Tíminn - 31.12.1988, Side 4

Tíminn - 31.12.1988, Side 4
4 Tíminn Laugardagur 31. desember 1988 INNLENDUR ANNALL Janúar Nýtt ár fór rólega af stað. Margir veltu því fyrir sér hvað það bæri í skauti sér, ogTíminn leitaði m.a. til spámannsins Júdasar, sem reynst hefur vel. Ekki kom allt fram er Júdas taldi sig sjá fyrir, en nefna skal nokkur atriði er rættust. Eitt besta laxveiðisumar sem menn muna var í sumar. Júdas spáði fyrir um endalok stjórnarsamstarfs- ins. Hann sá fyrir bankastjórastól Sverris Hermannssonar og sitthvað fleira. Lögreglurannsókn vegna flugeldaslysa undir þeim vonum sem þjóðin gerði sér. Hann lagði gamla manninn í reykjarkófi í úrslitaskák, í fram- lengdu einvígi. Mikill skákáhugi gerði vart við sig og allt sem tengdist taflmennsku seldist eins og heitar lummur. Um tíma voru töfl og sitthvað fleira uppselt. Ófreskjan Steingrímur Hermannsson, er gegndi starfi utanríkisráðherra, um þetta leyti, blés í herlúðra á Hótel Sögu á opnum fundi. t>ar gerði hann fjármagnsmarkaðinn að umtalsefni og sagði að hann væri orðinn líkastur ófreskju. Hár vaxta- og fjármagns- kostnaður almennt væri að sliga fjölmörg fyrirtæki. Eina leiðin til bjargar atvinnulífinu væri að koma böndum á fjármagnsmarkaðinn. Þagað á þingi Hreggviður Jónsson alþingismað- ur var nálægt því að komast t' heimsmetabók Guinness fyrir lengstu þögn á þingi sem vitað er um. Tíminn hafði samband við full- trúa Guinness og lentu menn þar í miklu basli mcð þögn þingmannsins. Þegar upp var staðið treystu þeir sér ekki til að staðsetja Hreggvið í einhvern einn málaflokk og féll mál- ið því um sjálft sig. Báturinn Hrafn Sveinbiarnarson III strandaði við Hópsnes hjá Grindavík. Mannbjörg varð. Tímamynd Pjetur Dómsmálaráðuneytið fól lögreglu að rannsaka slys er urðu á fintm mönnum, þegar nýju ári var heilsað með flugeldum. Þar af slösuðust þrír, þegar svokallaðar tívolíbomb- ur sprungu í andlit þeirra. Einn maður missti hægra augað og aðrir tveir slösuðust alvarlega. Enn alvarlegri slys urðu í janúar- mánuði. Þrír létust í umferðarslys- um og fjölmargir voru fluttir á slysadeild með alvarlega áverka. Tveir menn fórust, er Bergþór KE 5 sökk. Alls voru fimm á bátnum og komust þrír í björgunarbát og var bjargað. Watson handtekinn Sú frétt er vakti mesta athygli í janúar var koma Paul Watsons til íslands í tengslum við ráðstcfnu um Samtíningur Af öðrum fréttnæmum átburðum í janúarmánuði má nefna að forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, fór í opinbera heimsókn til Banda- ríkjanna og hitti m.a. Ronald Rea- gan Bandaríkjaforseta. Verðbólga í janúar mældist um 50% á ársgrundvelli. Tíminn greindi frá nýri i rannsókn- arstöð fyrir rannsóknir eyðniveir- unnar og fleiri áhættusamar rann- sóknir. Heilbrigðisráðherra, Guðmundur Bjarnason, réðst til atlögu gegn ropvatninu og í samvinnu við land- lækni og fleiri aðila innan heilbrigð- iskerfisins hvatti hann þjóðina til að drekka blávatn. Febrúar Febrúarntánuður er mikill frétta- mánuður, þegar Tímanum er flett. Slys og skák er það sem helst setti svip á mánuðinn. Heimsrisi lagður Einvígi Jóhanns og Kortsnojs í Kanada stóð sem hæst. Okkar mað- ur hafði betur þegar upp var staðið. Jafnt var eltir að sex skákum var Iokið. Reglur segja til um tvær skákir í framhaldseinvígi. Fyrri skákinni, en þar stýrði Jóhann hvítu mönnunum, lauk með jafntefli. Síð- asta skákin var æsispennandi. Jó- liann var með svart og féll gamli einvígisrefurinn á tíma. Pjóðin brosti út að eyrum og öll öldurhús fylltust. Jóhann kom heim 8. febrúar og var fagnað sem þjóðhetju fyrir að Itafa lagt heimsrisann Kortsnoj. Karpov sendi Jóhanni heillaóska- skeyti, en það er einmitt Karpov sem verður næsti andstæðingur Jóhanns. Snjóflóð og sprengingar Slysfarir tóku sinn toll í mannslíf- um í febrúar eins og flestum öðrum mánuðum ársins 1988. Sextán ára Paul Watson, forsprakki Sea Shepherd var handtekinn er hann kom til íslands. Hér sést hann á leið í Síðumúlafangelsið, þar sem honum var boðið upp á súran hval Og hrútspunga. Timamynd Gunnar skynsamíéga nýtingu sjávarsþen- dýra. Watson hafði stutta viðdvöl og mun líkast til ekki tclja þessa ís- landsför sína til afreka. Hann var handtekinn um leið og hann steig fæti á íslenska grund og var fluttur til yfirheyrslna í Auðbrekku í Kópa- vogi. Hann gisti síðan í Síðumúla- fangelsinu og var þar boðið upp á rammíslenskan þorramat, súrSáða hrútspunga og súran hval. Ekki fékk Tíminn upplýsingar um hvaða skil Watson gerði þessum íslensku kræs- ingum. íslensk stjórnvöld vísuðu Paul Watson úr landi sólarhring síðar og hefur lítið frést af kappan- um síðan. Björninn lagður Ein af þjóðhetjum okkar íslend- inga var í sviðsljósinu í janúarmán- uði. Jóhann Hjartarson stórmeistari í skák hélt utan til Kanada í ja'tiúar til að tefla einvígi við gamla refinn. Victor Kortsnoj. Þjóðin hafði vita- skuld mikinn áhuga á frammistöðu Jóhanns og pilturinn stóð fyllilega Jóhann Hjartarson kemur heim, eftir að hafa lagt heimsrisann. Jónína Ingvarsdóttir tók á móti eiginmanni síngm og Friðrik Ólafssyni, á Keflavíkurflugvelli. Tímamynd Pjetur Sigurbjörn Þorleifs- son bóndi í Langhúsum, skyttan er felldi bjarndýrið. Tímamynd ö.þ. gamall piltur lét lífið í snjóflóði úr Skarðstindum í lllagili austan Mors- árdals í Vatnajökli í byrjun febrúar. Fjórir fclagar piltsins áttu fótum fjör að launa, en pilturinn sem lést var aftastur göngumanna. Rúmlega fimmtugur ntaður lést í umferðarslysi á Breiðholtsbraut, er ekið var á hann á gangbraut. Öku- mann og farþega í bílnum sakaði ekki. Þá lést karlmaður í Ólafsvík. er hann var að vinna við logsuðu á olíutanki. Tankurinn sprakk í loft upp með fyrrgreindum afleiðingum. Harmleikur í Keflavík Þjóðin var agndofa yfir fréttum af harmleik er átti sér stað í Keflavík í febrúar. Tæplega þrítugur sjómaður banaði konu sinni með byssu og hringdi síðan í Iögreglu og tók eigið líf með sömu byssunni. Hjónin létu eftir sig tvö börn, fimm og tíu ára. Strönduð skip Tvö skip strönduðu í febrúar og varð mannbjörg í báðum tilfellum. Hrafn Sveinbjarnarson 111 strandaði rétt utan við innsiglinguna við Grindávík. Ellefu manna áhöfn var bjargað úr bátnum með þyrlu. Hrafn náðist af strandstað síðar í mánuðin- um. Ófeigur III VE 325 strandaði við innsiglinguna í Þorlákshöfn síðar í febrúar. Engan mann sakaði en báturinn barst langt upp í stórgrýtta fjöruna og var dæmdur gerónýtur. Við sjópróf í Eyjum kom fram að skekkja í radar ásamt ntannlegum mistökum væru orsakir slyssins. Isbjörn skotinn í Fljótum Hafísinn, hinn forni fjandi, var óvenju mikill í vetur sem leið og var Grímsey t.d. umgirt ís í febrúar. Óvæntur gestur gekk á land, en það var hálfstálpaður ísbjörn. Fljóta- menn brugðu skjótt við og skutu björninn. í framhaldi af því var gerður út leiðangur til að leita að fleiri dýrum í nágrenni við Siglu- fjörð. Fleiri dýrfundustekki. Miklar umræður spunnust í franthaldi af komu ísbjarnarins og sýndist sitt hverjum. Fljótamenn bentu á að þeir hefðu verið að verja sig og sína og bentu fólki á að öðruvísi hefði horft við ef dýrið hefði verið við bæjardyr þess. Hlutkesti í tannlæknadeild Sérkcnnilegt má! kom upp í tann- læknadeild HÍ. Eftir að farið hafði verið yfir prólurlausnir kom í ljós að þrír nemendur voru jafnir með sömu einkunnina. Einungis var rúm fyrir tvo í áframhaldandi námi og var brugðið á það ráð að láta hlutkesti ráða. Sá þriðji er féll á hlutkesti vildi ekki una þessum málalokum og fjallaði háskólaráð um málið. Niður- staðan var að allir nemendurnir skyldu komast í franthaldsnám og jafnframt að endurskoða bæri reglur er giltu um hlutkesti. Hjarta- og lungnaþeginn í febrúarmánuði varð Ijóst að fyrsti hjarta- og lungnaþeginn, Hall- dór Halldórsson, myndi ná sér full- komlega eftir aðgerðina. Hann losn- aði af gjörgæslu og var um mitt árið farinn að stunda knattspyrnu með félögum sínum í Kópavogi.; Hreindýrasýki? Tugir hreindýra fundust dauð á Austurlandi fyrstu vikur ársins 1988. Upp komu hugmyndir ’ um sýki í hreindýrastöfninum. Sýni voru tekin úr látnum dýrunt og sénþ. til rann- sóknar. A meðan velttF'menn því fyrir sér hvort um væri að ræða horfelli eða óvirka gerlá. Niðurstöð- ur leiddu í Ijós að ekki v*ar um sýkingu að ræða. Eysteinn rekinn Eysteinn Helgason, framkvæmda- stjóri Iceland Seafood Corp., fékk reisupassann í lok febrúar. Guðjón B. Ólafsson forstjóri Sambandsins tilkynnti þetta og var maður kominn í stað Eysteins samdægurs. Upphófst í tramhaldi af þessu mikið fjölmiðla- mál og voru ófá orð rituð og sögð í tengslum við uppsögnina.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.