Tíminn - 29.07.1989, Blaðsíða 13
Laugardagur 29. júlí 1989
Tíminn 25
Ólafsvík hætti verkstjórastarfi fyrir
aldurs sakir á sunnanverðu og utan-
verðu Snæfellsnesi, tók Hjörleifur
við hans umdæmi og var verkstjóri
þar til ársins 1984 að hann hætti því
starfi. Eftir það vann hann við
hafnarvogina í Ólafsvík til síðustu
áramóta.
Á meðan Hjörleifur bjó í Hrísdal
vann hann að jarðabótum, ræktaði
tún og byggði fjárhús og hlöðu fyrir
fé sitt. Hann eignaðist bíl fyrr en
flestir sveitungarnir, stuttu eftir að
stríðinu lauk, árið 1945. Hann var
mjög hjálpsamur sveitungum sínum
og hljóp oft undir bagga, ef þörf var
á. Hann sótti ljósmóður til sængur-
kvenna eða ók fólki til læknis, ef
þess þurfti og var ætíð tilbúinn að
veita aðstoð sína jafnt að nóttu sem
degi. Á sama hátt veitti hann oft
ferðamönnum aðstoð einkum að
vetrarlagi, þegar færð var þung og
veður voru válynd. Ákaflega oft var
leitað til hans til að leysa úr vanda í
samgöngumálum. Eftir að hann varð
verkstjóri hafði hann stærri og
öflugri bíl til þeirra hluta en aðrir
menn í sveitinni höfðu ráð á. Þannig
leysti hann vanda margra manna.
Þau Kristín og Hjörleifur eignuð-
ust átta börn. Sjö eru á lífi. Þau eru
í aldursröð: Sigurþór, Sigurður
Grétar, Ríkarður, Edda Björk, Jó-
hann Bjarni, Hjörleifur Kristinn og
Bjöm Ægir. Þau eiga einnig stóran
hóp bamabama.
Hjörleifur hefur nú verið kallaður
til starfa hjá æðri máttarvöldum.
Sveitungar, frændur og vinir munu
sakna hans, en um leið þakka þeir
honum fyrir góða samfylgd og
hversu glaður hann gekk til allra
verka og hversu ljúft honum var
jafnan að veita aðstoð sína. Mestur
verður söknuðurinn hjá fjölskyldu
hans, Kristínu, bömunum og barna-
börnunum, þau missa mikils að
missa góðan heimilisföður og afa.
Ég og fjölskylda mín vottum þeim
innilega samúð við fráfall Hjörleifs.
Gunnar Guðbjartsson
Helga Magnúsdóttir
Fædd 5. júní 1921
Dáin 25. júlí 1989
Það var glaðleg og falleg stúlka
sem eldri bróðir minn, Friðrik,
kynnti fyrir fjölskyldu sinni sem
unnustu sína og konuefni.
Hún hét Helga Magnúsdóttir.
Dillandi hiátur hennar og glaðvært
viðmót og framkoma gaf heimili
foreldra minna hressandi andblæ.
Þau stunduðu bæði nám í Kenn-
araskóla íslands Friðrik og Helga, er
fundum þeirra bar saman. Bæði
vom þau áhugasöm um félagsmál og
í þeim brann eldur kristinnar trúar,
svo að þau þráðu af einlægni að fleiri
mættu höndla hamingju kristinnar
trúar. Stofnuðu þau þessvegna
ásamt nokkrum skóiasystkinum sín-
um og nokkrum kennurum kristileg
samtök kennara og kennaranema.
Helga hóf kennaranámið ári síðar
en Friðrik, sem lauk kennaraprófi
vorið 1942. En þessi hamingjusömu
ungmenni voru þá, góðu heilli, grun-
laus um að Friðrik mundi ekki lifa
svo lengi að hann fengi að gleðjast
næsta vor ásamt unnustu sinni er
hún lyki kennaraprófi.
Friðrik andaðist úr hvítblæði hinn
18. desember 1942.
Þegar Helga hafði lokið sínu
kennaraprófi vorið 1943, var hún
ráðin kennari við Skóla ísaks Jóns-
sonar og starfaði þar til ársins 1960
sem fastur kennari og var skólastjóri
þess skóla 1963-65. Árin 1960 til
1983 var hún ráðin æfingakennari
við Kennaraskóla ísl. og við Kenn-
araháskóla fslands er hann tók til
starfa.
Þegar Helga var orðin kennari við
Skóla ísaks Jónssonar, sem var þá í
gömlu Grænuborg, buðu foreldrar
mínir Helgu að búa á heimili sínu,
sem var í nágrenni skólans. Helga
bjó hjá þeim um nokkurt skeið.
Atburðir þeir sem ég nefndi fyrst
og síðan heimili Helgu hjá foreldrum
mínum, urðu þess valdandi að ég leit
ávallt á Helgu sem systur, eða náinn
ættingja. Við gátum rifist, rökrætt
eða hent á milli okkar gamni og
alvöru, svo sem systkini gera.
Á þessum fyrstu starfsárum sem
kennari stundaði Helga nám í pí-
anóleik og söng. Síðar bætti hún við
þessa menntun sína og notfærði sér
vel þá menntun við kennsluna. Hún
bar mikla virðingu fyrir starfi sínu,
skóla sínum og síðast en ekki síst
fyrir nemendum sínum.
Helga hafði góða og kraftmikla
sópran söngrödd. Frá bamsaldri
vandist hún við að syngja við guðs-
þjónustur í kirkjum þeim er faðir
hennar þjónaði. Hefur sú þjálfun
vafalaust verið henni góður undir-
búningur fyrir skólastarfið, en auk
þess söng hún í nokkrum kórum og
kom oft fram sem einsöngvari.
Það má teljast með ólíkindum hve
miklu hún kom í verk í frjálsu
kristilegu sjálfboðastarfi. Ég geri
ráð fyrir að það komi betur fram í
öðrum minningargreinum sem hér
birtast, svo sem starfið fyrir sumar-
búðir KFUK og kristniboðsfélögin.
Tryggð hennar var órofa hvort
heldur var við menn eða málefni.
Ég nefndi í upphafi að Helga hafi
verið glaðleg. Henni tókst að varð-
veita glaðlyndi sitt alla æfi. Þetta
glaðlyndi kom sér vel við kennslu-
störfin, bömin glöddust hjá henni,
foreldramir glöddust yfir að böm
þeirra vom hjá slíkum kennara.
Helga gat ausið af þeim bmnni
sem aldrei þomar. Guðs orð var
henni hjartans mál og hún hafði
mikið dálæti á orðum úr bréfi Páls
postula til Filippímanna, 4. kap.
4.-7. versi: Verið ávallt glaðir vegna
samfélagsins við Drottin, ég segi
aftur: verið glaðir. Ljúflyndi yðar
verði kunnugt öllum mönnum.
Drottinn er í nánd. Verið ekki
hugsjúkir um neitt, heldur gjörið í
öllum hlutum óskir yðar kunnar
Guði með bæn og beiðni ásamt
þakkargjörð. Og friður Guðs, sem
er æðri öllum skilningi, mun varð-
veita hjörtu yðar og hugsanir yðar í
samfélaginu við Krist Jesúm.
Drottinn, við þökkum þér fyrir
þjón þinn sem við kveðjum nú.
Bj.Ól.
fffl Háskólamenntaður starfsmaður
\ | f óskast til að sinna
" mælingum á loftmengun
Heilbrigðiseftirlit Reykjavfkur starfar í 2 deildum, heilbrigðis- og
umhverflsdeild. f umhverfisdeild er einkum unnið að eftirllti með
umhverfismengun, mengun frá fyrirtækjum og mengunarvörn-
um þeirra, sölu og notkun hættulegra efna og eiturefna. Búast
má við að starfseml delldarinnar aukist smátt og smátt á
komandi árum, sérstaklega ef lögbundnar reglur um mengun og
mengunarvarnir verða gefnar út.
í lok þessa árs hyggst heilbrigðisteftirlitið festa kaup á sérbúnum
vagni með sjálfvirkum tölvustýrðum mælitækjum til stöðugra
efnagreininga á köfnunarefnisoxíði (NOx), kolsýrlingi (CO) og
svifryki ásamt mælingum á veðurþáttum. Vagninum er ætlað að
fylgjast með loftmengun í Reykjavík og verður aðallega notaður
til reglubundinna mælinga. Leitað er að starfsmanni til að annast
þessar mælingar.
Viðfangsefni:
Starfsmanni þessum er ætlað að sjá um rekstur og
viðhald mælibúnaðarins, vinnslu og túlkun á mæliniður-
stöðum, og sinna öðrum verkefnum eftir þörfum,
aðallega tengdum loftmengun.
Kröfur:
Starfsmaður þarf að vera fær um að vinna með flókin
rafeindatæki og annast tölvuvinnslu gagna. Hann þarf
að vera nákvæmur í vinnubrögðum og eiga auðvelt
með að tjá sig skriflega og munnlega. Viðkomandi þarf
að vera háskólamenntaður og hafa góða undirstöðu-
þekkingu í efnafræði. Starfið krefst ennfremur þekking-
ar á sviði tölfræði, mælitækni, umhverfisheilsufræði og
vistfræði.
Starfið veitist frá 1. september n.k. eða eftir nánara
samkomulagi.
Laun verða samkvæmt kjarasamningum borgarinnar
við viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar um starfið gefa framkvæmdastjóri
Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur eða deildarstjóri um-
hverfiseftirlitsdeildarþess, Drápuhlíð 14 í síma 623022.
Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og starfs-
reynslu skal skilað til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur,
Drápuhlíð 14, fyrir 20. ágúst n.k.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavlkurborgar, f.h. Hitaveitu Reykjavlkur, óskar
eftir tilboðum í efni og vinnu við uppsetningu loftræstikerfis (
útsýnishús Hitaveitunnar í öskjuhlið. Helstu magntölur eru:
Blikk 8000 kg,
2 innblásturssamstæður,
15 blásarar,
22 hitarar.
Stjórnkerfi er ekki í þessu útboði.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 16. ágúst 1989, kl.
11:00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
TÖLVUNOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu.
I PRENTSMIÐIAN
PKtNlbMIUjANa^
[C^aaaj
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
Guðrún Guðjónsdóttir
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 1. ágúst n.k. kl.
13.30.
Hreggviður Stefánsson
Þórunn Björgúlfsdóttir
Guðbjörg Jónsdóttir
Stefán Már Stefánsson
Kristín Ragnarsdóttir
Guðrún Hreggviðsdóttlr
Þórunn Hreggviðsdóttir
Ása Hreggviðsdóttir
Jón Hrafnkelsson
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
Sigríður Hrafnkelsdóttir
Stefán Hrafnkelsson
Hannes Hrafnkelsson
Guðrún Hrafnkelsdóttir
og langömmubörn.
Anna Sigríður Stefánsdóttir
íris Guðrún Stefánsdóttir
Kristín Stefánsdóttir
Jakob Már Stefánsson
Ragnar Már Stefánsson
Hrafnkell Már Stefánsson
+
Hjartanlegar þakkir flytjum við öllum þeim sem auðsýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar og dóttur,
dóttur okkar og dótturdóttur
Ástu Jónu Ragnarsdóttur og
Hönnu Maríu Asgeirsdóttur
Sérstaklega þökkum við starfsliði Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
fyrir ómetanlega aðstoð.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd ættingja og annarra vandamanna
Ásgeir Vilhelm Bragason
Erla ívarsdóttir Ragnar Elínórsson
+
Þökkum innilega samúð og vinarhug vegna andláts og jarðarfarar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu
Ingimundu Þorbjargar Gestsdóttur
Austurtúni 2, Hólmavfk.
Jóhann Guðmundsson Soffía Þorkelsdóttir
Ingimundur Guðmundsson Ásdís Ólafsdóttir
Halldór Guðmundsson Sóley Tómasdóttir
Guðrún Guðmundsdóttir Guðmundur R. Jóhannsson
barnabörn og barnabarnabörn.