Tíminn - 04.10.1988, Page 7
Þriðjudagur 4. október 1988
Tíminn 7
Smíði togaranna fyrir Marokkómenn:
Spurningin um
líf eða dauða
skipasmíðaiðju
„Ég tel að viðbrögð stjórnvaida geti ráðið úrslitum um
hvort skipasmíðar hér á landi lifi eða leggist af“, sagði Jón
Gauti Jónsson framkvæmdstjóri Stálvíkur.
Jón Gauti sagði að málið væri í
athugun hjá iðnaðar- og fjármála-
ráðuneytunum. Ráðuneytin væru að
kynna sér skýrslu Stálvíkur og ósk
um ríkisábyrgð vegna smíðanna.
„Ég hef fengið í hendur skýrslu
frá Stálvík og ég vil ekkert segja um
málið og viðbrögð míns ráðuneytis í
því, fyrr en ég hef athugað það,“
sagði Ólafur Ragnar Grímsson
fjármálaráðherra Tímanum.
170*200 nýstörf
í skipaasmíðum
Sjálf skipasmíðin er áætluð um
600 mannár sem þýðir að 170-200
manns munu starfa við hana næstu 3
ár eða til loka verkefnisins og er sá
fjöldi hrein viðbót við þann mann-
afla sem í greininni starfar nú.
Jón Gauti sagði nokkuð víst að
ýmis annar iðnaður muni tengjast
verkefninu. Skipin þyrfti að búa á
veiðar og hefðu Marokkómenn mik-
inn áhuga á að búa þau íslenskum
veiðarfærum, og gæti þar verið um
að ræða sölu á veiðarfærum fyrir um
100 milljónir króna.
Þá er hugsanlegt að keypt verði
íslensk spil í skipin og gæti þar orðið
um að ræða sölu upp á 130 milljónir
króna.
Skipasmíðar
úr öskustónni?
Þórleifur Jónsson framkvæmda-
stjóri Landssambands iðnaðar-
manna og talsmaður Félags dráttar-
brauta og skipasmiðja sagði Tíman-
um að nefnd FDS athugaði nú
málið, en hér er um að ræða smíði
10 togara á þrem árum.
Þetta væri það mikið verk að
a.m.k. 3^t stærstu skipasmíðastöðv-
ar landsins yrðu aða vinna að því í
sameiningu. Verk af þessu tagi yrði
gríðarleg lyftistöng fyrir skipasmíða-
iðnaðinn í heild, en hann hefur verið
í verulegri lægð undanfarin ár.
Þórleifur sagði að stöðvarnar fyrir
utan Stálvík sjálfa væru nú að athuga
hvernig þær gætu starfað saman að
þeim verkhlutum sem í þeirra hlut
koma hugsanlega og hvort þær geti
framleitt hlutina á því verði sem í
boði er.
Til hvers ríkisábyrgð?
Til hvers þarf ríkisábyrgð?
„Verkkaupandi greiðir inn á
verksamninginn til að smíðin geti
hafist. Hann verður síðan að geta
verið viss um að verktakinn geti
lokið verkinu eða einstökum hlutum
þess. Slík ábyrgð nefnist Perform-
ance bond og felst í því að ríkið
tekur ábyrgð á því að verktakinn
standi við skuldbindingar sínar gagn-
vart kaupanda skipanna." sagði Þór-
leifur.
Þórleifur sagði jafnframt að komi
endanlega í ljós að vcrkefnið sé
hagkvæmt og tryggt, þá verði það
veruleg lyftistöng fyrir iðnaðinn f
landinu almennt.
í tengslum við verkið gæti orðið
að ræða ýmsa framleiðslu aðra.
Ýmsan búnað þyrfti að setja í skip
áður en þau eru tilbúin til veiða, svo
sem veiðarfæri, trollhlera og mar-
gvíslegan tæknibúnað, svo eitthvaö
sé nefnt.
Ekki væri ólíklegt að mikið af
slíkum búnaði yrði keyptur hérlend-
is í skipin.
- sá
Óskar Vigfússon var endurkjörinn formaður Sjómannasambands íslands.
TimamyndiÁml Bjarna.
Enn fjölgar
slysum á sjó
Þrátt fyrir að síðastliðin þrjú ár
hafi um tvö þúsund sjómenn notið
fræðslu um öryggismál, þá fjölgar
slysum á sjó stöðugt, segir í ályktun
um öryggis- og tryggingamál, sem
samþykkt var á þingi Sjómanna-
sambandsins á dögunum.
1 ályktuninni kemur fram að árið
1985 hafi slasast á sjó 454 sjómenn,
1986 496 og 1987 um 530 sem þýðir
að níundi hver sjómaður slasast.
Þessi mikla slysatíðni er ankanna-
leg í ljósi þess að mikil umræða
hefur farið fram um þessi mál og
endurbætur gerðar í kjölfar hennar.
„Þess vegna verður,“ segir í álykt-
uninni, „að nálgast vandann um
borð í skipunum, hjá áhöfninni -
sjómönnunum sjálfum.“
Þá er fullyrt að:
1. - Skipin séu vanmönnuð, sem
leiðir af sér ónóga árvekni.
2. - Unnið er af meira kappi en
forsjá og því verkstjórnin óeðlileg
og úrelt, sem leiðir af sér
handvömm.
3. - Of margir skipstjórnarmenn
um borð í íslenskum skipum vinna
ekki samkv. 8. gr. sjómannalaga er
hljóðar þannig: „Við ráðningu ný-
liða skal skipstjóri sjá um að nýliðan-
um sé leiðbeint um störf þau sem
hann á að vinna. Ennfremur skal
honum sýndur björgunarbúnaður sá
og viðvörunarbúnaður sem á skipinu
er og leiðbeint um grundvallaratriði
við notkun þeirra.“
Óskar Vigfússon var á þinginu
endurkjörinn formaður Sjómanna-
sambandsins. - sá
„Láttu ekki þitt eftir liggja“
300 þúsund dósir
komnar á haugana
Gosdósasöfnuninni í hreinsun-
arátaki Reykjavíkurborgar er lokið.
Hún stóð þrjá síðustu laugardaga og
var tekið á móti tómum dósum og
greiddar út 2 kr. fyrir hverja. Dósa-
móttakan var við allar félagsmið-
stöðvar og nokkra skóla borgarinn-
ar.
Fyrstu tvo Iaugardagana söfnuð-
ust 150 þúsund dósir en síðastliðinn
laugardag tóku krakkar borgarinnar
sig heldur betur á og söfnuðust þá
hvorki meira né minna en tæpl. 150
þúsund dósir þannig að alls söfnuð-
ust um 300 þúsund dósir að sögn
Gunnars Arnar Jónssonar hjá
fþrótta- og tómstundaráði.
Hann sagði að ruslagámur hefði
verið við hvern móttökustað og
hefðu dósirnar jafnóðum veriðsettar
í þá og ekið á öskuhaugana strax og
söfnuninni lauk.
Gunnar sagði að svo vel hefði til
tekist að nú sæist vart tóm gosdós á
almannafæri. Átakið hefði vonandi
orðið til þess að fólk hugsaði sig nú
betur um og henti síður gosdósum
þar sem verkast vildi.
Þá sagði hann óskandi að fram-
leiðendur kæmu upp einhvers konar
skilagjaldi og móttöku á dósum
svipað og tíðkast erlendis.
- sá
Lionsklúbburinn Eir gefur
enn búnaö til lögreglunnar
Fjarskipta-
búnaður
handa fíkni-
efnadeild
Lionsklúbburinn Eir sem áður
var lionessuklúbbur en hefur nú
innan sinnan vébanda bæði konur
og karla, afhenti fíkniefnadeild
lögreglunnar tæki sem nýtast mun
fíkniefnadeildinni við rannsóknir.
Er gjöf klúbbsins að þessu sinni
fjarskiptatæki, en Arnar Jensson
hjá fíkniefnadeildinni sagði
Tímanum að þetta væri í þriðja
sinn sem klúbburinn gefur deild-
inni tæknibúnað. Fyrr á árinu
hefðu þær gefið deildinni tækni-
Guðjón Marteinsson tvkur við gjöf lionsklúbbsins Eir úr hendi Þórhildar
Gunnarsdóttur. Á myndinni eru: Arnar Jensson, Kristlaug Gunnlaugs-
dóttir, Eyrún Kjartansdóttir, Steinunn Friðriksdóttir, Guðjón Maarteins-
son, Þórhildur Gunnarsdóttir, Steinunn Magnúsdóttir, Friðrik G. Gunn-
arsson og Guðmundur Guðjónsson.
búnað sem notaður var til að útbúa
fræðsluefni fyrir þá lögreglumenn
sem að þessum málum starfa og
sagði Arnar að velvilji og áhugi
klúbbmeðlimanna á starfi deildar-
innar og á fíkniefnavörnum al-
mennt væri bæði virðingar- og
þakkarverður - sá