Tíminn - 29.07.1989, Síða 10
10 Tíminn
Laugardagur 29. júlí 1989
FRÉTTAYFIRLIT
VÍN - Fyrrum háttsettur
bandarískur sendiráðsstarfs-
maður sem erflæktur (njósna-
mál virðist hafa verið í tengsl-
um við sovéskan njósnara í
Vín, sem hefur erlent vegabréf,
að sögn lögreglustjórans i Vin,
Roberts Sazinger. Felix Bloch,
sem var næst æðstur (banda-
ríska sendiráðinu f V(n þar til
1987, hefur játað á sig njósnir
fyrir Sovétríkin og er mál hans
nú til rannsóknar hjá FBI, en
Bloch neitar að tjá sig um eðli
njósnastarfseminnar þannig
að erfitt gæti reynst ao finna
formlegan grundvöll fyrir
ákæru á hendur honum.
SEOUL - Arfavondir og ör-
væntingarfullir ættingjar fólks
sem var með kóresku DC-10
farþegaflugvélinni sem fórst
við flugvöíiinn ( Tripoli I Líbýu
í fyrraaag, spörkuðu (og slógu
til óeirðalögreglumanna sem
mynduðu varnarvega við al-
þjððlega flugvöllinn í Seoul (
gær. Ættingjarnir hugðust mót-
mæla ónógum og slitróttum
upplýsingum um bá sem
slösuðust eða létust í flugslys-
inu, með þv( að setjast niður í
flugstöðvarbyggingunni.
BEIRUT - Þúsundir Líbana
flúðu frá Beirut og nærliggjandi
bæjum (gær eftir fimm klukku-
stunda stanslausa stórskota-
liðs- og eldflaugabardaga milli
kristinna liðssveita og Sýrlend-
inga. HeimildirfráBeirút herma
að þúsundir eldflauga og
sprengjuodda hafi dunið a
Beirut og nærliggjandi byggð-
um (fyrrinótt og náði sprengju-
regnið alla leið upp (Bekeadal-
inn sem liggur nokkuð langt frá
borginni og er undir stjórn Sýr-
lendinga.
NIKOSIA - ( gær fóru fram
forsetakosninaar ( Iran og
spáðu dagblöðin því að forseti
þingsins, Ali Akbar Hashemi
Rafsanjani myndi vinna stór-
sigur. Ekki er búist við því að
úrslit liggi fyrir fyrr en á morgun,
sunnudag.
COLOMBO-I gær var útlit
fyrir að allt ætlaði að sigla I
strand ( samningaviðræoum
milli Indverja og Sri Lanka búa
þrátt fyrir nokkrar tilslakanir
þeirra síðarnefndu. Hins vegar
var talið að í gærkvöldi eða í
dag yrði gerð úrslitatilraun til
að komast að samkomulagi
um það hvenær indverskir her-
menn yfirgæfu Sri Lanka en i
dag, laugardag, eru tvö ár liðin
frá því að Indverjar sendu
herlið til hjálpar uppreisnar-
sveitum Tamila í norður- og
austurhéruðum landsins.
JERÚSALEM - Utanríkis-
ráðherra Israels, Moshe
Arens, varði í gær þá ákvörðun
að hafa samrað við Palestínu-
menn á herteknu svæðunum
um stjórnun þar, og sagði að
skortur á samráði við þá hafi
verið stærstu mistök ísraels-
manna (tuttugu ár.
STOKKHÓLMUR - Lög-
lærðir menn í Svtþjóð hafa
gagnrýnt harðlega sakfellingu
Christers Petterssons ( undir-
rétti í fyrradag, en hann var
dæmdur (l[fstíðarfangelsi fyrir
að hafa myrt Olof Palme. I
dóminum ( undirrétti sátu tveir
löglærðir menn og fjórir al-
mennir boraarar og lög-
mennirnir vildu sýkna Petters-
son vegna ónógra sönnunar-
aagna og hefur gagnrýnin sem
fram kemur á dominn tekið
undir sjónarmið lögfræðing-
anna. Verjandi Petterssons
hefur þegar áfrýjað dómnum
og verður að taka málið fyrir (
Hæstarétti innan tveggja mán-
aða. Á meðan situr Pettersson
inni.
MOSKVA - I yfirlýsingu frá
yfirflotaforinga soveska sjó-
nersins f gær kom fram að
Sovétmenn hafa á síðustu 25
árum misst 3 kjamorkukafbáta
f slysum sem kalla mætti alvar-
leg. Fjórði báturinn hafi sokkið
en tekist að ná honum upp
aftur án teljandi skaða.
iiiiiiiiiiin.il útlönd mniniiiiiiiiiiiiii;;N..; ................................................................................... ................................... .............................................. ................................... ......................... .........
ísraelsk vikingasveit rændi einum talsmanni Hizbollah:
Leiðtoga stolið í
skjóli náttmyrkurs
Árla í gærmorgun rændi ísraelsk víkingasveit manni, sem
sagður er vera leiðtogi hinnar íslömsku Hizbollah-hreyfíngar
í Suður-Líbanon á heimOi hans í þorpinu Jibsheet. Maðurinn,
sem er 36 ára að aldri, er Sheik Abdel Kareem Obeid, og er
hann sagður kunnur ræðumaður og áróðursmaður, sem ákaft
hvetur til hermdarverka gegn ísrael. Auk Obeids voru tveir
aðstoðarmenn hans teknir. Talsmenn bresku stjórnarinnar
hafa mótmælt mannráninu.
Skipti á Obeid og Higgins?
í gær sagði ísraelska útvarpið svo
frá að sveit tólf manna hefði lent á
þyrlu í þorpinu í skjóli náttmyrkurs,
læðst að húsi Obeids og gert árás á
það. Öll fjölskyldan var bundin og
snúist til varnar með hljóðdeyfðum
byssum gegn nágrönnum, sem hugð-
ust koma til hjálpar. Talsmaður
Hizbollah í Líbanon hefur staðfest
að mannránið hafi verið framið, en
sagt er að Obeid hafi lagt á ráðin um
ránið á bandaríska höfuðsmanninn-
um William Higgins í febrúar 1988.
Higgins starfaði þá með friðargæslu-
sveitum SÞ í Suður-Líbanon.
ísraelsher vildi ekki Iáta uppiskátt
um hvar Obeid væri í haldi, en sagði
engan víkingasveitarmannanna hafa
særst í aðgerðinni. Getgátur eru
uppi um að markmiðið með mann-
ráninu sé það að láta Obeid í
skiptum fyrir þrjá (sraelska
hermenn, sem er saknað frá 1986 og
eru taldir vera í haldi hjá Hizbollah-
mönnum. Líka er talið mögulegt að
ætlunin sé að fá nokkra gísla frá
Vesturlöndum látna lausa, fólk, sem
er í haldi hjá ofstækimönnum, er
íranar styðja, en íranir eru taldir
stuðningmenn Obeids.
Hernaðarþjálfun í íran
í yfirlýsingu ísraelska hersins, sem
gefin var út 14 stundum eftir árásina,
er Obeid ofan á annað sakaður um
að hafa séð skæruliðum Hizbollah
fyrir vopnum og vemda aðila sem
staðið hafa að eldflaugaárásum á
ísrael. Hann er talinn hafa fengið
skólun sína í hemaði í íran.
Eitt fimm bama Obeids, Saged,
sagði svo frá: „Þeir réðust á húsið og
miðuðu byssum á mig og mömmu og
bundu okkur. Svo bundu þeir fyrir
augun á pabba og hinum tveimur og
færðu þá burtu.“
Þorpið Jibsheet er 16 kflómetra
frá fsrael, handan við öryggisbelti,
sem ísraelar hafa sett upp, til þess að
varna árásum skærliða yfir norður-
landamærin. Hizbollah-menn segja
að árásin hafi tekið tæpa klukku-
stund. Þeir segja nöfn mannanna,
sem teknir vom auk Obeids, vera
Ahmad Obeid og Hashem Fahes.
Þotur gerðu sýndarárásir
íbúar á svæðinu segja að ísraelsk-
ar ormstuþotur hafi verið látnar
gera sýndarárásir í grenndinni, til
þess að deyfa hljóðið frá þyrlunum.
Á þessu ári hafa ísraelskar herþotur
gert allmargar árásir á stöðvar Hiz-
bollah manna í Suður- og Austur-
Líbanon. Þann 24. júní drápu ísra-
elskar sveitir sex Hizbollah skæm-
liða, meðan harðir bardagar stóðu
yfir í Bekadalnum.
Það em hin leyndardómsfullu
„Samtök kúgaðara þessa heims“,
sem segjast hafa rænt Higgins, en
þau em sögð á snæmm Hizbollah.
Upplýsingar hafa borist um að Higg-
ins hafi um hríð verið í haldi í húsi
Obeids í Jibsheet, en honum var
gefið að sök að vera njósnari.
Sem áður segir hafa bresk yfirvöld
mótmælt framferði ísraelsmanna og
skora á þá að láta Higgins lausan,
rétt eins og láta beri gísla lausa hvar
sem er. Hizbollah hefur í gíslingu
Bretana Terry Waite, John
McCarthy og ensk-írska kennarann
Brian Keenan.
Kandadísk þota með 254 innan-
borðs, nauðlenti íToronto í gær:
Enn eitt
óhapp hjá
DC-10 þotu
Kanadísk DC-10 þota nauðlenti í
Toronto f Kanada í gær, með 254
menn innanborðs. Talsmaður
flugfélagsins sagði að eitt hjól vélar-
innar hefði farið undan henni við
flugtak t Rio de Janeiro, tíu stundum
áður.
Nauðlendingin tókst í alla staði
vel, en hjólið var eitt af tíu hjólum
vélarinnar sem mest mæðir á við
lendingu.
Þetta er í þriðja skipti á tíu dögum
sem óhapp hendir DC-10 þotu. Á
þriðjudaginn brotlenti ein í Trípóli í
Lýbíu með þeim afleiðingum að 78
manns létu lífið og margir særðust. í
síðustu viku brotlenti DC-10 þota í
Iowa í Bandaríkjunum, þar sem 111
manns létust. Reuter/LDH
Myndin er frá slysinu í Iowa í
Bandaríkjunum fyrir 10 dögum.
Sviptingar í hinum alþjóölega tískuheimi:
„Keisarinn“ og Marianne stríða
Þau tíðindi hafa helst orðið eftir
hátíðahöldin á Bastilludaginn í
París, að Karl Lagerfeld, tísku-
hönnuður hjá Chanel neitar að starfa
með Ines de la Fressange, helstu
tískudömu tískuhússins. Stríðið á
milli þeirra fer fram í helstu blöðum
Parísar og hefur sett tískuheiminn
franska úr skorðum.
Til skýringar á því af hverju hann
hefur sagt skilið við de la Fressange,
segir Lagerfeld, að nú til dags þurfi
sýningardömur að vera kynþokka-
fullar. De la Fressange, sem fram til
þessa hefur talið Lagerfeld sinn
besta vin, hefur sakað hann um að
hegða sér eins og hann væri keisari
(þýskur) í andófi hans gegn nýjustu
afrekum hennar á tískusviðinu.
f maí s.l. völdu franskir borgar-
stjórar de la Fressange til að vera
fyrirmynd að brjóstmyndum af bylt-
ingahetjunni Marianne, sem í hug-
um Frakka er einskonar fjallkona.
Brjóstmyndum þessum er síðan
komið fyrir í ráðhúsum vítt um
landið. Lagerfeld blés á þessa ráð-
stöfun og kvað hana lýsa ómerkilegri
sveitamennsku. „Ég sníð ekki föt á
byggingar," sagði þessi vestur-þýski
tískuhönnuður við Le Figaro. í við-
talinu sagði hann að athæfi hennar
hryggði hann, „en hún vekur ekki
áhuga minn lengur. Ég hef ekki
hugsað mér að starfa með henni
framar. Hún kveikir ekki hug-
myndaflug mitt lengur. Ég bjó hana
til. Án mfn væri hún enn að hlaupa
á milli reynslumyndataka með
möppuna sína undir hendinni. Hún
er falleg en myndast illa.“
Illindin brutust út á milli Lagerfeld
og de la Fressange, sem fram til
þessa hefur verið helsta sýningar-
dama Chanel, þegar tilkynnt var að
hún kæmi ekki fram á forsýningum
á haust- og vetrartískunni. Viðtalið
við Lagerfeld í Le Figaro fylgdi i
kjölfar viðtals við de la Fresange í
sama blaði, þar sem hún auknefndi
Lagerfeld keisara og sakaði hann
um að öfundast út í velgengni
hennar. Lagerfeld sagði að Mar-
ianne-málið hefði verið dropinn sem
fyllti mælinn.
Þeir sem eru málum kunnugir í
tískuheimi Parísar halda þvi' hins
vegar fram, að Lagerfeld hafi reiðst,
þegar de la Fresange varð ófrísk á
síðasta ári. Ólétta hennar, sem end-
aði með fósturláti, hefði hindrað
þessa hálauna-tískustúlku í starfi.
Lagerfeld sagði að de la Fressange,
sem undirritaði sjö ára samning við
Chanel árið 1984, gæti unnið út
samningstímann, en ljóst væri að
hún yrði að verma öftustu bekki úr
þessu.