Tíminn - 15.06.1989, Qupperneq 12
12 Tíminn
Fimmtudagur 15. júní 1989
Jónasdóttir
Helga
Fædd 21. desepiber 1894
Dáin 2. júní 1989
Elsku amma!
Nú þegar leiðir skiljast í hinsta
sinn rifjast svo ótal margt upp, sem
ég er svo þakklát fyrir.
Allar samverustundirnar, hvort
sem var í stórum frændsystkinahóp
við hlaðið kaffiborð, eða þegar við
sátum saman tvær og ræddum málin.
Pú hafðir eitthvert aðdráttarafl
sem dró mann til þín. Enda er það
engin tilviljun að svona margir heim-
sóttu þig, allt fram á síðustu stundu.
Pað var alveg ótrúlegt hvað þið afi
höfðuð mikla þolinmæði með öllum
barnabörnunum sem hópuðust í
heimsókn á Kirkjuveginn. Alltaf var
eitthvað til með kaffinu, og ef þú
vissir að von var á mér úr Kaldárseli
eða að utan, þá gat ég verið viss um
að nýbökuð appelsínukaka biði mín
á eldhúsborðinu. Svona gastu látið
hvern og einn vera sérstakan gest,
jafnvel þó maður kæmi oft á dag.
En skemmtilegust varstu, þegar
þú fórst að ræða um pólitíkina. Þó
að þið afi hafið verið sjálfstæðisfólk
inn í merg og bein, þá gastu alltaf
liðið öðrum að vera á öndverðum
meiði, en lifðir þig þá bara enn
frekar inn í umræðuna. Þú komst í
sérstakan ham, þegar pólitík bar á
góma í samræðum, sérstaklega á
seinni árum.
Og hvað þú gast dásamað Hnífs-
dalinn. Strax í barnæsku sagðirðu
mér frá æskustöðvunum þínum. Síð-
an þegar ég fluttist á Vestfirðina
sjálf, fannst mér ég geta sagt frá því
með töluverðu stolti að ég væri frá
Hnífsdal. Erfið hlýtur lífsbaráttan
að hafa verið hjá útvegsbóndahjón-
um með 5 börn á afskekktum stað,
enda þreyttist þú aldrei að segja
okkur krökkunum frá æskuárunum.
Elsku amma mín, þó svo að þú
hafir kvatt okkur södd lífdaga, þá á
ég samt eftir að sakna þín. Að þú
skulir ekki vera enn til staðar er
svolítið erfitt að kyngja. En ég veit
að þú ert komin í góðan hóp og
margir hafa beðið eftir þér lengi.
Með þessum fátæklegu orðum vil
ég þakka þér og afa fyrir allt sem þið
gáfuð mér og áreiðanlega mörgum
öðrum barnabörnum í gott lífsvega-
nesti.
Megi góður guð geyma þig til
eilífðar. Alnafna.
lllllllllll LEIKLIST :h! "-'ii,:: '
Færeyskir gestir á litla sviðinu:
Skáldkonan
í Mykjunesi
Fyrir helgi settu nokkrir Færey-
ingar upp verkið „Logi, logi eldur
mín“ í Þjóðleikhúsinu. Vcrkið er
leikgerð eftir ritsafni færeysku
skáldkonunnar Jóhönnu Maríu
Skylv Hansen. Það var frumsýnt í
Færeyjum í fyrra í tilefni þess að
hundrað ár voru liðin frá jólafundi
Færeyinga þegar þeir komu saman
og strengdu þess heit að hefja
færeyska tungu og menningu til
vegs og virðingar.
Laura Joensen er eini leikarinn í
sýningunni. Hún er meðal fremstu
leikara Færeyinga og meðlimur
atvinnuleikhópsins Grímu. Leik-
gerðin var unnin af Malan Simon-
sen, Lauru og Eyðunni Johannesen
sem jafnframt er leikstjóri sýning-
arinnar. Tónlistin var unnin af
Sunnleif Rasmussen og Inga Joen-
sen sá um leikmynd og Ijósmyndir.
Leikmyndin er einföld og hentar
vel leikriti sem ferðast er með. Allt
sem til þarf, fyrir utan smáhluti
eins og klúta og bækur sem auðvelt
er að flytja, er kommóða, stólar og
blómasúlur frá byrjun þessarar
aldar.
Leikritið er ekki beinlínis ævi-
saga Jóhönnu heldur byggir það á
skáldskap hennar og gefur innsýn í
það líf sem hún lifði. Rödd skáld-
konunnar heyrðist úr útvarpsvið-
tali sem tekið var þegar hún var 92
ára og tónlistin í uppsetningunni er
byggð á eina laginu sem þekkt er
eftir hana. Markmið Jóhönnu með
skrifum sínum var ekki að rita
ævisögu sína heldur var henni efst
í huga að varðveita menningararf
Færeyinga í þjóðfélagi sem tók
örum breytingum. í bókum hennar
er því blandað saman frásögnum af
fólki, þjóðsögum og vísum, verk-
Iýsingum og fleiru.
Laura brá sér í hlutverk sögu-
manns og lék á als oddi sem slík.
Hún tíndi fram eitt og annað úr
kommóðu sem hafði verið í eigu
ömmu hennar, sendibréf, bækur
skáldkonunnar og fleira. Hún las
kafla úr bókunum, fór með vísur
og sagði sögur úr þeim, lék persón-
urnar sem fyrir komu, hnýtti brúð-
ur og svo framvegis.
Eftir á er áhorfandinn töluvert
kunnugri skáldkonunni. Hún hefur
haft kímnigáfuna í lagi og verið
mjög trúuð. Sérstaklega kom trúin
skýrt fram í tónlistinni sem var
einstaklega falleg og vel unnin.
Jóhanna hefur þurft að glíma við
eitt og annað eins og títt var um
konur á fyrri hluta þessarar aldar.
Meðal annars missti hún eitt barna
Leikritið byggir á verkum skáld-
konunnar Jóhönnu Maríu Skylv
Hansen.
sinna, bjó lengi í afskekktum vita
á Mykjunesi og fleira.
Á meðan á sýningunni stóð var
brugðið upp myndum frá Færeyj-
um. Bæði af byggðinni og fólkinu,
einkum börnum að leik. Á meðan
myndum af börnum var varpað á
vegg andspænis áhorfendum var
meðal annars farið með gamlar
barnaþulur eða leiki sem krakkarn-
ir leika greinilega ennþá.
Á heildina litið fannst mér verk-
ið vera fróðleg kynning á Færeyj-
um og skáldkonunni. jkb
llllllllllllllllllllllllll DAGBÓK
Sjóminjasafn á Eyrarbakka
Á þjóðhátíðardaginn, 17. júní kl.
14:00, verður Sjóminjasafnið á Eyrar-
bakka formlega opnað fyrir gesti eftir
miklar endurbætur á húsnæði og sýningu
safnsins.
Stærsti og merkasti munurinn í safninu
er Farsæll, tólfróið áraskip, smíðað af
Steini Guðmundssyni bátasmið á Eyrar-
bakka. Steinn var helsti bátasmiður Sunn-
lendinga undir lok seinustu aldar og í
byrjun þessarar og smíðaði hann um 400
báta og skip á sinni tíð. Farsæll er sýndur
undir rá og reiða, eitt íslenskra áraskipa.
1 safninu eru m.a. veiðarfæri og munir
tengdir sjósókn fyrri tíðar og myndir og
munir úr verslunar- og atvinnusögu Eyr-
arbakka.
Sjóminjasafnið á Eyrarbakka, Túngötu
59, verður opið daglega í sumar kl.
14:00-17:00 fram til 1. september.
Opið hús í Gallerí B0RG
í dag, fimmtudaginn 15. júní, tekur
Gallerí Borg í notkun nýtt húsnæði í
Austurstræti 10, uppi á lofti í Pennanum,
en Gallerí Borg hefur nú tekið yfir alla
hæðina.
„Opið hús“ verður í tilefni af 5 ára
afmæli Gallerís Borgar í dag kl. 17:00-
19:00. Á báðum stöðunum (Pósthússtræti
9 og Austurstræti 10) „verður boðið upp
á léttar veitingar og eru allir velkomnir að
kíkja inn og fagna þessum tímamótum,“
segir í fréttatilkynningu frá Gallerí Borg.
I nýja húsnæðinu í Austurstræti 10 er
nú sýning á verkum yngri listamanna, allt
nýleg verk, má t.d. ncfna verk eftir
Jóhannes Jóhannesson, Kristján Davíðs-
son, Hring Jóhannesson, Tryggva Ólafs-
son, Jóhannes Geir, Kjartan Guðjóns-
son, Leif Breiðfjörð o.m.fl.
Allar myndirnar eru til sölu og verða
þær teknar niður jafnóðum og þær seljast
og nýjar hengdar upp í staðinn.
Gallerí Borg er opið virka daga kl.
10:00-18:00, en yfir sumartímann er Gall-
eríið lokað um helgar.
Frá Félagi eldri borgara
Laugardaginn 17. júní fellur niður
gönguferð hjá Göngu-Hrólfi.
Opið hús í dag, fimmtudag, í Goðheim-
um, Sigtúni 3. Kl. 14:00 er frjáls spila-
mennska, kl. 19:30 félagsvist og kl. 21:00
er dansað.
Opið hús á laugardag 17. júní í Goð-
heimum, Sigtúni 3, frá kl. 20:00. Dans-
leikur og skemmtiatriði.
Næstu helgarferðir F.í.
16.-18. júní - Þórsmörk. Gist í Skag-
fjörðsskála/Langadal. Gistiaðstaða eink-
ar góð. Gönguferðir um Mörkina við
allra hæfi.
16.-18. júní - Mýrdalur - Heiðardalur
- Dyrhólaey - Reynishverfi. Gist í svefn-
pokaplássi. Möguleiki er á bátsferð frá
Vík í Dyrhólaós.
23.-25. júní - Þórsmörk. Gist í Skag-
fjörðsskála/Langadal.
30. júní-2. júlí - Dalir. Gengin gömul
þjóðleið: Hvammur-Fagridalur. Gist í
svefnpokaplássi.
30. júní-2. júlí - Öræfajökull. Gist í
svefnpokaplássi á Hofi.
30. júní-2. júlí: - Ingólfshöfði. Gist í
svefnpokaplássi á Hofi. Upplýsingar og
farmiðasala á skrifstofu F.í.
Sumarsýning í Gallerí Borg:
„Gamlir meistarar“
í Gallerí Borg, Pósthússtræti 9, er nú í
aðalsalnum sérstök sýning á verkum
gömlu meistaranna. Þar eru tíl sýnis og
sölu verk eftir Ásgrím Jónsson, J.S.
Kjarval, Jón Stefánsson, Gunnlaug
Blöndal, Þorvald Skúlason o.fl. í kjallar-
anum eru olíu-, pastel- og vatnslitamyndir
eftir ýmsa listamenn. Galleríið er opið
virka daga kl. 10:00-18:00.
Grafík-Gallerí Borg
í Grafík-Gallerí Borg, Austurstræti
10, er mikið úrval af grafík og keramiki,
einnig olíuverk eftir yngri kynslóðina í
stækkuðu sýningarrými. Grafík-galleríið
er opið virka daga kl. 10:00-18:00.
Illllllllllllllllllilil DAGBÓK lilllllllllllliiiiiillllllllllliiiiilllllllllllllliiiilllllllllllllliiiillllllllllliii
Aðsend mynd frá Færeyjum
Frá Færeyjum barst þessi mynd, en hún
var tekin í tilefni af utanríkisráðherra-
fundi Norðurlandanna, sem haldinn var í
Færeyjum í vetur sl. á myndinni eru
t.f.v.: Helgi Ágústsson, Bryndís Schram,
Guðlaugur Tryggvi Karlsson og Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra.
Guðlaugur Tryggvi Karlsson sagði að það
væri alltaf skemmtilegt fyrir Islendinga að
heimsækja Færeyjar og þar væri gestrisni
mikil. Hann sagði það hafa vakið athygli
gesta þar hversu allt væri þrifalegt í
Færeyjum og miklar framkvæmdir um
allar eyjarnar, sérstaklega í vegamálum.
Næsti misserisfundur utanríkisráðherr-
anna verður haldinn á íslandi.
Þorlákur Kristinsson (Tolli) ásamt nokkrum verkum sínum.
„T0LU“ sýndi á
SCAG í Kaupmannahöfn
Nýlega hélt „TOLLl“ sína fjórðu list-
sýningu í Danmörku. Tolli, eða Þorlákur
Kristinsson, sýndi 20 olíumálverk í
SCAG - Scandinavian Contemporary
Art Gailery, Amaliegade 6 í Kaupmanna-
höfn frá 20. maí og fram í júnímánuð.
Hann hefur sýnt í Reykjavík og Seoul og
1987 sýndi hann á Ballerup Festivalen.
Einnig hefur Tolli tekið þátt i mörgum
samsýningum í Þýskalandi, Frakklandi
og Danmörku.
Málverkin á sýningu Tolla á SCAG
voru allar til sölu og var verðið frá 4000
dkr.-28000 dkr.
Sumarnámskeið í Kramhúsinu
Kramhúsið heldur alþjóðlegt sumar-
námskeið dagana 19. júní-2. júlí. Annað
árið í röð heldur Kramhúsið 10 daga
heilsdags námskeið fyrir dansara og dans-
áhugafólk. Einnig er mögulegt að sækja
einstaka kennslugreinar innan nám-
skeiðsins fyrir þá sem ekki geta nýtt sér
námskeiðið að fullu. Kennslugreinar eru:
Klassískur ballett, kennari Auður
Bjarnadóttir. Danstækni og kóreógrafík,
kennarar Anna Haynes og Christien Po-
los og jassdans/nútímajass/blues, kennar-
ar Adriennc Hawkins og Christien Polos.
Þátttakenda er vænst víða að og er
fjöldinn takmarkaður, svo fólki er bent á
að skrá sig sem fyrst. Sýning verður að
loknu námskeiðinu.
1 júlí heldur Kramhúsið áfram starf-
semi sinni með leikfimi, samba, karneval/
afró. Einnig verður boðið upp á leikfimi
fyrir fólk með álagssjúkdóma.
Helgina 23.-25. júní verður reiðnám-
skeið á vegum Kramhússins haldið á
Sigmundarstöðum í Hálsasveit. Kennari
Reynir Aðalsteinsson.
Landslagsmyndir í
Safni Ásgrims Jónssonar
1 Safni Ásgríms Jónssonar við Berg-
staðastræti hefur verið opnuð sýning á
landslagsmyndum eftir Ásgrím. Sýndar
eru 24 myndir, bæði olíumálverk og
vatnslitamyndir. Þar eru nokkrar eldri
vatnslitamynda Ásgríms, svo sem myndin
Brenna í Rútsstaðahverfi í Flóa frá 1909.
. Á sýningunni eru einnig nokkrar öræfa-
myndir, t.d. frá Kerlingarfjöllum. Flestar
eru myndirnar frá Borgarfirði, þar sem
Ásgrímur var langdvölum á efri árum,
einkum á Húsafelli. Má nefna olíumál-
verkin Sólskin á Húsafelli og Úr Húsa-
fellsskógi, Eiríksjökull og vatnslitamynd-
irnar Kiðárbotnar og Strútur og Eiríks-
jökull frá 1948.
Sýningin stendur til septemberloka og
er opin kl. 13:30-16:00 alla daga nema
mánudaga.
Aðaifundur UMHYGGJU -
félags áhugafólks um þarfir
sjúkra barna
Félag áhugafólks um þarfir sjúkra
barna, UMHYGGJA, heldur aðalfund
sinn miðvikudaginn 21. júní kl. 20:30 (
fundarsal Hjúkrunarfélags Islands,
Suðurlandsbraut 22.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosin ný stjórn. 3. Sjúkraþjónusta
barna - umræður.
Gestur fundarins Birgir Jakobsson.
doktor í barnalækningum, fjallar um
sjúkraþjónustu barna.
Allir eru velkomnir sem hafa áhuga á
velferð sjúkra barna, jafnt innan stofnana
sem utan. Stjórnin
Sumarleyfisferðir F.í. í júní
24.-29. júní (6 dagar): Vestfirðir
Ekið til Þingeyrar í Dýrafirði og gist
þar í þrjár nætur. Farnar skoðunarferðir,
m.a. gengið milli Dýrafjarðar og Arnar-
fjarðar um Svalvoga. Gist tvær nætur í
Breiðuvík og m.a. farið á Látrabjarg.
Fararstjóri: Sigurður Kristinsson.
28. júní-1. júií (4 dagar): Ferð um
Breiðafjaröareyjar. Siglt með Hafrúnu
um eyjar vestan Stykkishólms, í mynni
Hvammsfjarðar og til Vestureyja. Árbók
Ferðafélagsins 1989 fjallar um Breiða-
fjarðareyjar. Fararstjóri: Árni
Björnsson.
Ath.: Breytt dagsetning frá prentaðri
áætlun 1989.
Upplýsingar um ferðirnar og farmiða-
sala er á skrifstofunni, Öldugötu 3.
Ferðafélag íslands
Dagsferðir F.í.
Laugard. 17. júní - kl. 10:00: Selvogs-
gatan. Gengið frá Bláfjallavegi vestari
um Grindaskörð, Hvalskarð, vestan Urð-
arfells, um Katlabrekkur að Hlíðarvatni
í Selvögi. (1000 kr.)
Sunnud. 18. júní - kl. 13:00: Eldvörp -
Staðarhverfi. Ekið að Svartsengi og geng-
ið sem leið liggur að Eldvörpunum (göm-
ul hlaðin byrgi) og síðan áfram um
Sundvörðuhraun í Staðarhverfi vestan
Grindavíkur (1000 kr.)
Miðvikud. 21. júní - Id. 20:00: Esja -
sólstöðuferð. Gengið frá Esjubergi á
Kerhólakamb (856 m). Fólk á eigin bílum
velkomið með (600 kr.)
Miðvikud. 21. júni kl. 08:00 -
Þórsmörk. Dagsferð til Þórsmerkur (2000
kr.)
Föstud. 23. júní - kl. 20:00 - Jóns-
messunæturganga.