Tíminn - 29.07.1989, Blaðsíða 5
Laugardagur 29. júlí 1989
Tíminn 5
Suðumesjamenn sjá um lagningu og rekstur nýrrar vatnsveitu, sem utanríkisráðuneytið samdi um við varnarliðið:
Vatnsveita frá
varnarliðinu
FuUtrúar Vatnsveitu Suðurnesja og Jón Baldvin Hannibals-
son, utanríkisráðherra, skrifuðu undir samning í gær þar sem
segir að Vatnsveitan skuli annast lagningu og rekstur nýrrar
vatnsveitu fyrir Suðumesjasvæðið. Bandaríkjamenn munu
greiða aUan kostnað af gerð hennar, en áætlað er að hann
nemi um hálfum miUjarði íslenskra króna.
Forsaga samningsgerðarinnar er
sú, að í rannsóknum sem gerðar
voru í kjölfar olíuleka á Keflavíkur-
flugvelli í nóvember 1987, varð lff-
rænna leysiefna vart á vatnsaðdrátt-
arsvæði vatnsbóla Keflavíkur og
Njarðvíkur. Vegna hættu á aukinni
mengun taldi Heilbrigðiseftirlit
Suðumesja rétt að leitað skyldi nýrra
vatnsbóla fyrir bæjarfélögin.
íslensk stjómvöld fóm fram á að
Bandaríkjamenn kostuðu gerð nýrr-
ar vatnsveitu, og í samræmi við það
hófst undirbúningsstarf á vegum
utanríkisráðuneytisins í samvinnu
við vamarliðið. Fmmhönnun er nú
lokið og gert er ráð fyrir að borað
verði eftir neysluvatni á svonefndum
Lágum, norðvestur af Svartsengi, og
vatn leitt f leiðslum samhliða hita-
vatnsleiðslum til núverandi dreifi-
kerfis bæjarfélaganna. Við hönnun-
ina var gert ráð fyrir því að veitan
geti einnig komið öðmm sveitarfé-
lögum til góða, óski þau þess.
Samkvæmt samningnum munu
bandarfsk stjómvöld kosta gerð
vatnsveitunnar og greiða til þess um
465 milljónir króna, auk þess að
leggja fram 58 milljónir króna til
þjálfunar- og byrjunarrekstrarkostn-
aðar þegar vatnsveitan tekur til
starfa. Samningurinn gerir ráð fyrir
að vamarliðið fái neysluvatn til
næstu fímmtán ára án sérstakra
greiðslna, en eftir það mun það
greiða fyrir vatnsafnot til jafns við
aðra.
Jón Baldvin sagði að þetta væri
frambúðarlausn á vatnsveitumálum
Suðurnesjanna. Hann lagði áherslu
á að kostun Bandarfkjamanna væri
ekki skaðabótagreiðsla af þeirra
hálfu, heldur samningsbundin lausn
til að gera neysluvatn Suðumesja-
manna betra og minnka um leið
hættuna á mengun frá atvinnustarf-
semi á Keflavíkurflugvelli.
Oddur Einarsson, nýkjörinn
stjómarformaður vatnsveitunnar,
sagði að fullnaðarhönnun veitunnar
væri vel á veg komin, gert væri ráð
Utanríkisráðherra og Oddur Einarsson, nýkjörinn stjómarformaður Vatns-
veitu Suðumesja, við undirritun samnings um yfirtöku Vatnsveitunnar á
framkvæmdum og rekstri nýrrar vatnsveitu á Suðumesjum.
Tímamynd: Pjctur
fyrir að henni lyki í haust og þá gætu Flutningsgeta vatnsveitunnar
framkvæmdir strax hafist. Stefnt er verður 416 sekúndulftrar, en vamar-
að því að ljúka verkinu á miðju liðið mun hafa rétt á 83 sekúndulítr-
næsta ári. um, næstu fimmtán árin. LDH-
Iflér Néat bílaleNt, Bem nær niður ad Artunsbrekku, en myndin er tekin rétt nedan vid gatnamót Vesturlandsvegar og Höfdabakka. Á myndinni má sjá
bíla, sem reyna að komasl inn á hina örstuttu aðrennslibraut, sem á að taka við allri umferð, sem fer í Árbæ og Breiðholt. Með lengingu hennar yrði
mikil breyting til batnaðar. ttui.aiywi: Pjrtur
Tillaga fulltrúa Framsóknarflokks í borgarráði:
Umbætur við Höfðabakka
Á fundi borgarráðs s.I. þriðju-
dag flutti fulltrúi framsóknar-
flokksins, Alfreð Þorsteinsson, til-
Iögu um lagfæringar á gatnamótum
Vesturlandsvegar og Höfðabakka.
TUlaga Alfreðs var svohljóðandi:
„Á mesta álagstfma skapast
ófremdarástand á gatnamótum
Vesturlandsvegar og Höfðabakka
fyrir þá ökumenn sem koma úr
vestri og beygja til hægri í átt að
Árbæjar- og Breiðholtshverfum.
Eru dæmi til þess að bílaraðir frá
þessum gatnamótum nái að Ár-
túnsbrekku.
Úr þessu má bæta með því að
lengja aðrennslibraut fyrir þessa
umferð. Því felur borgarráð emb-
ætti gatnamálastjóra að gera nauð-
synlegar úrbætur til að greiða fyrir
þessari umferð.
Þá felur borgarráð gatnamála-
stjóra að huga að umbótum á
gatnamótum Höfðabakka og
Bæjarháls í því skyni að leysa úr
umferðarhnútum sem þar myndast
á álagstíma."
Samþykkt var að vísa tillögunni
til umferðardeildar.
í viðtali við Tímann sagði
Alfreð, að mörg dæmi væru þess,
að það tæki ökumenn 15-20 mínút-
ur að komast frá Ártúnsbrekkunni
við Nesti framhjá þessum gatna-
mótum á álagstíma. Sú lagfæring
sem hann lagði til, væri einföld og
ódýr, og hann ætti ekki von á öðru
en tillagan næði fram að ganga.
Týpískur
svona...
„Góðan daginn. Kristján heiti ég,
Ólafsson. Eg er að kynna hérna
bæklinginn „Ferðafélagann“, sem
íþróttasamband ' lögregiumanna
gefur út í samvinnu við Umferðar-
ráð, í tiiefni af einhi mestu ferða-
helgi ársins, versltmarmannaheig-
arinnar.“ í „Ferðafélaganum“ eru
ýmsar fróðlegar greinar og barna-
efni. Bækiingnum • verður dreift
um þessa helgi og næstu, og geta
vegfarendur búist við því hvenær
sem er að verða stöðvaðir af lög-
reglu, sem að undangenginni at-
hugun á ástandi bifreiðar, öku-
manns og farþega afhendir við-
komandi „Ferðafélagann“. Börnin
í bifreiðinni fá Raðspil frá Tann-
verndarráði, til að fást við á ferða-
laginu. LDH/Tínmmynd: Pjetur
Könnun Skáís á útvarps-
hlustun 21 .júlí, fyrir Eff Emm:
EffEmm
vinsæl hjá
14-29 ára
Skáís hefur nýverið gert skoðana-
könnun fyrir útvarpsstöðina Eff
Emm. Hringt var í 550 símanúmer
og fengust 476 svör. Spurt var um
útvarpshlustun föstudaginn 21.júlí.
í könnuninni kemur fram að í aldurs-
hópnum 14 til 29 ára hlustuðu flestir
á Eff Emm, eða 75 einstaklingar af
121 sem svaraði.
Að öðru leyti voru niðurstöðurnar
þannig að flestir þeirra sem spurðir
voru, eða 154, höfðu hlustað á Rás
1 (samtals 244 klst.), næst í röðinni
kom Rás 2 með 127 hlustendur (237
klst.), þá Bylgjan með 103 hlustend-
ur (228 klst.), Eff Emm með 97
hlustendur (185 kist.) og loks Stjarn-
an með 61 hlustanda (127 klst.).
Hlustun á Rót og Alfa reyndist varla
mælanleg. LDH-
Leiðrétting
í fréttatilkynningu frá biskupi ís-
lands í gær, þar sem auglýst voru
prestsembætti laus til umsóknar,
misritaðist „farprestur" sem „fang-
aprestur". Rétt hljóðar auglýsingin
svo:
Annað embætti farprests þjóð-
kirkjunnar, sem séra Stína Gísla-
dóttir, nýkjörin sóknarprestur í Ból-
staðarhlíðarprestakalli, Húnavatns-
prófastsdæmi, hefur þjónað frá árs-
byrjun 1988.
Umsóknarfrestur til 14.ágúst n.k.
Tíminn biðst velvirðingar á þess-
um mistökum.
Arnarflug ræður
Magnús Bjarnason
Arnarflug hf. hefur ráðið Magnús
Bjarnason aðstoðarframkvæmda-
stjóra félagsins og mun hann taka til
starfa hjá Arnarflugi á næstu dögum.
Magnús, sem er 26 ára að aldri,
lauk stúdentsprófi frá Flensborgar-
skóla í Hafnarfirði árið 1983 og
B.Sc. prófi í viðskiptastjórnun í
Nova Úniversety í Bandaríkjunum
árið 1987. - ÁG