Tíminn - 22.04.1989, Qupperneq 10
10 Tíminn
Laugardagur 22. apríl 1989
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU:
Lausar stöður
við grunnskóla
Umsóknarfrestur til 9. maí.
Austurlandsumdæmi:
Staða yfirkennara við Seyðisfjarðarskóla.
Stöður grunnskólakennara við Fellaskóla.
Umsóknarfrestur um eftirtaldar áður auglýstar stöður framleng-
ist til 25. apríl.
Austurlandsumdæmi:
Stöður skólastjóra við grunnskólana Bakkafirði og Djúpavogi.
Stöður grunnskólakennara við grunnskólana: Eskifirði, meðal
kennslugreina íþróttir, Bakkafirði, Borgarfirði, Reyðarfirði, Fáskrúðs-
firði, Breiðdalshreppi, Djúpavogi, Höfn, meðal kennslugreina enska í
7.-9. bekk, tónmennt, handmennt, heimilisfræði, sérkennsla, og við
Seyðisfjarðarskóla, meðal kennslugreina enska, handmennt,
myndmennt, tónmennt og íþróttir, Nesskóla, Egilsstaðaskóla, meðal
kennslugreina íþróttir, kennsla yngri barna, myndmennt, stærðfræði,
náttúrufræði og sérkennsla, Vopnafjarðarskóla, meðal kennslugreina
íþróttir, náttúrufræði og erlend tungumál, Brúarásskóla, Skjöldólfs-
staðaskóla og Hrollaugsstaðaskóla.
Menntamálaráðuneytið.
III Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Garðyrkjustjóra Reykjavík-
urborgar, óskar eftir tilboðum í jarðvinnu og lagnir ( fyrirhugaðan
húsdýragarð í Laugardal.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 5.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 2. maí 1989, kl.
15,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
íbúð til sölu
- Akranes -
Sérhæð 145 m2 þar af 4 rúmgóð svefnherbergi.
Verð kr. 3.200.000. Útb. ca. 1.500.000 sem
greiðast má á 12 mánuðum.
Nánari upplýsingar í síma 91-667491.
Frá Fósturskóla íslands
Innritun fyrir næsta skólaár er hafin.
Umsóknir um skólavist þurfa að berast skólanum
fyrir 5. júní n.k.
Nánari upplýsingar og eyðublöð fást á skrifstofu
skólans.
Skólastjóri
-cKkl/^_
þaraM —
hepPnl \Jr/
Laugardagur kl. 13:45
16. LEIKVIKA- 22. APRIL 1989 III X 2
Leikur 1 Charlton - Man. Utd.
Leikur 2 Coventry - Q.P.R.
Leikur 3 Derby - Sheff. Wed.
Leikur 4 Middlesbro - Nott. For.
Leikur 5 Newcastle - Luton
Leikur 6 Norwich - Aston Villa
Leikur 7 Shouthamton - Wimbledon
Leikur 8 Tottenham - Everton
Leikur 9 West Ham - Millwall
Leikur 10 Brighton - Swindon
LeikurH Chelsea - Leeds
Leikur 12 Ipswich - W.B.A.
Símsvari hjá getraunum á laugardögum eftir
kl. 16:15 er 91-84590 og -84464. ÞREFALDUR SPRENGIPOTTUR
Handknattleikur:
Tvöfaldursigur
Stjörnunnar
- í bikarkeppninni í handknattleik
Stjarnan úr Garðabæ varð á
fimmtudaginn, sumardaginn fyrsta,
bikarmeistari karla og kvenna í
handknattleik. Stjarnan lagði FH að
velli í báðum úrsiitaleikjunum.
Það var mjótt á munum í báðum
leikjunum og aðeins 1 mark réð
úrslitum. Spennan var mikil í Höli-
inni á iokamínútum leikjanna og
áhorfendur sem fjölmenntu létu vel
í sér heyra.
í kvennaleiknum voru all nokkrar
sveiflur á gengi liðanna. Jafnt var
framan af, en Stjarnan náði tveggja
marka forystu 7-5. FH-stúlkur tóku
þá mikinn sprett og gerðu 4 mörk í
röð og breyttu stöðunni í 7-9. Jafnt
var síðan 10-10, en Stjarnan náði
aftur tveggja marka forskoti 12-10
og þannig var staðan í leikhléinu.
FH jafnaði í síðari hálfleik 14-14,
en Stjarnan komst aftur yfir 17-15.
Þá gerði FH 3 mörk í röð og breytti
stöðunni í 17-18. Stjaman jafnaði
18-18 og spennan magnaðist. Sigur-
inn hefði getað lent hvoru megin
sem var, en það var Stjarnan sem
gerði 19. og síðasta markið í leiknum
og tryggði sér sigur.
Mörkin Stjaman: Guðný Gunn-
steinsdóttir 4, Hrund Grétarsdóttir
4, Ingibjörg Andrésdóttir 4, Helga
Sigmundsdóttir 4, Erla Rafnsdóttir
3 og Ragnheiður Stephensen 1. FH:
Eva Baldursdóttir 4, Sigurborg Eyj-
ólfsdóttir 4, Berglind Hreinsdóttir 4,
Arndís Aradóttir 3, Rut Baldurs-
dóttir, Kristín Pétursdóttir og María
Sigurðardóttir 1 mark hver.
Héðinn með 10 mörk
Leikur sömu liða í karlaflokki var
ekki ósvipaður kvennaleiknum. Lið-
in skiptust á um að ná þetta 2-3
marka forystu, en í leikhléinu voru
það FH-ingar sem leiddu 11-10.
Þegar lok leiksins vom skammt und-
an höfðu Stjörnumenn yfirhöndina,
en FH-ingar gerðu hvað þeir gátu til
að jafna. Þrátt fyrir góðar tilraunir í
þá átt voru það Stjörnumenn sem
stóðu uppi sem sigurvegarar. Sigurð-
ur Bjamason gerði sigurmark
Stjörnunnar 30 sek. fyrir leikslok,
en Guðjóni Árnasyni tókst að laga
stöðuna fyrir FH. Guðjón átti síðan
skot að marki Stjörnunnar á loka-
sek. en hitti þá ekki markið. Loka-
tölurnar vom því 20-19 fyrir Stjörn-
unni.
Liðsheildin hjá Garðbæingunum
var mjög sterk, en hjá FH var aðeins
Héðinn Gilsson sem náði sér á strik
í sóknarleiknum. Bergsveinn Berg-
sveinsson varði mjög vel, eða alls 23
skot.
Mörkin Stjarnan: Sigurður
Bjamason 7, Axel Bjömsson 4,
Einar Einarsson 4, Gylfi Birgisson
2, Hafsteinn Bragason 1, Hilinar
Hjaltason 1 og Skúli Gunnsteinsson
1. FH: Héðinn Gilsson 10, Þorgils
Óttar Mathiesen 3, Óskar Helgason
2, Guðjón Árnason 2, Óskar Ár-
mannsson 1/1 og Gunnar Beinteins-
son 1.
Gunnar Einarsson
þjálfari Stjörnunnar:
„Ég er mjög ánægður með sigur-
inn og það er sérlega ánægjulegt
fyrir íþróttalífið í Garðabæ að vinna
báða titlana. Þetta sýnir að vel hefur
verið að þeim málum unnið í
bænum. É gátti von á því að við
myndum vinna bikarinn eftir sigur-
inn á Val í undanúrslitunum og við
áttum sannarlega skilið að vinna
þennan leik. Við höfum lagt mikið á
okkur í vetur og nú uppskerum við
árangur erfiðisins."
„Með framhaldið hjá mér þá von-
ast ég til þess að fá að þjálfa liðið í
eitt ár til viðbótar og þá munum við
gera atlögu að íslandsmeistaratitlin-
um.“
Viggó Sigurðsson
þjálfari FH:
“Ég vil óska Stjömunni til ham-
ingju með sigurinn, þeir vom mun
grimmari og höfðu meiri sigurvilja
en mínir menn hér í dag. Leikurinn
var vel leikinn og sigurinn gat lent
hvom megin sem var.“
„Það sem fór úrskeiðis hjá okkur
var það að aðeins einn leikmaður
okkar lék eðlilega í sókninni."
„Þá vil ég taka fram að mér fannst
dómaramir vera stórkostlega góðir í
þessum leik.“
„Með framhaldið hjá mér er allt
óráðið, en af minni hálfu kemur
alveg til greina að þjálfa liðið
áfram.“ BL
Bikarmeistarar Stjömunnar ásamt þjálfara sínum, Viðari Símonarsyni. í baksýn má sjá hluta af stuðningsmönnum
Stjörnunnar, en þeir voru mjög áberandi á leiknum. Á innfelldu myndinni em þær Guðný Gunnsteinsdóttir fyrirliði
og Fjóla Þórisdóttir markvörður með bikarinn.
Bikarmeistarar Stjömunnar í karlaflokki 1989 ásamt Gunnari Einarssyni þjáifara og aðstoðarmönnum.
iWáW
Tímamyndir Pjetur.