Tíminn - 22.04.1989, Side 2
rjriimi'T
2 Tíminn
C*-") f H iCi t C ! ij T).o Si, - 1 IO- i
Laugardagur 22. apríl 1989
EB
BÚIÐ
AB
SKOÐA
BÍLINtl
mn?
Síðasta tala
númersins segir
til um
skoðunarmánuðinn.
Láttu skoða í tíma
- öryggisins vegna!
BIFREIÐASKOÐUN
ÍSLANDS HF.
Hægt er að panta skoðunartíma,
pöntunarsími í Reykjavík er 672811.
Talsverður eldur logaði á efstu hæð Kringlunnar 4 þegar slökkviHðið kom á vettvang.
Tímamynd Pjelur
Eldur laus i
Kringlunni 4
Eldur kom upp á efstu hæö í Kringlunni 4 um ettefute-ytið
á miðvikudagskvötd og var talsverður eldur og reykur, þegar
slökkviliðið kom á vettvang.
Reykkafarar voru sendir inn, auk
þess sem unnið var að slökkvistarfi
utanfrá. Þar sem fjölmargir kyrr-
stæðir bílar voru fyrir utan húsnæðið
þurfti að kalla til kranabíi til að
fjarlægja þá, svo að ranabíll slökkvi-
liðsins kæmist að. Greiðlega gekk að
slökkva eldinn og var búið að ráða
niðurlögum hans eftir rúman
klukkutíma. Nokkrar skemmdir
urðu á hæðinni, sem var hálfkláruð,
en nær engar skemmdir urðu annars-
staðar í húsinu, sem í eru verslanir
og veitingahús, en eitthvað af vatni
fór á milli hæða og það hreinsað
strax upp.
Fjölmargir gestir voru staddir í
Kringlukránni, sem er á fyrstu hæð
hússins þegar eldurinn kom upp og
voru gestimir fljótir að yfirgefa
staðinn, þegar bjöllu hafði verið
hringt, að sögn Tómasar Ingasonar
matreiðslumanns í Kringlukránni.
Eitthvað var um að gestir skildu eftir
ógreidda reikninga, en að sögn Tóm-
asar var búið að innheimta flesta
reikninga þegar rýma þurfti húsið og
átti hann von á að geta innheimt það
sem eftir var.
Rétt fyrir klukkan þrjú um nóttina
kom aftur upp eldur á sama stað, en
greiðlega gekk að slökkva hann.
Líklegt er að lffseig glóð hafi átt þar
hlut að máli.
Ekki er að fullu kunnugt um
eldsupptök, en íkveikja er einn
möguleika sem rannsóknarlögreglan
kannar. -ABÓ
Kráargestir ganga út með ölkollumar með sér.
Tímamynd Pjetur
BSRB-samningarnir samþykktir með yfirgnæfandi
meirihluta. Formaður BSRB um niðurstöðuna:
Sýnir samstöðu
og félagsþroska
„Ég tel að það sé einkum
tvennt sem komi fram í þess-
ari atkvæðagreiðslu: Mikitt
félagslegur þroski og sam-
staða.
Hér hefur mikill meirihluti fé-
lagsmanna í BSRB samþykkt kjaras-
amaninga sem færa þeim sem mest
þurfa á kjarabótum að halda, hlut-
fallslega mestar bætur. í hátíðaræð-
um er oft haft á orði að það þurfi að
gera, en félagar í BSRB hafa sýnt
hér að samræmi er milli orða og
athafna þeirra,“ sagði Ögmundur
Jónasson formaður BSRB þegar
hann kynnti niðurstöður atkvæða-
greiðslu í tíu aðildarfélögunum
bandalagsins um nýgerða kjara-
samninga.
Meðalkjörsókn í félögunum var
75,8%. Minnst var hún hjá Starfs-
mannafélagi Reykjavíkurborgar,
34%, en mest hjá Sjúkrasamlagi
Reykjavíkur, 100%. 85% af þeim
sem atkvæði greiddu samþykktu
samningana.
Eftir er að telja atkvæði hjá Félagi
flugumsjónarmanna og Landssam-
band lögreglumanna hefur ekki
undirritað þá enn, en formaður sam-
bandsins sagði í viðtali hér í blaðinu
fyrr í vikunni að það yrði ekki gert
fyrr en vanefndir ríkisins á fyrri
kjarasamningi við lögreglumenn
hefðu verið leiðréttar. Þá er enn
ósamið við fóstrur, meinatækna og
hjúkrunarfræðinga. -sá
Ögmundur kynnir niðurstöður úr atkvæðagreiðslu félagsmanna BSRB.
Tímamynd: Árni Bjama