Tíminn - 04.10.1988, Side 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 4. október 1988
Lagabókstafurinn er ótvíræður varðandi dýrainnflutning:
Skýlaust bann við inn-
flutningi allra spendýra
Mikið hefur verið skrifað og skeggrætt að undanförnu í
fjölmiðlum og víðar um innflutning á dýrum. Einkum hefur
kastljósið beinst að innflutningi á hundum til landsins. Á
dögunum var hér í Tímanum greint frá íslensk/frönskum
dreng sem vill ekki flytja heim til íslands nema að fá að taka
hundinn Depil með sér. Heilbrigðisyfirvöld hafa hinsvegar
ekki gefi grænt Ijós á innflutning hans. Sama gildir um hund
sem verið hefur að undanförnu með íslenskum eiganda sínum
á Grænlandi.
Landbúnaðarráðuneyti og yfir-
dýralæknisembættið gefa sömu svör
við óskum um innflutning þessara
hunda ogannarragæludýra. Heimild
er ekki veitt á þeim forsendum að
slíkur innflutningur geti borið með
sér ýmsa hættulega sjúkdóma til
landsins.
Bann við innflutningi hverskyns
dýra er ótvírætt lögum samkvæmt. í
lögum nr. 11 frá 1928 um varnir gegn
því að gin- og klaufaveiki og aðrir
alidýrasjúkdómar berist til landsins
er ákvæði um skýlaust bann við
innflutningi allra spcndýra og fugla
til landsins. Þetta er áréttað í 1.
grein laga nr. 74 frá 1962 um inn-
flutning búfjár. Orðrétt segir lög-
gjafinn: „Bannað er að flytja til
landsins hvers konar dýr, tamin og
villt, þar með taldir fuglar." í fram-
haldi af þessu ákvæði laganna er
vísað til reglugerðar nr. 290 frá 1980
um varnir gegn hundaæði.
Samkvæmt þessum sömu lögum
frá 1962 er landbúnaðarráðherra
heimilt að víkja frá þessu innflutn-
ingsbanni að því tilskildu að öllum
öryggisatriðum sé fullnægt. Ráð-
herra getur því aðeins heimilað inn-
flutninginn að Búnaðarfélag íslands
(ef um búfé er að ræða) mæli með
honum og yfirdýralæknir veiti sitt
samþykki.
Samkvæmt upplýsingum sem
Tíminn fékk í landbúnaðarráðuneyti
í gær berst þangað mikill fjöldi
erinda um heimildir til innflutnings
gæludýra. Ráðuneytið vísar öllum
þessum málum, eins og lagabókstaf-
urinn segir til um, til umsagnar
yfirdýralæknis. Það er síðan á hans
valdi hvort veitt er undanþága frá
lögum. Ekki náðist í Pál A. Pálsson,
yfirdýralækni í gær til þess að bera
undir hann hvort slíkar undanþágur
væru oft veittar en Sveinbjörn Dag-
finnsson, ráðuneytisstjóri í landbún-
aðarráðuneytinu, segir að þess séu
nokkur dæmi. Til dæmis hefur
nokkrum íslendingum og erlendum
sendiráðsmönnum verið heimilað að
flytja hunda sína til landsins ef öllum
skilyrðum er fuilnægt. Áskilin er
sóttkví fyrir hundana í heimahúsum
í að minnsta kosti 4 mánuði, oft upp
í 6 mánuði, undir eftirliti yfirdýra-
læknisembættisins. Að afloknu þess-
um tíma er það lögum samkvæmt
yfirdýralæknis að meta hvort hann
telur rétt að leysa dýrin úr sóttkví
Það er mat forsvarsmanna Hunda-
ræktarfélags fslands að brýna nauð-
syn beri til að koma hér á fót
einangrunarstöð fyrir hunda þannig
að komist megi hjá því að fólk
smygli hundum inn í landið og bjóði
þannig heim hættunni á ýmsum þeim
sjúkdómum sem heilbrigðisyfirvöld
hér vilja halda frá landinu, svo sem
hundaæði. Einnig telja hundarækt-
armenn mikilvægt að koma hér upp
einangrunarstöð þannig að unnt sé
að flytja inn hunda til nauðsyniegrar
blóðblöndunar.
Jakobína Finnbogadóttir, hjá
Hundaræktarfélagi íslands, nefnir
sem dæmi að hundaræktendur hafi
lengi haft áhuga á að flytja inn
svokallaða Retriever- og Setter-
hunda til að bæta ræktunina. Hún
segir ástæðu til að ítreka að ekki sé
verið að tala um innflutning hunda
frá löndum þar sem hundaæði og
aðrir hættulegir sjúkdómar hafa
lengi þekkst, heldur sé unnt að fá
nánast alla „hundaflóruna" frá
ósýktum löndum, t.d. Skandinavíu-
löndum.
Sveinbjörn Dagfinnsson, ráðu-
neytisstjóri í landbúnaðarráðuneyt-
inu, segir þetta hafa vissulega komið
til tals en ekki hafi verið enn sem
komið er tekin nein ákvörðun um
málið. Sveinbjörn segir að slík stöð
yrði örugglega staðsett í nokkurri
fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.
Aðspurður um hvort hann teldi
miklar líkur á að einangrunarstöð
yrði komið á fót sagðist Sveinbjörn
ekki vilja spá fyrir um það. Yfirdýra-
læknir hefði haft uppi nokkrar efa-
semdir um þetta mál og ráðuneytið
myndi ekki grípa fram fyrir hendur
á honum.
Smygl á hundum til landsins virð-
ist vera mjög algengt, ef marka má
orð viðmælenda Tímans. Þessir
hundar eru ekki undir eftirliti heil-
brigðisyfirvalda og geta því verið
smitberar hættulegra sjúkdóma.
Jakobína Finnbogadóttir segir að
þeir sem stundi smygl á hundum
setji sig skiljanlega ekki í samband
við Hundaræktarfélagið. Það væri
vitanlega ávísun á að upp um smygl-
arana kæmist. Hjá Flugleiðum
könnuðust menn ekki við smygl á
hundum hingað til lands en hinsveg-
ar væri töluvert um flutning á hund-
um frá landinu. Böndin berast því
að fragtskipum, íslenskum og er-
lendum, og fiskiskipum. óþh
Einn sá full-
komnasti
á landinu
Raularhafnarbúar liafa tekið í
notkun einn fullkomnasta slökkvibíl
á landinu.
Bíllinn er af gerðinni M.A.N 12.
192 og með aldrifi.
Slökkvibúnaður bílsins er gerður
af Albert Ziegler í V-Þýskalandi en
það fyrirtæki er sérhæft í gcrð
slökkvibúnaðar.
Vatnsdæla bílsins afkastar 3.400
l/mín. við 80 m vatnssúlu og í honum
er 2500 lítra vatnstankur.
Mikill búnaður fylgir bílnum, svo
sem brunaslöngur, stútar, líflínur,
reykköfunartæki, vélsagir og margt
fleira sem að gagni má koma við
slökkvistarf.
f bílnum rúmast átta menn auk
bílstjóra.
Bíllinn kostaði 5,5 milljónir kr. og
er hér um mikið átak að ræða fyrir
lítið sveitarfélag.
Á myndinni sést er sveitarstjóri
Raufarhafnar, Helgi Ólafsson, tekur
við bílnum úr hendi starfsmanns
Brunamálastofnunar.
Tímamynd, Ámi Bjarna.
Fjölþjóðasamningur um dóma og fullnustu þeirra:
Dómar í einkamálum
í gildi milli landa
Fundi átján Evrópuríkja um
viðurkenningu og fullnustu dóma í
einkamálum, svo sem verslunarmál-
um, málum vegna samninga, skaða-
bóta, vátrygginga og neytendamála
lauk þann 16. september.
Fundinum, sem haldinn var í Lu-
gano í Sviss til undirbúnings að
væntanlegum fjölþjóðasamningi um
þessi sömu mál, lauk með samningi
sem gengur í gildi milli Evrópuríkj-
anna jafnskjótt og eitt aðildarríkja
Efnahagsbandalagsins og eitt ríkja
EFTA hafa fullgilt hann.
Til að fullgilda megi samninginn
af íslands hálfu þarf að laga ýmis
núgildandi lagaákvæði að ákvæðum
samningsins og kveða að öðru leyti
á um framkvæmd hans í lögum.
Dómsmálaráðuneytið vinnur nú að
undirbúningi nauðsynlegra laga-
breytinga til að gera þetta mögulegt.
Áf íslands hálfu sóttu fundinn í
Lugano; Sverrir Haukur Gunnlaugs-
son sendiherra og Ólafur W. Stef-
ánsson skrifstofustjóri í dómsmála-
ráðuneytinu.
Fréttatilk./-sá
Forstjóri
skipaður
Haraldur Johannessen lögfræð-
ingur hefur verið skipaður forstjóri
Fangelsismálastofnunar frá 1.
október n.k., af Jóni Sigurðssyni
dóms- og kirkjumálaráðherra.
Fangelsismálastofnun var sett á
fót með lögum sem samjíykkt voru
sl. vor, en henni er ætlað aflnast
daglega yfirstjór* á rekstri fang-
elsa, sjá um fullnustu refsidóma,
annast eftirlit með þeim sem frest-
að er ákæru gegn, dæmdir eru
skilorðsbundið, fá skilorðsbundna
reynslulausn, náðun eða frestun
afplánunar. Þá á stofnunin einnig
að annast félagslega þjónustu við
fanga og þá sem eru undir skilorðs-
bundnum refsidómi og sjá um að í
Haraldur Johannessen.
fangelsum sé veitt sérhæfð þjón-
usta á sviði geðlækninga og félags-
ráðgjafar.
Fangelsismálastofnunin tekurað
fullu til starfa 1. janúar nk. og flyst
þangað starfsemi dómsmálaráðu-
neytisins á sviði afplánunarmála og
starfsemi Skilorðseftirlits ríkisins.
-ABÓ