Tíminn - 04.03.1989, Blaðsíða 15
r* n n »-
1*10
Laugardagur 4. mars 1989
iiii!!!lllllllll MINNING
Gunnar Haraldsson
Víðigrund 1, Sauðárkróki
Fæddur 15. fcbrúar 1938
Dáinn 23. febrúar 1989
Vinur minn Gunnar Haraldsson,
Víðihlíð 1 á Sauðárkróki. hcfur
kvatt þennan heim. Það gerðist
óvænt og erfitt er að sætta sig við þá
staðreynd, að samskiptum þessa lífs
sé lokið við þann góða dreng.
Þegar leiðir okkar í veraldlegu
vafstri skildu fyrir mánuði, tókumst
við í hendur og þökkuðum hver
öðrum fyrir mikið og gott samstarf.
Mig grunaði ekki þá að það yrði
síðasta handtakið okkar. Við horfð-
umst í augu og ég fann straum hlýju
og vinsemdar streyma á milli okkar.
Orð voru í raun og veru óþórf til að
túlka það sem við vildum segja.
Þetta litla atvik er mér mikils virði
nú, og lýsir einmitt vel þeim hægláta
og prúða manni, sem Gunnar Har-
aldsson hafði að geyma.
Gunnar Haraldsson var fæddur
15. febrúar 1938 að Fjalli í Kol-
beinsdal. Foreldar hans voru Klem-
ensína Guðný Jónsdóttir frá Kamba-
koti, Skagaströnd og Haraldur
Björnsson frá Fagradal á
Skarðsströnd, síðar í Reykjavík.
Gunnar flutti með móður sinni að
Kýrholti 1938, þar sem hann ólst
upp á rótgrónu menningarheimili
hjá móður sinni og stjúpa, Bessa
Gíslasyni, ásamt börnum Bessa af
fyrra hjónabandi og hálfsystur sinni
Elínborgu Bessadóttur. Þar vandist
Gunnar að sjálfsögðu öllum algeng-
um sveitastörfum. Hann stundaði
nám við Bændaskólann á Hólum
1953-1954 og í Iðnskólanum á Sauð-
árkróki 1956-57.
Gunnar var kvæntur L.áru Salóme
Angantýsdóttur og áttu þau einn
son, Kristján Jóhann. Þá átti Lára
son áður en þau Gunnar kynntust,
Jón Ingþór Friðbjörnsson og gekk
Gunnar honum í föðurstað.
Á sjötta áratugnum þegar Gunnar
og Lára eru að huga að sameiginlegri
framtíð sinni var atvinnuástand
þannig á Norðurlandi, að sjálfsagt
þótti að ungir menn sæktu vinnu til
verstöðvanna á Suðurnesjum eða til
Keflavíkurflugvallar.
Gunnar var engin undantekning í
þessum efnum. Hann fór eftir nám
sitt í Iðnskólanum og vann eitt ár á
Keflavíkurflugvelli og eitthvað við
fiskvinnu einnig.
En er hér var komið stóð hugur
hans frekar til verslunarstarfa. Réðst
hann til Silla og Valda í Reykjavík
og var þar í þrjú ár. Hafði hann ekki
verið lengi í störfum hjá því fyrir-
tæki, er honum vegna trúmennsku
sinnar var falin verslunarstjórn.
En bæði var það, að ekki hefur
lífið í höfuðborginni heillað Gunnar,
og eins hitt að þess var farið á leit
við hann, að koma til starfa á
heimaslóð. Því varð það úr að hann
réðst til starfa hjá Kaupfélagi Skag-
firðinga sumarið 1962.
Fyrst eftir að Gunnar kom norður
aftur vann hann í byggingavörudeild
kaupfélagsins. Þar lágu leiðir okkar
fyrst saman. En honum voru ætluð
önnur og meiri verkefni. í maí 1963
hóf hann störf í Gránu, sem þá var
aðalmatvöruverslun félagsins, þar
vann hann í 13 ár og lengst af
deildarstjóri þessarar umfangsmiklu
deildar.
Þegar þeim hjónum Gunnari og
Láru bauðst starf hjá Pósti og síma
sem næturverðir símstöðvarinnar á
Sauðárkróki, tóku þau því. Slík
störf höfðu ætíð verið Gunnari hug-
stæð og ekki var minna um vert að
nú gátu þau hjónin unnið saman.
Þau höfðu raunar annað starf sem
var þeim ekki síður hugstætt, það
var að vinna fyrir Sauðárkrókskirkju
og að málefnum kirkjukórsins.
Eftir 7 ára starf hjá Pósti og síma
veiktist Gunnar alvarlega. Eftir að
hann hafði náð sér af þessum veik-
indum þótti honum heppilegra að fá
sér annað starf og réði sig til ÁTVR
hér á Sauöárkróki, þar seni hann
vann í þrjú ár. En 30. júní 1987 réðst
hann aftur til kaupfélagsins, enda
virtist heilsan vera eins og best varð
á kosið. Hann tók við star'fi deildar-
stjóra matvörudeildar Skagfirðinga-
búðar í árslok 1987 og var þá í raun
kominn í sitt gamla starf sem hann
þekkti svo vel eftir 13 ára veru í
Gránu, eins og fyrr segir.
En skjótt skipast veður í lofti.
Fimmtudaginn 23. febrúar berst sú
harmafregn að Gunnar hafi orðið
bráðkvaddur í vinnunni. Hann stóð
trúr og tryggur til hinstu stundar og
æðraðist ekki þótt á móti blési.
Þegar ég hef sett þessar línur á
blað langar ntig til að segja eitthvað
til huggunar þeim er eiga um sárast
að binda. En mér verður tregt tungu
að hræra. Ég sendi eiginkonunni,
Láru Angantýsdóttur, syni og fóst-
ursyni, innilegar kveðjur og bið guð
að blessa þeim minninguna um góð-
an eiginmann og föður.
Magnús H. Sigurjónsson
Gamalt máltæki segir, að það sé
stutt ögurstundin. Vafalaust má víða
heimfæra þessa myndrænu samlík-
ingu, en óvíða á hún betur við en um
bilið milli lífs og dauða. Hversu
örskammt getur það verið, hversu
skjótt getur verið skorið á lífsþráð-
inn. Starfsamur hugur og hönd er
skyndilega óvirkur, andinn og efnið
aðskilið.
Miðvikudaginn 22. febrúar s.l.
vorum við, sem vinnum í aðalstöðv-
um Kaupfélags Skagfirðinga á Sauð-
árkróki óþyrmilega minnt á þessar
staðreyndir. Skyndilega var einn úr
hópnum burtu kallaður, „meira að
starfa Guðs um geim“, bókstaflega
talað í miðju verki. Það er á slíkum
stundum, sem okkur mönnunum er
hvað ljósust smæð okkar og van-
máttur andspænis staðreyndum til-
verunnar.
Vinnustaðurinn er annað heintili
okkar flestra. Við eyðum þar svo
miklum hluta af vökutíma okkar, að
hlutur hans í tilverunni hlýtur að
vera stór. Þótt samfélagið á vinnu-
staðnum sé allt annars eðlis en
heimili okkar. fer ekki hjá því, að
þar knýtist mörg bönd kunnings-
skapar og vináttu. Samvistir okkar
með vinnufélögunum eru svo mikill
hluti af heildarmynd tilverunnar, að
öll röskun á þeirri mynd hlýtur að
hafa veruleg áhrif á líf okkar. Sumt
af því er auðvelt að skilja og ásættan-
legt. Fólk flytur sig milli starfa og
staða af ýmsum ástæðum, en þegar
einn úr hópnum er endanlega burtu
kallaður á miðjum starfsdegi lífs síns
fer ekki hjá því. að flestir finni til
óvissu og tómarúms í huga sínum,
sem oft þarf langan tíma til að sætta
sig við. Svo mun okkur vinnufélög-
um Gunnars heitins flestum farið
þessa dagana og skyldi engan undra.
Gunnar Haraldsson var búinn að
vinna lengi hjá Kaupfélagi Skagfirð-
inga og góðan tíma sem verslunar-
og deildarstjóri. Honum voru versl-
unar- og þjónustustörf einstaklega
vel lagin og hafði þennan eiginleika,
sem alltof fáir íslendingar eiga til, að
líta á ánægðan viðskiptavin sem
árangur af vel unnu verki. Gunnar
var einstaklega lundgóður og við-
mótsþýður maður og umtalsfrómur
svo af bar. Það fór ekki hjá því, að
maður slíkrar gerðar yrði vel þokk-
aður af samstarfsfólki sínu og yfir-
mönnum, jafnt sem viðskiptavinum,
og öfundarmenn átti hann enga.
Gunnar var kirkjurækinn maður og
starfaði mikið að málefnum Sauðár-
krókskirkju, bæði með þátttöku í
kór kirkjunnar sem og safnaðar-
starfi, og voru þau hjónin, hann og
kona hans, Lára Ángantýsdóttir,
samstíga í því sem öðru. Þau störf
voru oft unnin í hljóði og án þess að
mikið á bæri. Þar er sjaldnast um að
ræða endurgreiðslu á veraldarvísu,
en því meiri og betri hjá þeim, sem
endanlega greiðir öll verklaun.
Við samstarfsmenn Gunnars Har-
aldssonar kveðjum hann að leiðar-
lokum með virðingu og þökk. Á
okkar smáa, mannlega mælikvarða
finnst okkur kveðjustundin alltof
snemma upp runnin, en verðum að
sætta okkur við þessa staðreynd sem
aðrir, er í þeim sporum standa. Við
vottum eiginkonu hans og sonum
okkar innilegustu samúð og biðjum
þann, sem ræður ögurstundinni, að
styðja þau og vernda.
Guðbr. Þorkell
Guðbrandsson
TÖLVU-
NOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum,
setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða
fyrir tölvuvinnslu
Smiðjuvegi 3,
200 Kópavogur.
Sími 45000
BILALEIGA
með utibú allt í kringum
landið, gera þér mögulegt
að leigja bíl á einum stað
og skila honum á öðrum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendis
interRent
Bílaleiga Akureyrar
firiinT rjo
Tíminn 27
/ mm \ ’SÉ’ Tilboð
óskast í eftirtaldar bifreiöar og tæki sem veröa til sýnis þriöjudaginn
7. mars 1989 kl. 13-16, í porti bak við skrifstofu vora 7, Reykjavík og víðar. að Borgartúni
Tegundir: Árg.
1 stk. Mercury Topas fólksbifr. 4x4 1987
1 stk. Volvo 244 GL fólksbifr. 1985
1 stk. Fiat Uno 45 fólksbifr. 1984
1 stk. Fiat Panorama fólksbifr. 1985
1 stk. Subaru 1800 GL fólksbifr. 4x4 1983
3 stk. Volkswagen Golf fólksbifr. 1982-83
1 stk. Ford Taunus fólksbifr. 1981
1 stk. Mazda 323 station fólksbifr. 1984
1 stk. Isuzu Trooper 4x4 1986
1 stk. Ford Bronco 4x4 1983
1 stk. Volkswagen Syncro 4x4 1987
1 stk. Chevrolet Suburban 4x4 1980
1 stk. Ford Econoline 4x4 1980
3 stk. UAZ 452 4x4 1983-85
1 stk. Lada Sport 4x4 1986
1 stk. Mercedes Bens fólksfl. bifreið 1978
1 stk. Mitsubishi Mini Bus 1983
2 stk. Ford Econoline sendif.bifr. 1 stk. Bedford Blitz CF 350 vörubifr. m/krana 1978-80
1 stk. Zetor dráttarvél 4x4 m/ámoksturstæki 1983
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, Grafarvogi: 1 stk. Zetor 6911 dráttarvél 1979
1 stk. Snjótönn (3 m) 1980
Til sýnis hjá Siidarverksmiðju ríkisins, Raufarhöfn 1 stk.UAZ 452 4x4 1979
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.30 að viðstöddum bjóðendum. Réttur er áskilinn til að hafna tilboðum sem ekki teljast viðunandi.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Innkaupastofnun ríkisins fyrir hönd Ríkisspítala
óskar eftir tilboöum í utanhússviðgerð og -viðhald
á geðdeild Landspítala.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgar-
túni 7, Reykjavík, gegn 15.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn 31.
mars n.k. kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
LEKUR ER HEDDIÐ
BLOKKIN? SPRUNGID?
Viðgerðir á öllum heddum og blokkum.
Plönum hedd og blokkir — rennum ventla.
Eigum oft skiptihedd í ýmsar gerðir bifreiða.
Viðhald og viðgerðir á iðnaðarvélum - jámsmíði.
Vélsmiðja Hauks B. Guðjonssonar
Súðarvogi 34, Kænuvogsmegin - Sími 84110
t
Eiginmaður minn
Ingólfur Þorsteinsson
fyrrverandi yfirlögregluþjónn
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 7. mars kl. 13.30.
Helga Guðmundsdóttir.