Tíminn - 29.07.1989, Blaðsíða 2
2 Tíminn
m
„Made of the mountain“, hin vestur-íslenska fjallkona sést hér dregin af glæsivagni ásamt fjalli sínu og fylgdariiði
í skrúðgöngu á íslendingadegi í Gimli, Manitoba.
W Mikið um dýrðir hjá Vestur-íslendingum í Winnipeg:
Islendingadagurinn
í hundraðasta sinn
Um verslunarmannahelgina verður mikið um dýrðir í
Winnipeg í Manitoba i Kanada. En þar verður íslendingadag-
urinn haldinn hátíðlegur í hundraðasta sinn, mánudaginn
sjöunda ágúst.
Forseti íslands, menntamálaráðherra og borgarstjóri
Reykjavíkur verða viðstaddir hátíðahöldin auk fjölda ís-
lenskra bænda, eldri borgara og karlakórs sem tekur þátt í
hópferð á íslendingaslóðir Kanada.
Forseti íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, heldur á laugardaginn kemur
í opinbera heimsókn til Kanada. í
lok heimsóknarinnar mun hún taka
þátt í hátíðahöldum vegna íslend-
ingadagsins. Vigdís flytur ræðu,
skoðar Gimli, gróðursetur tré og
fleira.
Erindi fjallkonunnar, flutt fyrst á
íslensku og síðan á ensku, er einn
fastra liða hátíðarinnar. Jafnframt
verður farið í skrúðgöngu og ýmis-
legt fleira til gamans gert þá daga
sem hátíðahöldin standa yfir. Búist
er við að samkvæmt venju taki yfir
þrjátíu þúsund manns þátt í þeim.
Samvinnuferðir-Landssýn hafa á
hverju ári, síðastliðin tíu ár efnt til
hópferðar í tengslum við íslendinga-
daginn. Ferðirnar hafa notið mikilla
vinsælda og hefur að sögn Helga
Daníelssonar markaðsstjóra ferða-
skrifstofunnar, verið fullbókað í
hverja einustu ferð og sú mun einnig
vera raunin í ár.
Meðal þeirra sem fara með Sam-
vinnuferðum í ár eru eins og áður
sagði karlakórinn Fóstbræður, bæði
yngri og eldri meðlimir. Á síðustu
árum hefur skapast sú hefð að ávallt
er einn kór með í förinni. Fóstbræð-
ur munu ráðgera söngferðalag um
Kanada sem hefst með tónleikum á
Íslendingadagshátíðinni.
Bændur héðan, samtals 45 manns,
taka þátt í hátíðinni og ferðast að
henni lokinni um íslendingabyggð-
imar, heimsækja aðra bændur og
kynna sér búskaparhætti. Þar fyrir
utan hefur fjöldi einstaklinga, þar á
meðal nokkrir eldri borgarar, pant-
að sæti í flugvélinni sem rúmar á
milli 230 og 240 manns. „í fyrra
buðum við eldri borgurum upp á
létta rútuferð um íslendingaslóðir.
Ferðin verður endurtekin í ár og
hefur hún hlotið nafnið „kátu dag-
amir í Kanada". Ferðin er hugsuð
fyrir þá sem hafa áhuga á að kynnast
íslendingasvæðum í kringum Gimli
og víðar,“ sagði Helgi í samtali við
Tímann.
jkb
Laugardagur 29. júlí 1989
VEIÐIHORNIÐ'
Gott hljóð í
mönnum í Selá
Það var gott hljóð í veiðimönn-
um í Selá þegar Veiðihomið aflaði
frétta þaðan í gær. Fólkið sem nú
er með ána í fjóra daga hafði í gær,
eftir tveggja daga veiði, fengið
fjömtíu Iaxá. Fjögurra daga holl á
undan þeim var með um tuttugu
fiska. Áin er nú komin í heild
éitthvað á þriðja hundrað. Laxam-
ir em flestir veiddir á flugu, smál-
axar og 10-13 punda laxar í bland.
Áin er í góðu ástandi, vatnið er
gott og hæfilegt. Göngur em ekki
miklar, en nýgengnir fiskar gera þó
oft vart við sig.
Tregt í Miðfjarðará
-en er aðkomatil
Veiðin hefur gengið treglega í
Miðfjarðará undanfarið en mun
eitthvað vera að glæðast þessa
dagana. Mikið hefur rignt upp á
síðkastið og mikið vatn hefur verið
í ánni. Ekki hefur verið nógu
mikið um lax en hann mun vera að
ganga.
Það em ítalir sem veiða í ánni
fram á sunnudag í vikuholli. Þeir
fengu í gærmorgun tíu laxa og
daginn áður veiddu þeir 22 fiska.
Samtals hafa þeir fengið 58 laxa.
Útlendingamir sem veiddu vikuna
á undan fóm heim með 91 lax.
Heildarveiðitalan er rúmlega 500
fískar.
700 laxfiskar í Grímsá
Rúmlega sjöhundruð laxar eru
komnir á þurrt í Grímsá. Seinni
partinn á fimmtudag veiddist nokk-
uð vel, 18 laxar biðu lægri hlut í
átökum við erlenda veiðimenn,
sem nú hafa ána í viku, fram á
sunnudag.
Úr Þverá og Kjarrá er það að
frétta að um níuhundmð laxar
hafa veiðst. Á síðustu dögum hafa
veiðst þetta tíu fiskar á dag að
meðaltali og mörg holl hafa farið
heim með um og yfir tuttugu laxa.
Ellefu í Iðu
Mikil veiði var f Iðu á miðviku-
daginn. Þann dag komu ellefu
laxar á land og var sá stærsti 16
pund. í fyrradag var hins vegar
ekki eins góð veiði, enginn lax
veiddist, enda hefur Veiðihomið
frétt að veiðimenn sem þá vom í
ánni hafi aðallega setið inni og
spilað bridge... hvort sem það er
rétt eða ekki. GS
Peningagjöf til Háskólans:
Gefin í minningu
Einars í Sindra
Nýlega barst Háskóla íslands
peningagjöf að upphæð 260.000,-
kr. til kaupaávísindaritum. Gjöfin
er gefín í minningu hjónanna Ein-
ars Ásmundssonar, betur þekktur
sem Einar í Sindra, og Jakobínu
Þórðardóttur og tveggja látinna
sona þeirra, Magnúsar og Ás-
mundar. Gefendur em böm og
bamaböm þeirra hjóna. Það var
ósk þeirra Einars og Jakobínu að
fjárhæð þessi rynni til Háskóla
lslands og yrði fé þetta nýtt í þágu
vísindastarfsemi Háskóla íslands
til styrktar og uppbyggingar at-
vinnulífs þjóðarinnar.
Við brautskráningu kandídata í
Háskólabíói þann 24.júní s.l.
þakkaði rektor Háskólans, dr. Sig-
mundur Guðbjamason, þennan
hlýhug til skólans. Sjálfur hefur
rektor verið mikill talsmaður þess
að efla beri tengsl Háskólans og
atvinnulífs í Iandinu og er þessi
gjöf því ánægjulegur vitnisburður
um gagnkvæman skilning á mikil-
vægi æðri menntunar fyrir atvinnu-
líf f landinu.
(Úr frcttatilkynoingu)
Nefnd á vegum menntamálaráöuneytis gerir tillögur um breytingar á úthlutunum listamannalauna:
Fjármagn til lista-
mannastyrkja aukið?
Minningarsjóður Helgu Jóns-
dóttur og Sigurliða Kristjánssonar:
2,5 millj.
króna í
námsstyrki
Á þessu ári er gert ráð fyrir að
veittir verði styrkir úr minningar-
sjóði Helgu Jónsdóttur og Sigur-
liða Kristjánssonar að upphæð
2,5 milljónir króna.
Styrkimir verða veittir tíu efni-
legum nemendum í verkfræði- og
raunvísindanámi. Eyðublöð
vegna styrkumsókna fást á aðal-
skrifstofu Háskóla íslands og
rennur umsóknafestur út þann
áttunda september. Fyrirhugað
er að tilkynnt verði um styrkveit-
ingar fyrir lok septembermánað-
ar.
Sjóðurinn var stofnaðu'r sam-
kvæmt erfðaskrá hjónanna.
Stofnfé sjóðsins var ákveðinn
hluti af þeim eignum sem þau
létu eftir sig, en heimilt er sam-
kvæmt skipulagsskrá að veita
styrki af þeim vöxtum sem sjóð-
urinn ber.
Á síðastliðnu ári voru veittir
tólf styrkir úr sjóðnum að upp-
hæð tvö hundruð þúsund-krónur
hver. jkb
Menntamálaráðherra hefur skip-
að nefnd í því skyni að gera tillögur
um nýtt fyrirkomulag á listamanna-
launum. Að sögn formanns nefndar-
innar, Ragnars Arnalds, er nefnd-
inni gert að hafa hliðsjón af tillögum
ýmissa hópa listamanna en þær
hljóða yfirleitt bæði upp á einföldun
úthlutunarkerfisins og aukið
Qármagn.
„Það eru engir varanlegir sjóðir
til. Þetta er háð fjárveitingum ríkis-
sjóðs á hverju ári. Það er meiningin
að skoða möguleika á uppstokkun
kerfisins og auka við það á vissum
sviðum," sagði Ragnar í saintali við
Tímann.
Hann sagði ástæðuná fyrir skipun
nefndarinnar vera þá að brýna nauð-
syn bæri til að endurskipuleggja
launamál listamanna. „Fyrir nokkr-
um árum kom Bandalag íslenskra
listamanna fram með mjög ýtarlegar
tillögur varðandi þetta. Tónskálda-
félagið, Félag myndlistarmanna og
óperusöngvarar hafa verið með til-
lögugerð. í bréfinu sem fylgir
nefndaskipuninni er sérstaklega tek-
ið fram að henni beri að hafa til
hliðsjónar fyrirliggjandi tilögur um
Iaunamál listamanna, einkum tillög-
ur fyrst nefnda félagsins," sagði
Ragnar.
í tillögum Bandalagsins segir með-
al annars „fjárframlög til stofnana er
fást við listir, svo sem listasöfn og
leikhús verði stórlega aukin frá því
sem nú er“. Jafnframt er í tillögun-
um gert ráð fyrir auknum starfslaun-
um og fleiru. Formaður Bandalags-
ins Brynja Benediktsdóttir sagðist
aðspurð gera ráð fyrir að til þessa
tillagna og annarra yrði tekið fullt
tillit. „Ástand þessara mála hefur
hingað til verið óviðunandi, Það-
verður að skiljast að starf listamanna
er ekki lítils virði í hverju þjóðfélagi,
það verður að meta á við vinnufram-
lag annarra þegna. Starf listamanns-
ins skilar þjóðfélaginu stórum arði
og listamaðurinn er hluti þjóðfélags-
ins, hann verður að éta eins og
aðrir,“ sagði Brynja.
Ragnar sagði núverandi kerfi út-
hlutana vera mjög flókið en þó þætti
flestum það vera heldur ófullkomið.
„Fjárveitingar eru auðvitað alltaf
ákveðnar á Alþingi. En spurningin
snýst um það í hvaða ramma þær
skuli vera. í dag er þetta þannig að
við erum með heiðurslaun, lista-
mannalaun, starfslaun listamanna,
launasjóð rithöfunda og fleira. Bæði
myndlistarmenn og tónskáld hafa
verið með óskir um að sérstaklega
yrði litið á þeirra hagsmuni," sagði
Ragnar.
Hann sagði almennan áhuga vera
fyrir því að stefna listamannalaunum
í átt til starfslauna. „Það getur vel
komið til greina að setja á stofn
sérmerkta launasjóði, sambærilega
sjóði rithöfunda fyrir aðra hópa
listamanna. Þetta verður allt tekið
til athugunar,“ sagði Ragnar. jkb
Eldur í eldavél
Slökkviliðið í Reykjavík var liðsmenn fóru inn í íbúðina og
kallað út í Æsufell rétt fyrir kl. tóku pönnuna af eldavélinni. Eig-
fjögúrtgær. Þar hafði mikill reykur afidi hennar Var sendur í skoðun,
myndast í íbúð út frá pönnu á vegna hugsanlegrar reykeitrunar.
eldavél, en ekki kviknaði neinn (jj;
eldur svo hætta stæði af. Slökkvi-