Tíminn - 23.11.1988, Qupperneq 16

Tíminn - 23.11.1988, Qupperneq 16
16 Tíminn Miðvikudagur 23. nóvember llllllllllllllllllllllllll DAGBÓK Ferðafélag íslands: KVÖLDVAKA I kvöld verður fyrsta kvöldvaka vetrar- ins í Sóknarsalnum, Skipholti 50a og hefst stundvíslega kl. 20.30. Efni kvöldvökunnar verður: Eftirtaka af kvikmynd sem Guðmundur frá Miðdal tók á árunum 1944-1954, að mestu leyti í Tindfjöilum. Myndin er þögul en Ari Trausti, sonur Guðmundar, skýrir það sem fyrir augu ber og svarar spurningum gesta. Hér er um að ræða áhugaverða hcimildarmynd um fjallaferðir og einstakt tækifæri að kynnast ferðamáta á þessum árum. Myndagetraun að lokinni dagskrá og verðíaun veitt fyrir réttar lausnir. Veiting- ar í hléi. Allir velkomnir. Ferðafélag fslands Amnesty gefur út jólakort íslandsdeild mannréttindasamtakanna Amnesty International hefur gefið út jólakort sem seld verða til styrktar sam- tökunum. Kortið prýðir mynd af steind- um glugga eftir Leif Breiðfjörð. Samtökin Amnesty International hafa nú starfað í 27 ár og hlotið margs konar viðurkenningu s.s. friðarverðlaun Nóbels árið 1977. Islensk deild í samtökunum hefur starfað sfðan 1974 og byggt vaxandi starfsemi sína á félagsgjöldum og frjálsum framlögum einstaklinga. Sala jólakorta hefur þó verið drýgsta tekjulindin undan- farin ár. Leitast hefur verið við að fá verk góðra íslenskra listamanna til að prýða kortin og er einnig svo að þessu sinni. Tekið er á móti pöntunum á skrifstofu samtakanna Hafnarstræti 15 kl. 16-18. Síminn er 16940. Hægt er að fá kortin send. KVENNAATHVARF Húsaskjól er opið allan sólarhringinn og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið fyrir nauðgun. Síminn er 21205 - opinn allan sólar- hringinn. BILALEIGA meö útibú allt í kringurri landiö, gera þér mögulegt aö leigja bíl á einum staö og skila honum á öörum. Reykjavík 91-31615/31815 Akureyri 96-21715/23515 Pöntum bíla erlendis interRent Bílaleiga Akureyrar Geðhjálp Út er komið 2. tbl. tímarits Geðhjálp- ar, samtaka fólks með geðræn vandamál. í blaðinu er að finna greinar eftir fjöl- marga aðila, leika sem lærða. Rósa Steinsdóttir skrifar um geðræn vandamál barna og myndmeðferð. Hope Knútsson gerir hlátrinum skil í skemmtilegri grein. Elín Ebba Ásmundsdóttir er með grein um gildi iðjuþjálfunar. Starfsemi Geð- hjálpar í vetur eru gerð skil. Gísli Ásgeirs- son og Matthías Kristiansen þýddu grein um misþroska börn. í grein Hugo Þóris- sonar er fjallað um samskipti foreldra og barna. Fransiska Gunnarsdóttir ræðir við Andrés Magnússon lækni um skammdeg- isþunglyndi. Ennfremur er farið nokkrum orðum um þá kosti sem starfsmenn á geðdeildum þurfa að vera gæddir. Á forsíðu blaðsins er mynd eftir Guð- mund S. Viðarsson, sem starfar sem stúdíóljósmyndari í Santa Barbara í Bandaríkjunum. Myndina nefnir hann „Úr fjötrum". FREYR Búnaðarblað Meðal efnis í Frey nr. 20 1988 ere: Samdráttur í sauðfjárrækt - hnignun dreifbýlis, sem er ritstjórnargrein. Viðtal við Bjarna Maronsson, bónda og oddvita í Ásgeirsbrekku í Viðvíkursveit: Skag- firðingar munu áfram gera sér glaðan dag. Þá er útdráttur úr skýrslu um störf Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. Ágústa Þorkelsdóttir á Refstað skrifar: Bænda- kvennasamtök? Ólafur Dýrmundsson skrifar um breytingar á kjötmati. Agnar Guðnason kynnir fyrirhugaðar bænda- ferðir sumarið 1989, og grein er um framleiðslustjórn eftir Björn S. Stefáns- son búnaðarhagfræðing. Ýmis skrif um refarækt og annan búskap. Búnaðarnám á krossgötum nefnist grein eftir Allyson Macdonald, kcnnslufræðing á Hólum í Hjaltadal. Heimilispósturinn 6.-9. tbl. 24. árg. Ritstjóri og ábyrgðarmaður tímaritsins „Heimilispósturinn" er Gísli Sigurbjörns- son, forstjóri Elli- og hjúkrunarheimilis- ins Grundar. í blaðinu að þessu sinni er fyrst hugleiðing ritstjóra: Hvað er fram- undan? Þá er birt ræða sem haldin var í kirkjusalnum á Grund á uppstigningar- dag, 12. maí 1988, en á uppstigningardag var í kirkjum landsins minnst aldraðs fólks og velferðarmála þess. Einnig eru þarna birtar ræður eftir sr. Pétur Ingjalds- son, fyrrv. prófast, sem hann flutti í Hveragerði eftir guðsþjónustu hjá Félagi fyrrv. sóknarpresta 24. júlí sl. ogpredik- un sem sr. Sisghvatur Karlsson, sóknar- prestur á Húsavík, flutti á Grund 7. ágúst sl. Þá er grein eftir Árna Helgason t' Stykkishólmi: Að lifa um efni fram. Sagt er frá 600. fundi fyrrv. sóknarpresta. Minningarorð eru um Hans Richard Hirschfeld, fyrrv. sendiherra, og sr. Helga Tryggvason. í blaðinu cr grein eftir PÞ: Af ellimálum í Þýskalandi. Einnig margar fréttir af félagsstarfi fólksins á Grund og Ási í Hveragerði, einnig eru nokkur.ljóð birt í þessu blaði og bókafregnir. Hallgrímskirkja Hallgrímskirkja er opin alla daga nema mánudaga kl. 10:00-18:00. Turninn er opinn á sama tíma. ABC - Blað fyrir hressa krakka 1 þessu hefti ABC eru sögur og viðtöl, þrautir, póstskassi, krossgátur, mynda- sögur, íþrótta- og poppþættir og margt fleira. I þættinum „Hvað viltu verða?“ er rætt við Þórdísi Zoéga sem vill verða innan- hússarkitekt. Þá er viðtal við hana Bellu í Töfraglugganum í sjónvarpinu og marg- ar myndir af henni, smásaga um hunda: Hvatur og Snati, eftir Þorstein Daníels- son, og Ragnheiður Davíðsdóttir segir frá „Ævintýraferð til Englands” með S.V.F.l. ogABC, en ferðina fengu 5 börn í verðlaun fyrir ritgerðir sem þau sendu inn I keppni. Myndirnar tók Ragnheiður einnig. Fuglar í mannheimum er fyrirsögn á grein eftir ritstjóra blaðsins, Hrafnhildi Valgarðsdóttur. „Eg var rosalega vatnshrædd," segir Ragnheiður Runólfsdóttir, sunddrottning í viðtali. Opnumyndin er af SYKURMOLUN- UM á ferð í Bandaríkjunum. Merete Holmsen oe Brit Ulseth SySTKKNI FATLAÐRA BARNH Systkini fatlaðra bama Út er komin ný bók á íslensku sem heitir „Systkini fatlaðra barna“. Hún fjallar um hugsanir og viðbrögð sem eiga fatlaðan bróður eða systur. Höfundarnir, Merete Holmsen og Brit Ulseth, styðjast við ýmsar heimildir sem hafa komið út um þetta efni. Þær eru fóstrur með sérkennslunám aða baki og hafa lengst af starfað með fötluðum börnum og fjölskyldum þeirra. Bókin er 120 síður og með mörgum myndum barnanna sem tóku þátt í athug- un höfundanna er þeir söfnuðu efni í bókina. Aftast í bókinni er bókalisti yfir flestar íslenskar bækur sem fjalla um málefni fatlaðra, tekinn saman af Kristínu Indriðadóttur bókasafnsfræðingi. Þýðendur bókarinnar eru Þórunn Guðmundsdóttir og Elmar Þórðarson. Hún er gefin út af Elmari í samráði við Landssamtökin Þroskahjálp. Fleiri aðilar styðja útgáfuna, m.a. Styrktarfélag lam- aðra og fatlaðra og Lionessur á Akranesi. Ásprent á Akureyri sá um prentun og bókband. Landssamtökin Þroskahjálp v/Nóatún 17 í Reykjavík sjá um dreifingu bókarinn- ar og er hægt að fá hana þar. Á Akureyri er hægt að snúa sér til prentsmiðjunnar Ásprenf v/Glerárgötu. Ferðafélag íslands: ÞÓRSMÖRK - aðventuferð Sérstök aðventuferð til Þórsmerkur verður helgina 25.-27. nóv. Gist í Skagfjörðsskála/Langadal, en þar er aðstaða fyrir ferðafólk sú besta sem gerist í óbyggðum. Stór setustofa fyrir kvöldvökur, stúkað svefnloft, tvö eldhús með nauðsynlegum áhöldum, miðstöðv- arhitun svo að inni er alltaf hlýtt og notalegt. Fararstjóri skipuleggur göngu- ferðir. Kvöldvaka og jólaglögg á laugar- dag. Fararstjóri: Kristján Sigurðsson. Brottför kl. 20.00 föstudag. Upplýsing- ar og farmiðasala á skrifstofu F.Í., öldu- götu 3. Ferðafélag íslands ÚTVARP/SJÓNVARP Rás I FM 92,4/93,5 Miðvikudagur 23. nóvember 6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Halldóra Þor- varðardóttir flytur. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið með Má Magnússyni. Frétta- yfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15.. Lesið úr forustugreinum dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30. Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00. 9.00 Fréttir. 9.03 Litli barnatíminn. „Vaskir vinir“ eftir Jennu Jensdóttur og Hreiðar Stefánsson. Þórunn Hjartardóttir les (3). (Einnig útvarpað um kvöldið kl. 20.00). 9.20 Morgunleikfimi. Umsjón: Halldóra Björns- dóttir. 9.30 íslenskur matur. Kynntar gamlar íslenskar mataruppskriftir sem safnað er í samvinnu við hlustendur og samstarfsnefnd um þessa söfnun. Sigrún Björnsdóttir sér um þáttinn. 9.40 Landpósturinn - Frá Vestfjörðum. Umsjón: Finnbogi Hermannsson. 10.00 Fréttir. Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Óskastundin. Helga Þ. Stephensen kynnir efni sem hlustendur hafa óskað eftir að heyra, bókarkafla, smásögur og Ijóð. Tekið er við óskum hlustenda á miðvikudögum milli kl. 17.00 og 18.00. 11.00 Fréttir. Tilkynningar. 11.05 Samhljómur. Umsjón: Bergþóra Jónsdóttir. 11.55 Dagskrá. 12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttír. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. 13.05 í dagsins önn - Börn og foreldrar. Þáttur um samskipti foreldra og barna og vikið að vexti, þroska og uppeldi. Félagsráðgjafarnir Nanna K. Sigurðardóttir og Sigrún Júlíusdóttir og sál- fræðingamir Einar Gylfi Jónsson og Wilhelm Norðfjörð svara spumingum hlustenda. Sím- svari opinn allan sólarhringinn, 91-693566. Umsjón: Lilja Guðmundsdóttir. (Einnig útvarpað miðvikudagskvöld kl. 21.00 að viku liðinni). 13.35 Miðdegissagan: „Örlög i Síberíuu eftir Rachel og Israel Rachlin. Jón Gunnlaugsson þýddi. Elísabet Brekkan les (8). 14.00 Fréttir. Tilkynningar. 14.05 Harmoníkuþáttur. Umsjón: Sigurður Al- fonsson. (Endurtekinn þáttur frá laugardags- kvöldi). 14.35 íslenskir einsöngvarar og kórar. Eirikur Stefánsson, Jóhanna G. Möller og Karlakórinn Geysir syngja. 15.00 Fréttir. 15.03 Vísindaþátturinn. Umsjón: Ari Trausti Guðmundsson. (Endurtekinn þáttur frá mánu- dagskvöldi). 15.45 Þingfréttir. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. M.a. kynnt bók vikunnar, „Arfur gula skuggans" eftir Henry Verner. Umsjón: Kristín Helgadóttir. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist á siðdeqi - Bach, Vivaldi og Scarlatti. 18.00 Fréttir. 18.03 A vettvangi. Umsjón: Bjarni Sigtryggsson, Guðrún Eyjólfsdóttir og Páll Heiðar Jónsson. Tónlist. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.33 Kviksjá. Þáttur um menningarmál. Umsjón: Friðrik Rafnsson og Halldóra Friðjónsdóttir. 20.00 Litli barnatíminn. (Endurtekinn frá morgni). 20.15 Nútímatónlist. Þorkell Sigurbjörnsson kynn- ir verk samtímatónskálda. 21.00 „Hugmyndin þótti út í bláinn“. Inga Rósa Þórðardottir ræðir við hljónin Mariettu Maisen og Pétur Behrens sem fást við myndlist og stunda hestamennsku á Höskuldsstöðum í Breiðdal. 21.30 Markaður möguleikanna. Umsjón: Einar Kristiánsson. (Áðurflutt í þáttaröðinni „I dagsins önn‘^7. þ.m.) 22.00 Fréttir. Dagskra morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.30 Samantekt um konur og stofnun og rekst- ur fyrirtækja. (Jmsjón: Guðrún S. Eyjólfsdóttir. (Einnig útvarpað daginn eftir kl. 15.03). 23.10 Djassþáttur. - Jón Múli Árnason. (Einnig útvarpað nk. þriðjudag kl. 14.05). 24.00 Fréttir. Næturútvarp á samtengdum rásum til morguns. 01.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút- varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30. 7.03 Morgunútvarpið. Dægurmálaútvarp með fréttayfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl. 8.00. Leifur Hauksson og Ólöf Rún Skúladóttir hefja daginn með hlustendum, spyrja tíðinda víða um land, tala við fólk í fréttum og fjalla um málefni líðandi stundar. Veðurfregnir kl. 8.15 og leiðarar dagblaðanna kl. 8.30. 9.03 Viðbit. - Þröstur Emilsson. (Frá Akureyri) 10.05 Morgunsyrpa. - Evu Ásrúnar Albertsdóttur og Óskars Páls Sveinssonar. 12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 í Undralandi með Lísu Páls. Sigurður Þór Salvarsson tekur við athugasemdum og ábend- ingum hlustenda laustfyrirkl. 13.00 í hlustenda- þjónustu Dægurmálaútvarpsins og í framhaldi af því spjallar Hafsteinn Hafliðason við hlust- endur um grænmeti og blómagróður. 14.00 Á milli mála. - Eva Ásrún Albertsdóttir og Óskar Páll Sveinsson. 16.03 Dagskrá. Stefán Jón Hafstein, Guðrún Gunnarsdóttir og Ævar Kjartansson bregða upp mynd af mannlífi til sjávar og sveita og því sem hæst ber heima og erlendis. Kaffispjall upp úr kl. 16.00, „orð í eyra" kl. 16.45 og dagsyfirlit kl. 18.30. Bréf af landsbyggðinni berst hlustendum á sjötta tímanum. 19.00 Kvöldfréttir. 19.33 íþróttarásin. Umsjón: íþróttafréttamenn og Georg Magnússon. 22.07 Á rólinu með önnu Björk Birgisdóttur. 01.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút- varpi til morguns. Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00, 10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00, 17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00. SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2 8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands. 18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands. SJÓNVARPIÐ Miðvikudagur 23. nóvember 16.30 Fræðsluvarp. (16). 1. Brasilía - Framfarir í þágu hverra? Fjórði þáttur. Myndaflokkur í fimm þáttum um líf og störf íbúa í Brasilíu. (20 mín.) 2. Kóngulær. í myndinni eru sýndar nokkrar tegundir kóngulóa og hvernig þær spinna vef sinn og veiða í hann (20 mín.) 3. Vökvakerfi. Þýsk mynd sem veitir nokkra innsýn í grunnatriði vökvakerfa. Kynnir Fræðsluvarps er Elísabet Siemsen. 18.00 Töfragluggi mýslu í Glaumbæ. Umsjón Árný Jóhannsdóttir. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Poppkorn. Umsjón Stefán Hilmarsson. 19.25 Föðurleifð Franks. (5). (Frank’s Place). Bandarískur gamanmyndaflokkur. Þýðandi Þor- steinn Þórhallsson. 19.50 Dagskrárkynning. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Allt í hers höndum (’Allo ’Allo) Þriðji þáttur. Breskur gamanmyndaflokkur. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 21.00Ungir norrænir einleikarar. Tónlistarhá- skólaráð Norðurlanda hefur frá árinu 1980 haldið tónlistarhátíðir í öllum höfuðborgum Norðurlanda þar sem fram koma ungir og efnilegir einleikarar. í október á þessu ári var haldin ein slík hátíð í Reykjavík. Sjónvarpið fylgdist með þátttakendunum þar sem þeir skoðuðu sig um á Islandi og einnig verður skotið inn svipmyndum frá tónleikum einleikaranna með Sinfóníuhljómsveit íslands. (Nordvision - Norrænu sjónvarpstöðvamar). 22.05 Lásbogaverkefnið (Operation Crossbow) Bandarísk bíómynd frá 1965. Leikstjóri Michael Anderson. Aðalhlutverk Sophia Loren, George Peppard, Trevor Howard og John Mills. Banda- rískur njósnari kemur sér fyrir í röðum nasista til að fá upplýsingar um vopnastyrk þeirra. Óvænt kemur aðili inn í hans líf sem virðist ógna öryggi hans. Þýðandi Páll Heiðar Jónsson. 23.00 Seinni fréttir. 23.10 Lásbogaverkefnið framhald 00.05 Dagskrárlok. Miðvikudagur 23. nóvember 15.50 Heima er best. How Green was my Valley. Margföld Óskarsverðlaunamynd eftir leikstjór- ann John Ford sem gerist í kolanámubæ í Wales. Aðalhlutverk: Walter Pidgeon, Maureen O’Hara og Roddy MacDowall. Leikstjóri: John Ford. Framleiðandi: Darryl F. Zanuck. Þýðandi: Ingunn Ingólfsdóttir. 20th Century Fox 1941. s/h. Sýningartími 115 mín. 17.45 Litli folinn og félagar. My Little Pony and Friends. Teiknimynd með íslensku tali. Leik- raddir: Guðrún Þórðardóttir, Júlíus Brjánsson og Saga Jónsdóttir. Þýðandi: Magnea Matthías- dóttir. Sunbow Productions. 18.10 Dægradvöl. ABC’s World Sportsman. Þáttaröð um frægt fólk með spennandi áhuga- mál. Þýðandi: Sævar Hilbertsson. ABC.__________ 18.10 Spænski fótboltinn. Sýnt frá leikjum spænsku 1. deildarinnar. 19.1919:19. Fréttir, veður, íþróttir, menning og listir, fréttaskýringar og umfjöllun. Allt í einum pakka. 20.45 Heil og sæl. Á ystu nöf. í þættinum verður fjallað um fíkniefnapláguna sem nú fer eins og eldur í sinu um allan hinn vestræna heim. öfugt við það sem margir álíta, eiga íslendingar nú í höggi við þetta vandamál í rikum mæli. Ef við höldum rétt á spilunum, má þó koma í veg fyrir að fíkniefnin verði að því almenna þjóðfélags- böli sem þau eru orðin víða í löndunum í kringum okkur. En erum við undir það búin að verja okkur þegar flóðbylgjan skellur á fyrir alvöru? IJm það verður fjallað í bættinum í kvöld. Umsjón: Salvör Norðdal. Handrit: Jón Ottar Ragnarsson. Dagskrárgerð: Sveinn Sveinsson. Framleiðandi: Plúsfilm. Stöð 2. 21.20Auður og undirferli. Gentlemen and pla- yers. Ný bresk þáttaröð í sjö hlutum. Þættirnir gerast í London og Portúgal og er tekið á hinum sígildu viðfangsefnum metorðagirnd, stétta- skiptingu, fé og frama. Myndin greinir frá samkeppni tveggja manna sem svífast einskis til aö klekkja hvor á öðrum. Ef völd og auður eru í veði víla þeir hvorki mannsmorð né ofbeldi fyrir sér. Mennirnir eru af ólíkum uppruna en eru drifnir áfram af þeirri áráttu að koma hvoröðrum fyrir kattarnef. Framhaldsmynd í 7 hlutum. 1. hluti. Aðalhlutverk: Brian Prothero, Nicholas Clay og Claire Oberman. Leikstjóm: Dennis Abey og William Brayne. Framleiðandi: Ray- mond Menmuir. TVS._____________________________ 22.15 Veröld - Sagan í sjónvarpi. The World - A Television History. Utþensla Evrópu 1250- 1500. ítalski landkönnuðurinn Markó Póló ferð- aðist til Asíu og flutti ný menningaráhrif til Evrópu og um tíma ríkti þar mikið blómaskeið. En um miðja 14. öld tók við hnianunarskeið þegar Svarti Dauði geisaði. Framleiðandi: Tayl- or Downing. Þýðandi: Páll Balavin Baldvinsson. Goldcrest. 22.45 Herskyldan Nam, Tour of Duty. Spennu- þáttaröð sem segir frá nokkrum ungum piltum í herþjónustu í Víetnam. Aðalhlutverk: Terence Knox, Stephen Caffrey, Joshua Maurer og Ramon Franco. Leikstjóri: Bill L. Norton. Fram- leiðandi: Ronald L. Schwary. Þýðandi: Snjólaug Bragadóttir. Zev Braun 1987. 23.35 í sporum Flints. Spennumynd í gamansöm- um dúr. Nokkrar konur, sem stunda fegrunarað- gerðir, fá þá hugmynd að ná heimsyfirráðum með því að breyta fólki í lifandi ertirmyndir helstu stjómarmanna heims. Flint, starfsmaður bandarísku leyniþjónustunnar, fær það verkefni að koma í veg fyrir að áætlanir þeirra nái fram að ganga. Aðalhlutverk: James Coburn, Lee J. Cobb og Jean Hall. Leikstjóri: Gordon Douglas. Framleioandi: Saul David. Þýðandi: Pétur S. Hilmarsson. 20th Century Fox 1967. Sýningar- tími 110 mín. 01.30 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.