Tíminn - 22.04.1989, Síða 11
Laugardagur 22. apríl 1989
Tíminn 23
AÐ UTAN
iiiiiiiiíiii
illlllll
illlllf
Bandaríkjamenn hafa gleymt hugtakinu orkusparnaður:
Nota núna meiri orku
til minni framleiðslu
en t.d. Japanar
Fyrir rúmum 15 árum, haustíð 1988, brá Vesturiandam-
önnum heldur í brún þegar aðalolíuframleiðsluríkin,
OPEC, komust að samkomulagi um að stýra sameiginlega
olíuframleiðslu sinni og verðinu. Við þetta samkomulag
hækkaði olíuverð í heiminum svo um munaði og varð það
til þess að orkufrekir Vesturlandabúar fóru að hugsa betur
sinn gang, hvernig þeir gætu nýtt betur eldsneyti og
orkugjafa. Til ýmissa ráða var gripið og reyndist víða hægt
að spara. Síðan fór samlyndi OPEC-ríkjanna út um þúfur
og olíuverð lækkaði. Við það sofnuðu mörg iðnríki á
verðinum og létu skeika að sköpuðu um orkunýtinguna.
Þannig hefur olíuinnflutningur Bandaríkjamanna nú sótt
aftur í fyrra horf og er fjallað um það í grein í The New
York Times nýlega.
Orkunotkun á mann, í miiljónum af B.T.U.
(British Thermal Units)
350
300
250
frettayfirl.it
NICOSIA - Frá íran berast
þær fréttir aö komið hafi verið
upp um víðfeðmt njósnanet
Bandaríkjamanna innan her-
sveita landsins. Talsmaður
þingsins í Teheran, Ali Akabar
Hasemi Rafsanjani sagði
njósnarana enn vera á lífi og
myndi sumum þeirra verða
stillt upp í útsendingu sjón-
varpsins. íranskir heimildar-
menn í Mið-Austurlöndum
segja að minnsta kosti þrjá
herforingja þegar hafa verið
skotna.
AMMAN - Mótmæli vegna
verðhækkana alþjóða gjald-
eyrissjóðsins hafa breiðst út í
Suður-Jórdaníu. Það næsta
sem þau hafa komist höfuð-
borginni er bærinn Salt en þar
létu átta manns lífið í vikunni
sem leið.
HÖFÐABORG - Suður-
afrískar hersveitir í Namibíu
verða kyrrsettar í sextíu
klukkustundir í næstu viku. Að
sögn utanríkisráðherrans, Pik
Botha, er það aert til að gefa
Swapo skærulioahreyfingunni
tækifæri til að yfirgefa svæðið
óhindrað. Aftur á móti sagði
talsmaður s-afrísku stjórnar-
innar Roland Darroll kyrrsetn-
inguna ekki ná til lögreglu-
manna stjórnarinnar í landinu.
PEKING - Tugir þúsunda
kínverskra náms- og verka-
manna virtu að vettugi opinbert
bann við mótmælum gegn
stjórninni og gengu fylktu liði
inn átorgiðTiananem í Peking.
Fólkið lagði blómsveiga á mitt
torgið og hyllti fyrrum leiðtoga
kommúnistaflokksins Hu Yao-
bang sem lést á laugardaginn
var. En lát hans er orsök mikill-
ar mótmælaöldu sem gengið
hefur yfir í vikunni.
MOSKVA - Lýst hefur verið
yfir kjöri mannréttindafrömuðs-
ins Andreis Sakarovs til setu á
sovéska þinginu og því heitið
að hann muni vinna að fram-
gangi endurbóta leiðtogans
Mikhail Gorbachevs.
RÓM - Leiðtogi verkalýðs-
hreyfingarinnar Samstöðu,
Lech Walesa, tjáði itölskum
framámönnum að vestrænar
fjárfestingar og samstarf við
vesturlönd væri Póllandi lífs-
nauðsynlegt ef úrbætur á sviði
efnahags-, stjórn- og félags-
mála ættu að ná fram að
ganga.
MANILA - Sendiráð Banda-
ríkjanna á Filippseyjum hefur
sent út aðvörun til Bandaríkja-
manna um að sýna sérstaka
varúð. Kemur aðvörunin f kjöl-
far þess að ofursti í bandaríska
hernum var skotinn til bana í
Manila, en tilræðismennirnir
eru taldir vera skæruliðar
kommúnista.
Tókst að minnka olíuinn-
flutninginn tii mikilla muna
Tólf árum eftir að Carter forseti
lýsti yfir „siðferðilegu jafngildi
stríðs" á hendur sóun á rénandi
orkugjöfum, virðast Bandaríkin
hafa unnið nokkrar orrustur og
gleymt stríðinu.
Þegar Carter hélt þessa ræðu
sína í apríl 1977, fluttu Bandaríkja-
menn inn ógnvekjandi 8,5 milljónir
olíufata á dag. Forsetinn sagði að
minnka ætti innflutninginn niður
fyrir 6 milljónir fata á dag. Á árinu
1981 var því marki náð og það þarf
ekki að líta lengra afturen til ársins
1985, þá var innflutningurinn ekki
nema 4,9 milljónir fata á dag. Nú
er hann aftur kominn upp í 8
milljónir fata og fer vaxandi. Þar
að auki flytja Bandaríkjamenn inn
meiri raforku og gas en áður.
Orkuneyslan hefur aukist
hraðar en framleiðslan
Framfarir í að draga úr orku-
neyslu hafa líka staðnað. Sé talið
frá 1973 hafa Bandaríkin aukið
framleiðslu varnings og þjónustu
án þess að auka orkuneyslu með
því að nýta orkuna skynsamlegar.
En upp á síðkastið hefur orku-
neyslan aukist hraðar en fram-
leiðslan. Og hvað varðar verðmæti
þess sem framleitt er á hverju fati
olíu eða tonni af kolum, eru
Bandaríkjamenn miklir eftirbátar
Japana og Vestur-Evrópumanna.
Ástæðurnar til þess að tilraunin
til betri hagnýtingar á orku hefur
misst ferðina eru að sumu leytinu
til verðlagning, og að öðru leytinu
til pólitísk stefna og enn einu
leytinu almenn sálfræði, segja
hagfræðingar. Bílar sýna t.d. af-
leiðingar allra þessara þriggja
atriða. Þegar bensín er orðið ódýr-
ara og búið að gleyma skortinum
sem sagði til sín í olíukreppunni,
eru Bandaríkjamenn aftur farnir
að kaupa stærri bíla. Auk þess
felldi ríkisstjórn Reagans staðla
um bensíneyðslu á hverja mílu í
gleymsku. Álríkisstjórnin gefur út
bók þar sem skráð er bensíneyðsla
allra bílategunda á hverja mílu, en
í fyrra skar hún niður fjárframlög
til bókarinnar um 70% svo að nú
þurfa neytendur að verða sér úti
um þessa vitneskju á eigin spýtur.
„Það er fjarskynjunarkenningin
um markaðsupplýsingu," segir
Amory B. Lovins, sérfræðingur
um náttúruvörslu. Hann sagði að á
stjórnarárum Reagans hefði orku-
málaráðuneytið dregið úr fjárveit-
ingum til að bæta hagnýtingu orku
með rannsóknum, þróun og aug-
lýsingum um 71%.
Framboð og eftirspurn
Á sama tíma og stjórnvöld hafa
haft afskipti af markaðnum til að
tryggja fullnægjandi eldsneytis-
birgðir í landinu, hafa þau sjaídan
lagt sig fram um að hvetja til
víðtæks orkusparnaðar, sagði ann-
ar sérfræðingur, Arthur H. Rosen-
feld, eðlisfræðingur og forstjóri
miðstöðvar byggingarvísinda við
Kaliforníuháskóla í Berkeley.
„Við búum við þessa óheppilegu
hefð,“ segir hann. „Stjórnvöld
skipta sér eitthvað af birgðahlið-
inni, ganga jafnvel svo langt að
niðurgreiða hana, vegna þess að
það hefur einhver áhrif á viðskipta-
jöfnuðinn." Þeir sem móta stefn-
una gera sér grein fyrir þvi að því
fleiri olíulindir eða því fleiri kjarn-
orkuver sem eru í landinu því
minni þörf er fyrir innflutning elds-
neytis og þar með minna öryggis-
leysi á stríðstímum. En að skera
niður innflutning með því að draga
úr neyslu - s.s. að einangra þakið
á húsinu betur og búa til betri vélar
í bíla - er álitið eiga að vera frjálst
val einstaklingsins.
Einstaklingar vilja njóta
sparnaðarins strax
Þó að olíufélög og rafmagnsveit-
ur séu reiðubúin að fjárfesta til að
bæta birgðastöðuna, þó að sú fjár-
festing skili ekki arði næstu 10 árin
eða lengur, eru flestir orkuneyt-
endur því aðeins reiðubúnir að búa
í haginn hjá sér ef þeir verða
sparnaðarins varir eftir tvö til þrjú
ár. „Og svo erum við að velta
vöngum yfir hvers vegna við eyðum
tvisvar sinnum meira af þjóðartekj-
unum á orkugjafa en aðrar þjóðir,"
segir Rosenfeld.
Tiltölulega háir orkureikningar
bandarísku þjóðarinnar eru drag-
bítar á efnahagslífinu. Japanar
eyða helmingi minni orku til að
framleiða 1.000 dollara virði af
vörum og þjónustu en Bandaríkja-
menn, og Vestur-Þjóðverjar litlu
meira. Bandaríkjamenn gætu mik-
ið lært af þessum tveim þjóðum,
segir dr. Lee Schipper, virtur vís-
indamaður við Lawrence Berkeley
rannsóknastofnunina í Kaliforníu,
en það þarf að velja og hafna úr
upplýsingunum. Japanar og Vest-
ur-Þjóðverjar hita bara upp hús
u.þ.b. helming á við Bandaríkja-
menn miðað við hvern einstakling.
Og að vísa til „húshitunar" í Japan
eru ýkjur miðað við bandarískar
siðvenjur; hús eru þar yfirleitt ekki
hituð nema upp í 15 gráður á
celsíus.
Eru Japanar að fara
sömu ieið og Bandarikja-
menn í orkusóun?
ísskápar eru mesti einstaki orku-
svelgurinn á flestum bandarískum
heimilum. Nýr meðalísskápur þar
notar 1.200 iu'lówattstundir á ári,
en nýr japanskur meðalísskápur
notar 500 kílówattstundir. Dr.
Schipper segir að helmingur þessa
mismunar felist í því að japanskir
ísskápar eru minni. En hinn helm-
ingurinn er einfaldlega vegna þess
að japanskir ísskápar séu betur
gerðir. Hann segir þó að jafnvel
Japanar virðist vera að missa áhug-
ann á orkusparnaði, að mörgu leyti
af sömu ástæðum og Bandaríkja-
menn. „Góðir verkfræðingar sem
áður voru að leita leiða til að draga
úr orkunotkun, eru nú að brjóta
heilann um nýja liti á ísskápana,“
sagði hann.
Margt mætti hins vegar gera,
sérstaklega hvað varðar að bæta
hagnýtingu raforkunnar. f Maine
hafa t.d. reglugerðarsmiðir orku-
veitna nýlega hafnað 4 milljarða
dollara samningi til 29 ára um
innflutning rafmagns frá Kanada,
og báru því við að aðalorkuveitur
Maine-fylkis hefðu ekki fullkannað
aðra kosti, eins og að bæta nýtingu
og orkukaup frá sjálfstæðum fram-
leiðendum, sem framleiða raforku
með því að brenna úrgangsefnum.
Ýmsar leiðir tii bættrar
orkunýtingar kannaðar
í Maine
Aðalorkuveitur Maine-fylkis eru
nú í þann veginn að leggja á ýmsar
nýjar brautir í orkusparnaði. T.d.
selja Lions-klúbbarnir í Maine á
hverju ári Ijósaperur til að safna fé
til góðgerðastarfs. í fyrra gáfu
aðalorkuveiturnar klúbbunum
246.000 hánýtingar Ijósaperur, sem
klúbbarnir seldu síðan 6 saman í
kassa fyrir 5 dollara. Aðalorkuveit-
urnar halda því fram að þegar
þessar perur séu í notkun spari þíer
neytendum peninga á rafmagns-
reikningunum, auk þess sem veit-
urnar sjálfar spari 11 megawatta
orku. og þar með meira fé en þær
gáfu fyrir perurnar sjálfar í upp-
hafi.
200
150
100
50
i I I i II' I I ! ' i | I I 0
72 73 74 75 76 77 78 79 '80 '81 '81 '83 '84 '85 '86 '87
».»ji f-jpi *-• '••. •-•■« ••• ••• »'#\ f♦'< 144 ‘X '#>'v öf'4