Tíminn - 29.07.1989, Blaðsíða 14
26 Tíminn
Laugardagur 29. júlí 1989
DAGBÓK
Ungt fólk með hlutverk:
Sólardagar í
Seltjarnarneskirkju
Ungt fólk með hlutverk ætlar að lífga
upp á líf sólþyrstra íbúa höfuðborgar-
svæðisins með samkomum í Seltjamar-
neskirkju þar sem flutt verður tónlist í
umsjón Þorvaldar Halldórssonar söngv-
ara, leikræn tjáning og vitnisburðir.
Fyrsta samkoman verður messa á
sunnudagskvöldið kl. 20.30 þar sem fram
fer altarisganga og létt tónlist verður
flutt. Séra Solveig Lára Guðmundsdóttir
þjónar til altaris og Jóhann Guðmundsson
predikar. Síðan er ætlunin að hafa rað-
samkomur í kirkjunni frá þriðjudeginum
1. ágúst.
AFTURELDING
1. tbl. 56. árgangs er komið út en það
er blað Hvítasunnumanna. Þar er m.a.
sagt frá heimsókn frá Kanada, velt vöng-
um yfir hvort dagsetningar séu biblíuleg-
ar. Smásagan Miðilsfundur eftir Eggert
E. Laxdal er í blaðinu og vitnisburðir
frelsaðs fólks. Einar J. Gíslason svarar
spumingum lesenda og Gunnar Bjama-
son segir frá því er hann hlaut lækningu í
Nasaret. Margt fleira efni er í blaðinu,
innlent sem erlent.
OLL VINNSLA
PRENTVERKEFNA
Við í Prentsmiðjunni Eddu tökum að
okkur hönnun og vinnslu á stórum og
smáum prentverkefnum.
Höfum yfir 50 ára reynslu í prentverki.
Reynið viðskiptin.
i PRENTSMIÐJANl
ct
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur.
Sími 45000.
BILALEIGA
meö utibú allt í kringum
landiö, gera þer mögulegt
aö leigja bíl á einum staö
og skila honum á öörum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendis
interRent
Bílaleiga Akureyrar
POSTFAX
TÍMANS
687691
FRANRUMN
BlLRÚÐUÍSETNINGAR .
OG INNFLUTNINGUR
SMIÐJUVEGI 30 S 670675
RÚÐUÍSETNINGAR í
ALLAR TEGUNDIR BIFREIÐA
EIGUM FLESTAR RÚÐUR
ÁLAGER
PÓSTSENDUM
NEYÐARÞJÓNUSTA Á KVÖLDIN
OG UM HELGAR
KJARTAN ÓLAFSSON ® 667230
GUNNAR SIGURÐSSON S 651617
Ferðafélag íslands
Helgarferðir um verslunarmannahelgi:
4.-7. ágúst kl. 20 Kirltjubæjarldaustur -
Lakagígar - Fjaðrárgljúfur. Gist í svefn-
pokaplássi á Kirkjubæjarklaustri. Dags-
ferð frá KirkjubæjarkJaustri á Lakagfga-
svæðið og Fjaðrárgljúfur. Verð kr. 6.250
(fyrir félagsmenn) og kr. 6.900 (fyrir
utanfélagsmenn).
4. - 7. ágúst kl. 20
Þórsmörk - Fimmvörðuháls. Gist í Skag-
fjörðsskála/Langadal. Dagsferð yfir
Firtimvörðuháls (tekur um 8 klst.) að
Skógum, þar sem rúta bíður og flytur
hópinn til Þórsmerkur. Einnig verða
farnar gönguferðir um Mörkina. Verð kr.
4.400 (í húsi f. félagsmenn) og kr. 4.850
(í húsi f. utanfélagsmenn).
4.-7. ágúst kl. 20 Landmannalaugar -
Hábarmur - Eldgjá. Gengið á Hábarm og
ekið í Eldgjá ef færð leyfir. Gist í sæluhúsi
Ferðafélagsins í Laugum. Verð kr. 4.700
f. félagsmenn og kr. 5.200 f. utanfélags-
menn.
4.-7. ágúst kl. 20 Sprengisandur - Skaga-
fjarðardalir (inndalir). Gist í sæluhúsi
Ferðafélagsins í Nýjadal (1 nótt) og
Steinstaðaskóla (2 nætur). Verð kr. 6.500
fyrir félagsmenn og 7.200 kr. fyrir utanfé-
lags.
Pantið tímanlega f ferðirnar. Farmiða-
sala á skrifstofu félagsins, Öldugötu 3.
Ferðafélag Íslands
Dagsferðir
Sunnudagur 30. júlí:
Kl. 08.00 Þórsmðrk - dagsferð. Verð kr.
2.000. Athugið afslátt Ferðafélagsins á
sumardvöl í Þórsmörk
Kl. 09.00 Gengið eftir Esju frá Hátindi -
komið niður hjá Ártúni. Verð kr. 1.000.
Kl. 13.00 Blikdalur. Létt göngufcrð.
Blikdalurinn kemur á óvart. Hann er
lengsti dalurinn sem inn í Esju skerst.
Verð kr. 800.
Miðvikudagur 2. ágúst:
Kl. 08.00 Þórsmörk - dagsferð. Verð kr.
2.000.
Kl. 20.00 Hrauntungustígur - Gljásel.
Létt kvöldganga. Verð kr. 600.
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir
börn. Ferðafélag islands
Ferðafélag tslands:
Sumarleyfisferðir
28. júlí-2. ágúst: Landmannaiaugar -
Þórsmörk. Gönguferð milli sæluhúsa.
Nokkur sæti laus. Fararstjóri: Hreinn
Magnússon.
3.-8. ágúst: Landmannalaugar
Þórsmörk. UPPSELT!
9.-13. ágúst: Eldgjá - Strútslaug - Álfta-
vatn. Gönguferð með viðleguútbúnað.
Fararstjóri: Páll Ólafsson.
9.-13. ágúst: Landmannalaugar -
Þórsmörk. Fararstjóri: Ámi Geir.
11.-17. ágúst: Kirkjubæjarklaustur -
Fljótsdalshérað - Borgarfjörður eystri -
Vopnafjörður - Laugar í Reykjadal -
Sprengisandur. Fararstjóri: Baldur
Sveinsson.
11.-16 ágúst: Landmannalaugar -
Þórsmörk. Fararstjóri: Árni Sigurðsson.
16. -20. ágúst: Þórsmörk - Landmanna-
laugar. Fararstjóri: Leifur Þorsteinsson.
Farið til Þórsmerkur á miðvikudegi og
samdægurs á Emstrur. Síðan sem leið
liggur að Álftavatni næsta dag, á þriðja
degi verður komið í Hrafntinnusker og á
fjórða degi til Landmannalauga.
17. -20. ágúst: Núpsstaðarskógur. Gist í
tjöldum. Gönguferðir m.a. á Súlutinda.
Fararstjóri: Hilmar Þór Sigurðsson.
18. -23. ágúst: Landmannalaugar -
Þórsmörk. Fararstjóri: Þráinn Þórisson.
23.-27. ágúst: Landmannalaugar -
Þórsmörk. Fararstjóri: Dagbjört Oskars-
dóttir.
25.-30. ágúst: Landmannalaugar -
Þórsmörk. Fararstjóri: Jóhannes I.
Jónsson.
Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu
Ferðafélagsins, Oldugötu 3.
Ferðafélag fslands
útivist
Sunnudagsferðir 30. júli:
Kl. 8 Þórsmörk - Goðaland. Stansað 3-4
klst. f Mörkinni. Verð 1500 kr.
Kl. 13 Landnámsgangan 16. ferð - Heið-
arbær - Nesjar. Fróðleg og skemmtileg
ganga með strönd Þingvallavatns. Spenn-
andi jarðfræði og þjóðsögur við hvert
fótmál. Verð 1000 kr.
Útivist, ferðafélag
útivist
Ferðir um verslunarmannahelgi 4.-7.
ágúst.
1) Þórsmörk. Heim á sunnudegi eða
mánudegi. Einnig sunnudagsferð. Gist f
Útivistarskálunum Básum. Gönguferðir.
2) Langisjór - Sveinstindur - Lakagígar -
Fjallabaksleið syðri. Gist ( svefnpoka-
plássi í hinu vinalega félagsheimili Skaft-
ártungumanna, Tunguseli. Dagsferðir
þaðan. Fararstj. IngibjörgS. Ásgeirsdótt-
ir.
3) Núpsstaðarskógar. Tjöld. Kynnist
þessu margrómaða svæði. Gönguferðir
m.a. að Tvílitahyl. Fararstj. Hákon J.
Hákonarson.
4) Hólaskógur - Landmannalaugar -
Gijúfurieit. Ný ferð. Gist í húsum. M.a.
skoðaðir tilkomumiklir fossar í Þjórsá,
Gljúfurleitarfoss og Dynkur.
Ennfremur dagsferðir í Þórsmörk á
sunnudag og mánudag.
Munið fjölskylduhelgina í Þórsmörk
11.-13. ágúst. Uppl. og farm. á skrifstof-
unni Grófinni 1, símar: 14606 og 23732.
Útivist, ferðafélag
Myndin er tekin í Viðey 1970 af sláttumanni með orf og Ijá.
Heyjað með gamla laginu
í dag, laugardag verður heyjað í Árbæj-
arsafni ef veður leyfir og verður slegið
með orfi og ljá. Ennfremur rifjað, rakað,
tekið saman og bundið í bagga. Að lokum
verður heyið reitt á klökkum heim í
hlöðu.
Gestum er boðið að taka þátt í hey-
skapnum og læra þessi gömlu vinnubrögð,
sem tfðkuð voru mann fram af manni en
eru nú óðum að hverfa. Við heyskapinn
fá gestimir svör við ýmsum spumingum
s.s.: Hvemig dengdu menn ljái? Hvers
vegna þótti betra að hefja slátt með
vaxandi tungli? Hvað var hólmaskítur?
Hvað merkti það að hafa flekk við flekk
um alla slægjuna? Úr hverju vom bagga-
böndin gerð og hvemig vom þau hnýtt?
Heyskapurinn hefst kl. 13.00 og hætt
kl. 17.30. SláttukaffiverðuríDillonshúsi.
Guðsþjónustur
í Reykjavíkurprófastsdæmi
sunnudag 30. júlí 1989
Árbæjar- og Grafarvogssókn. Guðsþjón-
usta í Árbæjarkirkju kl. 11 árdegis.
Prestur sr. Ólafur Jens Sigurðsson. Org-
anleikari Jón Mýrdal. Sóknarprestur.
Áskirkja. Guðsþjónusta kl. 11. Prestur
sr. Jón Dalbú Hróbjartsson annast guðs-
þjónustuna. Sóknarprestur.
Breiðholtskirkja. Messa kl. 11. Altaris-
ganga. Organleikari Daníel Jónasson. Sr.
Gísli Jónasson.
Borgarspítaiinn. Guðsþjónusta kl. 10. Sr.
Sigfinnur Þorleifsson.
Bústaðakirkja. Guðsþjónusta kl. 11. Org-
anisti Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Pálmi
Matthíasson.
Dómkirkjan. Messa kl. 11. Dómkórinn
syngur. Organleikari Kjartan Sigurjóns-
son. Sr. Hjalti Guðmundsson.
EUiheimilið Grund. Guðsþjónusta kl. 10.
Organleikari Kjartan Ólafsson. Sr. Ólaf-
ur Jóhannsson. Félag fyrrverandi sóknar-
presta verður með guðsþjónustu í Hvera-
gerðiskirkju kl. 14. Sr.Gigurður Pálsson.
Fella- og Hólakirkja. Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústs-
son. Organisti Þórhildur Bjömsdóttir.
Sóknarprestar.
Grensáskirkja. Guðsþjónustakl. 11. Org-
anleikari Ámi Arinbjamarson. Sóknar-
nefnd.
Hailgrímskirkja. Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Karl Sigurbjömsson. Þriðjudagur:
Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10:30. Beðið
fyrir sjúkum.
Háteigskirkja. Messa kl. 11. Sr. Amgrím-
ur Jónsson. Kvöldbænir og fyrirbænir em
í kirkjunni á miðvikudögum kl. 18. Prest-
arnir.
Kópavogskirkja. Guðsþjónusta kl. 11
árdegis. Guðný Hallgrímsdóttir guð-
fræðinemi prédikar. Sr. Ámi Pálsson.
Langholtskirkja. Kirkja Guðbrands
biskups. Guðsþjónusta kl. 11. Organleik-
ari Ólafur Finnsson. Kaffi verður á könn-
unni f safnaðarheimilinu eftir messu. Sr.
Þórhallur Heimisson.
Laugameskirkja. Vegna viðgerða á kirkj-
unni messar Jón DaJbú Hróbjartsson í
Áskirkju næstu sunnudaga kl. 11. Sóknar-
prestur.
Neskirkja. Guðsþjónusta kl. 11. Orgel og
kórstjóm Reynir Jónasson. Miðvikudag:
Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 18:20. Sr.
Ólafur Jóhannsson.
Seljakirkja. Kvöldguðsþjónusta kl. 20.
Pétur Eiríksson básúnuleikari og Hólm-
fríður Þóroddsdóttir óbóleikari leika.
Sóknarprestur.
Seltjarnameskirkja. Guðsþjónustakl. 11.
Fermd verður Heiðrún Yr Júliusdóttir,
búsett í Svíþjóð, p.t. Hraunbæ 75,
Reykjavík. Þóra Guðmundsdóttir leikur
á orgel. Prestur sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir. Kvöldmessa kl. 20:30. Jó-
hann Guðmundsson prédikar. Ungt fólk
með hlutverk sér um tónlistina. Prestur
sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Sam-
komur verða f kirkjunni þriðjudags-,
miðvikudags- og fimmtudagskvöld kl.
20:30 á vegum UFMH. Allir velkomnir.
Félag eldrí borgara
Opið hús á morgun, sunnudag í Goð-
heimum, Sigtúni 3. Kl. 14: Frjálst spil og
tafl. Kl. 20: Dansað. Ath. Lokað verður
vegna sumarleyfa ( Goðheimum, Sigtúni
3, frá og með 1. ágúst nk.
Farin verður 12 daga ferð um Austfirði
8. ágúst nk. Upplýsingar á skrifstofu
félagsins.
Verkakvennafélagið Framsókn
minnir á sumarferðalagið. Farið verður
til Vestmannaeyja helgina 12. og 13.
ágúst. Upplýsingar og skráning á skrif-
stofunni.
FREYMi
FREYR
nr. 13 1989, er kominn út. f ritstjómar-
grein er sagt frá aðalfundi sænsku bænda-
samtakanna 1989 og viðbrögðum Svía við
ákvörðunum GATT-toliabandalagsins.
Gunnar Guðbjartsson rekur 35 ára sögu
Áburðarverksmiðjunnar. Hallgrímur
Guðjónsson frá Hvammi segir frá búskap
í A.-Húnavatnssýslu á kreppuárunum og
fjárkaupum á Vestfjörðum. Þýdd grein er
um hlutverk konunnar í landbúnaðinum.
Jón Viðar Jónmundsson skrifar um notk-
un vaxtarhormóna í mjólkurframleiðslu.
Óttar Geirsson segir frá breytingum á
jarðræktarlögum. Sagt er frá brautskrán-
ingu búfræðikandidata á Hvanneyri i vor.
Dr. Anna Guðrún Þórhallsdóttir skrifar
um fæðuval sauðfjár. Fleira efni er í
blaðinu.
iSLENSKT - DANSKT
HEIMIU ______ _____
«m«t su»'» ómomoAR meistaravebk I
-It-.SH « vímhtKM m tttóM ALDARGÓMUtHÚSI
Ö J BOiáW^WARHARAUÍS IKAUPMAMMAHAFN
PanniS *
Hús S hfeýii
blómaekáJí?
Hús & híbýli
3. tbl. ársins, er komið út. Auk hinna
hefðbundnu innlita er á mörgum sfðum f
blaðinu efni sem tengist sumrinu og
sumarverkunum. í blaðinu er t.d. fylgst
með smíði eins blómaskála frá upphafi til
enda, sem auðveldar þeim sem í slíka
smíði ætla að ráðast að gera sér grein fyrir
framkvæmdinni. Einnig er í blaðinu fróð-
leg grein um blómarækt í garðskála. í
Danmörku hefur vakið athygli gamalt
hús sem íslenskir og danskir hugvits- og
handverksmenn hafa haft samvinnu um
að breyta. Litið er inn á heimili Jönu og
Svenna sem þekkt eru úr skemmtanaiðn-
aðinum, og Ingibjargar Pálsdóttur innan-
hússhönnuðar. Þá er komið við í eldhús-
um þeirra Hilmars B. Jónssonar, Skúla
Hansen og Sigmars B. Haukssonar.
Margt fleira efni er í blaðinu.