Tíminn - 04.10.1988, Síða 12
12 Tíminn
Þriðjudagur 4. október 1988
EDWARDS HERFLUG-
VÖLLURINN I KALIFORNÍU -
Geimskutlan Discovery lenti í
Kalitorníueyöimörkinni unv
miðjan dag í gær eftir vel,
heppnaða fjögurra daga ferðj
sem kom Bandaríkjunum aftur
á blað í mönnuðum geimferð-i
um. __ !
N DJAMENA - Líbýa og
Chad hafa komist að sam-
komulagi um að taka upp
stjórnmálasamband og binda
formlega enda á 15 ára eyði-
merkurstríð. í sameiginlegri
yfirlýsingu sagði að sendiráð'
yrðu opnuð í höfuðborgum ríkj
anna strax í næstu viku.
MOSKVA — Sendiherra
Sovétríkjanna hjá Sameinuðu
þjóðunum gagnrýndi í viðtali
við Prövdu málgagn sovéska
kommúnistaflokksins utanrík-
isstefnu Sovétríkjanna undan-
farna áratugi og var gagnrýn-
inni greinilega beint að Grom-
yko sem lét af embætti forseta,
í síðustu viku, en hann var
utanríkisráðherra um áratuga
skeið. Alexander Belonogov
sagði í Prövdu að kreddufesta
í utanríkisstefnu Sovétríkj-
anna hefði skaðað hagsmuni
Sovétríkjanna á alþjóoavett-
vangi. __
HEBRON — Leiðtogi Palest-
ínumanna á hernumdu svæð-
unum sagðist telja að PLO
væri komin á fremsta hlunn
með að gera sitt til að styðja
vinstri öflin í ísrael svo þau nái
meirihluta í þingkosningunum
sem fram fara 1. nóvember.
JÓHANNESARBORG-
Embættismenn í Suður-Afríku
visuðu á bug fréttum um að
P.W. Botha myndi taka þátt í
leiðtogafundi ríkja i suðurhluta
Afríku sem fram fer í Lusaka
höfuðborg Zambíu í þessari
viku. - —
ISLAMABAD — Bandarík-
in lögðu til að iðnríkin léttu
öllum tollum af varningi frá
fátækustu löndum heims. Til-
boð þetta kom í lok upplýsinaa-
fundar viðskiptaráðherra iðn-
ríkja. " __
KARACHI — Ghulam Ishaq
Khan hét því að brjóta á bak
aftur hópa byssumanna sem
ábyrgð bera á fjöldamorðum
og átökum þar sem 264 létu
lífið í verstu átökum í Pakistan
í fjölda ára. Hann sagði að
fjöldamorðin væru greinilega
framin til að ýta undir óstöðug-
leika og sundurlyndi í Pakist-
an
Lítið lát á umskiptum í Sovétríkjunum:
Gorbatsjov nú for-
seti Sovétríkjanna
Það voru snögg umskipti í stjórn-
málunum í Sovétríkjunum um helg-
ina þegar Mikhail Gorbatsjov leið-
togi Sovétríkjanna sópaði
íhaldsmönnum út úr áhrifastöðum
og tók sjálfur við embætti forseta
Sovétríkjanna.
Fundur miðnefndar kommúnista-
flokksins á föstudag tók ekki nema
klukkustund, en þá var Gromyko
forseti og fjórir íhaldsmenn sendir á
eftirlaun auk þess sem hinn íhalds-
sami Igor Ligachev sem áður var
næstráðandi Gorbatsjov og Viktor
Chemrikov yfirmaður KGB voru
lækkaðir í tign, en þeir höfðu gagn-
rýnt utanríkisstefnu Gorbatsjovs og
Shévardnadzes.
Það tók heldur ekki nema 45
mínútur fyrir Gorbatsjov að fá
Æðsta ráðið til að samþykkja breyt-
ingarnar, velja nýjan yfirmann KGB
og kjósa Gorbatsjov forseta Sovét-
ríkjanna.
Þessum umskiptum var þó ekki
lokið því á gær var Alexander Vlasl-
ov innanríkisráðherra skipaður for-
sætisráðherra Rússlands sem er lang-
stærsta Sovétlýðveldið. Mun það
embætti verða mjög valdamikið eftir
fyrirhugaðar stjórnkerfisbreytingar
Gorbatsjovs þar sem efnahagslegt
og stjórnunarlegt sjálfstæði Sovét-
lýðveldanna verður stóraukið.
Með þessum miklu sviptingum
hefur Gorbatsjov styrkt stöðu sína
svo vel að íhaldsmenn geta varla
ógnað honum hér eftir.
Forsetaembættið sem hingað til
hefur verð tiltölulega valdalítið mun
breytast í apríl á næsta ári og verða
völd forseta Sovétríkjanna svipuð
og völd forseta Bandaríkjanna eru
nú. Hann mun útnefna forsætisráð-
herra, formenn Varnarmálaráðs
Sovétríkjanna og koma fram fyrir
hönd Sovetríkjanna á alþjóðavett-
vangi. Þá mun hann verða forseti
nýs þings Sovétríkjanna, en á það
verða kjörnir 400 til 450 þingmenn
sem starfa munu árið um kring. Er
gert ráð fyrir að þingið muni hafa
víðtækt vald til lagasetningar.
Athyglisvert er að við manna-
skiptin um helgina verða yfirmenn
KGB, öryggislögreglu Sovétríkj-
anna og innanríkislögreglunnar ekki
tengdir beint stjórnmálanefnd kom-
múnistaflokksins. Vladimir nokkur
Kryuchkov var skipaður yfirmaður
KGB en hann hefur ekki gegnt
embættum á vegunt kommúnista-
flokksins.
Palestínumenn farnir aö beita sprengjutilræðum í Jerúsalem:
ÞRJÁR GYÐINGA-
STÚLKUR SÆRDUST
Líbanon:
Bandarískum
gísl sleppt?
Líkur eru á að bandarískum gísl í
Líbanon verði sleppt úr haldi á
næstunni eða hafi nú þegar verið
sleppt. Fréttir hafa borist um að til
standi að leysa Alan Steen prófessor
úr haldi, en hann var tekinn í
gíslingu 24. janúar á síðasta ári.
Þetta hefur þó ekki verið staðfest.
„Okkur hafa borist fréttir af því
að gísl verði leystur úr haldi en við
höfum ekki fengið nein nöfn né
neinar staðfestingar á því,“ sagði
Marlin Fitswater talsmaður Hvíta
hússins í gær. Sagði hann fréttirnar
hafa komið frá „ríkisstjórn á svæð-
inu“.
NBC sjónvarpsstöðin hélt því hins
vegar fram að um Alan Steen væri
að ræða og að hann væri á leið til
Damaskus.
Fitzwater sagði að bandarísk
stjórnvöld hefðu ekki staðið í nein-
um samningum um að leysa banda-
ríska gísla úr haldi. Hins vegar sagði
hann að önnur ríki og samtök hafi
unnið að lausn gísla, en Bandaríkin
hafi þar hvergi komið nærri. Tiltók
hann Perez de Cuellar aðalritara
Sameinuðu þjóðanna sérstaklega í
því sambandi.
Tíu bandarískir gíslar eru nú í
haldi í Líbanon, en talið er að
erlendir gíslar þar séu nú tuttugu og '
sex.
Palestínumenn virðast nú ætla að
svara skothríð ísraelskra hermanna
með hryðjuverkum gegn almenningi
í ísrael. Á sunnudag sprakk sprengja
á gyðinglegri hátíð í Jerúsalem og
særðust þrjár ísraelskar stúlkur.
Sprengjan hafði verið falin í brauð-
hleif og er talið víst að um hermdar-
verk Palestínumanna sé að ræða, en
það er þá fyrsta sprengjutilræði Pal-
estínumanna frá því uppreisnin hófst
á hernumdu svæðunum fyrir tíu
mánuðum.
Hermenn voru í viðbragsstöðu í
gær vegna verkfalla sem leiðtogar
neðanjarðarhreyfingar Palestínu-
manna höfðu boðað til í mótmæla-
skyni við þá ákvörðun ísraela að
loka skólum og háskólum á her-
numdu svæðunum.
Þá komu ísraelskir landnemar á
hernumdu svæðunum upp vegatálm-
um við Hebron til að mótmæla
auknum árásum Palestínumanna á
bifreiðar gyðinga. Vilja landnem-
arnir meina að ísraelski herinn taki
ekki af nógu mikilli hörku á grjót-
kösturum.
Hernaðarástandi hefur verið Iýst í
miðbæ Hebron vegna óróa og gildir
útgöngubann þar um nætur.
Flokkakosningar
verða í Pakistan
Kosningarnar sem fram fara í
Pakistan 16. nóvember verða á
flokksgrunni en ekki verður kosið
um einstaklinga eins og Zia-ul-Haq
fyrrum forseti landsins hafði boðað
áður en hann fórst í flugslysi í
ágústmánuði. Þetta þýðir að á kjör-
seðlinum verða tákn fyrir flokka
landsins framan við nöfn frambjóð-
enda flokkanna, en það er mjög ,
mikilvægt því stærsti hluti Pakistana
er ólæs.
Það var hæstiréttur Pakistans sem'
í gær úrskurðaði að svona ætti þetta
að vera. Verða kosningarnar í haust
fyrstu kosningarnar í tæp tólf ár þar
sem flokkar mega bjóða fram um
allt landið. Er þetta túlkað sem sigur
fyrir Benazir Bhutto og flokk hennar
sem er stærsti skipulagði stjórn-
málaflokkur landsins. Eykur þetta
því líkur á sigri stjórnarandstöðunn-
ar í landinu.
Kosningarnar munu fara fram í
skugga mikilla kynþáttaóeirða sem
brutust út í Sindi um helgina, en þar
létu tvöhundruð manns lífið í kyn-
þáttaátökum í Karachi og Hyder-
bad. Herinn er þar í varðstöðu og
útgöngubann ríkir.
UNITA skæruliöahreyfing-
in í Angólu:
Skjótum ekki
Kúbumenn ef
þeir skjóta
ekki á okkur
Skæruliðaforinginn Jonas Sav-
imbi hefur boðið það að skærulið-
ar UNITA hreyfingarinnar hætti
árásunt á herliö Kúbumanna f
Angólu ef Kúbumenn hætti hern-
aðaraðgerðum gegn skæruliðum.
Savimbi sagði að kúbverskir her-
rnenn hefðu ekkert að gera í
Angólu eftir að hermenn Suður-
Afrfku hafi yfirgefið landið.
Bauðst Savintbi einnig til að leysa
kúbverska stríðsfanga úr haldi.
Suður-Afríkustjórn og Banda-
ríkjamcnn hafa stutt við bakið á
UNITA hreyfingunni f barátt-
unni við að koma marxistastjórn-
inni frá völdum. Kúbverskir her-
menn hafa hins vegar verið marx-
istastjórninni í Angólu til trausts
og halds í baráttunni gcgn UN-
ITA skæruliðum og cr talið að
um 50 þúsund ntanna herlið frá
Kúbu sé nú á landinu.
Suður-Afríkumcnn drógu her-
lið sitt út úr Angólu til nágranna-
ríkisins Namibíu í ágústmánuði í
samræmi við samninga Suður-
Afrtku, Angólu og Kúbu sem
Bandaríkjantenn leiddu. Eftir
það hefur stjórnin í Angólu verið
í sífellt meiri pressu um að semja
við UNITA hreyfinguna, en
henni hefur verð haldið utan við
friðarviðræðurnar í Angólu.
UTLÖ