Tíminn - 04.10.1988, Síða 3
Þriðjudagur 4. október 1988
. Tíminn,. 3
Sat hest í tvo tíma
mjaðmagrindarbrotin
Þaö óhapp vildi til á föstudag í
öðru safni Miðafréttar, þ.e. bænda á
Kirkjubæjarklaustri og hluta
Landbrots, að sextán ára stúlka
Lilja Hrund Harðardóttir tví
mjaðmagrindarbrotnaði, þegar hest-
inum sem hún var á, skrikaði fótur
svo hann datt og lenti hún undir
honum með ofangreindum afleiðing-
um. Eftir um sex tíma ferðalag
komst hún fyrst undir læknishendur
og hafði þá ferðast um mjaðma-
grindarbrotin á hestbaki og um veg-
leysur í hrauni á Land Rover.
Tíminn hitti Lilju Hrund að máli
á Landspítalanum, þar sem hún
liggur og fer saga hennar hér á eftir:
„Við höfðum lagt af stað á föstudags-
morguninn í annað safn. Það var um
þrjú leytið að við vorum nýkomin út
úr Blágili, þar sem Stóri-Gráni,
hesturinn sem ég var á, rann til,
sennilega vegna þess að það var
slabb á jörðinni. Ég fann að hann
var að falla og henti mér þá til hliðar,
en ég horfði síðan á þegar hann féll
með afturendann ofaná mig,“ sagði
Lilja Hrund og hagræddi sér í rúm-
inu, með erfiðismunum. „Eftir það
lá ég á jörðinni og hugsaði sem svo
að nú væri ég örugglega hryggbrotin,
enda heyrði ég brakið og brestina
þegar hann ienti ofaná mér. Karlarn-
ir voru ekkert á því að stoppa þarna,
enda kalt og hjálpuðu mér á bak og
við riðum áfram í um tvo tíma yfir
hraun, inn að kofanum í Hrossár-
tungum," sagði Lilja Hrund.
Aðspurð um líðanina á hestbak-
inu sagði hún að fyrst hefði hún
verið aðeins dofin, en svo hafi sár-
saukinn komið, auk þess sem hestur-
inn hefði verið erfiður í taumi og
fælinn vegna þess að hann hafði
dottið. „Eg var svo þrjósk þegar
karlarnir sögðu að þetta væri einhver
aumingjaskapur í mér og ég trúði
því varla sjálf að ég væri brotin og
hélt því áfram að sitja hestinn. Þegar
við komum í kofann í Hrossártung-
um var ég borin inn og lögð í koju.
Mér fannst þá sem þetta væri að líða
hjá og settist upp og fékk mér að
borða. Karlarnir vildu athuga þetta
nánar, hvort það væri í lagi með mig
og reyndu að láta mig standa í
fæturna, en ég gat það ekki, nema í
annan fótinn og því var ákveðið að
senda mig heim.
Ég var borin út í Land Rover og
við hristumst til baka yfir hraunið í
um einn og hálfan tíma,“ sagði Lilja.
Aðspurð hvernig henni hefði liðið í
þeirri ferð, sagði Lilja að hún hefði
verið orðin ansi þrekuð síðasta
spölinn. „Ég sat í framsætinu, hjá
frænda mínum og hann hálfvegis
hélt mér uppi, enda var ég orðin
mjög máttlaus. Svona keyrðum við í
um einn og hálfan tíma, eða þar til
við vorum komin að Hellisá, þar
sem sjúkrabíllinn frá Klaustri tók
mig og ók mér til móts við sjúkrabíl-
inn frá Vík. Þar sem læknirinn á
Lilja Hrund á sjúkrastofunni á Landspítalanum. Hún var hress í bragði þegar
Tímann bar að garði, en sagðist ekki mega hreyfa sig mikið á næstunni.
Ttmamynd Ámi Bjarna
Norödekk rall 1988:
Steingrímur og Wittek
öruggir sigurvegarar
Steingrímur Ingason og Wittek
Bogdanski þurftu lítt á 260 hestöfl-
um Nissan bíls síns að hatda til að
Landmælingar (slands:
Minnast Björns
Gunnlaugssonar
Um þessar mundir eru liðin
200 ár frá fæðingu Björns Gunn-
laugssonar. Af því tilefni efndi
Vísindafélagið, með þátttöku
Landmælinga íslands, til almenns
fundar í Norræna húsinu á dögun-
um. Var þátttaka góð á þessum
fundi.
Björns Gunnlaugssonar hefur
ennfremur verið minnst með því
að kort hans frá 1849 hefur nú
verið endurútgefið af Landmæl-
ingum íslands, með leyfi Hins
íslenska bókmenntafélags. Kort-
ið er endurprentað í lit í prent-
smiðjunni Odda og er hið vand-
aðasta. Verð kortsins er kr.
3.000,- með söluskatti og er til
sölu í kortaverslun Landmælinga
íslands að Laugavegi 178,
Reykjavík.
vinna Norðdekkrallið um helgina,
síðasta rall ársins.
Eftir 2 sérleiðir af 13 höfðu helstu
keppinautar þeirra hætt keppni
vegna bilana og óhappa.
Jón Ragnarsson Islandsmeistari
rallökumanna 1988 skipti á sætum
við son sinn Rúnar (íslandsm. að-
stoðarökumanna) sem ók af stað á
250 ha Escortinum með síðasta rás-
númer, þar sem hann hafði aldrei
áður keppt með stýrið í höndum.
Árangurinn varð 2. sætið, frábær
byrjun 18 ára pilts.
Ágúst Guðmundsson er kominn
vel á fertugsaldurinn, hóf rallakstur
nú í ár en hann og Bjöm Hannesson
áttu 3. sætið svo sannarlega skilið.
Opel Kadett þeirra stenst öflugustu
bílunum engan snúning, en „öld-
ungurinn" Ágúst hefur geysilega
fallegan stíl, sennilega vegna áratuga
þjálfunar á mótorhjólum.
Alveg sömu sögu er að segja af
Páli Harðarsyni, sem ók 260 ha
Escort sínum og Ásgeirs Ásgeirsson-
ar af öryggi í þeirra þriðja ralli í 4.
sætið.
Sigurvegarar í flokki óbreyttra
bíla urðu að vanda Óskar Ólafsson
og Jóhann Jónsson á Subam turbo
sem enn er næstum eins og nýr eftir
hraða en áfallalausa keyrslu á 6
röllum.
En rall er ekki barátta um bikara
fyrir öllum. Þess vegna urðu Pétur
„Pétrr" Guðjónsson og Þorbjörn
Pálsson gapandi hissa á að hampa
bikar fyrir sigur í flokki bíla með
stærri vélar en 2 lítra, því hin
aldraða bleika Chevrolet Nova
þeirra er mest með til að kitla
hláturtaugar áhafnar og áhorfenda.
Meðal sérútbúnaðar má nefna Bake-
lit-bílasíma með sveif og lifandi
blómaskreytingar!
Norðdekk rallið í ár einkenndist
af lítilli keppni þar sem fljótt réðst
skipan sæta. Þá verður að geta
þeirra Elvars Magnússonar og
Kristjáns Þorsteinssonar sem enda-
sentust áfram á handónýtum eld-
gömlum Subaru. Það er vert að gefa
hinum tvítuga Elvari gaum fyrir
framtíðina, enda lentu hann og
Kristján í 10. sæti þrátt fyrir ótal
bilanir.
Síðast en ekki síst verður að geta
Viðars Halldórssonar sem ásamt
Gunnlaugi Ingimarssyni komu í
mark í 9. sæti á gljáandi Toyotu sinni
með ekkert annað en öryggisútbún-
að og Norðdekk til að flýta för um
rallslóða. Ókumaðurinn er nefnilega
framkvæmdastjóri Gúmmívinnu-
stofunnar sem hélt rallið ásamt
BÍKR!
Kirkjubæjarklaustri var ekki heima
fékk ég enga deyfingu fyrr en ég var
komin í sjúkrabílinn frá Vík á milli
átta og níu um kvöldið, um fimm til
sex tímum eftir að ég brotnaði.
Síðan var brunað með mig á slysa-
deild Borgarspítalans og þaðan var
ég flutt hingað á Landspítalann,"
sagði Lilja.
Aðspurð hversu lengi hún þyrfti
að liggja á spítalanum sagði hún
óvíst, „svarið sem ég fékk var,
dagar, vikur, mánuður. Það verða
að minnsta kosti einhverjar vikur,"
sagði Lilja og brosti. Öðrum megin
er mjaðmaliðurinn brákaður, en hin-
um megin, á ekki eins viðkvæmum
stað á mjaðmagrindinni, er hún
brotin.
Lilja hafði rætt við hjúkrunarf-
ræðingana um hvernig fara hefði átt
að í þessu tilviki. Svörin voru skýr,
„liggja grafkyrr og kalla á þyrlu,“
sagði Lilja Hrund, „þetta hefði allt
getað farið í sundur, brotnað. Hefði
getað farið mikið ver, ég var mjög
heppin að ekkert skyldi fara úr
skorðum." - ABÓ
A
Vinningstölurnar 1. október 1988
Heildarvinningsupphæð:
Kr. 4.556.608,-
Fimm tölur réttar kr. 2.099.588,- skiptast á 2 vinningshafa, kr.
1.049.794,- á mann.
BÓNUSTALA + fjórartölurréttarkr. 364.422,-skiptastá 2 vinnings-
hafa, kr. 182.211,- á mann.
Fjórar tölur réttar kr. 628.578,- skiptast á 141 vinningshafa, kr.
4.458,- á mann.
Þrjár tölur réttar kr. 1.464.020,- skiptast á 5.155 vinningshafa, kr.
284,- á mann.
Sölustaðirnir eru opnir frá
mánudegi til laugardags
og loka ekki fyrr en 15 mínútum
fyrir útdrátt.
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111