Tíminn - 22.04.1989, Side 3
Laugardagur 22. apríl 1989
Tíminn 3
Lækkandi dráttarvextir? Aukið tap af afskriftum? Öruggari skuldabréf með
j lægri ávöxtun? Hvenær eiga eigendur bréfanna að stökkva af lestinni?
Avöxtun hrapar hjá
verðbréfasjóðunum
Gífurleg lækkun hefur
orðið á raunávöxtun verð-
bréfasjóða síðustu mánuði
samkvæmt nýútkomnu
fréttabréfi Verðbréfavið-
skipta Samvinnubankans.
Segir þar að dæmi séu um
hrun frá 17% raunávöxtun 1.
desember sl. niður í 10,5%
þann 1. mars sl. Hjá þeim
sjóði hefur ávöxtun bréfanna
haldið áfram að lækka og var
hún komin niður I 10,2%
raunávöxtun um síðustu
mánaðamót.
SjófiurA o. SjófiurB H> SjóðurC
Tafla: Verðbréraviðskipti Samvinnubankans.
Taflan sýnir mjög hraða lækkun raunvaxta hjá verðbréfasjóðum og er þarna að sjá dæmi um lækkun úr 17%
raunvöxtum í 10,2% á aðeins fjórum mánuðum. Raunvextir eru hér vextir umfram lánskjaravísitölu.
í fréttabréfinu er spurt hvort verið
geti að vanskil séu að aukast á sama
tíma og dráttarvextir hafi lækkað að
raungildi hjá þessum sjóðum og
hvort verið geti að sjóðirnir hafi
þurft að afskrifa meira af sínum
eignum en áður með áðurgreindum
afleiðingum.
Svör við þessum spurningum er
ekki að fá hjá Bankaeftirlitinu þar
sem ný lagaákvæði um upplýsinga-
skyldu sjóðanna eru ekki farin að
virka. Ragnar Hafliðason í Banka-
eftirlitinu segir að ekki sé búist við
nákvæmum skýrslum frá sjóðunum
fyrr en eftir næsta áramótauppgjör,
þar sem eðlilegt sé að gefa sjóðunum
tóm til að skila skýrslunum.
„Lottóleikur“
í fréttabréfi Verðbréfaviðskipta
Samvinnubankans er einnig sagt að
ekki sé að hafa upplýsingar um hve
stór hluti heildareignar hvers verð-
bréfasjóðs er í vanskilum hverju
sinni. „Til þess að draga úr óvissu
ættu þeir sem fjárfesta í hlutdeildar-
skírteinum verðbréfasjóða að hafa
aðgang að upplýsingum sem svara
framkomnum spurningum. Eigend-
ur hlutdeildarskírteina eiga ekki að
þurfa að vera í „lottóleik“ við að
ákveða hvenær þeir eiga að stökkva
af lestinni ef illa fer,“ segir í bréfmu.
Friðrik Jóhannsson, fjármála-
stjóri Fjárfestingarfélagsins, sagði í
viðtali við Tímann að þessi mikla
lækkun raunávöxtunar stafaði af
versnandi skilyrðum sjóðanna. Sá
hluti verðbréfasjóðanna sem ekki er
á verðtryggðum bréfum hefur að
undanförnu borið neikvæða raun-
vexti og sama væri að segja um
dráttarvexti sem um skeið hafa verið
undir verðtryggingu lánskjaravísi-
tölu. Pá hafi Fjárfestingarfélagið
leitast við að auka lausafjárhlutfall
sitt og hafa meira fé handbært á
bankareikningum ef eitthvað ber
útaf. Segir hann að vanskil hafi
aukist á síðasta ári og bilið milli
óverðtryggðra vaxta og verðbólgu
hafi verið neikvætt að undanförnu
fyrir sjóðina. Þetta sé því bein
afleiðing af vaxtastefnu ríkisstjórn-
arinnar.
Sex milljarðar á
minnkandi vöxtum
Þess má geta að verðbréfasjóðir í
landinu eru nú sautján talsins og er
áætlað að rúmlega sex milljarðar
króna séu í vörslu þessara sjóða í
heild. Mikil lækkun raunávöxtunar
eins og nú hefur orðið síðustu mán-
uði hlýtur því að leiða af sér lækkun
ávöxtunar á þessum innistæðum um
milljónir króna. Það er því von að
spurt sé hvort þessi hraða lækkun
raunávöxtunar stafi af almennri
raunvaxtalækkun á verðbréfum í
kjölfar lækkunar bankavaxta, eða
hvort verið geti að afskriftir þeirra
eigna sem standa að baki verðbréfa-
sjóðunum hafi aukist, eða m.ö.o.
rýrnað.
KB
AMAZO l\l I
AMAZONE
áburðardreifarar
Kastdreifarar úr vönduðu efni og
því með góða endingu.
Dreifararnir eru með tvær dreifisk-
ífur, sem tryggir jafna dreifingu
áburðarins.
Bútæknideildarprófun sumarið
1988 staðfesti þessa eiginleika.
Dreifibreidd stillanleg við 8.10 og
12 m.
Lágbyggðir og auðvelt að fylla.
F ÁRMÚLA 11 SÍMI 681500
Menntamálaráðuneytið hefur sent
frá sér eftirfarandi skeyti vegna mót-
mæla HÍK varðandi þá fyrri ákvörð-
un ráðuneytisins að forráðamönnum
skólanna sé heimilt að leggja sam-
ræmdu prófverkefnin fyrir sem
skólapróf.
„Ljóst er að ekki tekst að semja
við HÍK í tæka tíð áður en samræmd
próf áttu að fara fram. Samræmd
próf verða því ekki lögð fyrir í vor.
Hinsvegar er heimilt að nota þau
verkefni sem samin hafa verið og
hafa verið send út til skóla.
Ráðuneytið ítrekar og leggur
áherslu á að allt skólastarf fari fram
í samvinnu og samkomulagi við alla
hlutaðeigandi aðila. Þannig að
hvergi komi til árekstra í skólastarfi
meðan á kjaradeilunni stendur.“
Með þessu er skólunum gefið
frjálst hvemig þeir nota prófverkefn-
in.
m
l*» ^
^ BÍLASTÆÐASJÓÐUR
Velkomin í Kolaport
Kolaport er opið frá kl. 07:30-19:00 mánudaga-föstu-
daga. Gjaldið er 40 kr. fyrir hverja klukkustund.
Mánaðarkort eru seld í varðskýli á 4000 kr., einn mánuð
í senn. Skilatrygging mánaðarkorts er 1000 kr. Hægt er
að fá bíla geymda fyrir kr. 1600 pr. viku.
Unnt er að fá peningum skipt í varðskýli.
Símasjálfsali er á staðnum.
Gatnamálastjóri
EB
BÚIÐ
AÐ
SKOBA
BÍLIIillil
ÞINN?
Síðasta tala
númersins segir
til um
skoðunarmánuðinn.
Láttu skoða í tíma
- öryggisins vegna!
co
BIFREIÐASKOÐUN
ÍSLANDS HF.
Hægt er að panta skoðunartíma,
pöntunarsími í Reykjavík er 672811.