Tíminn - 04.03.1989, Side 2
2 Tíminn
Laugardagur 4. mars 1989
Stjórnarnefnd Alþjóða vinnumálastofnunarinnar telur að nauðsyn hafi borið til
setningar bráðabirgðalaganna sl. vor og ekki brotið á launþegum. Ásmundur Stefánsson:
„Urskurðurinn veldur
nokknim vonbrigðum"
Stjórnarnefnd Alþjóða vinnumálastofnunarinn-
ar hefur að nokkru hafnað því að ríkisstjórnin hafi
brotið á iaunþegum ákvæði um félagafrelsi og
frjálsa samninga með setningu bráðabirgðalaganna
þann 20. maí 1988.
í úrskurði nefndarinnar segir að
sjáanlegt sé að lögin hafi takmarkað
rétt aðila vinnumarkaðarins til
frjálsra kjarasamninga og að
áhyggjuefni sé að með lögunum hafi
í níunda skiptið á tíu árum verið
höfð afskipti af þessum málum með
slíkum hætti á íslandi.
Hins vegar hafi á heildina litið
borið brýna þjóðarnauðsyn til að
setja slíkar hömlur að þessu sinni og
þær aðeins settar að því marki sem
nauðsynlegt var. Jafnframt þeim
hefðu verið gerðar viðunandi ráð-
stafanir til að tryggja lífskjör launa-
fólks.
Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ
sagði að það væru vonbrigði að
ríkisstjórnin skuli ekki vera harðar
fordæmd í úrskurði nefndarinnar en
raunin er.
Ásmundur fullyrti að fyrir því
væru einkum tvær ástæður: Ríkis-
stjórnin hefði gefiö misvísandi eða
beinlínis rangar upplýsingar um
stöðu mála í greinargerð sinni til
nefndarinnar. 1 öðru lagi væri þetta
í fyrsta sinn sem íslenska ríkisstjórn-
in hefði verið kærð fyrir Alþjóða
vinnumálastofnuninni. Hún hefði
þannig haft hreinan skjöld fyrir og
slíkt haft áhrif á þá sem um málið
fjölluðu.
Ásmundur sagði að þó væri mjög
eindregið af hálfu nefndarinnar tek-
ið undir mál ASÍ. Nefndin teldi að
bráðabirgðalögin takmörkuðu mjög
rétt til frjálsra samninga og að ís-
lensk stjórnvöld hefðu of ríka til-
hneigingu til slíkra afskipta.
Þá léti nefndin skýrt í Ijósi að
endurtekin beiting laga til að breyta
gildandi kjarasamningum græfi und-
an tiltrú launþega á gildi aðildar að
verkalýðsfélögum.
„Ég met þetta sem mjög alvarlega
viðvörun til ríkisstjórnarinnar og
sem staðfestingu á meginefni í okkar
kæru og það liggur fyrir að fengnu
þessu áliti að ríkisstjórnin hefur ekki
lengur hreinan skjöld," sagði Ás-
mundur.
Ásmundur sagði að málinu væri
síður en svo lokið þótt stjórnar-
nefndin heföi fjallað um það. Hún
hefði vísað málinu til sérfræðinga-
Ásmundur Stefánsson á blaðamannafundi í gær. Tímamynd: Ární Bjarna
nefndar um framkvæmd samþykkta
og tillagna og þar yrði það áfram til
umfjöllunar og gæti því hæglega
komið til umræðu á þingi Alþjóða
vinnumálastofnunarinnar á sumri
komanda. -sá
Sérfræðingar Pósts og síma rannsökuðu
símtæki Magnúsar Guðmundssooar
fréttamanns í gærkvöldi:
Engin merki
um hlerun á
símalínunni
Sérfræðingar Pósts og síma
könnuðu gaumgæfilega alla síma-
lögn í húsnæði ísfilm að Lauga-
vegi 26 í gærdag. Tilefnið var
rökstuddur grunur um símhleran-
ir hjá Magnúsi Guðmundssyni
fréttamanni er nú vinnur við gerð
heimildarmyndar, þar sem flett
er ofan af óprúttnum starfsað-
ferðum Greenpeace samtakanna.
Sérstakur hlerunarskynjari
sem Magnús hafði komið upp við
síma sinn gaf merki um hlerun.
Ekkert fannst við rannsókn
sérfræðinga Pósts og síma, sem
getur bent til hlerunar á línunni.
Hinsvegar vekur það athygli
að áður en gengið var úr skugga
um hvort línan væri hleruð,
hringdi einn starfsmaður PogS í
síma Magnúsar og tilkynnti um
að kanna ætti hvort línan væri
hleruð. Pví virðist sem einkcnni-
lega hafi verið að málinu staðið.
Skömmu eftir upphringingu frá
Pósti og síma gaf hlerunarskynj-
ari Magnúsar til kynna að línan
væri orðin hrein. Hvað gerst
hefur vitum við ekki, en niður-
stöður rannsókna Pósts og síma
urðu þær að ekki fundust nokkur
merki um hlerun.
Þess skal getið að Tíminn gerði
yfirmönnum Pósts og sfma grein
fyrir því að í fyrrakvöld var
ákveðið að prenta fréttina um
grun um hlerun. Við gerðum
þeim grein fyrir því svo hægt væri
að kanna línuna'áður en blaðið
kæmi á götuna og uppvíst yrði
um rannsóknir sérfræðinga Pósts
og síma. -ES
Ihundert Miliionen'joí?118* ““ dre‘-
I ^ottkaínpaS^ en- aber dre
I schon Exporteíí!!." haben
1 den gekostet.“ MdIiar-
Imcht iœendwer r. . •UJlnarson bt
I fí, k'nf| d*n Wirt-
I RnyJyavdp der bei der rvítu'*" von
I znng oder AusrtW^T Forts«-
ySÍBS&^n^nvvun
• Walfang wir(J eingest{
•.'ysýgsgaa
^dukte g**
„Die Welt" túlkar orö Árna Gunnarssonar formanns „Viðskipta-
nefndar" Alþingis sem uppgjöf íslenskrastjórnvalda í hvalamálinu:
Arni er ekki
hver sem er
Málflutningur Árna Gunnars-
sonar alþingismanns í hvalamálinu
er túlkaður, í þýskum fjölmiðlum,
þannig að íslendingar hafi látið
undan þrýstingi grænfriðunga og
muni hætta hvalveiðum innan
tíðar. Orð hans eru sögð gera það
að vissu sem talið hefði verið
óhugsandi fyrir fáum mánuðum,
að ríkisstjórn fslands muni. láta
undan.
Frá þessu er sagt í blaðinu „Die
Welt“, sem gefið cr út í Bonn í
V-Þýskalandi. Orðrétt segir: „ís-
lenski þingmaðurinn Árni Gunn-
arsson setur upp einfalt reiknings-
dæmi: Útflutningur á hvalkjöti til
Japans færir okkur 300 milljónir
króna, en viðskiptastríðið sem háð
er gegn okkur hefur aítur á móti
kostað okkur 3 milljarða í sölutapi
á útflutningsafuröum. Og Árni
Gunnarsson er ekki hver sent er,
því hann er formaður Viðskipta-
nefndar Alþingis sem tekur lok-
aákvörðum um áframhald eða
stöðvun veiðanna".
Ekki verður af þessu séð að
heimildaöflun „Die Welt" sé ncitt
sérstaklega vönduð. Viðskipta-
nefnd Alþingis er ekki til. en Arni
Gunnarsson alþingismaður er
varaformaður Fjárhags- og við-
skiptanefndar neðri deildar
þingsins, en henni stýrir Páll Pét-
ursson. Fjárhags- og viðskipta-
nefnd hefur ekkert að gera með
ákvörðum um stöðvun hvalveiða
eða ekki.
-ág
Ólafur Ragnar kynnir stefnu samninganefndar ríkisins:
Mjúk langtímamál í
öndvegi samninga
Ólafur Ragnar Grímsson, fjár-
málaráðherra, kynnti í gær efnis-
atriði þau sem samninganefnd ríkis-
ins leggur áherslu á í komandi kjara-
samningum. Beinar kauphækkanir
verða ekki til viðræðu fyrst um sinn
og að svo stöddu virðist fjármálaráð-
herra ekki tilbúinn til annars en
verja þann kaupmátt sem nú er.
Fyrir utan þær áherslur að fækka og
staðla starfsheiti og fækka launatöfl-
um, leggur fjármálaráðuneytið
áherslu á ýmis mjúk mál á sviði
dagvistunar barna og þroskavæn-
legri stefnu í beinum kjarasamning-
um. Einnig er greinilega lögð mikil
áhersla á jafnréttismál og sérstakar
athuganir á högum kvenna.
Þessar áherslur þurfa reyndar ekki
að koma á óvart þar sem aðeins þrír
karlmcnn eru í samninganefnd ríkis-
ins að þessu sinni, en níu konur.
Að sögn Ólafs Ragnars Grímsson-
ar verða það einkum tvö mál sem
lögð verður höfuð áhersla á í þessum
samningum af hálfu fjármálaráðu-
neytisins. Hið fyrra er að samninga-
nefndin horfir á það markmið að
verja þann kaupmátt sem nú gildir
fyrir fyrsta ársfjórðung þessa árs.
Hann er m.ö.o. ekki tilbúinn að i
koma til móts við kröfu verkalýðsfé-
laga um að náð verði aftur þeim I
kaupmætti sem tókst að semja um í
síðustu kjarasamningum.
Annað megin tilboð Úlafs gengur
út á það að verja kjör hinna lægst
launuðu. Á sérstökum blaðamanna-
fundi sem hann hélt í gær var hann
hins vegar ekki viss um hvar draga
ætti línuna milli almennra launþega
og þeirra sem teljast mættu til hinna
lægst launuðu.
Hið þriðja sem Ólafur vartilbúinn
að leggja fram var tillaga um að bæði
yrði samið til lengri tíma og til
skemmri tíma. Stefnt yrði því að því
að skipta samningum.
Auk þess gerði hann grein fyrir
því að reynt yrði að hafa hliðsjón af
væntanlegum viðræðum ríkisstjórn-
arinnar við aðildarfélög ASf og
BSRB og fleiri samtök launafólks.
Af málfari samninganefndarinnar
er greinilegt að margt er tekið inn í
viðræðurnar um Iaunamál og gerð
kjarasamninga, sem ræða þarf ítar-
lega og er Ijóst að það getur tafið alla
gerð aðalkjarasamninga. Það er
mjög ólíkt þeim sjónarmiðum helstu
samtaka launafólks um að hraða
beri gerð skammtímasamninga til að
bæta launafólki sem fyrst upp þá
miklu launafrystingu sem ríkt hefur
nærfellt í hálft ár.
KB
fslenska hljómsveitin
Á morgun heldur íslenska
hljómsveitin kammertónleika í
Gerðubergi, og hefjast þeir klukk-
an fjögur.
Kammertónleikarnir eru liður í
röð tónleika sem Samtök tónlist-
armanna um íslensku hljómsveit-
ina standa fyrir. Þeir verða allir
haldnir í Gerðubergi fyrsta sunnu-
dag hvcrs mánaðar frá og með
febrúar til desember.
Tónleikarnir verða ýmist söng-,
kammer- eða hljómsveitartónleik-
Sigurður I. Snorrason klarinettu-
leikari og Anna Guðný Guð-
mundsdóttir píanóleikari koma
fram á kammertónleikum íslensku
hljómsveitarinnar á morgun.
ar. Að þessu sinni verða Sigurður
I. Snorrason klarinettuleikari og
Anna Guðný Guðmundsdóttir pí-
anóleikari einleikarar með hljóm-
sveitinni. jkb