitchell, varð að láta sér lynda
annað sætið. ( þriðja sæti varð
Wendy Williams með 400,44 stig.
Xu fékk 445,22 stig, em Michele
fékk 436,95 stig. BL
Sund. Ungverjinn Tamas Darnyi,
heimsmeistari í fjórsundi karla, setti
nýtt Ólympíumet í undanrásum í
greininni í gær. Fyrra met átti Alex
Baumann frá Kanada, 4.17,41 sem
hann setti í Los Angeles fyrir fjórum
árum, en Darnyi bætti það um tæpa
sekúndu, 4.16,55. Ekki er loku fyrir
það skotið að Darnyi bæti heimsmet
sitt (4.15.42), sem hann setti á
Evrópumeistaramótinu í Strassborg
í ágúst í fyrra, í úrslitunum í nótt.
Átta ára gamalt Ólympíumet í
200 metra bringusundi kvenna, sem
Lina Kachushite setti í Moskvu
(2.29,54), var tvíbætt í undanrásum
í gær. Yulia Bogacheva frá Sovét-
ríkjunum synti á 2.28,94 en aðeins
fimm mínútum síðar bætti austur-
þýska stúlkan Silke Hörner um betur
og synti á 2.27,54, aðeins 0.36 sek-
úndum frá heimsmeti Allison Hig-
son frá Kanada sem sett var í
Montreal í maí. Heimsmetið virðist
dæmt til að falla í úrslitunum í nótt.
Evrópumeistarinn Andy Jameson
frá Bretlandi náði besta tíma í
undanrásum í flugsundi í gær og
skákaði þar Bandaríkjamanninum
Matt Biondi og Vestur-Þjóðverjan-
um Michael Gross. JIH/REUTER
Spaugileg athöfn
Frá Pjetri Siguróssyni rrcttamanni límans í
Scoul:
Við upphaf handboltakeppninn-
ar í Suvong i gær var haldin
táknræn athöfn, þar sem framá-
maður á leikunum átti að kasta
bolta í gcgnum plötu sem var í öðru
hmbhe
markinu og opna þannig hátiðina á
táknrænan hátt.
Ekki vildur hetur til en svo að í
fyrra kasti sínu hitti inaðurínn ekki
markið og í scinna skipt.ið skaut
hann svo lausi að boltinn fór ekki
í gcgnum plötuna og var þetta
mjög spaugileg athöfn. BL