Tíminn - 22.04.1989, Síða 5
98Pr !nqs .S!í •suQEb'.EQUfiJ
Laugardagur 22. apríl Í989
nnirnVT *.
Tíminn 5
Auka Búnaðarþingi lokið:
Mótmæla harðlega
stofnun umhverfis-
málaráðuneytis
Á Búnaðarþingi, sem fram fór á þriðjudag og miðvikudag,
var samþykkt harðorð ályktun þar sem mótmælt var fram
komnu frumvarpi um stofnun sérstaks umhverfismálaráðu-
neytis og því fundið margt til foráttu.
Hjörtur Þórarinsson formaður Bún-
aðarfélags íslands og Ágústa Þor-
kelsdóttir frá Refstað, bókari
þingsins. Tímamynd Árni Bjarna.
Að sögn Hjartar Þórarinssonar
formanns Búnaðarfélags íslands var
andmælt að komið yrði á fót sjálf-
stæðu umhverfismálaráðuneyti.
„Sérstaklega var því mótmælt að
landgræðsla og gróðurvemd færi frá
landbúnaðarráðuneyti í hið nýja
ráðuneyti," sagði Hjörtur. Þá var
látin í ljós vantrú á tilgang þess að
búa til nýtt ráðuneyti. Hjörtur sagði
að mörgum bændum fyndist vegið
að sér með þessum hugmyndum.
Hann sagði að í greinargerð með
frumvarpinu komi fram að það skap-
ist sterkari aðstaða gagnvart land-
búnaði, ef landgræðsla og gróður-
vernd verði undir sérstöku umhverf-
ismálaráðuneyti, en ekki í landbún-
aðarráðuneyti. Þá sagði hann að
túlka mætti fleiri setningar í frum-
varpinu sem ádeilu á íhaldsemi
bænda.
í ályktuninni um frumvarpið segir:
Búnaðarþing mælir harðlega gegn
lögfestingu frumvarpsins og lýsir
undrun sinni á þeim málatilbúnaði
sem þar er hafður uppi. Þingið
bendir á og undirstrikar samþykktir
sínar frá síðasta reglulega þingi. Þá
er harmað að við samningu frum-
varpsins skuli hvergi komið til móts
við þau sjónarmið sem í þeim sam-
þykktum koma fram. „Nýtt ráðu-
neyti um umhverfismál stóreykur
miðstýringu í þjóðfélaginu, auk þess
sem það mun hlaða á sig starfsfólki
ef marka má reynslu annarra þjóða,"
segir í ályktuninni. Þá segir ennfrem-
ur að mikils ósamræmis gæti í frum-
varpinu, að því er snýr að einstökum
atvinnugreinum. Bent er á að öll
meðferð á lífríki sjávar á að vera
áfram undir sínu fagráðuneyti, sjáv-
arútvegsráðuneytinu, hins vegar eru
lög um landgræðslu að því er tekur
til ástands og eftirlits gróðurs, svo og
hverskonar landnýtingar sett undir
umhverfismálaráðuneyti og þannig
skilið frá landbúnaðarráðuneytinu.
„Þingið mótmælir harðlega þessum
hugmyndum og telur augljóst að
málefni gróðurverndar og land-
græðslu séu komin hjá einni öflugri
fagstofnun, undir yfirstjórn land-
búnaðarráðuneytis,“ sagir m.a. í
ályktuninni. Þá lýsir þingið einnig
undrun sinni á staðhæfingum þeim
sem fram koma í athugasemdum
hvað varðar sjöttu og sjöundu grein
frumvarpsins. „Slík ummæli og að-
dróttanir er þar koma í garð bænda-
stéttarinnar og stofnana hennar eru
í fyllsta máta ómakleg og að engu
hafandi,“ segir í ályktuninni.
Tilefni þingsins voru búfjárrækt-
arlögin, sem ekki voru komin fram
þegar reglulegt Búnaðarþing var
haldið fyrr í vetur. Sagði Hjörtur að
mönnum þætti þetta svo þýðingar-
mikil löggjöf fyrir landbúnaðinn að
ekki þótti annað hægt en að fjalla
um málið áður en það yrði orðið að
lögum. „Þetta er það mikil breyting
á búfjárræktarlögum að það var
ákveðið á aðalþinginu að kalla til
aukafundar þegar málin væru orðin
skýr,“ sagði Hjörtur. Hann sagði að
í frumvarpinu væri gert ráð fyrir
niðurskurði á framlögum ríkisins,
og kæmi það niður á framlögum til
búnaðarsambandanna í héruðunum.
- ABÓ
Sumarhús í sérflokki.
Nýtt og betra fyrir þá sem vilja dvelja
í fyrstá flokks orlofsþorpi.
f/átm
Bónustilboð Sögu. Ókeypis
bílaleigubíll í eina viku. Tilboð
þetta gildir í apríl, maí og júní.
Einungis þarf að greiða kaskó-
tryggingu og söluskatt.
í Loohorst er allur aðbúnaður
eins og best verður á kosið. Stór
og fjölbreytt þjónustumiðstöð,
með veitingastöðum, verslun-
um, pósthúsi, símstöð og öðru
því sem búast má við að finna í
fyrsta flokks orlofsþorpi.
Barnagæsla býðst hluta úr
degi. Sérstakt hús þar sem börn-
in geta dvalið við föndur eða
leiki í umsjá þjálfaðs starfsfólks.
Glæsilegt sundlaugarsvæði
með vatnsrennibrautum, barna-
sundlaug, nuddpottum, sól-
bekkjum og sauna.
í Loohorst er að sjálfsögðu góð
aðstaða til íþrótta
og útivistar.
Keilubraut, tennisvellir, skokk-
brautir, og mínígolf svo eitthvað
sé nefnt.
íslenskur fararstjóri verður í
Loohorst farþegum okkar til
halds og trausts.
Örstutt er yfir til Pýskalands í
Móseldalinn, til Köln eða Duss-
eldorf. Til Amsterdam er gott að
koma. Par eru mörg frægustu
listasöfn heims. Góðar verslanir
og veitingastaðir og sigling um
síki borgarinnar er ógleymanleg.
Gott verð á gæðaferð 31.900 kr.
(2 fullorðnir og 2 börn í 1 viku).
Athugið. Söguafsláttur gildir
til 1. maí.
! Eitt símtal og þú getur bókað \
__________góðaferð!__________
I 40 40 |
FERÐASKRIFSTOFAN
Orlofsþorpið Loohorst er
kærkomin nýjung fyrir þá sem
vilja dvelja í fyrsta flokks sumar-
húsi, í einu fegursta héraði
Hollands, aðeins tveggja tíma
akstur frá Amsterdam.
E
E
CV
<D