Tíminn - 04.10.1988, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 4. október 1988
Tíminn 15
Himalajafjöllin eru geysistór
vatnsvél, sjá þrem stórfljótum á
indverska meginlandinu, Indus,
Ganges og Brahmaputra, fyrir
vatni sem rennur til stórra hluta
Norður-Indlands, mikils hluta Pak-
istans, Burma og Bangladesh.
En vanþekking, ágirnd, fátækt
og tregða mannanna hefur svipt
þessa vél stjórninni. Stóraukinn
mannfjöldi sem þarfnast sífellt
meiri fæðu og lífsskilyrða gengur
'rösklega fram í að ryðja skógi af
byggðarhæfum svæðum í suður-
hlíðunum og auka þar með á tíðni
og eyðingarmátt flóðanna, sem
þessar aðgerðir hrinda af stað.
Regnskógum eytt
vegna þróunarverkefna
skammsýnna fjármála-
stofnana
Eyðing regnskóganna hefur
færst í vöxt, að skoðun umhverfis-
sinna, vegna „skammsýnna" þró-
unarverkefna, sem samtök eins og
Alþjóðabankinn standa straum af
fjárhagslega, en sjónarmiðin þar á
bæ hafa ekki verið að vernda
náttúruna í fátækustu löndum
heims heldur að koma efnahags-
málum þar á svipað stig og hjá
þróaðri þjóðum, með því að
höggva niður skóg til að rækta
verðmæta uppskeru.
Þegar Sir Edmund Hillary og
Tensing, leiðsögumaður hans af
Sherpa-æftflokki, urðu fyrstir
manna til að klífa Mount Everest
1953, voru brattar hlíðar Khumbu-
dalsins alþaktar dökkgrænum eini.
Nú er Hillary orðinn ambassador
Nýja-Sjálands í Nýju Delhi og
fylgist dapur með því þegar skóg-
amir eru eyðilagðir að þrem
fjórðu. Skógareyðingin er alls ekki
takmörkuð við hæstu tinda.
Skógareyðing hefur feykt burt
frjósömum jarðvegi úr hlíðunum
allt frá Pakistan til Indlands, Nepal
og Tíbet, og þar með hrint af stað
jarðskriðum og stíflað vatnslón og
ár með svo miklum aur, að þær
flæða yfir bakka sína þegar þær
sameinast Ganges á láglendinu,
hundrað mílum fyrir neðan Eve-
rest.
Með sama áframhaldi
verða Himalajafjðllin gróður-
laus eftir 25 ár
Verði haldið áfram að höggva
skóg í Himalajafjöllunum í sama
stíl og nú er gert verða fjöllin orðin
gróðurlaus eftir 25 ár, yfirborðs-
jarðvegur hefur horfið og loftslags-
áhrif ógna því að ástandið á lág-
lendinu, sem nú er frjósamt, verði
orðið eins og í Sahel, svæðinu í
Mið-Afríku sem orðið hefur þurrk-
um að bráð.
Sé bara talpö Um Nepal, þar sem
áætlað er að i' afjöldi eigi eftir að
tvöfaldast, í -nilljónir fyrir árið
2000, er skt á 120.000 ekrum
lands felldur íri hverju. Hver
ekra samsva^ n 0,4 hekturum.
f staðinn er aðeins plantað ný-
græðingi á 17.000 ekrur. Mestur
hluti felldu trjánna er notaður sem
eldiviður, en að öðru leyti er
skógurinn felldur til að rækta upp
landið til uppskeru og búfjárrækt-
ar.
Flóðavórn indverskra
stjómvalda byggist á flóð-
görðum og skaðabótum
Opinberar tölur indversku
stjórnarinnar segja að meira en
þrjár milljónir ekra af skóglendi
eyðist á hverju ári. Landið sem
glatast í árvissum flóðum er 14
sinnum stærra en gerðist á 6.
áratugnum. Umhverfisverndar-
menn saka stjórnvöld um að láta
sig engu skipta eyðingu skóganna
á sama tíma og þau henda 250
milljónum dollara á ári í ófullnægj-
andi flóðgarða og bætur fyrir skaða
sem flóðin valda.
Fyrir 5 árum mælti umhverfis-
ráðuneytið með því að bann væri
lagt við að fleiri tré yrðu felld í
Himalajafjöllum. Það álit hefur
ekki verið tekið til greina og nú er
svo komið að í hagnaðarskyni hafa
indverskir skógar verið lagðir svo
að velli að innan við 10% upphaf-
legs skóglendis er enn gróið.
Flóð eru þær náttúruhamfarir
sem hraðast færast í aukana. Flóð
náðu til 5,2 milljóna manna á ári á
7. áratugnum og 15,4 milljóna
manna á ári á 8. áratugnum. Á
líðandi áratug hefur ástandið
versnað margfalt og má nefna að
aðeins á árinu 1984 urðu 30 millj-
ónir manns fórnarlömb flóða. Árið
sem nú er að líða er enn óuppgert.
Panamaskurðurinn í hættu
vegna skógareyðingar
Áður en fólkið í Bangladesh
verður búið að grafa hina látnu
upp úr leðjunni, í næsta mánuði,
fer fram árleg athöfn hinum megin
á hnettinum. Þar fagna bændur í
Brasilíu komu þurrkatímans með
því að bera logandi kyndla að
regnskógunum. Þar ryðja þeir land
til ræktunar og búfjárræktar og
þegar næsti regntími hefst, í janú-
ar, munu þeir hafa brennt því sem
næst 10 milljónir ekra skóglendis.
Allt í þágu aukinnar nautgripa-
ræktar til að uppfylla þarfir Vest-
urlandabúa fyrir ódýrt hamborg-
arakjöt.
Ruðningur skóglendis hefur á
sama tíma leitt til þess að vötn,
sem hefur verið veitt til að hreinsa
Panamaskurðinn, hafa fyllst af leir.
Ef þessum framburði linnir ekki
verður Panamaskurðurinn ónot-
hæfur fyrir skipaferðir innan fárra
áratuga.
í Sarawak í Malaysíu eru bændur
og fyrirtæki svo dugleg að fella
skóg að um þetta leyti á næsta ári
verður búið að fella regnskóga á
landi á stærð við Wales. í Zaire í
miðri Afríku eru líka stórtæk fyrir-
tæki að verki við að fella frumskóg-
inn í því skyni að framleiða t.d.
Bændurnir eyddu regnskóginum
til að planta melónum og maís.
Áður en tvö ár voru liðin var
jarðvegurinn líflaus, vegna þess að
í hitabeltisloftslagi safnast forði
flestra næringarefna í gróðrinum
en ekki í jarðveginum. Eins og
óhjákvæmilegt var fluttu bændurn-
ir sig stöðugt um set og lögðu I
leiðinni i eyði 11% af skóglendi í
Rondonia-héraði.
Næst á eftir akuryrkjunni stafar
skógunum mest hætta af viðar-
höggi. Árlega fara um 10 milljónir
ekra skóglendis til eldiviðar eða
viðarkolagerðar, byggingarefnis,
girðingaefnis, húsgagnasmíði og
húsbúnaðar. Milljónum ekra í við-
bót er rutt burt til að fá land til
nautgriparæktar. Þar sem rúma 5
fermetra af ræktuðu landi þarf til
að framleiða nóg fóður fyrir einn
hamborgara glatast a.m.k. 260 ekr-
ur af regnskógi á hverjum degi.
Þegar stóra bandaríska skyndi-
bitakeðjan Burger King varð að
svara háværum mótmælum um-
hverfisverndarmanna, tilkynnti
hún í fyrra að hún væri hætt að
kaupa kjöt frá Mið-Ameríku.
En meira þarf til að hindra
áframhaldandi eyðingu skóga í
heiminum en hún hefur skelfileg
áhrif á loftslag og líf manna á
jörðinni.
Svava Halldórsdóttir
sóknir leiða reyndar í ljós að á
hverri mínútu hverfi 100 ekrur af
regnskógi.
Skógareyðing til
ræktunar - landið missir frjó*
semina fljótt
Á síðustu 50 árum hefur ört
vaxandi mannfjöldi á jörðinni orð-
ið til þess að landlausir bændur
hafa fengið land til ræktunar á
skógi vöxnum fjöllum og í rökum
regnskógum. Frá háum fjallahlíð-
um bera monsúnrigningar burt
jarðveg sem ekki nýtur lengur
verndar trjánna, niður í rjóður í
frumskóginum, landið missir frjó-
semina eftir að nokkrum sinnum
hefur verið sáð í það og bændurnir
færa sig um set með sveðjur sínar
og kyndla.
Á Rondonia-svæðinu í Brasilíu
var byggð hraðbraut snemma á
árunum upp úr 1980 og var henni
ætlað að sjá fyrir góðum samgöng-
um um frumskóginn þannig að
bændur þar gætu flutt afurðir sínar
til hinna auðugu borga Rio de
Janeiro og Brasilia. Alþjóðabank-
inn veitti 400 milljóna dollara styrk
til vegargerðarinnar. Landlausum
bændum var sagt að þeir mættu
líkkistur úr tekki og eldhúsinnrétt- rækta skika meðfram veginum, allt
ingar úr mahoní. Nýlegar rann- 100 ekrur að flatarmáli.
Fædd 8. júlí 1916
Dáin 26. september 1988
Andlátsfregn Svövu Halldórsdótt-
ur kom okkur skyldfólki hennar
ekki á óvart, því að hún hafði ekki
gengið heil til skógar um all langt
skeið. Fyrir um það bil ári gekkst hún
undir mikla skurðaðgerð og síðan
hallaði stöðugt undan fæti hvað
heilsufar snerti þar til sjúkdómurinn
sigraði hana. Hún andaðist á Land-
spítala 26. sept. s.l.
Svava fæddist á Hvanneyri í Borg-
arfirði 8. júlí 1916. Voru foreldrar
hennar skólastjórahjónin þau Svava
Þórhallsdóttir og Halldór Vilhjálms-
son. Hún ólst upp í skjóli foreldra
sinna með fjórum mannvænlegum
systkinum: Valgerði, Sigríði, Birni
og Þórhalli á hinu fjölmenna
menntasetri, þar sem eldhuginn
Halldór Vilhjálmsson ruddi braut
mörgum þörfum nýjungum í þágu
íslensks landbúnaðar. Svava móðir
hennar var hin milda, listelska og
umhyggjusama húsfreyja þessa stóra
sveitaheimilis þar sem allt var í
föstum skorðum og fornar dyggðir í
heiðri hafðar: stjórnsemi, vinnu-
semi, nýtni og gestrisni eins og best
getur. Börnin lærðu bænir og vers
við móðurkné og var kennt að fara
með ljóð og segja sögur.
Ógleymanlegar eru heimsóknir
okkar systkinanna í Laufási til
frændfólksins í Borgarfirðinum en
húsmóðirin á Hvanneyri var föður-
systir okkar.
Á þeim tíma, sem Svava fæddist
var ófriðurinn mikli í algleymingi og
syrti mjög í álinn hvað aðföng snerti
og skipti forsjálni og hagsýni miklu
máli, þar sem landið var að heita
mátti einangrað frá umheiminum.
Halldór Vilhjálmsson gerði miklar
kröfur til sín og annarra og lagði
þunga áherslu á að kenna nemend-
um sínum að meta gögn og gæði
landsins og nota þau og nýta til
hagsældar allri þjóðinni. Hans kjör-
orð voru: hollur er heimafenginn
baggi. Þessvegna voru nægtir vista í
búrunum á Hvanneyri. Væri vel ef
slíkur hugsunarháttur væri ríkjandi
með okkar þjóð í dag.
Svava tók í arf frá móður sinni
listrænt eðli og viðkvæma lund og
var alltaf tilbúin að vera þeim, sem
áttu í erfiðleikum til hjálpar með
ráðum og dáð. Faðir hennar, hinn
hagsýni maður, hvatti hana ekki til
listnáms, heldur til að afla sér hag-
nýtari menntunar en listnám þótti á
þeim tíma. Það varð að ráði að
Svava fór í verslunarskóla. Fyrst í
Þýskalandi, þá aðeins 15 ára gömul
og síðan í Verslunarskóla íslands.
Þaðan lauk hún prófi 1934. Fjórum
árum síðar, eða rétt fyrir upphaf
seinni heimsstyrjaldar, lauk hún
námi við húsmæðraskólann í Sorö í
Danmörku.
Um líkt leyti hafði Svava komist í
kynni við Niels Bukh, hinn kunna
íþróttafrömuð Dana og var hún um
skeið nemandi í íþróttaskóla hans í
Ollerup. Komst hún í úrvalsflokk á
hans vegum sem ferðaðist um og
sýndi íþróttir víðsvegar um Dan-
mörku. Síðar sama ár, í ágúst 1938
giftist Svava unnusta sínum, Gunn-
ari Bjarnasyni frá Húsavík, sem þá
lagði stund á búnaðarvísindi í Bún-
aðarháskólanum í Kaupmannahöfn.
Þaðan útskrifaðist hann sem kand-
idat 1939. Þegar heim kom gerðist
Gunnar ráðunautur Búnaðarfélags
Islands og varð síðan kennari við
Bændaskólann á Hvanneyri frá
1947-1961, en þá varð hann skóla-
stjóri Bændaskólans á Hólum til
1962. Um það leyti slitu þau hjónin
samvistum.
Þau Svava og Gunnar eignuðust
tvo syni: Halldór'prest í Holti undir
Eyjafjöllum, kvæntur Margréti
Kjerúlf og eiga þau sjö börn, og
Bjarna verkfræðing, sem kvæntur er
Guðrúnu Kristinsdóttur. Þau eiga
þrjú börn.
Eftir að Svava varð ein tók hún að
sér ráðskonustöðu á forsetasetrinu
hjá Dóru móðursystur sinni um
nokkurt skeið. Eftir það vann hún á
ýmsum stofnunum. s.s. Tilraunastöð
landbúnaðarins á Keldum og á
barnaheimilum, en alla tíð átti vel
við Svövu að umgangast börn og
hlúa að þeim. Hvar sem Svava
frænka fór, bar hún með sér, að hún
hafði hlotið gott uppeldi og göfugt
hugarfar og sem ung var hún mjög
falleg kona.
Vegna alls þessa er bjart yfir
minningunni um hana. Við í frænd-
systkinahópnum biðjum henni bless-
unar og sendum fjölskyldu hennar
hjartans samúðarkveðjur.
Agnar Tryggvason
Eiginmaður minn
Albert Gunnlaugsson
Þinghólsbraut 23, Kópavogi
lést á Sunnuhlíð 1. október. Jarðarförin auglýst síðar.
Katrín Ketilsdóttir
Útför
Bjargar Árnadóttur
Seljalandi 7,
fyrrum húsfreyju að Stóra-Hofi, Gnúpverjahreppi
fer fram frá Bústaðakirkju föstudaainn 7. október kl. 13.30.
Ferð verður frá Félagsheimilinu Árnesi kl. 11.30 og frá Fossnesti,
Selfossi kl. 12.00.
Börn, tengdabörn og barnabörn