Tíminn - 31.12.1988, Page 17
Laugardagur 31. desember 1988
Tíminn 17
INNLENDUR
ANNALL
Desember
Gengisfellingar-
samsæri
í upphafi desembermánaðar kom
fram óvenjuleg ásökum frá Guð-
mundi J. Guðmundssyni formanni
Verkamannsambandsins og Dags-
brúnar á hendur forsvarsmönnum
frystihúsanna. Guðmundur sagði að
forsvarsmenn Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna hygðust loka húsum
sínum gagngert í þeim tilgangi að
knýja ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar til þess að fella gengi
íslensku krónunnar. Sagði Guð-
mundur að hann vissi til þess að
Sölumiðstöðvarmenn hefðu viðrað
þessar hugmyndir sínar við SÍS
frystihúsin líka. Frystihúsamenn
höfnuðu þessum ásökunum fullum
hálsi og sögðust ekki skilja hvað
formanni Verkamannasambandsins
gengi til.
Við greindum frá fjórum
kengúrumergeymdareru í Sædýra-
safninu og hýrast þar við illan kost.
Dýraverndunarsamtök eru hneyksl-
uð á meðferðinni og munu brátt
aðhafast eitthvað í málinu.
Tímamynd Gunnar
starfsmannafélögunum, en það voru
starfsmannafélögin sem sáu um að
koma víninu út til starfsmanna og
lögðu á það í leiðinni og fyrir
hagnaðinn voru síðan fjármagnaðar
árshátíðar starfsmannafélaganna.
„Nautahakk"
Verðlagsstofnun gerði í mánuðin-
um könnun á samsetningu nauta-
hakks í verslunum og kom í ljós að
í sumum tilfellum var hakkið undar-
lega samansett bland af svína-,
kinda- og nautahakki og þessi blanda
drýgð með mjólkurdufti, sojadufti
og jafnvel hveiti.
Fimm bjórtegundir
Fjármálaráðherra kynnti reglu-
gerð um bjórinn sem byrja á að selja
þann 1. mars. Fimm tegundir verða
á boðstólum hjá útsölum ÁTVR,
þar af 2 íslenskar. Lcyfður styrkleiki
verður 2,26%-5,6% og bjórinn
verður seldur í 33 cl einingunt sex
saman í pakka.
Steingrímur
hitti Thatcher
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra fór erlendis snemma í
desember og hitti m.a. að máli
Margréti Thatcher forsætisráðherra
Bretlands. Steingrímur ræddi við
Thatcher um Rockall-málið og þótti
það marka tímamót í þeirri deilu að
forsætisráðherrar landanna ræddu
það í fyrsta sinn. Einnig ræddi
Steingrímur um tengsl íslands og
EBE. Samskipti íslands og EBE
voru einnig á dagskrá þegar Stein-
grímur hitti Wilfried Martens forsæt-
isráðherra Belgíu síðar í sömu viku
í Belgíu.
Frystitogarar sigla
Þau tíðindi voru sögð í Tímanum
samhliða fréttum af breyttum regl-
um LÍÚ við leyfisveitingar til sigl-
inga með ísfisk að frystitogarar
hefðu sótt um siglingaleyfi með
óunninn fisk. Þóttu þetta mikil við-
brigði því rekstur frystiskipa hafði
gengið vel á undanförnum árum en
markaðurinn fyrir sjófrystan fisk
virtist mettur í bili.
Tvær bokkur á mann!
Ný vídd í áfengismálinu svokall-
aða sem tröllreið fjölntiðlum í lok
nóvember kom fram þegar prentað
var að starfsmenn ráðuneyta fengju
tvær flöskur hver á „kostnaðar-
verði“. Þótti ýmsum að íslenskt
stjórnkerfi væri heldur betur gegn-
sósa orðið af brennivíni á kostnaðar-
verði og einhver helstu hlunnindi í
stjórnsýslu og dómskerfi landsins.
Þó var gráu bætt ofan á svart þegar
í Ijós kom að í ráðuneytum var
stunduð umfangsmikil vínsala af
eigubílstjórar kvíða desembermánuði. Jólaglögg er þá á boðstól-
um á mörgum vinnustöðum og hafa viðskiptavinir leigubílstjóra skilið eftir
sig ummerki í bílunum. Tímamynd Gunnar
Steingrímur Hermannsson hitti Margaret Thatcher á skrif
stofu hennar í Downingstræti 10. Jólatréð var komið upp hjá „Járnfrúnni" og
greinilega fór vel á með forsætisráðherrunum.
Lögreglan í svelti
Lögreglufélag Reykjavíkur kynnti
fyrir fjölmiðlum svarta skýrslu um
ástand í löggæslumálum á höfuð-
borgarsvæðinu. Sögðu forsvarsmenn
Lögreglufélagsins að lögreglan gæti
ekki sinnt ýmsum grundvallarskyld-
um sínunt, s.s. að annast reglubund-
ið eftirlit. Bílaflotinn og tækjabún-
aður væri úr sér genginn og mannafl-
inn væri sá sami og 1944 þrátt fyrir
umfangsmiklar þjóðfélagsbreyting-
ar. Lögreglustjóri brást við skýrsl-
unni með því að lýsa sig andvígan
þeirri aðferð að fara með innan-
hússmál lögreglunnar beint í fjöl-
miðla og kvaðst sannfærður unt að
mörg þeirra hefði mátt leysa ef
menn hefðu sest niður og rætt málin.
því þegar þeir fluttu full jólaglögg.
farþega sem ældu í bílana þeirr
rauðleitu gumsi með rúsínum o
hnetum. Þótti það ekki skemmtileg
vcrk að þrífa hálfmelta glöggina ú
bflunum.
Kengúrur!
Rétt fyrir jólin greindi Tíminn frt
því að fjórar kengúrur væru enn >
Sædýrasafninu í Hafnarfirði, þrátt
fyrir að forsvarsmenn safnsins hefðu
sagt dýraverndunarsamtökunum ao
öll dýr væri búið að flytja burt
Ástand kengúranna var heldut
nöturlegt og litu dýraverndunar-
samtökin málið mjög ‘alvarlegum
augum.
Ælt í leigubíla
Þegar nær dró jólum fóru af stað
hinar hefðbundnu veislur þar sem
boðið er upp á jólaglögg. Eitthvað
virðast íslendingar sumir hverjir eiga
erfitt með að tileinka sér þennan
sænska sið og drukkið of mikla
glögg. Leigubílstjórar lentu illilega í
Tveir létust
í desember var talsvert um slys
bæði í umferðinni og annars staðar
Ungur maður lést þegar bifreið sem
hann var farþegi í fór fram al
bryggju í Hafnarfirði. Þá lést lítií
telpa af völdum áverka sem hún
hlaut þegar bíll ók á hana í Skeiðar-
vogi í Reykjavík.
Óskum viðskiptavinum okkar
farsældar á
nýja árinu
Þökkum ánægjuleg
viðskipti á liðnum árum
NISSAN
Mingvar helgason hf
,_ _| Sýmngarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560
/JLw áJ
^ V—' a w ® ' C 0 »•? *' ' |