Tíminn - 21.09.1988, Page 16
16 Tíminn ________________
lllllllllll! DAGBÓK
Fundur Kvenfélags Kópavogs
Á morgun, fimmtudaginn 22. sept. kl.
20:30, verður haldinn fundur í Félags-
heimilinu. Gestur fundarins verður Sig-
ríður Ingimarsdóttir, varaformaður
Kvenfélagasambands fslands. Hún mun
kynna fyrir fundarkonum erlend sam-
bönd Kvenfélagasambandsins, svo sem
Húsmæðrasamband Norðurlanda, Al-
þjóðasamband húsmæðra o.fl. Konur í
Kópavogi eru hvattar til að mæta á
þennan fund og kynna sér um leið
starfsemi félagsins.
Kvenfélag Óháða safnaðarins
Fundur verður haldinn í Félagsheimil-
inu Kirkjubæ fimmtudaginn 22. septem-
ber kl. 20:30. Fundarefni: Vetrarstarfið
og kirkjudagurinn.
Ferðalag Félags eldri borgara
í Reykjavík og nágrenni
Síðasta ferð félagsins í sumar verður
„ Þingvallahringur“.
Lagt vcrður af stað frá Umferðarmið-
stöð BSÍ laugard. 24. sept. kl. 10:00.
Ekinn verður Suðurlandsvegur að vega-
mótum við Geitháls. Þar verður beygt út
af og farinn gamli Þingvallavegurinn
(Kóngsvegur) og sveigt inn á nýja Nesja-
vallaveginn skammt austan við Dalland
(Miðdal). Ekið síðan um Mosfellsheiði
fram hjá Hengli og um Sköflung að
hverasvæðunum við Nesjavelli. Stansað
þar og virkjunin skoðuð. Síðan ekið um
Grafning og til Þingvalla.
Frá Þingvöllum verður farið með Þing-
vallavatni að austanverðu og niður
Grímsnes og til Selfoss. Borðað á Hótel
Selfossi. Ekiö um nýju Óseyrarbrúna og
um Þorlákshöfn, siðan um Þrengslin til
Reykjavíkur.
Farið kostar 2000 kr. og þar í er matur
innifalinn.
Félagsvist
Húnvetningaféiagsins
Félagsvist verður spiluð laugardaginn
24. september kl. 14:00 í Félagsheimilinu
HÚNABÚÐ Skeifunni 17. Allir vel-
komnir.
Frá Neskirkju
Farið verður í ferð um Þjórsárdal
sunnudaginn 25. september. Lagt verður
af stað frá kirkjunni kl. 13:00. Skoðaður
Sögualdarbærinn, Stöng o.fl. Veitingar
verða í félagsheimilinu Árnesi
Sr. Guðm. Óskar Ólafsson
Fuglaskoðunarferð Hins
íslenska náttúrufræðifélags
Fuglaskoðun á sífellt auknum vinsæld-
um að fagna. Ýmis félög hafa því boðið
upp á árlegar fuglaskoðunarferðir og hafa
þær yfirleitt verið farnar að vorlagi. Á
haustin kveður við annan tón og margir
fuglanna klæðast nýjum búningi.
Sunnud. 25. sept. verður haldið í
fuglaskoðunarferð á vegum hins íslenska
náttúrufræðifélags. Lagt verður af stað
kl. 09:00 frá Umferðarmiðstöðinni, ekið
um Suðurnes og hugað að fuglum á
völdum stöðum, t.d. Sandgerði og Garðs-
skaga. Leiðbeinandi verður Erling Ólafs-
son. Þátttakendur hafi með sér sjónauka,
fuglabækur (ef til eru) og nesti til dagsins.
Námskeið hjá
Slysavarnaskóla sjómanna
Almenn námskeið hjá Slysavarnaskóla
sjómanna, sem enn eru laus til umsókna,
verða haldin sem hér segir:
Október:! 1.-14. og 18.-21.
Nóvember: 1.-4., 15.-18. og 22.-25.
Desember: 6.-9. og 13.-16.
Námskeiðin verða haldin um borð í
skólaskipinu SÆBJÖRGU, sem liggur
við Norðurgarð í Reykjavíkurhöfn.
Nánari upplýsingar verða veittar á
daginn í síma 985-20028, en á kvöldin og
um helgar í síma 91-19591.
Listasafn Einars Jónssonar
Listasafn Einars Jónssonar er opið alla
laugardaga og sunnudaga kl. 13:30-16:00.
Höggmyndagarðurinn er opinn alla
dagafrá kl. 11:00- 17:00.
• AMÍ 88
• Heímsókti á Vestfirðí
SKINFAXI
4. tbl. 79. árg.
Útgefandi Skinfaxa er Ungmennafélag
(slands. Ritstjóri blaðsins er Ingólfur
Hjörleifsson og hann skrifar forustugrein
er hann nefnir: Að vera með - Að ná
árangri. Á forsíðu er mynd af íslenska
frjálsíþróttafólkinu sem tekur þátt í Ol-
ympíuleikunum í Seoul.
Stjórn Ungmennafélags íslands 1987 til
1990 er kynnt í þessu blaði í máli og
myndum.
Á leið til Seoul er fyrirsögn á kynningu
á frjálsíþróttafólkinu íslenska og einnig
er sundfólkið kynnt.
Þá er skákþáttur í blaöinu eftir Jón L.
Árnason: Strandhögg Polgarsystra á
Austfjörðum ncfnist þátturinn. 1 landi
Molbúa er fyrirsögn á ferðasögu 30
ntanna hóps ungmennafélaga sem fóru á
vegum félagsins til Danmerkur á nám-
skeið í íþróttum og kynnisför. Þá er viðtal
við Cees van de Ven, frjálsíþróttaþjálf-
ara, frásögn með mörgum myndum af
sundmótinu AMÍ’88 á Akranesi, sagt frá
sunddeild Aftureldingar úr Mosfellsbæ
og rætt við Kára Jónsson, skólastjóra
Héraðsskólans á Núpi í Dýrafirði. Að
vestan, Matthías Lýðsson skrifar frá Vest-
fjöröum og ýmsar fréttir þaðan.
Bjarmi - 5. tbl. 82. árg.
Forustugrein þessa blaðs hefur að fyrir-
sögn: Ertu sinnulaus? og rekur ritstjór-
inn, Gunnar J. Gunnarsson, það þar, hve
margir séu nú á dögum sinnulausir í
trúarefnum.
Efni blaðsins sem er „I brennidepli” er
VÖXTUR. Sr. Gísli Jónasson skrifar
greinina Trúarlíf í vexti.
Hlýðni í trú - er alltaf skref til helgunar
er fyrirsögn á grein Gísla H. Friðgeirsson-
ar eðlisfræðings, en hann kennir tölvu-
fræði við Tækniskóla íslands.
Samverkamenn í ríki Guðs nefnist
minningargrein um þá Bjarna Eyjólfsson
og Gunnar Sigurjónsson.
í blaðinu eru fréttir af kristniboðsstarfi
í Afríku, bæði í Eþíópíu, Senegal og
Kenýu og ýmsar aðrar fréttir. Útgefendur
blaðsins eru: Kristilega skólahreyfingin,
Landssamband KFUM og KFUK og
Samband ísl. kristniboðsfélaga.
\ Hafirðu
smakkað
- láttr.1 þér þá ALDEEI
detfca í hug
að k jyra!
IUMFERÐAR
'RÁÐ
Hús & híbýli
4. tbl. ’88
Það kennir margra grasa í nýútkomnu
tölublaði Húsa og híbýla, nr. 52 (4. tbl.
’88). Þar er Innlit til ungra hjóna í íbúð
þeirra á efstu hæð í fjölbýlishúsi í Grafar-
vogi og litið er inn til eldri hjóna sem eru
nýbúin að minnka við sig.
Þá er sýnt frá sumarhúsi starfsmanna-
félags Seðlabankans við Þingvallavatn og
birtar eru myndir frá skemmtilega innrétt-
uðum vinnustað í Reykjavík. í blaðinu
eru einnig myndir úr garði þeim er hlaut
verðlaun Blómavals, Stjörnunnar og
H&HJ og sömuleiðis eru myndir af
heitum pottum í ýmsum görðum, en
pottar verða stöðugt vinsælli við heima-
hús.
Af öðru efni má svo nefna m.a. hús-
gagnakynningar á mörgum síðum, gefnar
eru hugmyndir að skemmtilegum innrétt-
ingum fyrir baðherbergi, glerlistakonan
Ingunn Benediktsdóttir er heimsótt og
ferðalögum, matreiðslu, bakstri og
blómarækt eru gerð nokkur skil.
Þetta er fjórða tölublað H&H á þessu
ári, en blaðið kemur út sex sinnum á ári.
Útgefandi er SAM-útgáfan, ritstjóri er
Þórarinn Jón Magnússon.
BÖSCAVARÐAN
SAMUJI tlHl 00 NVJAK -
VATNSSTÍG 4 • BEYKJAVlK - SÍMi 23720
ISLAMD
BÓKAVARDAN
Ný bóksöluskrá er komin frá Bóka-
vörðunni. Skráin er no. 51 fyrir sept. ’88.
Samkvæmt henni eru margir bókaflokkar
til sölu, bæði nýjar bækur og gamlar, í
Bókavörðunni, Vatnsstíg 4. Má t.d.
nefna: íslensk fræði og norræna, byggða-
og héraðasögur, þjóðsögur og þjóðlegan
fróðleik, ævisögur fslendinga, íslenskar
skáldsögur og skáldrit, færeyskar bækur
og blöð, erlendar skáldsögur, blandaðar
fagbókmenntir, ævisögur erlendra
manna, trúarbragðabækur, bækur um
lífsspeki o.fl.
Á forsíðu bóksöluskrárinnar er mynd
frá 1872: Öxarárfoss teiknuð af Syming-
ton.
Stjórnun
t.tbl. 4. árg.
Stjórnunarfélag íslands er útgefandi
tímaritsins, en ritstjóri og ábyrgðarmaður
er Lára M. Ragnarsdóttir, framkvæmda-
stjóri SFÍ.
( blaðinu eru í fyrsta lagi almennar
upplýsingar um starf stjórnunarfélagsins
og sagt frá námskeiðum á vegum félags-
ins. Þá er sagt frá að TMI hafi haldið
námskeið í Sovét og frétt er um innlend
stjórnunarnámskeið. Námstefna um
gæði, en hún verður haldin í Viðey
föstudaginn 2. september og fer fram á
ensku. Námstefnan tekur 8 klst. Einniger
sagt frá erlendum stjórnunarnámskeið-
um.
Ragnar Pálsson og Erling Aspelund
segjafráTölvuskóla SFl: Ný stefnumótun
í tölvu- og starfsmannamálum SÍS. Ingj-
aldur Hannnibalsson: Stjórnun - tilfinn-
ingar eða öguð vinnubrögð. Sagt er frá
Ritara- og málaskóla Mímis. Ymislegt
annað efni er í ritinu, sem gefið er út í
9000 eintökum og dreift til fyrirtækja,
félagasamtaka og stofnana og félaga
Stjórnunarfélagsins.
____________________________________________________Mióvikudagur21, september 1988
ÚTVARP/SJÓNVARP illlllllllllllllllillllllllllllllllíl!!llllllilllll
Rás I
FM 92,4/93,5
SJÓNVARPIÐ
Miðvikudagur
21. september
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Solveig Lára Guð-
mundsdóttir flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið með Ingveldi Ólafsdóttur.
Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og
veðurfregnir kl. 8.15. Lesið úr forustugreinum
dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og
9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn „Alís í Undralandi“ eftir
Lewis Carroll í þýðingu Ingunnar E. Thoraren-
sen. Þorsteinn Thorarensen les (9). (Einnig
útvarpað um kvöldið kl. 20.00).
9.20 Morgunleikfimi. Umsjón: Halldóra Björns-
dóttir.
9.30 Landpósturinn - Frá Austurlandi. Umsjón:
Haraldur Bjarnason í Neskaupstað. (Einnig
útvarpað um kvöldið kl. 21.00).
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veöurfregnir.
10.30 „Einu sinni var...“. Um þjóðtrú í íslenskum
bókmenntum. Sjötti þáttur. Umsjón: Símon Jón
Jóhannsson. Lesari með honum: Ragnheiður
Steindórsdóttir.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón: Edward J. Frederik-
sen.
11.55 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
13.05 í dagsins önn. Umsjón: Ragnheiður Gyða
Jónsdóttir.
13.35 Miðdegissagan: „Hvora höndina viltu“
eftir Vitu Andersen. Inga Birna Jónsdóttir les
þýðingu sína (5).
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Harmoníkuþáttur. Umsjón: Bjarni Marteins-
son.(Endurtekinn þáttur frá laugardagskvöldi).
14.35 íslenskir einsöngvarar og kórar. Sigurveig
Hjaltested, ólafur Þ. Jónsson og Karlakórinn
Vísir syngja.
15.00 Fréttir.
15.03 í sumarlandinu með Hafsteini Hafliðasyni.
(Endurtekinn þáttur frá laugardegi).
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið. Kristján frá Djúpalæk, skáld-
ið og maðurinn. Umsjón: Örn Ingi.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi. a. Fimm lög eftir Gustav
Mahler við Ijóð eftir Friedrich Rúckert. Maureen
Forrester syngur með Útvarpssinfóníuhljóm-
sveit Berlínar; Ferenc Fricsay stjórnar. b. Ser-
enaða nr. 2 í A-dúr op. 16 eftir Johannes
Brahms. Concertgebouw hljómsveitin í Amster-
dam leikur; Bernard Haitink stjórnar.
18.00 Fréttir.
18.03 Neytendatorgið. Umsjón: Steinunn Harðar-
dóttir.
Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar.
19.35 Glugginn. Umsjón: Anna Margrét Sigurðar-
dóttir.
20.00 Litli barnatíminn. (Endurtekinn frá morgni).
20.15 Nútímatónlist. Þorkell Sigurbjörnsson
kynnir.
21.00 Landpósturinn - Frá Austurlandi. Umsjón:
Haraldur Bjarnason í Neskaupstað. (Endurtek-
inn þáttur frá morgni).
21.30 Vestan af fjörðum. Þáttur í umsjá Péturs
Bjarnasonar um ferðamál og fleira. (Frá ísafirði)
22.00 Fréttir Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Meðal stríðsmanna Guðs. Fyrri hluti þáttar
um ísrael í sögu og samtíð í tilefni af fjörutíu ára
afmælis Ísraelsríkis. Umsjón: Árni Sigurðsson.
(Síðari hlutinn er á dagskrá aö viku liðinni á
sama tíma).
23.10 Djassþáttur - Jón Múli Árnason. (Einnig
útvarpað nk. þriðjudag kl. 14.05).
24.00 Fréttir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
FM 91,1
01.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af
veðri og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
7.03 Morgunútvarpið. Dægurmálaútvarp með
fréttayfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl. 8.00.
Veðurfregnir kl. 8.15. Leiðarar dagblaðanna að
loknu fréttayfirliti kl. 8.30. Pistill frá Ólympíu-
leikunum í Seúl að loknu fréttayfirlitil og leiðara-
lestri kl. 8.35
9.03 Viðbit-GesturE. Jónasson. (FráAkureyri)
10.05 Miðmorgunssyrpa - Eva Ásrún Albertsdótt-
ir og Óskar Páll Sveinsson.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Á milli mála - Eva Ásrún Albertsdóttir og
Óskar Páll Sveinsson.
16.03 Dagskrá
Dægurmálaútvarp.
17.00 Tekið á rás. Lýst leik íslendingaog Ungverja
í knattspyrnu á Laugardalsvelli.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Kvöldtónar.
22.07 Eftir mínu höfði - Pétur Grétarsson.
01.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Að loknum fréttum kl. 2.00
verður endurtekinn frá sunnudegi. Vinsældalisti
Rásar 2 í umsjá Péturs Grétarsonar. Fréttir kl.
2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af veðri og
flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir
frá Veðurstofu kl. 1.00 og 4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30,
9.00, 10.00, 11.00, 12.00, 12.20,14.00, 15.00,
16.00,17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands
Miðvikudagur
21. september
10.25 ólympíuleikarnir ’88 - bein útsending.
Úrslit í sveitakeppni kvenna í fimleikum.
14.15 Hlé.
18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Töfraglugginn - Endursýning.
19.50 Dagskrárkynning.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Sjúkrahúsið í Svartaskógi. (Die
Schwarzwaldklinik) Níundi þáttur. Þýskur
myndaflokkur í ellefu þáttum. Höfundur Herbert
Lichtenfeld. Leikstjóri Alfred Vohrer. Aðalhlut-
verk Klaus Jurgen Wussow, Gaby Dohm,
Sascha Hehn og Karin Hardt. Þýðandi Jóhanna
Þráinsdóttir.
21.20 Ólympíusyrpa. Ýmsar greinar.
23.00 Útvarpsfréttir.
23.10 ólympíuleikarnir '88 - bein útsending.
Undanrásir í sundi og úrslit í fimleikum.
05.00 Dagskrárlok.
Miðvikudagur
21. september
15.35 Florence Nightingale. The Nightingale
Saga. Mynd þessi er byggð á ævi Florence
Nightingale sem fékk snemma mikinn áhuga á
að hjúkra sjúkum og þrátt fyrir sterka andstöðu,
bæði fjölskyldu og þjóðfélags, tókst henni að
mennta sig í hjúkrunarfræðum. Síðarmeirvann
Florence brautryðjandastarf í hjúkrun, hún fann
nýjar leiðir til að berjast gegn kóleru og stóð fyrir
bættum aðbúnaði á sjúkrahúsum. Aðalhlutverk:
Jaclyn Smith, Timothy Dalton, Claire Bloom og
Jeremy Brett. Leikstjóri er Darryl Duke. Þýðandi:
Björn Baldursson. Columbia 1985. Sýningartími
135 mín.
17.50 Litli folinn og félagar. My Little Pony and
Friends. Teiknimynd með íslensku tali. Leik-
raddir: Guðrún Þórðardóttir, Júlíus Brjánsson
og Saga Jónsdóttir. Þýðandi: Magnea Matthías-
dóttir. Sunbow Productions.
18.15 Köngulóarmaðurinn. Spiderman. Teikni-
mynd. Þýðandi: Ólafur Jónsson. Arp Films.
18.40 Dægradvöl. ABC's World Sportsman.
Þáttaröð um frægt fólk með spennandi áhuga-
mál. Þýðandi: Sævar Hilbertsson. ABC. 4
19.1919:19. Fréttir, veður, íþróttir, menning og
listir, fréttaskýringar og umfjöllun. Allt í einum
pakka.
20.30 Pulaski. Bresk spenna. Bresk fyndni. Út-
koman er Pulaski. Aðalhlutverk: David Andrews
og Caroline Langrishe. Leikstjórn: Christopher
King. BBC 1988.____________________________
21.30 Mennt er máttur. Umræðuþáttur undir stjóm
Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar. I þættin-
um verður fjallað um skólakerfið og varðveislu
menningar okkar og tungu. Dr. Arnór Hannibals-
1 son heimspekidósent fjallar um hversu óþjóð-
legar kennslugreinar eru orðnar og Guðmundur
Magnússon aðstoðarmaður menntamálaráð-
herra talar um íslandssögu og samfélagsfræði.
Einnig verður rætt við þá Andra ísaksson
prófessor, Braga Jósefsson prófessor, Birgi
Isleif Gunnarsson menntamálaráðherra, Þor-
varð Elíasson skólastjóra og skólastjóra Tjarn-
arskóla. Umsjón og handrit'.Hannes Hólmsteinn
Gissurarson. Stöð 2.
22.00 Veröld - Sagan í sjónvarpi. The World - A
Television History. Stórbrotin þáttaröð sem
byggir á Times Atlas mannkynssögunni (The
Times Atlas of World History). Þáttur kvöldsins
fjallar um þá breytingu sem varð á högum og
þróun mannsins er hann hóf jarðyrkju. Af
jaröyrkjunni leiddi húsdýrahald, meiri samvinna
og myndun þorpa og segja má að þá hafi
maðurinn stigið fyrsta skrefið í átt til þeirra miklu
yfirráða sem hann nú hefur yfir umhverfi sínu.
Framleiðandi: Taylor Downing. Þýðandi: Guð-
mundur A. Þorsteinsson. Goldcrest.
22.25 Herskyldan. Nam, Tour of Duty. Spennu-
þáttaröð um unga pilta í herþjónustu í Víetnam.
Aðalhlutverk: Terence Knox, Stephen Caffrey,
Joshua Maurer og Ramon Franco. Leikstjóri:
Bill L. Norton. Framleiðandi: Ronald L. Schwary.
Þýðandi: Snjólaug Bragadóttir. Zev Braun 1987.
23.15 Tíska. Hausttískan frá bandarísku hönnuð-
unum Calvin Klein, Biil Blass, Geoffrey Beene,
Donna Karan, Ralph Lauren, Anne Klein, Caro-
lyne Roehm, Perry Ellis, Oscar de la Renta og
Bob Mackie. Þýðandi og þulur: Anna Kristín
Bjamadóttir. Videofashion 1988.
23.45 Sérsveitarforinginn. Commando. Arnold
Schwarzenegger í hlutverki fyrrum sérsveitar-
foringja sem á að baki mörg voðaverk en hefur
dregið sig í hlé. Valdamikill stjórnmálamaður í
Suður-Ameríku rænir dóttur sérsveitarforingj-
ans til þess að draga hann aftur út í hringiöuna.
Aðalhlutverk: Arnold Schwarzenegger, Rae
Dawn Chong og Dan Hedaya. Leikstjóri: Mark
L. Lester. Framleiðandi: Joel Silver. Þýðandi:
Alfreð S. Böðvarsson. 20th Century Fox 1985.
Sýningartími 90 mín. Ekki við hæfi barna.
01.15 Dagskrárlok.
I6k
ÚTVARP
Mjölnisholti 14, 3. h.
Opið virka daga
15.00-19.00
Sími 623610