Tíminn - 21.09.1988, Qupperneq 13
Miðvikudagur 21. september 1988
Tím'inn 13
FRÉTTAYFIRUT
TÚNIS - Frelsissamtök Pal- I
estínu PLO hafa hætt viö aö
mynda útlagastjórn að sinni.
Tveir embættismenn samtak-
anna skýrðu frá þessu í gær.
MOSKVA - Stórir hópar
Armena þrömmuðu um götur
Jerevan höfuðborgar sovétiýð-
veldisins Armeníu í gær eftir
að einn Armeni lést og 24
særðust í átökum milli Azeraija
og Armena í Nagorno-Kara-
bakh. Æðstu stjórnvöld í Sov-
étríkjunum hafa varað þjóðar-
brotin í Nagorno-Karabakh við
afleiðingum nýrra átaka.
WASHINGTON - Gróska I
efnahagslífsins f Bandaríkjun-
um varð minni á tímabilinu
jún í-ágúst, en ráð var fyrir gert.
Þjóðarframleiðsla jókst um 3%
á ársgrundvelli á þessu tíma-
bili, sem er mun minna en búist
var við, að sögn viðskiptaráðu-
neytis Bandaríkjanna.
ISLAMABAD - Afganskir
skæruliðar felldu tíu manns og
særðu átta í eldflaugaárás á
Kabúl höfuðborg Afganistans.
Sex eldflaugum var skotið á
borgina og ollu þær miklum
skemmdum í borginni.
JERÚSALEM - Shimon
Peres leiðtogi Verkamanna-
flokksins í ísrael biðlarnú mjög
til kjósenda af arabakyni fyrir
þingkosningarnar sem fram
fara í ísrael 1. nóvember.
Sagði hann þingstyrk Verka-
mannaflokksins geta gert
gæfumuninn um að ísraelar
hefji samningaviðræður um
frið við ríki araba.
KAUPMANNAHÖFN -
Eduard Sjevardnadze utanrík-
isráðherra Sovétríkjanna lof-
aði mjög afstöðu danska
þingsins í kjarnorkumálum, en
hann er nú í opinberri heim-
sókn í Danmörku. Stefna Dana
er sú að ekki megi flytja kjarna-
vopn um danskt landssvæði á
friðartímum. Þessi afstaða
Dana olli miklum titringi innan
NATO fyrir síðustu þingkosn-
ingar.
S. Þ. - Utanríkisráðherra
Argentínu Dante Caputo var
kjörinn forseti Allsherjarráðs
Sameinuðu þjóðanna eftir
harða baráttu við Dame Nita
Barrow frá Barbados. Caputo
mun því stýra fundum ráðsins
þá þrjá mánuði sem það
starfar.
llllllllllllillllllllllll! ÚTLÖND
Blóðbað heldur áfram í Burma:
Maung setur á fót
herforingjastjóm
Munkar og stúdentar vopnaðir
frumstæðum vopnum börðust óhik-
að við hermenn á götum Rangoon
og Mandalay á sama tíma og herinn
birti ráðherralista í nýrri ríkisstjórn
sem leidd er af hershöfðingjanum
Saw Maung sem tók völdin á sunnu-
dag. Talið er að um fimmhundruð
manns hafi látið lífið frá því herinn
tók völdin og ekkert lát virðist ætla
að verða á baráttu stjórnarandstæð-
inga.
Átta af níu ráðherrum hinnar
nýju ríkisstjórnar eru úr röðum
hersins og tilkynnti Saw Maung að
æðstu foringjar í hernum á hverjum
stað í landinu tækju við stjórninni til
bráðabirgða.
Vestrænir sendiráðsmenn flytja
umheiminum fréttir af ástandinu og
sögðu þeir í gær að munkar og
stúdentar sem lcitt hafa andófið
gegn stjórnvöldum, hafi ráðist á
fimm lögreglustöðvar í þeim tilgangi
að komast yfir skotvopn. Einn sendi-
ráðsmaðurinn skýrði frá því að her-
menn hefðu skotið á hóp unglings-
stúlkna er tóku þátt í mótmælagöngu
og fellt nokkrar þeirra.
'Saw Maung útnefndi sjálfan sig
sem utanríkisráðherra, auk þess sem
hann heldur varnarmálaráðherra-
embættinu sem hann hefur gegnt að
Skæruliðar í Burma hafa aukið skærur sínar gegn stjórnarhernum eftir að
Saw Maung hershöfðingi tók völdin. Hér eru liðsmenn Karen skæruliðasam-
takanna í bardagastöðu, en þeir hafa setið um hinn 4000 manna bæ Papun
undanförnu. Hann er því æðsti mað-
ur hersins og virðist ætla að beita
honum af hörku. Enginn forsætis-
. ráðherra'var útnefndur.
Talsmaður stjórnarandstöðunnar
sagði að leiðtogar stjórnarand-
stöðunnar þau Tin Oo fyrrum hers-
höfðingi, Aung San Suu Kyi dóttir
einnar helstu sjálfstæðishetju Burma
og ofurstinn Áung Gyi hafi krafist
fundar með Saw Maung. Hins vegar
hafa stúdentasamtökin í Burma gef-
ist upp á öllu tali og hyggjast steypa
stjórninni. „Við erum hættir að nota
munninn til að mótmæla... Varið
hópinn sem kallar sig ríkisstjórn við
því að síðasta máltíð þeirra er
skammt undan,“ voru tilmæli Min
Ko Naing eins leiðtoga stúdenta til
þremenninganna.
Þá hafa hin ýmsu skæruliðasamtök
víðs vegar um landið látið á sér
kræla og aukið baráttu sína gegn
stjórnarhernum.
Sandínistar og Kontrar hittust í Guatemala:
ENGAR FRIÐAR VIÐRÆÐUR
UM MÁLEFNI NÍKARAGVA
Sandínistastjórnin í Níkaragva og
Kontraskæruliðar gátu ekki komið
sér saman um að hefja friðarviðræð-
ur á ný, en þessir aðilar héldu
undirbúningsfund í Guatemalaborg
í gær!
„Við erum enn í sjálfheldu," sagði
Roberto Ferrey sem leiddi sendi-
nefnd Kontraliða á fjögurra stunda
undirbúningsfundi á lúxushóteli í
Guatemalaborg. „Við samþykktum
að koma hingað til að athuga hvort
við gætum haldið áfram friðarvið-
ræðúm, en aðstæður í Níkaragva
leyfa ekki eftirgjöf.“
Þrátt fyrir þetta vildi Victor Hugo
Tinoco aðstoðarutanríkisráðherra
Sandínistastjórnarinnar meina að
þokast hefði í samkomulagsátt á
fundinum. Hann sagði að báðir aðil-
ar hafi viðrað sín sjónarmið og fallist
á að nauðsynlegt væri að hefja
beinar friðarviðræður svo fljótt sem
auðið yrði og framlengja vopnahlé
sem komst á í landinu í aprílmánuði.
Sandínistar vilja að friðarviðræð-
urnar fari fram í Managva höfuðborg
Níkaragva, en Kontrar vilja að við-
ræðurnar fari fram í Guatemala,
Costa Rica eða í Dóminíkanska
lýðveldinu.
„Við getum farið til Peking eða
Rio de Janeito eða til hvaða hafnar-
borgar sem er í heiminum. En ef við
viljum ná árangri ættum við að
funda í Managva,“ sagði Tinoco.
Þá settu Kontrar það skilyrði að
Sandínistar leystu úr haldi 39 stjórn-
arandstæðinga er handteknir voru í
júlímánuði og að ritskoðun verði
hætt. Á þetta vilja Sandínistar ekki
fallast.
Fimm manns létu lifið og tuttugu
og fimm særðust þegar bílasprengja
var sprengd í austurhluta Beirút í
gær. Sprengjutilræði þetta kemur á
sama tíma og spenna eykst í Líbanon
vegna erfiðleika líbanska þingsins
við að kjósa sér nýjan forseta.
Bíllinn sem sprengdur var í loft
upp í mannmargri athafnagötu í
Beirút var fylltur með um 125 kg af
sprengiefni. Bíllinn var sprengdur í
loft upp á sama tíma og þingmaður-
inn .Joseph Skaff ók hjá í bílalest.
Skáff særðist lítillega, en ekki er
ljóst hvort tilræðið beindist sérstak-
lega gegn honum.
Jermenn úr hersveitum kristinna
manna lokuðu einu leiðinni milli
svæða kristinna manna í austurhluta
Beirút og múslíma í vesturhlutanum
í kjölfar sprengitilræðisins og var
leiðin lokuð fram eftir degi.
Stjórnmálaástandið sem ekki hef-
ur verið burðugt í Líbanon að
undanförnu versnaði enn eftir að
leiðtogar kristinna manna höfnuðu
hinum kristna Maroníta Mikhael
Daher sem forseta, en Sýrlendingar
og Bandaríkjamenn höfðu gert sam-
komulag um að styðja hann til
forseta. Daher er hliðhollur Sýrlend-
ingum sem nú eru með 2 þúsund
Hirohito keisari
Japans fársjúkur
Hirohito Keisart Japans liggur nú Vigdísi Finnbogadóttur forseta ís-
fársjúkur í keisarahöllinni í Tokýo
og gera Japanar allt eins ráð fyrir að
dagar hans séu brátt taldir. Síðastlið-
inn sólarhring fluttu Rauðakross
menn tvisvar blóð til keisarahallar-
1 innar þar sem læknar fylgjast með
líðan keisarans.
Embættismenn í keisarahöllinni
hafa sagt að líðan keisarans sé tvísýn
og að kéisárinn hafi ítrekað kastað
upp blóði. Ekki er talið óhætt að
flytja keisarann á sjúkrahús svo
hann nýtur aðhlynningar í keisara-
höllinni.
Hirohito er nú 87 ára gamall og
hefur verið lasburða undanfarna
mánuði. Hann sá sér þó fært að hitta
lands að máli er hún heimsótti Japan
í fyrravetur.
Fjöldi manns biður nú fyrir Hiro-
hito, en hann var guðdómleg vera í
augum Japana allt þar til Banda-
menn brutu herveldi Japana á bak
aftur í síðari heimsstyrjöldinni. Eftir
uppgjöf Japana steig keisarinn niður
til almennings, en hefur ríkt alla tíð
síðan sem elskaður þjóðhöfðingi
Japana.
Ríkisstjórn Japans hefur ákveðið
að sonur Hirohitos, Akihito
krónprins, taki við skylduverkum
keisarans á meðan hann liggur fár-
sjúkur.
í Líbanon
manna herlið í Líbanon, kristnum
mönnum til mikillar gremju.
Walid Jumblad Ieiðtogi Drúsa hélt
því fram í gær að ef ekki næðist
samkomulag um forseta innan
skamms muni Líbanon endanlega
klofna á milli þeirra er njóta stuðn-
ings araba og hinna er njóta stuðn-
ings ísraela og Vesturlanda.
Jumblad sagðist gera ráð fyrir að
kristnir harðlínumenn muni útnefna
Raymond Edde eða herforingjann
Michael Aoun sem forsetaefni, en
hvorugan þeirra sagðist Jumblad
geta samþykkt sent forseta.
Ekki eru allir sáttir viö fund Alþjóðabankans og Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins í Vestur-Berlín:
Skotið á fjármálasér-
fræðing vestur-þýskra
Skotárás var gerð á háttsettan
vestur-þýskan embættismann í Bonn
í gær og telja yfirvöld að skæruliða-
samtök hafi ætlað sér að varpa
skugga á fund Alþjóðabankans og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem hefst
í Vestur-Berlín í vikunni. Embættis-
maðurinn slapp ósærður úr skothríð-
inni.
Lögreglan segir að að minnsta
kosti tveir menn hafi setið fyrir og
skotið á bifreið Hans Tietmeyer,
sem er einn helsti fjármálasér-
fræðingur Vestur-Þýskalands og lyk-
ilmaður fjármálaráðuneytisins í
,þeim málum. Tietmeyer skellti sér á
gólf Mercedez Benz bifreiðar sinnar
er skothríðin hófst og mun það hafa
bjargað honum því að minnsta kosti
tíu kúlur skullu á bifreiðinni aftan-
verðri. Einkabílstjóri Tietermeyers
slapp einnig með skrekkinn og ók
sem aldrei fyrr á næstu lögreglustöð
þar sem þeir félagar gáfu skýrslu um
skotárásina.
Að undanförnu hafa verið gerðar
árásir á banka og peningastofnanir í
Vestur-Berlín og hafa skæruliða-
samtök er segja að Alþjóðabankinn
og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi
sent lönd þriðja heimsins í enn dýpri
■efnahagsvandræði en ella með efna-
hagsáætlunum sínum lýst ábyrgð á
hendur sér.
Vestur-þýska lögreglan mun ekki
taka neina áhættu hvað fund þessara
miklu peningastofnana varðar. Tæp-
lega 3000 lögreglumenn hafa verið
sendir til hjálpar þeim 6000 sem fyrir
eru í Vestur-Berlín svo tryggja megi
öryggi hinna 10 þúsund ráðherra,
bankamanna og embættismanna
Isem koma frá 152 löndum til að
fylgjast með fundum þessara vold-
jugu peningastofnana.