Tíminn - 04.10.1988, Page 19
ÖOO' ládnJílo ................ .............................................................................['l'MV-
Þriöjudagur 4. október 1988 Tíminn 1P
' ' >
Josephine Baker (t.v.) var kölluð Whitney Houston er ekki síður vel
„Hin svarta Venus“. Hér sést hún vaxin, dansar og syngur á heims-
á skemmtistað í París mælikvarða og þykir hafa ein-
hverja faUegustu fætur aUra
kvenna. Hér er hún með breið
demants-ökklabönd og í pinna-
háum hælum svo fætur henni fái að
njóta sín
Poppstjarnan Whitney Houston
er þekkt fyrir skemmtilega sviðs-
framkomu á tónleikum og
skemmtistöðum, og því er spáð að
hún verði í essinu sínu þegar hún
leikur hina heimsfrægu Josephine
Baker, sem fékk viðurnefnið „Hin
svarta Venus“.
Það er breski kvikmyndastjórn-
andinn Hugh Hudson (sem stjórn-
aði m.a. „Chariots Of Fire“) sem
hefur yfirumsjón kvikmyndarinnar
um Josephine Baker.
Josephine var uppalin í mikilli
fátækt. Hún giftist aðeins 15 ára að
aldri, og hún var orðin dansmær í
Follies Bergéres í París 19 ára. Þar
var hún fræg þegar hún dansaði í
engu nema demants-skrýddum
bananaklasa! En frægðinni hélt
hún áratugum saman, hvort sem
hún kom fram skrautklædd eða
„Nú syng ég ástasöngvana beint tU kærastans, og kannski göngum við
bráðlega í það heiiaga,“ sagði Whitney, en kærastinn, Brad Johnson
veitingahúsaeigandi í New York, fékkst ekki tU að nefna neinar
giftingaráætlanir, „spyrjið bara Whitney,“ sagði hann
Brigitte Niels-
en í ítalska
sjónvarpinu
sem Josephine
Baker. En
Baker klæddist
ekki brjósta-
höldurum í sín-
um banana-
dansi
fáklædd.
Hin síðari ár vann Josephine
mikið að barnaverndarmálum og
tók til sfn fósturbörn af öllu mögu-
legu þjóðerni og ól upp í höll sinni
í Frakklandi. Til að afla fjár til
framfærslu hinum mörgu fóstur-
börnum kom hún fram og söng á
skemmtunum fram á síðustu æviár,
þó að heilsa hennar væri farin að
bila og aldurinn að hrjá hana.
Brad Johnson
Brigitte Nielsen hafði
ágimd á hlutverkinu
„Josephine Baker“
Sagt er að margar fleiri söngkon-
ur hafi haft áhuga á að fá að leika
Josephine Baker. Einkum er Brig-
itte Nielsen (fyrrum eiginkona Sly
Stallones) sögð hafa viljað fá hlut-
verkið. Hún kom t.d. fram í ítalska
sjónvarpinu nýlega í gervi sem átti
að sýna hana sem Josephine. Þar
var Brigitte með svarta hárkollu og
í smápilsi úr glitrandi tilbúnum
banönum. En Brigitte var með
brjóstahaldara, - en Josephine
Baker var „topplaus" í sínum ban-
anadansi í París forðum.
Robyn Crawford (t.h.) hefur fylgt Whitney í mörg ár og gekk orðrómur
um að þær væru „par“. Whitney segir það tómt kjaftæði, en segir að
Robyn sé vinkona sín frá bamæsku. „Hún er mér systirin sem ég aldrei
átti,“ sagði Whitney í blaðaviðtali
Whitney Houston vill leika
Josephine Baker í nýrri kvikmynd