Tíminn - 18.05.1989, Blaðsíða 11
10 Tíminn
Auglýsing frá
menntamálaráðuneytinu
Hátíðardagskrá
í Þjóðleikhúsinu í tilefni af aidarafmæli Gunnars
Gunnarssonar, skálds
í dag kl. 17.30.
Ávörp flytja Svavar Gestsson, menntamálaráð-
herra og Steinunn Sigurðardóttir, varaformaður
Rithöfundasambands íslands, Sveinn Skorri
Höskuldsson, prófessor flytur erindi um skáldskap
Gunnars Gunnarssonar.
Leiklestur úr Svartfugli: Þorsteinn Gunnarsson,
Jakob Þór Einarsson, Sigurður Karlsson og Gísli
Rúnar Jónsson flytja.
Leikstjóri: Bríet Héðinsdóttir.
Arnar Jónsson les kafla úr Fjallkirkjunni og flytur
Ijóð eftir Guðmund Böðvarsson.
Gísli Halldórsson flytur Ijóð eftir Hannes Péturs-
son.
Gunnar Kvaran leikur einleik á selló.
Kynnir verður Kristbjörg Kjeld.
Menntamálaráðuneytið 11. maí 1989.
Dagskráin er öllum opin. Aðgangur ókeypis.
Nám fyrir
ISLANDS skola
í febrúar 1990 hefst öðru sinni framhaldsnám í
Kennaraháskóla íslands fyrir skólastjóra og yfirkennara
við grunn- og framhaldsskóla sem hlotið hafa a.m.k.
þriggja ára starfsreynslu. Námið er skipulagt sem þrjú
5 eininga námskeið og tekur u.þ.b. eitt og hálft ár. Hvert
námskeið hefst með tveggja vikna vinnu í Kennarahá-
skóla íslands. Síðan tekur við fjarkennsla. Teknir verða
25 þátttakendur í námið.
Umsóknarfrestur er til 30. júní.
Nánari upplýsingar ásamt umsóknareyðublöðum fást á
skrifstofu skólans, Stakkahlíð, 105 Reykjavík, sími:
91-688700.
Rektor.
NORRÆNA HÚSIÐ
P0HJ0LAN TAL0
NORDENS HUS
i-n-nr
iOI REYKJAVÍK K 17030 ISLAND
Frá Norræna húsinu
Umsóknir um sýningaraðstöðu í sýningarsölum
Norræna hússins fyrir árið 1990 verða að hafa
borist í síðasta lagi fyrir 25. júní 1989.
Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist:
Lars-Áke Engblom forstjóra
Norræna húsinu
v/Hringbraut
101 Reykjavík.
Frá grunnskólunum
í Mosfellsbæ
Innritun nýrra nemenda fyrir næsta vetur fer fram
í skólunum 18., 19. og 20. maí frá kl. 9-12.
Áríðandi er að tilkynna nýja nemendur vegna
deildaskiptinga næsta skólaár.
6-12 ára (0.-6. bekkur) í síma 666154 og 13-15
ára (7.-9. bekkur) í síma 666186.
Skólastjórar
Fimmtudagur 18. maí 1989
Fimmtudagur 18. maí 1989
Tíminn 11
Meðal umræðuefna á fundi íþróttamálaráðherra Evrópuráðs:
Ofbeldi og lyfjanotkun
Evrópukeppni félagsliða:
Napoli
tengslum við fþróttir meistarar
/a i litífLi hór ó lonrlí fnnrliir íhrnttiim- a ua tii í Hmminn aA íhrnttnm Verðnr svninó verkanna sett
Þann þrítugasta þessa mánaðar hefst hér á landi fundur íþróttam
álaráðherra aðildarríkja Evrópuráðsins. Fundinn sækja allir íþrótt-
amálaráðherrar viðkomandi landa, auk fjölda áheyrnarfulltrúa frá
hinum ýmsu samböndum. Gert er ráð fyrir að aðgerðir vegna
ofbeldis og átaka áhorfenda á íþrftakappleikjum, lyfjanotkun og
efnahagslegt mikilvægi íþrótta verði aðalumræðuefni fundarmanna.
Petta er sjötti fundur íþróttamálaráð-
herranna og mun hann fara fram á
Kjarvalsstöðum. Verkefnum á ráðstefn-
unni er skipt í tvo meginmálaflokka.
Annars vegar er um að ræða aukna
samvinnu um íþróttastarf í Evrópu og
hins vegar stefnumótun þeirra þátta
íþróttamála sem efst eru á baugi.
1 kjölfar hörmulegra atburða á íþrótta-
leikjum undanfarið er gert ráð fyrir að
sjónir ráðstefnugesta muni einkum bein-
ast að skýrslu formanns nefndar sem fæst
við aðgerðir vegna ofbeldis og átaka
áhorfenda á íþróttakappleikjum. Jafn-
framt verður efnahagslegt mikilvægi
íþrótta, drög að sáttmála varðandi lyfja-
notkun í íþróttum, meiðsli, kynþáttamis-
munur í íþróttum og margt fleira, tekið
til umfjöllunar.
Við Evrópuráðið starfar sérstök
íþróttamáladeild sem fæst við gerð sátt-
mála og samkomulags varðandi ýmsa
þætti íþróttamála. Deildin heldur árlega
fundi með fulltrúum ríkisstjórna og
íþróttasambanda viðkomandi landa.
Jafnframt halda ráðherrar ríkjanna, með
reglulegu millibili, bæði formlega og
óformlega fundi sín á milli um þessi mál.
íþróttamál á íslandi falla undir
menntamálaráðuneytið og er því Svavar
Gestsson íþróttamálaráðherra hér á
landi. Yfirleitt fylgja þessi mál menning-
armálum og ráðuneytum sem hafa um
sjón með þeim. Pó er til í dæminu að
önnur ráðuneyti, eins og í einu tilviki
landbúnaðarráðuneyti, skipi viðkomandi
ráðherra.
Gert er ráð fyrir að fundinn sæki
fulltrúar allra 25 ríkjanna sem undirritað
hafa menningarsáttmála Evrópuráðsins.
Auk áheyrnarfulltrúa frá ráðgjafaþingi
Evrópuráðsins, UNESCO, fram-
kvæmdastjórn Evrópubandalagsins, Al-
þjóðlegu Ólympíunefndinni, Alþjóða-
sambandi sérsambanda í íþróttum að
ógleymdum fulltrúum frá Kanada, Ung-
verjalandi og Póllandi.
í tengslum við fundinn verður bryddað
upp á ýmsu gestum til skemmtunar.
Meðal annars hefur farið fram samkeppni
meðal listamanna um viðfangsefni tengt
íþróttum. Verður sýning verkanna sett
upp á Kjarvalsstöðum. Skólakór Kárs-
ness og strengjasveit Tónlistarskólans í
Reykjavík, ásamt fleiri tónlistarmönn-
um, frumflytja tónverk eftir Atla Heimi
Sveinsson við ljóð eftir Jóhannes úr
Kötlum. Þá mun Glímusamband íslands
annast sýningu á íslenskri glímu á flötinni
sunnan við Kjarvalsstaði, í lok fundarins.
Einnig verður farið með gesti til Þingvalla
og kynnisferð um Reykjavík.
Jafnframt hefur verið gert sérstakt
merki í tilefni fundarins, gefinn út póst-
stimpill og tvö Evrópufrímerki. Fundin-
um lýkur fyrsta júní og degi síðar halda
hinir erlendu gestir af landi brott. jkb
Napoli varð Evrópumcistari fé-
lagsliða í gærkvöldi þegar liðið
gerði jafntefli við Stuttgart 3:3 á
heimavelli þeirra síðarnefndu.
Napoli vann samanlagt 5:4.
Leikurinn var mjög fjörugur
framan af, en það voru gestirnir
sem skoruðu fyrsta ntarkið. Var
þar að verki Brasilíumaðurinn Al-
emao. Stuttgart svaraði fljótlega
fyrir sig og var þar að verki
Kiinsmann, eftir góða hornspyrnu
frá Ásgeiri Sigurvinssyni.
Napoli gerði út unt Evrópu-
draum Stuttgart með tnarki Ferr-
ara og síðan bætti Careca þriöja
markinu við. Stuttgart klóraði í
bakkann, er skot Gaudinio fór í de
Napoli og þaðan í netið. Jöfnunar-
mark Stuttgart kom á síðustu mín-
útu eftir varnarmistök. Þar var að
verki Olav Schmaler.
Leikurinn var í heild góður og
ánægjulegt að sjá lil Ásgeirs sem
átti góðan leik og verður gaman að
sjá hann spila með ísiensku lands-
liðinu gegn Sovétmönnum í
Moskvu.
MM i -a=t==_„
lESTUNARÁHTLUN
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Árhus:
Alla þriðjudaga
Svendborg:
Annan hvern þriðjudag
Kaupmannahöfn:
Alla miðvikudaga
Varberg:
Alla fimmtudaga
Moss:
Alla laugardaga
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Hvassafell.........24/5
Gloucester/Boston:
Alla þriðjudaga
New York:
Alla föstudaga
Portsmouth/Norfolk:
Alla sunnudaga
SKifíADE/LD
SAMRAAIDSJMS
LINDARGÖTU 9A • 101 REYKJAVlK
SlMI 698100
Á 1 A A Á A A A
!AKN IRAIJMRA H.UININGA
Kylfingarnir sem fóru „holu í höggi“ í golfinu á síðasta
sumrí.
40mannsfóru
„holu í höggi"
Á dögunum fengu nær 40 íslendingar á öllum aldri
viðurkenningu fyrir það afrek að fara „holu í höggi“ á
síðasta sumri. Fyrirtækið Johnnie Walker veitti heiður-
skjalið, en það er einnig veitt í mörgum öðrum löndum
heims. Allir kylfingarnir verða sjálfkrafa félagar í Ein
herjaklúbbi íslands, en það er félag íslendinga sem afrekið
hafa unnið.
Smáþjóðaleikarnir á Kýpur
Tap fyrir
Andorra í
körfubolta
Gengi íslensku keppendanna á Smáþjóðaleikunum á
Kýpur var mjög misjafnt, fyrsta dag keppninnar í gær.
Mesta athygli vakti tap íslenska karlalandsliðsins í körfu
knattleik gegn Andorra 79-83, eftir að okkar menn höfðu
yfir í hálfleik 43-42.
í blaki sigruðu heimamenn íslensku strákana með
þremur hrinum gegn engri.
Sundmönnum okkar gekk hinsvegar vel og komust allir
áfram í úrslitariðlana sem verða í dag. í frjálsum íþróttum
varð Jón A. Magnússon í öðru sæti í hundrað metra hlaupi
á 10,92. Súsanna Helgadóttir náði sama árangri á tímanum
11,95.
Marta Ernstdóttir varð í 3. sæti í 1500 metra hlaupi.
Gunnar Kjartansson var efstur keppenda í leirdúfuskot-
fimi eftir fyrsta dag með 72 stig af 75 mögulegum.
STAÐGREIÐSLA 1989
NAMSMANNA-
SKATTKORT
Breyft fyrirkomulag
HVERJIR EIGA RÉTT
ÁNÁMSMANNA-
SKATTKORTI?
Rétt á námsmannaskattkorti árið
1989 eiga þeir.námsmenn, fæddir
1973 eða fyrr, sem stundað hafa
nám á vormisseri og nýtt hafa lítið
sem ekkert af persónuafslætti sín-
um á þeim tíma og ekki flutt hann
til maka.
BREYTT ÚTGÁFU-
FYRIRKOMULAG
Sú breyting hefur verið gerð að
í ár þarf ekki að sækja sérstak-
lega um námsmannaskattkort
nema í undantekningartilvik-
um. Ríkisskattstjóri mun á grund-
velli upplýsingafráskólum um það
hverjir teljast námsmenn og frá
launagreiðendum um nýtingu
persónuafsláttar þeirra gefa út
námsmannaskattkort og senda til
þeirra sem rétt eiga á þeim í byrjun
júní nk.
Námsmenn við erlenda
skóla þurfa hins vegar að sækja
sérstaklega um námsmanna-
skattkorttil ríkisskattstjóra.
Útgáfu námsmannaskatt-
korta annast staðgreiðsludeild
ríkisskattstjóra, Skúlagötu 57,150
Reykjavík. Sími 91 -623300.
BREYTTUR GILDISTÍMI
Gildistíma námsmannaskatt-
kortsins hefur verið breytt. Nú er
heimilt að nota námsmannaskatt-
kortið frá útgáfudegi til og með 31.
desember 1989 í staðjúní, júlí og
ágúst eins og áður.
Athugið að námsmanna-
skattkort gefin út á árinu 1988
eru ekki lengur í gildi.
BREYTT MEÐFERÐ
PERSÓNUAFSLÁ TTAR
Á námsmannaskattkorti 1989
kemur fram heildarfjárhæð per-
sónuafsláttar sem kortið veitir rétt
til en ekki mánaðarleg fjárhæð
eins og áður. Við ákvörðun stað-
greiðslu korthafa ber launagreið-
anda að draga þennan afslátt frá
eftir þörfum þar til hann er upp-
urinn, samhliða persónuafslætti
námsmanns samkvæmt aðal-
skattkorti og skattkorti maka hans
ef þau eru afhent honum.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
JO» RCYKJAVIK
17030 ISLAND
N0RRÆNA HÚSIO
P0HJ0LAN TALO
N0RDENS HUS
Ræsting
Norræna húsið óskar eftir að ráða starfskraft til
ræstinga sem fyrst.
Aðalvinnutími er kl. 7 til 11 á morgnana.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnar Heið-
dal húsvörður í síma 1 70 30 milli kl. 9-11.
Norræna húsið.
Verkstæðissala
Hornsófar og sófasett á heildsöluverði.
Bólsturverk,
Kleppsmyrarvegi 8. Sími 91-36120.
TÖLVUNOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðír eyðublaða fYrír tölvuvinnslu.
PRENTSMIOJ AN bm^
ddddct
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000
Hefurðu verðskyn?
Þá skaltu líta nánar á þetta...
KS145 kæliskápur
143 lítra kælirffæst
einnig með frystihólfi
4 hiliur,
2 grænmetisskúffur,
lítilstraumnotkun.
Blomberg
FS120 frystiskápur
113 lítra djúpfrystir,
4skúffur,
lítil straumnotkun.
Blombera
Verðkr. 22.900,-
Staðgr. 21.760.-
Góð kjör.
Verð kr. 28.900.-'
Staðgr. 27.450.-
Góð kjör.
Einar Farestveit&Co.hf.
BORQARTÚN 28, SÍMAR: (91) 16995 OQ 622900 - NÆO BÍLASTÆÐI