Tíminn - 04.10.1988, Qupperneq 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 4. október 1988
Miklilax hf. í Fljótum:
Framkvæmdir hafnar
við áframeldisstöð
Áverkar
á höfði
37 ára gamall Reykvíkingurfannst
meðvitundarlaus við Bifreiðastöð
Hafnarfjarðar aðfaranótt sunnudags
með áverka á hnakka.
Samkvæmt upplýsingum frá
Rannsóknarlögreglu ríkisins er taiið
að komið hafi til einhverra átaka
sem leiddu til þessa og er búið að
handtaka mann sem er í yfirheyrsl-
um vegna málsins hjá RLR.
Meðvitundarlausi maðurinn var
fluttur á Borgarspítalann þar sem
gerð var höfuðaðgerð á sunnudag.
Hann er ekki kominn til meðvitund-
arogertalinn í mikilli lífshættu.
-ABÓ
Þriggja anna
starfsnám
Starfsþjálfun fatlaðra hóf vetrar-
starfið í annað sinn nú í byrjun
september.
Starfsþjálfun fatlaðra er regluleg-
ur skóli, einkum ætlaður fólki sem
náð hefur 17 ára aldri og fatlast
hefur vegna slysa eða sjúkdóma.
Skólinn leggur einkum áherslu á
greinar sem koma að beinu gagni á
vinnumarkaðnum en þær eru
einkanlega tölvunotkun, verslunar-
reikningur, bókfærsla, íslenska,
enska og samfélagsfræði.
Um næstu áramót útskrifast fyrsti
hópurinn, 24 nemendur, frá skólan-
um eftir þriggja anna nám og verður
því nýr hópur tekinn inn í janúar
1989 og er innritun í þann hóp nú að
hefjast. Umsóknarfrestur í hópinn
er til 1. nóvember n.k.
Starfsþjálfun fatlaðra er til húsa í
Hátúni 10A á efstu hæð. - sá
Stórframkvæmdir eru nú að hefj-
ast hjá fiskeldisfyrirtækinu Miklalaxi
hf. í Fljótum. Þessar frmkvæmdir
miðast við að byggja upp eldisrými
fyrir nær alla seiðaframleiðslu fyrir-
tækisins og mun framleiðslugeta
Miklalax verða um 800 tonn af laxi
á ári þegar þau mannvirki sem nú er
verið að ráðast í, komast að fullu í
gagnið.
Áframeldisstöðin er byggð í landi
Hrauna skammt frá Miklavatni, þar
verða byggð 11 eldisker alls 17
þúsund rúmmetrar að stærð. Einnig
dælu- og lagerhús, sláturhús og ýmis
aðstaða fyrir starfsfólk.
Sjó í eldisker verður dælt úr
Miklavatni en Miklavatn, sem er
mikið blandað af sjó, hentar mjög
vel til fiskeldis að mati sérfróðra
manna.
Aðeins verður byggt það allra
nauðsynlegasta í haust til að koma
þeim 350-400 þúsund gönguseiðum,
sem nú eru í eldi í Miklavatni, á
land, en áætlað er að byrja aftur af
fullum krafti í vor þannig að fram-
kvæmdum verði að mestu lokið
næsta haust.
í samtali við Reyni Pálsson, fram-
kvæmdastjóra Miklalax hf., kom
fram að þessi uppbygging mun kosta
verulegar fjárhæðir. Byggðastofnun
mun lána 67% af stofnkostnaði.
Einnig verður hlutafé Miklalax hf.
aukið um 40 milljónir króna. Reynir
sagðist vonast til að þjóðin færi að
gera sér ljósa þá gríðarlegu mögu-
leika sem fælust í fiskirækt og fisk-
eldi. Hann sagðist ætla að fiskeldið
væri sú atvinnugrein sem í framtíð-
inni væri líklegust til að skapa þjóð-
arbúinu auknar tekjur.
Reynir sagði ljóst að mörg fiskeld-
isfyrirtæki ættu nú í verulegum
rekstrarerfiðleikum. Bankar hefðu
ekki treyst sér til að fjármagna
þennan rekstur að því marki sem
þurfi að hans mati, en það er 60-70%
af brúttóverðmæti fisksins. Reynir
sagði að ef fiskeldisfyrirtækjum yrði
ekki tryggt rekstrarfé á viðráðanleg-
um kjörum óttaðist hann að stórslys
yrði í þessari atvinnugrein á næst-
unni þar sem mörg fyrirtæki kæmust
hreinlega ekki með dæmið til enda
að óbreyttu ástandi. ÓÞ Fljótum.
Leikritasamkeppni LR í tilefni opnunar Borgarleikhúss:
600 þúsund
fyrir leikrit
Leikfélag Reykjavíkur efnir til
leikritasamkeppni í tilefni af opnun
hins nýja Borgarleikhúss.
Veitt verða tvenn verðlaun, ann-
ars vegar fyrir barnaleikrit, en hins
vegar fyrir óskilyrðisbundið verk.
Fyrstu verðlaun í hvorum flokki
verða þrjú hundruð þúsund krónur,
en að öðru leyti hefur dómnefnd
frjálsar hendur um skiptingu verð-
launa.
Verðlaunaupphæð er alls ein mill-
jón króna og er bundin lánskjaravísi-
tölu nóvembermánaðar 1987.
Dómnefndina skipa Hallmar Sig-
urðsson, leikhússtjóri, Hafliði Arn-
grímsson, sem tilnefndur er af Rit-
höfundasambandi fslands, ogSigríð-
ur Hagalín leikari.
Verðlaunin verða óháð höfundar-
launum ef verkin verða valin til
flutnings hjá Leikfélagi Reykjavík-
ur, en félagið áskilur sér forgangsrétt
til flutnings allra verka sem berast í
samkeppnina.
Skila skal leikritum undir dulnefni
og skal rétt nafn höfundar fylgja í
lokuðu umslagi merktu með dul-
nefninu. - sá
Frystihús loka af misjöfnum ástæðum:
STARFSM ANNASK0TUR
REKSTRARFJÁRSKORTUR
„Það hefur verið erfitt að fá starfs-
fólk til vinnu í frystihúsinu og stjórn-
endur Hraðfrystihúss Keflavíkur
hafa verið að athuga hvernig við
verði brugðist.
Ein hugmyndin var að skipta á
skipum við Sauðárkróksbúa; þeir
fengju togarana okkar, Bergvík og
Aðalvík, en við togarann Drangey,
sem er frystitogari. Það hefur þó
engin ákvörðun verið tekin enn,“
sagði Héðinn Eyjólfsson fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Kefla-
víkur.
Meðan Hraðfrystihús Keflavíkur
er í erfiðleikum vegna skorts á
starfsfólki hefur þremur öðrum
frystihúsum á Suðurnesjum verið
lokað vegna rekstrarörðugleika.
Þau eru Hraðfrystihús Grindavík-
ur, Hraðfrystihús Þórkötlustaða í
Grindavík og Stokkavör í Keflavík.
Hafa um eitt hundrað manns misst
vinnu sína vegna lokananna. sa
Eins og þeim sem fylgdust með
setningu heimsbikarmóts Stöðvar
2 í skák á sunnudagskvöld er
kunnugt, var mikið um dýrðir á
Hótel íslandi, cnda stórstirni úr
skákheimi sjaldan verið jafn mörg
samankomin á einn og sama
staðinn. Dropateljara var ekki
boðið til þessarar hátíðar frekar cn
öðrum almúgamönnum en fylgdist
hins vegar grannt með bæði kynn-
ingunni, drættinum og síðan ögr-
andi dansi tveggja para úr dans-
skóla. Nú heyrist hins vegar að
sjónvarpsáhorfendur hafi misst af
aðal skemmtiatriðum kvöldsins
sem hafi verið óvænt uppákoma
við eitt háborðið þar sem m.a. sátu
til borðs forsætisráðherra, utanrík-
isráðherra og borgarstjórinn í
Reykjavík. Segir sagan að borgar-
stjórinn hafi ekki getað stillt sig um
að senda utanríkisráðherra nokkur
skeyti en sent kunnugt er hefur
þátttaka Alþýðuflokksins í ríkis-
stjórninni farið mjög fyrir brjóstið
á mörgum sjálfstæðismönnum.
Utanríkisráðherra mun hins vegar
ekki talið ástæðu til þess að láta
borgarstjórann eiga neitt inni hjá
sér og svarað fullum hálsi.
Mögnuðust nú orðhnippingar og
fleiri lögðu orð í belg. Var sagt að
sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 hafi verið
farinn að tvístíga enda veislugestir
farnir að bíða eftir að hnefi færi á
loft. Svo fór þó ekki, en þegar
dropateljari spurði heimildarmann
sinn hvernig honum hafi fundist
skemmtiatriðin á sviðinu sagðist
hann ekkert hafa tekið eftir þeim!
Þarna voru þvf sannkallaðir senu-
þjófar á ferð.
Moggi tekur
við úrsögnum
Kona að nafni Olga Guðrún
hefur sagt sig úr Alþýðubandalag-
inu og þar mcð stjórn Ásntundar-
safns þar sem henni geðjast ekki að
stjórnarþátttöku flokksins. Hún
ber því við að sósíalískum flokki
að virða að vettugi samningsrétt
launafólks. (Einhvern veginn hefur
saga sóstalismans s.L sjö áratugina
farið fram hjá blessaðri konunni ef
hún heldur að sósíalísk stjórn og
samningsréttur launafólks fari
endilega saman).
Fyrrum félagi tilkynnti úrsögn-
ina í Mogga, sem andagtugur flytur
fréttina og kemur á framfæri við
þjóðina hve þungbær þessi ákvörð-
un Olgu Guðrúnar var.
Það er ekki eingöngu Olga
Guðrún sem stendur á pólitískum
vegamótum heldur hefur Mogga
bæst enn eitt hlutverkið. Blaðið er
farið að taka við úrsögnum úr
Alþýðubandalaginu og þungbær-
um andvörpum brotthlaupinna fé-
laga. Ekki er vitað hvort blaðið er
líka farið að taka við innritun nýrra
félaga, en þeir sem áhuga hafa geta
rcynt að snúa sér til Mogga og
fengið blaðið til að birta fréttir um
inngönguna í Alþýðubandalagið
og hástemmdar skýringar á hvers
vegna nýju félagarnir ganga til liðs
við nýbakaðan stjórnarflokk.
Svo væri reynandi fyrir þá sem
hyggjast ganga úr Verði eða Hvöt
að fá Þjóðviljann til að tilkynna
þjóðinni allt um þær þungbæru
ákvarðanir.
Kátur hjartsláttur
Mörgum varð léttir að stjórnar-
skiptunum í s.l. viku og er Grímur
S. Norðdahl, Úlfarsfelli, meðal
þeirra, en honum varð að orði
þegar stjórnarskiptin voru komin
um kring:
Heilbrigð stjórn nú hefur tekið
sæti.
Hjarta íslands aftur slær með
kæti.
Mót rcntuokri mun nú spyrnt
við fæti,
minnkuð bölvuð frjálshyggjunn-
ar læti.