Tíminn - 04.10.1988, Side 13
Þriðjudagur 4. október 1988
Tíminn 13
Miaiilllll UTLQND
Bæjaraland missir hinn litríka forsætisráðherra sinn:
Franz Josef
Strauss látinn
Franz Josef Strauss í essinu sínu á einni af hinum frægu bjórhátíðum,
„Oktoberfest“ í Miinchen. Frans Josef mun ekki fá sér ölkollu á fleiri
bjórhátíðum því hann lést úr hjartaslagi um helgina.
Franz Josef Strauss hinn litríki
forsætisráðherra Bæjaralands lést
eftir hjartaáfall sem hann fékk þar
sem hann var á dádýraveiðum á
laugardag. Strauss var á veiðum á
landareign aðalborins vinar síns þeg-
ar hann fékk áfallið og var hann
fluttur í snatrí með þyrlu á sjúkrahús
í Regensburg þar sem hann lá með-
vitundarlaus í tvo sólarhringa áður
en hann lést.
Strauss var 73 ára að aldri. Hann
komst ungur til áhrifa í Bæjaralandi
eftir stríð og hefur alla tíð verið
áberandi þar.
Strauss var kjörinn á sambands-
þing Vestur-Þýskalands, Bundestag,
árið 1950. Hann tók sæti í stjórn
Adenauers sem ráðherra án ráðu-
neytis árið 1953 og sem varnarmála-
ráðherra árið 1956. Strauss gegndi
því embætti allt til ársins 1962 og var
sem slíkur lykilmaður í endurreisn
vesturþýska hersins. Strauss varð að
láta af embætti varnarmálaráðherra
í kjölfar þess að hafa ásakað hið
frjálslynda tímarit Der Spiegel fyrir
landráð þegar það birti grein er dró
í efa hæfni þýska hersins.
Strauss var þó ekki búinn að segja
sitt síðasta sem ráðherra því árið
1966 var hann skipaður efnahags-
málaráðherra og gegndi því embætti
til ársins 1969.
Strauss var leiðtogi Kristilega
jafnaðarmannasambandsins í Bæj-
aralandi frá því árið 1961 og forsætis-
ráðherra í Bæjaralandi frá því 1978.
Eins og títt er um Bæjara var Strauss
kaþólskur og íhaldssamur og tók
löngum ákvarðanir sem gengu þvert
á stefnu stjórnvalda í Bonn og
spilaði þannig á stöðu Bæjaralands
sem sjálfstæðs ríkis innan Þýska
sambandslýðveldisins.
Kristilega jafnaðarmannasam-
bandið í Bæjaralandi situr nú í
ríkisstjórn landsins ásamt systur-
flokki sínum Kristilegum demókröt-
um, flokki Helmuts Kohls kanslara
og Frjálsum demókrötum.
Þó hinn íhaldssami Bæjari hafi
ekki setið í stjórn Kohls að undan-
förnu þá hafði hann þar mikil áhrif.
Strauss var ekki að tvínóna við
hlutina og var ætíð fylgjandi harð-
línustefnu gagnvart Sovétríkjunum
og fylgisríkjum þeirra. Hann gekk
því oft á tíðum þvert á stefnu Kohls
kanslara og hins frjálslynda utanrík-
isráðherra Vestur-Þýskalands Hans-
Dietrich Genschers. Hins vegar brá
svo við að eftir opinbera heimsókn
til Moskvu í desembermánuði síð-
astliðnum að hann lofaði Gorbatsjof
og umbótastefnu hans.
Strauss var heldur ekkert að víla
fyrir sér að hæla ríkisstjórn Suður-
Afríku fyrir aðskilnaðarstefnu
hennar, en Strauss hélt einmitt í
heimsókn til Suður-Afríku og Nam-
ibíu fyrr á þessu ári. Þjóðverjar áttu
einmitt nýlendu á því svæði sem
Namibía er nú og tók stjórn Suður-
Afríku við stjórn þar í umboði
Þjóðarbandalagsins sáluga eftir ósig-
ur Þjóðverja í heimsstyrjöldinni síð-
ari.
Franz Josef Strauss sóttist mjög
eftir kanslaraembættinu, en varð að
lúta í lægra haldi fyrir jafnaðar-
manninum Helmut Schmidt í kosn-
ingum árið 1980.
Hótanir herstjórnarinnar í Burma báru árangur:
Vinna hafin í Rangoon
Fólk hélt almennt til vinnu í
Rangoon í dag og má því segja að
sex vikna allsherjarverkfalli sem
beindist gegn stjórnvöldum sé nú
lokið. Herforingjastjórnin í landinu
hafði hótað fangelsunum og brott-
rekstri ef fólk mætti ekki í vinnu.
„Ég myndi segja að 90% fólks sé
nú mætt á skrifstofur og í verksmiðj-
ur,“ var haft eftir stjórnarandstæð-
ingi í höfuðborg Burma í gær. Hann
sagði að strætisvagnar hafr gengið
nær eðlilega um götur borgarinnar
og er það í fyrsta sinn í rúman
mánuð sem strætisvagnar hafa sést á
götunum, en olíuskortur hefur ríkt í
landinu vegna verkfalla í olíuhreins-
unarstöðvum landsins.
„Fólkið er komið til vinnu en ég
býst ekki við að það muni vinna
mjög skilvirkt," sagði heimildar-
maðurinn.
Vestrænir sendiráðsmenn telja að
fólk hafi haldið til vinnu á ný af ótta
við að herforingjastjórnin beitti
fjöldaaftökum ef verkföll haldi
áfram, enda er talið að rúmlega
þúsund manns hafi fallið fyrirkúlum
hermanna í Rangoonborg einni er
herinn tók völdin í sínar hendur 18.
september.
Skæruliðar í Burma færðu sig upp
á skaftið í kjölfar valdatöku hersins,
enda hafa stjórnvöld þurft að kalla
hermenn frá stöðvum sínum utan af
landi til að fást við mótmælagöngur
almennings í Rangoon og Mandalay.
Skæruliðar náðu meðal annars bæn-
um Mong Yang í norðurhluta lands-
ins á sitt vald, en í gær lýstu yfirvöld
því yfir að stjórnarherinn hefði náð
bænum aftur. Kveðst stjórnarherinn
hafa fellt um tvöhundruð skæruliða,
en að um fimmtíu stjórnarhermenn
hafi fallið.
Skæruliðar kommúnista segja
þessar fréttir hins vegar hina mestu
firru og staðhæfa að bærinn sé enn á
þeirra valdi.
Reykjanes
Kjördæmissamband framsóknarmanna á Reykjanesi boðar til for-
mannafundar fimmtudaginn 6. október n.k. kl. 20.30 að Hamraborg
5, Kópavogi.
Stjórnin.
Borgnesingar nærsveitir
Spilum félagsvist í Samkomuhúsinu í Borgarnesi föstudaginn 7.
október kl. 20.30.
Góð verðlaun. Mætum öll vel og stundvíslega.
Framsóknarfélagið í Borgarnesi
Virðisaukaskattur á matvöru?
Almennur fundur verður haldinn um áhrif virðisaukaskatts á verð-
myndun matvöru að Brautarholti á Skeiðum föstudaginn 7. okt. n.k.
kl. 21.00.
Frummælandi verður Gunnlaugur Júlíusson,
landbúnaðarhagfræðingur frá Stéttarsam-
bandi bænda.
Umræður og fyrirspurnir.
Fundurinn er öllum opinn.
Félag framsóknarkvenna í Árnessýslu
og Landssamband framsóknarkvenna
Aðalfundur
Framsóknarfélags Kópavogs verður haldinn að Hamraborg 5,
mánudaginn 10. október kl. 8.30.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf, auk kosning fulltrúa á
flokksþing.
Stjómin.
Austurland
Kjördæmisþing framsóknarmanna á Austurlandi verður haldið í Hótel
Valaskjálf Egilsstöðum dagana 14. og 15. október n.k. og hefst kl.
20.00. Nánar auglýst síðar.
KSFA
jl
Almennir
stjornmálafundir
á Húsavík og
Akureyri
Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra og Valgerður Sverrisdóttir
alþingismaður boða til almennra stjórnmálafunda sem hér segir:
Félagsheimilinu Húsavík fimmtudaginn 6. okt. kl.20.30.
Hótel KEA, Akureyri föstudaginn 7. okt. kl. 20.30.
Framsóknarflokkurinn.
Frá menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður við framhaldsskóla
Við Iðnskólann í Reykjavík er laus til umsóknar
staða bókasafnsfræðings frá og með 1. desember
n.k.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6, 150 Reykjavík, fyrir 1. nóvember n.k.
Menntamálaráðuneytið
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför sonar okkar, bróður og barnabarns
Hlyns Inga Búasonar
Vesturbergi 9, Reykjavík
Sérstakar þakkir færum við séra Sigfinni Þorleifssyni. Guð blessi
ykkur öll.
Hallbera Eiríksdóttir Búi Steinn Jóhannsson
Elín Hrund Búadóttir Eiríkur Steinn Búason
Elín Eiríksdóttir Eiríkur Guðnason
Jarþrúður Ásmundsdóttir