Tíminn - 04.10.1988, Síða 11
10 Tíminn
Þriðjudagur 4. október 1988
Þriðjudagur 4. október 1988
TírTiinn 1i
1500 m hlaup. Kenýamaður-
inn Peter Roiio kom mjög á óvart og
sigraði í 1500 m hlaupinu. Hann
hljóp á 3.35,96 mín. Bretinn Peter
Elliot varð annar á 3.36,15 mín. og
A-Pjóðverjinn Jens Peter Herold
varð þriðji á 3.36,21 mín. Steve
Cram frá Bretlandi varð að láta sér
lynda 4. sætið 3.36,24 mín. í 1500 m
hlaupi kvenna sigraði rúmenska
stúlkan Paula Ivarr á 3.53,96 mín.
sem er nýtt Ólympíumet.
Kringlukast. Heimsmethaf-
inn í kringlukasti karla, Júrgen
Schult frá A-Þýskalandi sigraði með
yfirburðum í greininni, kastaði 68,82
m. Romas Ubartas hlaut silfrið og
Rolf Danneberg hreppti bronsverð-
launin.
Kúluvarp kvenna. Það
voru miklir kvenskörungar sem
leiddu saman vöðva sína í kúluvarpi
kvenna. Þær hefðu ekki unnið mörg
verðlaun 'ef hér hefði verið um
fegurðarsamkeppni að ræða, en það
er annað mál. Sovéska stúlkan Nat-
alya Lisovskaya hafði yfirburði,
enda er hún heimsmeistari í grein-
inni. Hún kastaði 22,24 m. Önnur
varð Kathrin Neimke frá A-Þýska-
landi með 21,07 m og þriðja varð Li
Meisu frá Kína með 21,06 m.
5000 m hlaup karla. Ken-
ýamenn unnu enn einn sigurinn í
hlaupagreinum á ÓL, þegar John
Ngugi sigraði í 5000 m hlaupi. Hann
sigraði með yfirburðum á 13.11,70
mín. V-Þjóðverjinn Dieter Baum-
ann varð annar og A-Þjóðverjinn
Hans Jörg Kunze varð þriðji.
Boðhlaupin. Eftir að banda-
ríska sveitin var dæmd úr leik í
4x100 m boðhlaupi, kom sigurinn í
hlut Sovétmanna sem hlupu á 38,19
sek. Breska sveitin varð önnur á
38,28 sek. og sú franska varð þriðja
á 38,40 sek.
„Flo-Jo“ (Florence Griffith Joyn-
er) vann sín þriðju gullverðlaun á
leikunum er bandaríska sveitin sigr-
aði í 4x100 m boðhlaupi kvenna.
Sveitin hljóp á 41,98 sek. A-Þýska
sveitin varð önnur á 42,09 sek. og sú
sovéska á 42,75 sek.
Ekki tókst „Flo-JO“ að krækja í
sín fjórðu gullverðlaun á leikunum,
þvf bandaríska sveitin með hana
innanborðs varð í öðru sæti í 4x400
m boðhlaupinu á 3.15,51 mín. Það
var sovéska sveitin sem sigraði á
3.15,18 mín. sem er nýtt heimsmet.
Bronsið fékk sveit A-Þýskalands á
3.18,29 mín.
Bandaríska sveitin hafði yfirburði
í 4x400 m boðhlaupi, enda unnu
Bandaríkjamenn öll verðlaunin í
400 m hlaupinu. Sveitin hljóp á
2.56,16 mín. í öðru sæti varð sveit
Jamiaka á 3.00,30 mín. og sveit
V-Þýsklands varð þriðja á 3.00,56,
mín.
Blak. Bandaríkjamenn unnu þó
eina boltagrein á ÖL. Þeir sigruðu
Sovétmenn í úrslitaleiknum í blaki
karla, 3-1. Sovétmenn sigruðu fyrstu
hrinuna 15-13, en Bandaríkjamenn
unnu aðra hrinuna 15-10 og þá
þriðju 15-4. Fjórðu hrinunni lauk
með sigri Bandaríkjamanna 15-8.
Argentínumenn sigruðu Brasil-,
íumenn í úrslitaleik um bronsverð- j
launin, 3-2.
Knattspyrna. Sovétmenn
komu fáum á óvart með því að sigra
í knattspyrnukeppni ÓL. Þeirþurftu
þó framlengingu til þess að knýja
fram sigur á Brasilíumönnum, 2-1.
Tveimur leikmönnum var vísað af
leikvelli í framlengingunni, einum
úr hvoru liði. Bronsverðlaunin féllu
í skaut V- Þjóðverja, sem sigruðu
ftali 3-0.
Tennis. Steffi Graf frá V-Þýska-
landi varð Ólympíumeistari í ein-
liðaleik kvenna. Gabriela Sabatini
frá Brasilíu fékk silfrið og Zina
Garrison frá Bandaríkjunum fékk
bronsið. í einliðaleik karla sigraði
Miloslav Mecir frá Tékkóslóvakíu,
annar varð Tim Mayotte frá Banda-
ríkjunum og Svíinn Stefan Edberg
varð þriðji.
Körfuknattleikur:
Vítanýtingin varð
ÍR-ingum að falli
Körfuknattleikur:
Sturla Örlygsson
fráköst.
átti góðan leik fyrir ÍR i sínum fyrsta leik með Iiðinu í deildarkeppni, og skoraði 18 stig og hirti 9
Tímamynd Gunnar.
Framlengingu þurfti til að knýja fram
úrslit í leik KR og ÍR í Flugleiðadeildinni
í körfuknattleik í Hagaskóla á sunnudags-
kvöld. Eftir venjulegan leiktíma var staðan
jöfn 57-57, en KR-ingar höfðu betur í
framlengingunni og sigruðu 65-60.
Leikur KR og ÍR var tvímælalaust leikur
1. umferðar Flugleiðadeildarinnar.
Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu og
hefði sigurinn hæglega getað lent hjá ÍR.
ÍR-ingar höfðu fumkvæðið framan af og
leiddu 15-11 um miðjan fyrri hálfleikinn.
KR-ingar tóku þó við sér með þriggja stiga
körfu Mattíasar Einarssonar. A síðustu
sekúndu fyrri hálfleiks voru KR-ingar
komnir með 10 stiga forskot 32-22.
KR-ingar héldu forystunni fram í miðjan
síðari hálfleik, staðan breyttist úr 46-42
fyrir KR í 51-46 fyrir ÍR. Á þessum 5
mínútna kafla skoruðu KR-ingar ekki eitt
einasta stig, meðan ÍR-ingar gerðu 9 stig.
Þegar tæpar 4 mínútur voru til leiksloka
höfðu ÍR-ingar forystuna 55-51, en KR-
ingar gerðu 3 körfur í röð og komust í
57-55. Sturla Örlygsson þjálfari ÍR jafnaði
leikinn nokkrum sekúndum fyrir leikslok,
57-57.
í framlengingunni voru KR-ingar sterk-
ari aðilinn, en ÍR-ingar fengu færi til þess
að jafna leikinn þegar 10 sekúndur voru
eftir og munurinn var 3 stig. ÍR-ingar náðu
ekki þriggja stiga skoti, misstu boltann og
Birgir Mikaelsson innsiglaði 65-60 sigur
KR.
KR liðið náði sér ekki á strik í þessum
leik gegn sterkri vörn ÍR. KR-liðið, sem
hefur skorað mikið úr hraðaupphlaupum í
Reykjavíkurmótinu, skoraði fá stig á þann
Ólympíuleikarnir í Seoul:
Leikar vonbrigða
fyrir íslendinga
Nú þegar 24. Ólympíuleikunum í
Seoul er lokið vakna ýmsar spurningar
um frammistöðu okkar 32 keppanda
á leikunum.
í fáum orðum sagt er framganga
íslensku keppendanna á leikunum ein
allsherjar vonbrigði fyrir íslendinga,
þó sérstaklega í Ijósi þess að aldrei
höfum við gert meiri kröfur en nú,
enda standa margir íslenskir íþrótta-
menn framarlega í greinum sínum.
SXX],
Maraþonhlaup. ítaiinn Ge-
lindo Bordin sigraði nokkuð óvænt í
maraþonhlaupinu á 2,10,32 klst.
Silfrið fékk Keníamaðurinn Douglas
Wakiihuri á 2.10,47 klst. og Ahmed
Seleh frá Djibouti vann bronsið á
2.10,59 klst.
Handknattleikur. sovét-
menn unnu öruggan sigur á hinu
stórskemmtilega liði S-Kóreumanna
í úrslitaleik handknattleikskeppni
ÓL. Úrslitin urðu 32-25, eftir að
staðan í hálfleik vár 17-11 fyrir
Sovétmenn.
Júgóslavar unnu Ungverja 27-23 í
úrslitaleik um bronsið.
Frjálsar íþróttir
Mest eru vonbrigðin með frammi-
stöðu frjálsíþróttamannanna. Einar
Vilhjálmsson missti naumlega af sæti
í 12 manna úrslitum spjótkastkeppn-
innar og vantaði aðeins 8 sentimetra
þar uppá. Aðrir keppendur voru mjög
langt frá sínum besta árangri og
spurning hvort þetta fólk átti allt
erindi til Seoul. Frammistaða sumra
keppendanna var hreint og beint til
skammar.
Sund
Þótt ekki þætti árangur íslensku
sundmannanna upp á marga fiska í
fyrstu, þá er hann með því besta sem
gerðist í Seoul. 6 ný íslandsmet litu
dagsins ljós og varla er hægt að fara
fram á meira. Þó skal haft í huga að
tímarnir eru ekki í háum gæðaflokki,
þannig að segja má að lélegir tímar
verði smám saman skárri. Þó eru
sundmennirnir þeir einu sem eiga
hrós skilið af þeim keppendum sem
tóku þátt í einstaklingsgreinum á
leikunum.
Frammistaða Eðvarðs Þórs Eð-
varðssonar er þó nokkuð sér á báti.
Furðulegt er að heyra mann sem verið
hefur á opinberum styrkjum í lengri
tíma, segja að hann hafi ekki haft
tíma til að æfa sem skildi.
Siglingar
íslensku siglingamennirnir sem
kepptu í Pusam stóðu sig þokkalega,
en þeim tókst þó ekki að verða um
miðjan hóp, eins og oft er talað um að
íslensku keppendurnir ættu að vera.
Þeir munu þó örugglega hafa lært
mikið af þátttökunni og munu miðla
öðrum af reynslu sinni og hafa verður
í huga að siglingaíþróttin er mjög ung
á íslandi, en í örum vexti.
Júdó
Eftir að Bjarni Friðriksson vann
það afrek að vinna bronsverðlaun í
Los Angeles, var pressan meiri á
Bjarna að hann stæði sig vel í Seoul.
Bjarni var mjög óheppinn með mót-
herja og glímdi við þann kappa, er í
lokin vann gullverðlaunin, í fyrstu
umferð. Gullverðlaunahafanum tókst
ekki að skora stig á móti Bjarna, en
var dæmdur sigur þar sem dómarar
töldu að hann hefði sótt meira. Ekki
voru allir á eitt sáttir með þann dóm.
Sigurður Bergmann tapaði í fyrstu
umferð. Frammistaða Bjarna var hon-
um til sóma í Seoul.
Handknattleikur
íslenska landsliðið í handknattleik
olli miklum vonbrigðum á leikunum.
Liðið lék illa í flestum leikjum sínum
og náði aðeins góðum leik gegn A-
Þjóðverjum í leik um 7. sætið. Liðið
var óheppið að tapa þeim leik og
lenda í 8. sæti. Vonbrigðin eru þó
aðallega vegna leikjanna gegn Svíþjóð
og Sovétríkjunum, en báðar þessar
þjóðir voru þó gæðaflokk ofar ís-
lenska liðinu á leikunum, þrátt fyrir
að íslenska liðið sé nýbúið að sigra
þær báðar. Miðað við þær væntingar
og yfirlýsingar af hálfu HSÍ, fyrir
leikana, var niðurstaðan áfall fyrir
liðið.
Kröfurnar
Kröfurnar um að íslensku íþrótta-
mennirnir stæðu sig vel í Seoul voru
einfaldlega of miklar. Það afsakar þó
ekki nema að hluta til lélegan árangur.
Spurningin hvort ekki hefði verið
betra að senda færri keppendur á
leikana verður æði áleitin svona eftirá.
Margir þeirra keppenda sem kepptu í
Seoul, höfðu hreinlega ekkert þangað
að gera.
Fyrir næstu leika í Barcelona 1992,
þarf að vanda valið enn frekar, og
senda ekki keppendur sem vitað er að
eiga ekki möguleika á að verða fyrir
ofan miðju á afrekaskránni. Betri eru
gæði en magn þegar á Ólympíuleika
er komið.
Þá má ekki gera of miklar kröfur til
okkar íþróttamanna, við eru jú fá-
menn þjóð og við getum ekki gert
kröfu til þess að vinna til verðlauna á
Ólympíuleikum. Þegar það svo gerist
að íslenskir íþróttamenn vinna til
verðlauna á ÓL, er það stórkostlegt,
en ekki sjálfsagt, þó íþróttamaðurinn
væri búinn að ná góðum árangri áður.
BL
hátt, því í R-ingarnir voru snöggir í vörnina
og héldu hraðanum niðri. í sókninni leit-
uðu þeir ekki nógu mikið að ívari Webster,
sem hitti mjög vel í leiknum. KR-vörnin
var einnig sterk og ívar átti ófá varnarfrá-
köstin. fvar átti mjög góðan leik fyrir KR
í þessum leik, en þeirra besti maður var
samt Mattías Einarsson, sem skoraði
margar körfur á mikilvægum augnablikum.
Ólafur Guðmundsson hrakfallabálkurinn
mikli í KR-liðinu, brá ekki út af vananum
í þessum leik og meiddist í upphafi leiksins.
í upphafi síðasta keppnistímabils varð
hann fyrir alvarlegum meiðslum á hné og
gat ekki leikið með meira á því keppnis-
tímabili. Meiðslin á sunnudagskvöld voru
sem betur fer ekki eins alvarleg, Ólafur
fékk skurð á augabrún og ætti ekki að
missa úr leik af þeim sökum.
LiðÍR, sem tapaði fyrir KR í Reykjavík-
urmótinu með yfir 20 stiga mun sýndi það
í þessum leiki að það er líklegt til þess að
hirða stig af flestum liðum í deildinni.
Aðeins herslumuninn vantaði í þessum
leik til þess að sigur ynnist. Grunnástæðan
kann að vera sú að liðið hitti aðeins úr 5
vítaskotum af 15, 33,3 % hittni, sem er
mjög lélegt. Þá var hittni bakvarða liðsins
afspyrnuléleg og hafði sitt að segja um
úrslit leiksins. Það eru örugglega ekki
mörg lið í Flugleiðadeildinni sem hafa
öðru eins frákastaliði á að skipa og ÍR-
liðið. Þeir félagar Sturla Örlygsson, Ragn-
ar Torfason, Björn Steffensen og Jóhannes
Sveinsson hirða bókstaflega öll varnarfrá-
köst og ívar Webster átti ekki möguleika í
sóknarfráköstin gegn þeim félögum.
Fyrrnefndir leikmenn ÍR áttu allir góðan
leik í fyrrakvöld og héldu liðinu algjörlega
uppi.
Bæði þessi lið eiga örugglega eftir að
blanda sér í baráttuna um fjórða sætið í
deildinni og þar með Saga-class úrslitin.
BL
Leikur KR-ÍF Lið: ÍR
Nöfn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST Sticj
BjörnS. 94 _ 1 5 2 1 - 8
Karl 2-0 - - - - - - 0
Sturla 11-5 1-1 2 7 3 - 18
Ragnar 17-8 - - 8 - 1 - 16
Jóhannes 17-5 1-0 - 7 2 3 - 11
Bragi 3-0 _ - i - - - 0
Jónörn 13-3 3-0 - 2 3 2 - 7
Leikur: KR-ÍF L ð:KR
Nðtn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST Stig
Gauti _ _ - 1 4 - _ 0
Jóhannes 16-4 1-0 - 3 6 3 2 15
Linis V. 4-2 - 1 3 2 - - 9
LárnsÁ. 2-0 - - 3 3 - - 0
Matthias 9-5 3-2 1 1 2 3 2 16
Birgir 10-4 - 1 - 2 2 8
lvar 11-5 - 2 12 - 3 1 13
Ólafur 1-0 - - - - - 0
Arni 5-2 - - 2 - - - 4
SFK = sóknarfráköst
VFK = vamarfráköst
BT = bolta tapað
BM = bolta náð
ST = stoðsending
Körfuknattleikur:
Akureyringar í
kennslustund
Grindvíkingar unnu léttan sigur á Þórs-
urum frá Akureyrí ■ Flugleiðadeildinni í
körfuknattleik á sunnudagskvöld, 116-72,
eftir að staðan í hálfleik var 58-38 heimam-
önnum í vil.
Grindvíkingar hófu leikinn af krafti og
náðu strax undirtökunum. Eftir nokkurra
mín. leik var staðan orðin 20-4. Munurinn
jókst smátt og smátt eftir því sem á leið,
og í lokin var munurinn 44 stig, 116-72.
í Grindavíkurliðinu voru þeir Guð-
mundur Bragason og Ástþór Ingason
góðir, en Ástþór lék sinn fyrsta leik í
deildarkeppni fyrir UMFG í þessum leik.
í Þórsliðinu bar mest á þeim Guðmundi
Björnssyni og Konráð Óskarssyni.
Stig: UMFG: Guðmundur Bragason 36,
Ástþór Ingason 21, Jón Páll Haraldsson
18, Eyjólfur Guðlaugsson 11, Rúnar Árna-
son 8, Sveinbjörn Sigurðsson 7, Ólafur
Jóhannsson 6, Óli Björn Björgvinsson 5,
Guðlaugur Jónsson 2 og Steinþór Helga-
son 2.
Þór: Guðmundur Björnsson 18, Konráð
Óskarsson 13,Björn Sveinsson 12, Jóhann
Sigurðsson 9, Eiríkur Sigurðsson 8, Kristj-
án Rafnsson 5, Stefán Friðleifsson 4,
Aðalsteinn Þorsteinsson 2 og Þórir Guð-
laugsson 1. BL
Körfuknattleikur:
Pressuvörn Vals sló
Stúdenta út af laginu
Valsmenn unnu yfírburðarsigur á Stú-
dentum í Flugleiðadeildinni í körfuknatt-
leik á sunnudagskvöld, 114-47, eftir að
staðan ■' hálfleik var 42-17.
Valsmenn léku stífa svæðispressu mest
allan leikinn og Stúdentar áttu í miklum
erfiðleikum með að komast fram yfir
miðju.
„Við brotnuðum alveg niður gegn
pressuvöminni og áttum hreinlega ekkert
svar við henni. Við höfum ömgglega tapað
boltanum 40 sinnum í hendurnar á Vals-
mönnum í þessum leik,“ sagði Valdimar
Guðlaugsson þjálfari Stúdenta, um leik-
inn.
„Við emm ennþá á 1. deildarplaninu og
það tekur tíma að vinna sig upp úr því. Við
emm ekki búnir að gefast upp, en veturinn
verður erfiður," sagði Valdimar.
Stig Válsmanna skoruðu: Svali Björg-
vinsson 21, Hreinn Þorkelsson 17, Mattfas
Matti'asson 16, Tómas Holton 16, Einar
Ólafsson 11, Þorvaldur Geirsson 10, Hann-
es Haraldsson 10, Bárður Eyþórsson 9 og
Ragnar Þór Jónsson 4.
Stig ÍS gerðu: Valdimar Guðlaugsson
12, Jón Júlíusson 7, H. Ágúst Jóhannesson
6, Páll Arnar 5, Auðunn Elísson 4, Þor-
steinn Guðmundsson 4, Sólmundur Jóns-
son 3, Heimir Jónsson 2, Kristján Oddsson
2, og Hafþór Óskarsson 2.
BL
Keflvíkingar
í fjarskipta-
erfiðleikum
Frá Margréti Sanders fréttamanni Tímans:
ÍBK sigraði Tindastól 97-67 í
Flugleiðadeildinni í körfuknattleik
í Keflavík á sunnudag, staðan í
hálfleik var 39-36 fyrir IBK.
Guðjón Skúlason skoraði fyrstu
stig íslandsmótsins, en Valur Ingi-
mundarson kom síðan Tindastól
yfir 2-4 og var það í eina skiptið í
leiknum sem Sauðkrækingar
leiddu. Þeir hleyptu þó Keflvíking-
um aldrei langt frá sér í fyrri
hálfleiknum og um miðjan hálfleik-
inn var staðan 22-21. Staðan í
hálfleik var, eins og áður sagði,
39-36.
Keflvíkingar áttu í miklum vand-
ræðum með fráköst í fyrrí hálfleik,
en þeir komu inná sem nýtt lið í
síðari hálfleik og byrjuðu af mikl-
um krafti, breyttu stöðunni úr
45-40 í 61-42. Þessi munur hélst
þar til tvær mínútur voru til leiks-
loka, þá áttu Keflvíkingar góðan
endasprett og sigruðu 97-67.
Jón Kr. Gíslason var bestur
Keflvíkinga en auk þess að skora
19 stig átti hann fjölda sendinga
sem gáfu körfu. Valur Ingimundar-
son var bestur Tindastólsmanna og
átti mörg fráköst og var drjúgur í
stigaskorí. Einnig var Björn Sig-
tryggsson drjúgur í fyrri hálfleik.
Eyjólfur Sverrisson er nýbyrjað-
ur að æfa með liðinu, en hann
hefur verið á fullu í knattspyrn-
unni, meðal annars ■' 21 árs lands-
liðinu. Hann kom þó inná í síðari
hálfleik og stóð sig vel.
Dómarar voru þeir Krístinn Al-
bertsson og Helgi Bragason og
ekki orð um þá meir.
Þjálfarí Keflvíkinga, Lee Nober,
var ekki á bekk Keflavíkurliðsins í
þessum leik, hann fékk rautt spjald
í Reykjanesmótinu og var því í
leikbanni. Hann gerði þá athygl-
isverða tilraun til þess að hafa
stjórn á liðinu, var á áhorfenda-
pöllunum með talstöð, en á bekkn-
um var önnur talstöð. Þetta athæfí
þjálfarans var þó stöðvað í fæð-
ingu. Athyglisverður náungi þjálf-
ari Keflvíkinga.
Stigin: ÍBK: Sigurður Ingimund-
arson 21, Jón Kr. Gíslason 19,
Guðjón Skúlason 16, Axel Niku-
lásson 15, Albert Óskarsson 14,
Falur Harðarson 8, Magnús Guð-
fínnsson 4.
Tindastóll: Valur Ingimundar-
son 26, Björn Sigtryggsson 15,
Eyjólfur Sverrisson 13, Kári Marís-
son 5, Haraldur Leifsson 3, Guð-
brandur Stefánsson 3, Sverrir
Sverrísson 2. BL
Enska knattspyrnan:
Millwall eitt
á toppnum
Lið Millwall, sem í ár leikur í
fyrsta sinn í 103 ára sögu félagsins
í l.deild, er komið i toppsæti ensku
knattspyrnunnar, eftir leikina á
laugardag.
Millwall fékk QPRI heimsókn á
laugardag. Markaskorarinn mikli,
Tony Cascarino, skoraði fyrsta
markið fyrir Millwal! eftir 12 mín-
útur, en gamli maðurinn Trevor
Francis jafnaði á 32. mín. Cascar-
ino kom Millwall yfir að nýju á 37.
mín. og hinn framherjinn, Terry
Hurlock bætti þriðja markinu við
tveimur mínútum stðar. Martin
Allen minnkaði muninn á 71. mín.
en Trcvor Francis mistókst að
jafna leikinn, er hann misnotaði
vítaspyrnu.
spyrnu á 83. mín. Sannarlega
óvænt úrslit, því Newcastle var
slegið út úr deiidarbikarkeppninni
í síðustu viku, 3-0, af 3. dcildarliði
Sheffield United.
Manchester United lék gegn
Tottcnham á White Hart Line.
Fjörugum leik lauk með 2-2 jafn-
tefli. Chris Waddle kom Totten-
i ham yfir á 38. mín. en United
komst yfir með mörkum þeirra
Mark Hughes á 43. mín. og Brian
McClair á 71. mín. Paul Walsh
jafnaði fyrír Lundúnaliðið fjórum
mín. fyrir leikslok. Paul Stewart
misnotaði vítaspyrnu fyrir Totten-
ham tveimur mín. fyrir leikslok.
Staðan í 1. deild:
Wimbledon
Wesl Ham .
6 114
6 114
5 II
5 15
ÚRSLITÍ l.DEILD:
Coventry-Middlesbrough . . 3-4
Liverpool-Newcastle .......1-2
Millwall-Q.P.R............3.2
Norwich-Charlton..........1-3
Nottingham Forrest-Luton . 0-0
Sheffield Wed.-Aston Villa . 1-0
Southampton-Derby .........0-0
Tottenham-Man.United ... 2-2
West Ham-Arsenal ........1-4
Wimbledon-Everton .......2-1
ÚRSLIT í 2. DEILD:
Birmingham-Barnslcy......3-5
Bradford-Portsmouth......2-1
Topplið síðustu viku, Norwich, Millwall .6 4 2 0 13 7 14 Brighton-Leeds 2-1
féll af toppnum þar sem liðið Norwich .6 4 1 1 11 8 13 Chelsea-Lcicestcr 2-1
tapaði 1-3 á heiniavelli fyrír Liverpool 1 10 5 11 Crystal Palace-Plymouth . . . 4-1
Charlton. Andi Linighan kom Southampton . . .6 3 2 1 10 6 11 Hull-Walsall 0-0
Norwich yfir eftir 16 mín. Paul Man. Utd 6 3 2 1 7 3 11 Man.City-Blackbum 1-0
Williams skoraði tvívegis og Paul Arsenal 6 3 1 2 17 11 10 Oxford-Shrewsbury 4-1
Mortimer einu sinni og þar með er Sheff.Wed 6 3 1 2 6 6 10 Stoke-Bournemouth 2-1
Norwich komið niður í 2. sæti Coventry 2 9 6 9 Sunderland-Oldham 3-2
deildarinnar. Derby .6 2 2 2 4 3 8 Watford-Swindon 2-3
Það er ekki á hverjum degi scm Everton .6 2 1 3 8 7 7 West Bromwich-Ipswich . . . 1-2
Liverpool tapar á Anfíeld Road. Aston Villa . . . .6 14 1 9 9 7
Það geröist þó á laugardag þegar Q.P.R .6 2 1 3 5 5 7 ÚRSLIT í SKOSKU
Newcastle kom í heimsókn. Liver- Charlton 6 2 1 3 8 13 7 ÚRVALSDEILDINNI:
pool hóf leikinn vel og Gary Gill- Tottenham .... .5 13 1 10 10 6 Dundee United-Hearts .... 0-0
espie skoraði strax á 3. mínútu. Middlesbrough . 6 2 0 4 9 11 6 Hibernian-Celtic 3-1
John Hendrie jafnaði metin á 30. Notth. Forest .. .6 0 5 1 5 6 5 Mothcrwell-Aberdeen .... 1-1
mín. og brasiiíski framherjinn Mir- Luton .6 12 3 5 7 5 Rangers-Dundee 2-0
andinha gerði sigurmarkið úr víta- Newcastle .... 6 1 2 3 6 13 5' St. Mirrcn-Hamilton 2-0