Tíminn - 04.10.1988, Page 2
8 naim-T
2 Tíminn
b't't'r 'toobys. .t
Þriöjudagur 4. október 1988
Skoðanakönnun Hagvangs á fylgi stjórnmálaflokka:
Stjórnarflokkarnir
bæta við sig fylgi
Fylgi stjómarflokkanna þriggja í nýjustu skoðanakönnun Hag-
vangs hcfur aukist miðað við síðustu kannanir og sama er að segja
um fylgi Borgaraflokksins, þótt enginn þeirra nái fylginu við síðustu
alþingiskosningar utan Framsóknarflokkurinn sem bætir við sig.
Fylgi Sjálfstæðisflokks og Kvennalista hefur hins vegar dvínað frá
síðustu könnun og er sveiflan veruleg hjá konunum.
Athyglisvert er að nú var fylgið
kannað eftir búsetu og kemur í ljós
að réttur þriðjungur landsbyggðar-
innar styður Framsóknarflokkinn,
en réttur þriðjungur höfuðborgar-
svæðisins stendur á bak við Sjálf-
stæðisflokkinn. Um 28% höfuðborg-
arbúa fylgja Kvennalista og sá flokk-
ur sem fær þriðja mesta fylgi á
höfuðborgarsvæðinu er Framsókn-
arflokkurinn. Alþýðubandalag er
eini flokkurinn sem hefur álíka mik-
ið fylgi á landsbyggðinni og á höfuð-
borgarsvæðinu og er það talið vera
styrkur.
Stærsti flokkurinn er áfram Sjálf-
stæðisflokkurinn með 30,1%, eða
nokkru meira en í kosningunum
1987. Kvennalisti er með 24%, en
var með um 10% fylgi í kosningun-
um og Framsóknarflokkurinn er
með 21,3%, en var með um 18% í
kosningunum. Þessir flokkar eru
jafnframt einir um að hafa nú meira
fylgi en var í kosningunum. Borgar-
aflokkurinn virðist hafa misst um
þriðjung af sínu fylgi yfir í Sjálf-
stæðisflokkinn og mælist nú ekki
nema með 3,3% fylgi, en hafði um
11% í kosningunum.
A-flokkarnir svokölluðu hafa
heldur bætt við sig fylgi miðað við
síðustu kannanir Hagvangs, en eru
enn langt undir því sem þeir fengu í
kosningunum. Alþýðuflokkur mæl-
ist nú með 11,4% og Alþýðubanda-
lag með 8,3% fylgi.
Eftir kynjum skiptist fylgi þannig
að þriðjungur kvenna stendur á bak
við Kvennalista, um 27% kvenna
fylgir Sjálfstæðisflokki og rétt um
21% kvenna fylgir Framsókn. Þegar
skipting eftir kynjum er skoðuð
betur kemur í ljós að Framsóknar-
flokkurinn hefur álíka mikið fylgi
meðal karlmanna og er það eini
flokkurinn utan Borgaraflokks sem
þannig kemur út. Er það talinn
styrkur fyrir viðkomandi flokk þar
sem fylgi er þá ekki bundið ákveðn-
um hóp.
f öllum þessum tölum er miðað
við þá sem afstöðu tóku. Úrtakið var
1000 manns og var könnunin gerð
símleiðis dagana 21.-30. september,
eða á síðustu dögum fyrrverandi
starfsstjórnar. Svarprósentan var
77,3% brúttó og 84,4% nettó. Aldur
þátttakenda var frá 18 ára til 67 ára
og voru þeir búsettir um allt land.
Þeir sem vissu ekki hverju þeir ættu
að svara voru 17,1% og þeir sem
neituðu að svara voru 10,6%. Þeir
sem ætla að skila auðu voru 4%
svarenda og er sá hópur í öðrum
flokki en hinum tveimur áður-
nefndu.
Flokkur mannsins, Þjóðarflokk-
urinn og Samtök jafnréttis og félags-
hyggju fengju hver um sig innan við
eitt prósent fylgi. KB
Samanburður á fylgi flokkanna þar
sem eingöngu er tekið tillit til þeirra
sem afstöðu tóku.
Umdeild atkvæðagreiösla stjórnar Fríkirkjunnar í Reykjavík:
Fjórðungur mætti
Atkvæðagreiðsla um uppsögn
sr. Gunnars Björnssonar, frí-
kirkjuprests í Reykjavík, fór
fram í Ármúlaskóla um helgina.
Alls eru á fimmta þúsund manns
á kjörskrá og komu 1022 þeirra á
kjörstað. 967 þeirra studdu þá
ákvörðun safnaðarstjórnar að
víkja sr. Gunnari úr starfi í
sumar, en 26 lýstu sig mótfallin
þeirri ákvörðun. Berta Kristins-
dóttir, varaformaður, segist telja
þetta ótvíræðan sigur stjórnar-
innar í uppsagnarmálinu.
Sr. Gunnar var einnig ánægður
með niðurstöðurnar þar sem
hann hafði hvatt stuðningsmenn
sína til að sitja heima, eftir að
fógeti hafnaði lögbannskröfu
hans á þessar kosningar. Telur
fríkirkjupresturinn að dræm
kjörsókn gefi örugga vísbendingu
um fjölda stuðningsmanna sinna,
en þeir eru um eitt þúsund talsins
samkæmt skráningu. KB
Síldarsölusamningar:
Viðræðum
við Sovét
frestað
Viðræðum við Sovétmenn um
kaup á saltaðri síld hefur verið
frestað fram í miðjan október,
þar sem aðeins liggur fyrir heim-
ild til kaupa á 100.000 tunnum,
en í viðskiptasamkomulagi Is-
lands og Sovétríkjanna er gert
ráð fyrir að Sovétmenn kaupi
árlega 200 til 250 þúsund tunnur.
Fulltrúar Síldarútvegsnefndar
óskuðu eftir að viðræðurnar mið-
uðust við 250 þúsund tunna kaup
og töldu ófært að halda viðræðum
áfram um aðeins 100 þúsund
tunnur eða 50% af neðri mörkum
þess magns sem viðskiptasam-
komulag landanna gerir ráð fyrir.
Viðræðurnar í október fara
fram í Reykjavík. -ABÓ
Eldsvoði
á Rangár*
völlum
Mikill eldur kom upp í útihúsum
á bænum Bakkakoti á Rangárvöllum
í fyrrinótt. Dönsk stúlka, sem var að
byrja í vist á bænum í fyrradag varð
fyrst vör við eldinn. Vakti hún
heimilisfólkið og er ljóst að það varð
bústofninum til bjargar. Þegar
heimilisfólkið kom í útihúsin hafði
hluti af skepnunum lagst niður.
Fljótlega tókst að koma öllum
skepnunum út, en í fjósinu voru um
50 nautgripir og 12 hross í hesthús-
inu.
Ljóst þykir að eignatjón sé mikið,
en að sögn bóndans kemur hann til
með að eiga nóg hey handa skepnun-
um í vetur, þrátt fyrir að hluti af
heyinu hans hafi eyðilagst í eldinum.
-ABÓ
.. ..
GOBAR fréttir fyrir
UNGT FERÐAFÚLK
Flugleiöir hafa tekið upp sérstaka nýjung í fargjöldum
fyrir ungt fólk á aldrinum 12 til 21 árs í innanlandsflugi. Þessi
unglingafargjöld gilda allt áriö og þeim fylgja engar kvaðir um
lágmarksdvöl en hámarksdvöl er eitt ár.
Farmiöarnir eru „stand by“ þannig aö ekki er hægt að
bóka sætiö fyrirfram og farþegarnir eru háðir því aö pláss sé
í vélinni hverju sinni. En það sem mestu máli skiptir: Þeir
sem kaupa unglingafargjöld fá 55% afslátt af ársfargjaldi.
FLUGLEIDIRmw
Söluskrifstofur, ferðaskrifstofur og umboðsmenn um land allt. 4?