Tíminn - 23.11.1988, Qupperneq 12

Tíminn - 23.11.1988, Qupperneq 12
12 Tíminn Miðvikudagur 23. nóvember FRÉTTAYFIRLIT VÍN - Olíumálaráöherra írans, Gholamreza Aqazadeh, sagöi aö OPEC ætti aö geta náð samkomulagi um takmörk- un pliuframleiöslu, en offram- leiösla olíu hefur snarlækkaö heimsmarkaðsverð. Það sem staðiö hefur í veginum að undanförnu hefur verið stífni írana og iraka í aö takmarka olíuframleiösluna. ISLAMABAD - Benazir Bhutto, leiðtogi stjórnarand- stöðunnar í Pakistan, og Naw- as Sharif, núverandi forsætis- ráðherra, hittu forseta landsins, Ghulam Ishaq Khan, aö máli í aær vegna tilrauna þeirra til að mynda ríkisstjórn, þó ekki meö hvort ööru. Benaz- ir stefnir aö því aö veröa fyrsta konan sem verðurforsætisráð- herra í ríki múslíma. JERÚSALEM - Utanríkis- ráöherra ísraels, Shimon Peres, sagði aö Verkamanna- flokkurinn sem hann er í for- sæti fyrir myndi slíta stjórnar- myndunarviðræöum við for- sætisráðherrann Yitzhak Shamir og Likudbandalag hans. LONDON - Elísabet Breta- drottning setti breska þingið í gær. Hún las stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar vinkonu sinnar, Margaret Thatcher, sam- kvæmt venju. í stefnuyfirlýs- ingunni er gert ráö fyrir að einkavæðing verði enn aukin í Bretlandi og að leynd sú er umlykur innanríkisöryggislög- regluna verði aflétt. MOSKVA - Byltingar- leiðtoginn rússneski, Leon Trotsky, átti son, Sergei Sedov. Hann var skotinn í Moskvu árið 1937 eftir að faðir hans hafði verið sekur fundinn um að hafa lagt á ráðin um að ; myrða Stalín. Þetta er rifjað upp þar sem Æðsta ráð Sov- étríkjanna hefur nú lýst þvf yfir að Sergei Sedov hafi verið allsendis saklaus af meinsæri gegn ríkinu,, en opinberlega hefur hann verið ærulaus síð- , an hann var skotinn. i jhaldsflokkurinn í Kanada, sem barist hefur fyrir fríverslunarsamn- ingi við Bandaríkin, sigraöi örugg- lega í þingkosningunum þar í landi í fyrradag og hélt öruggum meirihluta sínum í þingi. Því getur Brian Mul- roney formaður íhaldsflokksins áhyggjulaust lagt fríverslunarsamn- ing, sem Kanadamenn hafa nýlega gert við Bandaríkin, fyrir hið nýja þing til samþykktar. Mun hann því að líkindum taka gildi um næstu áramót eins og ráð var fyrir gert. Fríverslunarsamningurinn var aðalkosningamálið í Kanada, en Frjálslyndi flokkurinn undir stjórn John Turner hafði barist mjög gegn samningnum. Nýi Demókrataflokk- urinn undir stjórn Ed Broadbent lagðist einnig gegn fríverslunar- samningnum svo hann hefði ekki verið samþykktur ef þingmeirihluti íhaldsflokksins hefði fallið. Sigur íhaidsflokkursins, sem tryggði sér 40 sæta meirihluta, er sérstaklega sætur í ljósi þess að flokkurinn hefurekki náð meirihluta á þingi tvö kjörtímabil í röð síðan árið 1872 og einnig vegna þess að í síðasta mánuði sýndu skoðanakann- anir að þingmeirihluti myndi falla. íhaldsflokkurinn hlaut þó ekki nema 43% atkvæða, en það dugði til að ná 169 þingsætum. Frjálslyndi flokkurinn hlaut 32% atkvæða og 82 menn kjörna og Nýi Demókrata- flokkurinn hlaut 20% atkvæða og 44 þingmenn kjörna. Aðrir flokkar fengu samtals 5% atkvæða og engan mann kjörinn á kanadíska þingið. Talið er nokkuð víst að dagar John Turners í stjórnmálum séu taldir þar sem Frjálslyndi flokkurinn hefur tapað tveimur kosningum í röð undir hans stjórn. Hins vegar er árangur hans nú mun betri en í síðustu kosningum er flokkurinn beið algjört afhroð. Hafði Frjáls- lynda flokknum jafnvel verið spáð enn verra afhroði í kosningunum nú en síðast og að Nýir Demókratar yrðu annar stærsti fíokkur landsins. Svo fór þó ekki og má það eflaust þakka herferð John Turners gegn fríverslunarsamningnum við Banda- ríkin, en hann spilaði mjög á þjóð- ernistilfinningar Kanadamanna og sagði samninginn gera Kanada í raun að nýju fylki í Bandaríkjunum. Ronald Reagan og George Bush fögnuðu báðir þessum úrslitum þing- kosninganna í Kanada og líta eflaust öfundaraugum til flokksins, en eins og menn vita þá eru demókratar með öruggan meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings þrátt fyrir að repúblikaninn Bush sé í forseta- stól. Brian Mulroney, formaður kanadíska íhaldsflokksins, leiddi flokkinn til sigurs í þingkosningunum þar. Það þýðir að fríverslunarsamningur við Bandaríkin verður staðfestur. Arafat fær vegabréfsáritun til Bandaríkjanna. Suður-Afríkustjórn samþykkir friðaraætlun í Angolu og Namibiu: Sjálfstæði Nami- bíu endanlega staðfest Arafat fær áritun til Bandaríkjanna Yasser Arafat leiðtogi Frelsissam- taka Palestínu segist muni fá vega- bréfsáritun til Bandaríkjanna til að ávarpa Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í næsta mánuði. Arafat sagði í gær að Egyptar hefðu tjáð honum að Bandaríkjamenn myndu gefa sér vegabréfsáritun til að geta ávarpað Allsherjarþingið dagana 6. og 7. desember. Arafat er nú í Egyptalandi og hitti hann Mubarak forseta Egyptalands og aðra leiðtoga Egypta að máli á mánudag. Tilgangur fundahaldanna er að samræma friðartillögur PLO og Egypta í málefnum Mið-Austur- landa. ísraelar og gyðingar í Bandaríkj- unum hafa mjög lagst gegn því að Bandaríkjamenn gefi Arafat vega- bréfsáritun svo að hann geti ávarpað Allsherjarþingið. Eftir að Hæstirétt- ur Bandaríkjanna úrskurðaði að ekki væri stætt fyrir Bandaríkja- menn að vísa sendinefnd PLO við Sameinuðu þjóðirnar úr landi virðist Bandaríkjastjórn ekki telja sér fært að meina Arafat um vegabréfsárit- un. Ávarp Arafats hjá Sameinuðu þjóðunum verður merkilegt ef af verður því hann mun ávarpa þingið sem leiðtogi hins nýja Palestínuríkis sem Þjóðarráð Palestínumanna stofnað fyrir rúmri viku. Arafat skýrði frá því á fundinum í gær að fimmtíu og fjögur ríki hefðu viður- kennt Palestínuríkið. Sagði hann viðurkenningu Egypta einna mikil- vægasta þar sem Egyptar hefðu gert friðarsamkomulag við ísraela á sín- um tíma. ísraelar eru reyndar æfir út í Egypta vegna þessa og telja viður- kenninguna skýlaust brot á Camp David samkomulaginu. ísraelskar þotur og herþyrlur gerðu loftárásir á stöðvar Palestínu- manna í suðurhluta Líbanons í gær. Einn skæruliði Palestínumanna féll á árásunum og sjö særðust. Óttast er að fjórir aðrir hafi farist, en þeir eru grafnir í húsarústum. Hafa ísraels- menn því gert tuttugu og fjórum sinnum loftárásir á Líbanon á þessu ári. Það voru fjórar herþotur og þrjár Suður-Afríkustjórn tók sér hnetu- brjót í hönd f gær og braut þá hörðu hnetu sem brjóta þurfti til að sam- komulag næðist um friðaráætlun í Angólu og Namibíu. Utanríkisráð- herra Suður-Afríku Pik Botha lýsti því yfir að Pretoría hefði samþykkt áætlunina sem gerir meðal annars ráð fyrir að 50 kúbanskir hermenn hverfi frá Angólu. Angóla og Kúba hafa þegar samþykkt áætlunina. „Þetta þýðir að harða hnetan sem brjóta þurfti hefur verið brotin," sagði Pik Botha er hann tilkynnti ákvörðun Suður-Afríkustjórnar. „Stórt og gífurlega mikilvægt skref hefur verið stigið á langri göngu,“ bætti hann við. Samþykkt Pretoríustjórnarinnar ryður úr vegi síðustu hindruninni fyrir undirskrift friðarsamkomulags- ins og er nú gert ráð fyrir að herþyrlur sem réðust á tvær stöðvar skæruliða nærri flóttamannabúðun- um sunnan við hafnarborgina Sídon. Voru árásirnar gerðar á birgðastöð og svefnskála skæruliða hliðholla Arafat leiðtoga PLO við bæinn Ain al-Hilweh. ísraelsk hernaðaryfirvöld sögðu árásirnar vel heppnaðar og að þeim hefði verið beint gegn hryðjuverka- mönnum er ógnuðu öryggi ísraels. samningurinn verði undirritaður í Brazzaville í Zaire í næstu viku. Áætlunin gerir ráð fyrir brottflutn- ingi kúbanskra hermanna gegn því að Namibía hljóti sjálfstæði, en Suður-Afríkustjóm hefur haft þar stjórnvöl f hendi sér frá því Þjóðverj- ar urðu undir í fyrri heimsstyrjöld- inni. Þá var Namibía þýsk nýlenda. Gert er ráð fyrir að Namibía fái sjálfstæði á tímabilinu 1. febrúar til 1. apríl á næsta ári. „Það er enn mikið eftir að gera við að ræða endanlega útfærslu þessarar þróun- ar,“ sagði Botha í gær. Gert er ráð fyrir að friðargæslu- sveitir Sameinuðu þjóðanna muni fylgjast með framgangi friðaráætlun- arinnar og sjálfstæðis Namibíu, en ekki er ljóst hver muni fjármagna starf friðargæslusveitanna. Búast menn við að árásir ísraela á búðir Palestínumanna í Líbanon aukist enn þar sem nú hefur verið lýst yfir Palestínuríki á hernumdu svæðunum á vesturbakka Jórdan og Gaza. Síðast gerðu ísraelar loftárás á Líbanon 4. nóvember en þá fórst ungt barn. ísraelar halda uppteknum hætti: Loftárásir á Líbanon

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.