Tíminn - 04.03.1989, Qupperneq 4
4 Tíminn
LáUgardágur 4' márs 1'989
Vínveitingaleyfiö var aðeins annars stigs en ekki þriöja stigs:
Krókurinn enn
dansleyfislaus
„Það er ekkert sem ég get gert annað en bíða eftir úrslitum
en sem stendur hef ég aðeins leyfi til almennra vínveitinga
með mat að kvöldi til, eða til kl. 23 að kvöldi. Þetta hefur
verið löng bið og ég hef verið að reyna að ýta á eftir því að
fá fullt leyfi til þess einfaldlega að geta lifað af,“ sagði
Sigurður J. Sigurðsson veitingamaður í Veitingahúsinu Króki
að Nýbýlavegi 26 í Kópavogi.
Veitingahúsið Krókur hét áður aðstöðu fyrirdansogdanshljómsveit
Lamh og fiskur og enn áður Ritan. og er ætlunin að reka það sem slíkt
Það er fullbúið veitingahús með og sagði Sigurður að ef leyfi fengist
Athugasemd frá
Jens P. Kristinssyni
Vegna greinar Gunnars Oddsson-
ar frá Flatatungu sem birtist í Tíman-
um miðvikudaginn 1. mars 1989 vil
ég taka eftirfarandi fram.
Ég er ánægður með að fá loks
viðbrögð við grein minni í Hlyn sem
kom út nú fyrir jólin því ég var
farinn að halda að enginn hefði lesið
hana.
Ég ætla ekki að skrifa svargrein í
Tímann heldur vísa ég til greinar
minnar, enda er grein Gunnars svar-
grein. Þó má ég til að leiðrétta tvær
villur sem koma fram í greininni.
Fyrri villan. Ég er Kristinsson en
ekki Kristjánsson.
Seinni villan. Unt vanda Sam-
bandsins sagði ég „Vandi Sambands-
ins er margslunginn. Hann verður
ekki leystur á einfaldan hátt. Vand-
inn felst m.a. í uppbyggingu fyrir-
tækisins (innsk. skipulagi) og erfiðri
eiginfjáröflun“.
Gunnar leggur aftur á móti tölu-
vert uppúr því að ég telji eiginfjár-
stöðu Sambandsins slæma, ég minn-
ist ekki á það.
Samvinnukveðja,
Jens P. Krisfinsson,
Búvörudeild Sainbandsins.
ekki til þess, þá væri rekstrargrund-
völlur hússins enginn.
Þegar Sigurður tók við rekstrinum
skildist honum að fullt vínveitinga-
leyfi fylgdi húsinu og rak hann það
því eins og hvert annað “dansveit-
ingahús" á gamla leyfinu þar til
fógeti benti honum á gildissvið
leyfisins í desember sl.
Ásgeir Pétursson bæjarfógeti í
Kópavogi sagði að í raun væri um
þrenns konar vínveitingaleyfi að
ræða. Fyrsta stigið væri leyfi til að
veita létt vín með mat, annað stigið
væri auk borðvínanna leyfi til að
reiða fram fordrykki og eftirdrykki,
svo sem koníak með kaffinu. Þessi
leyfi giltu til kl. 23 að kvöldi.
Þriðja stigið væri síðan svokallað
fullt leyfi, en í því felst að auk
ofannefnds má hafa opinn bar til kl.
23.30 og til 02.30 um helgar.
Siguröur sótti um fullt leyfi strax í
desember og hefur það síðan farið
rétta boðleið gegnum kerfið og var
tekið fyrir á fundi bæjarstjórnar í
fyrrakvöld og fékk jákvæða umfjöll-
un.
Heilbrigðisyfirvöld hafa tekið
staðinn út og telja hann fullnægja
öllum kröfum sem gerðar eru til
dansstaða og er aðeins beðið um-
sagnar áfengisvarnanefndar Kópa-
vogs áður en leyfið verður gefið út.
Þess má því vænta innan tíðar að
Kópavogsbúar geti etið, drukkið og
dansað á heimavelli. -sá
Verðbætur á húsaleigu hækka næst l.apríl:
Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra afhenti Þórarni
Tyrfingssyni form. SÁÁ 10 milljón kr. ávísun á fimmtudag við
sjúkrastöðina Vog. Um er að ræða 2/3 hluta af framlagi
ríkisins til SÁÁ, en Jón Baldvin ákvað á sínum tíma að SÁÁ
skyldi styrkt með 15 milljóna framlagi í fjögur ár.
Tímamynd Ámi Bjarna
Húsaleiga hækkar
ekki núna 1. mars
Húsaleiga sem tekið hefur mið af
hækkunum á húsaleiguvísitölu, öðru
nafni verðbótahækkun húsaleigu,
hækkar ekki fyrsta mars eins og
sumir hafa haldið. Þetta stafar af því
að þessi verðbótahækkun er aðeins
reiknuð út fjórum sinnum á ári, eða
1. apríl, 1. júlí, 1. október og 1.
janúar. Síðast hækkaði þessi vísitala
í júlí á síðasta ári, en hækkanir sem
taka áttu gildi í október og janúar sl.
komu ekki til framkvæmda vegna
verðstöðvunar.
Að sögn Auðar Svavarsdóttur,
hjá Hagstofu íslands, verður þessi
vísitala næst reiknuð út fyrir fyrsta
apríl. Ekki sagðist Auður vilja spá
fyrir um hversu mikil hækkunin
yrði, en benti á að vísitalan tekur
mið af meðaltali launa næstu þrjá
mánuði á undan.
Miðað við þá staðreynd að laun
hafa ekki hækkað síðustu tvo mán-
uði umfram þá 1,25% hækkun sem
lögbundin var 15. febrúar sl., er
varla hægt að búast við nema fárra
prósenta hækkun um næstu mánað-
armót, eða frá einu og hálfu til
þriggja prósenta hækkun. KB
Munur á greiðslum af lánum Húsnæðisstofnunar og af húsbréfum:
MED 7% VOXTUM VERDA
GREIÐSLUR 79% HÆRRI
Miðað við þá 7% vexti af húsbréfum, sem menn ræða hvað
mest um þessar mundir, munu greiðslur af slíkum lánum
verða 145% hærri fyrstu tvö árin lieldur en af núverandi
lánum Byggingarsjóðs ríkisins og síðan 79% hærri næstu 23
árin. Þar af hækkar árleg greiðslubyrði um 26,5% vegna
styttri lánstíma, en síðan um 41,5% vegna tvöfalt hærri vaxta.
Húsbréfalán greiða menn hins vegar upp á 25 árum í stað 40
ára greiðslutíma í núgildandi lánakcrfi.
...munu hugsa sig
um tvisvar...
Lánin (húsbréf) verða dýr og ekki
spurning að fólk mun hugsa sig um
tvisvar ef það þarf að borga t.d. 8%
vexti, sagði Pétur Blöndal m.a. í
samtali við Tímann. Og víst er að
væntanlegir íbúðakaupendur sem
reiknað hafa út áætlaða greiðslu-
byrði sína eftir núverandi greiðslu-
kjörum Húsnæðisstofnunar mega
setjast við og reikna dæmið upp á
nýtt ef húsbréfakerfið tekur við af
núverandi lánakerfi.
Til að skýra hvað þetta þýðir í
krónum sýnist ágætt að taka 2,3
milljóna króna lán (núverandi há-
markslán til kaupa á notuðu húsn-
æði) til viðmiðunar.
Miðað við núverandi lánakjör
(3,5% vextir) þyrfti lántaki einungis
að greiða um 80.500 krónur á ári
(6.710 kr. á mánuði) í vexti, en
engar afborganir, fyrstu tvö árin.
Eftir það væru afborganir og vextir
110.360 kr. á ári (9.200 kr. á mán.)
næstu 38 árin.
Stytting lánstíma
=26% hækkun
Af sömu lánsupphæð í húsbréfa-
kerfi (2,3 millj.) og nteð sömu
vöxtum, en til 25 í stað 40 ára væri
föst ársgreiðsla frá upphafi 135.550
kr. (11.630 kr. á mán.). Árleg
greiðslubyrði þyngist því um 26,5%
einungis vegna styttingar lánstím-
ans.
í töflunni hér að neðan eru sýndar
fastar árlegar (og mánaðarlegar)
greiðslur af 2,3 milljóna króna láni
Húsnæðisstofnunará 3.-40. greiðslu-
ári miðað við núverandi vexti - og
hins vegar fastar árlegar greiðslur af
25 ára lánum í húsbréfakerfi, miðað
við mismunandi vaxtaprósentu:
GREIÐSLUBYRÐI AF
2,3 MILLJ. KR. LÁNI
Lánst. Vext. Áári: (Ámán.)
ár: % kr.: kr.:
G-lán f. 2ár 3,3% 80.500 ( 6.710)
G-lán 38 ár 3,5% 110.360 ( 9.200)
Húsbréf 25 ár 3,5% 139.550 (11.630)
Húsbréf 5% 169.190 (13.600)
Húsbréf — 7% 197.360 (16.450)
Húsbréf — 8% 215.460 (17.960)
Fari húsbréfavextir í 8% er
greiðslubyrðin orðin nær tvöfalt
hærri heldur en af núverandi lánum
Húsnæðisstofnunar - með öðrum
orðum, að upphæð sem dugir til að
borga af 2.300 þús. króna láni frá
Byggingarsjóði ríkisins nægir aðeins
til greiðslu af 1.180 þús. króna
húsbréfaláni með 8% vöxtúm, eða
1.286 þús. króna láni með 7%
vöxtum, eins og nú er hvað mest
spáð.
43.000 kr. greiðslur
á mán. í 25 ár
Benda má á að í húsbréfakerfi
verður núverandi „skömmtun" lána
hætt, nema hvað hámarkslán sem
ríkið ábyrgist er áætlað 5,5 milijónir.
En þá verða menn líka að hafa
sæmilegar tekjur. Miðað við 7%
vexti verður föst ársgreiðsla af því
láni um 472 þús. krónur og miðað
við 8% vexti rúmar 515 þús. krónur
á ári, eða tæpar 43.000 krónur á
hverjum mánuði næstu 25 árin -
nema menn borgi meira og greiði
lánin upp fyrr, sem öllum verður
heimilt.
... auk verðbóta
Allar framangreindar tölur og
greiðslur eru miðaðar við núverandi
verðlag. Allar greiðslur munu því
hækka sem nemur verðbótum
(hækkun vísitölu) frá þeim mánuði
sem lánið er tekið til hvers greiðslu-
dags.
Sömuleiðis skal bent á að miðað
er við að lán húsbréfakerfis verði
jafngreiðslulán eins og núverandi
lán húsnæðisstofnunar. Það þýðir að
föst greiðsla afborgana og vaxta er
samtals sú sama allan lánstímann,
en hlutföllin breytast innbyrðis.
Væri hins vegar um jafnar afborganir
að ræða yrði greiðsla af 2,3 milljón-
um með 8% vöxtum 276 þús. krónur
á fyrsta ári, en lækkaði síðan árlega
niður í tæplega 100 þús.kr. (auk
verðbóta) á 25. ári.
Húsnæðisbætur/
vaxtabætur
Sá sem nú er að fá 2,3 milljóna
króna lán frá Húsnæðisstofnun til
kaupa á sinni fyrstu íbúð þarf ein-
ungis að greiða af því 80.500 kr. í
vexti (auk verðbóta) fyrstu tvö árin
en eftir það bætast afborganir við.
Væri um einstakling að ræða ætti
hann rétt á u.þ.b. 50.000 kr. hús-
næðisbótum á ári næstu 6 árin, en
tvöfaldri þeirri upphæð ef um hjón
væri að ræða.
í húsbréfakerfinu er áætlað að
tekju- og eignatengdar vaxtabætur,
að hámarki 95 þús. til einstaklings
en 155 þús. til hjóna, komi í stað
húsnæðisbótanna. Vaxtabótaréttur-
inn getur aftur á móti varað svo lengi
sem þær þurrkast ekki út vegna
tekna eða eigna.
Miðað við 7% væru vextirnir af
2,3 millj. kr. láni um 161 þús. krónur
(tvöfalt hærri en núgildandi vextir).
Miðað við þá vaxtagreiðslu á ári, en
mismunandi samanlagðar árstekjur
hjóna væru vaxtabætur á ári eins
sem hér segir:
VAXTABÆTUR
Tekjur: Vextirári: Vaxtabætur:
1.200þús. 161.000 kr. 101.000 kr.
1.800þús. 161.000 kr. 71.000 kr.
2.400 þús. 161.000 kr. 41.000 kr.
3.000 þús. 161.000 kr. 11.000 kr.
Þar sem hér er miðað við kaup
fyrstu íbúðar er hér aðeins gert ráð
fyrir skerðingu vaxtabóta vegna
tekna, en ekki vegna eigna umfram
viðmiðunarmörk. - HEI